Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Síða 15
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. 15 Það munu margir sakna kaupmannsins á horninu „Það kann að vera að einstaka hlutir séu ódýrari í mörkuðunum í aurum og krón- um. En ef allt væri tekið með í reikninginn og dæmið gert upp á milli áðumefhdra verslunaraðila, hygg ég að aurunum og krónunum færi að fækka, mörkuðunum í hag.“ Eins og nú horfir í dag bendir margt til þess að svokallaðir stór- markaðir séu að yfirtaka verslunina. Þessir markaðir eru byggðir á opn- um svæðum þar sem mikið rými er ætlað fyrir bílastæði og sjálfeagt má finna dæmi þess að stórfé af hálfu hins opinbera sé lagt í aðkeyrslu, a.m.k. að sumum stórmörkuðum, sem gerir akstur að þeim hinn þægi- legasta. Undir þaki stórmarkaðanna má finna flestar tegundir af vörum, ætar sem óætar. Þá eru þar afmörkuð svæði með leikföngum, vídeósýning- um og stundum sælgæti fyrir bömin til þess að dveljast við meðan for- eldramir sinna viðskiptum. Oft er boðið upp á kaifi og meðlæti, og allt er þetta rækilega auglýst. Það er í engu sparað til að ná í viðskiptavin- ina. Sterkur áhrifavaldur Þá þykja markaðimir heppilegir til vinafunda og yfirfylltir vömvagn- ar em sagðir merki um hagstæð innkaup. En það er eins og kaupæði grípi fólk, margt af því sem er í vögn- unum mætti vel missa sín, eins og ein kona sagði við mig eftir stór inn- kaup. Þessi verslunarmáti hefúr fyrst og fremst bitnað á „kaup- manninum á hominu“, hverfiskaup- manninum, sem hefur orðið að þola minnkandi viðskipti, nema þá helst á svokallaðri vísitöluvöm, svo sem mjólk, kaffi, brauði, kjötvöm og fleira smávegis til daglegrar notkun- ar. Til dæmis má nefna að álagning á mjólk er innan við 10% en var meðan Mjólkursamsalan rak sínár Kjátlariim Guðlaugur Guðmundsson kaupmaður eigin mjólkurbúðir 15-17%. Allar þær vörur, sem ég hef áður nefnt, vom um árabil og em kannski enn notaðar sem sterkur áhrifavaldur á allt kaupgjald í landinu til þess að halda dýrtíðinni niðri. Mjólk og kjötvörur þurfa dýr ffysti- og kælitæki. Við okkur kaup- menn er sagt af því opinbera: „Þið fáið góða álagningu á kex, ávexti og fleira sem bætir ykkur hitt upp.“ Á fyrstu árunum, sem þessi þróun fór fram í verslun, fóm stórmarkað- irnir að byggja sig upp og seldu eingöngu há-álagningarvöm með aðeins lægri álagningu en almennar matvömbúðir, án þess að líta á vísi- töluvöruna og gerast meðábyrgir í ríkjandi hagkerfi. Þeir þurftu ekki að kaupa hin rándým kæli- og frysti- tæki, en nú hafa þeir snúið við blaðinu og tekið allt inn í sína mark- aði. Spila á freistingar Kaupmaðurinn á hominu hefur þjónað borgarbúum í áratugi og not- ið vinsælda hjá viðskiptavinunum. Böm og gamalmenni hafa verið send með innkaupamiða til kaupmanns- ins, húsmóðirin hefúr þar fengið óskir sínar uppfylltar og horfið til síns heima með vinsamlegar ráð- leggingar um matreiðsluna og meðferð vörunnar. Það hefur því myndast visst samband milli kaup- mannsins á hominu, hverfiskaup- mannsins, og viðskiptavinarins, byggt á gagnkvæmu trausti og vin- áttu. Hverfiskaupmönnunum hefur fækkað og sumir spá að þeir hverfi innan fárra ára. Verður þá hægt að senda bamið eða gamla manninn nokkur hundmð metra, eða verður þá að sækja marga kílómetra eftir lífsbjörginni í stórmarkaðinn? Þar verður varla tekið við innkaupamiða úr lófa litla bamsins eða úr krepptri hönd öldungsins. Nei, það er víst að margir mimu sakna kaupmannsins á hominu. Þá verður ekki um annað að ræða en að ræsa bílinn og aka kannski nokkra kílómetra í stórmarkað. Hvað kostar það í eldsneyti fyrir bílinn, tíma og oft á tíðum ofkeypt- um vamingi? Og er ekki verið að koma bömunum upp á meira en þau í raun hafa gott af, því markaðimir byggja upp á því að spila á freisting- ar ungra sem gamalla. Það kann að vera að einstaka hlutir séu ódýrari í mörkuðunum í aurum og krónum. En ef allt væri tekið með í reikninginn og dæmið gert þannig upp á milli áðumefndra verslunaraðila, hygg ég að aurunum og krónunum færi að fækka, mörk- uðunum í hag. En traustið og vináttan við kaup- manninn er að baki Seljast eins og heitar lummur Nokkuð hefur verið skrifað um áfengisútsölur ríkisins. Þar byrjaði Þröstur Ólafsson, formaður KRON, sem af eðlilegum ástæðum fannst það undarlegt, að þegar KRON keypti Víði í Mjóddinni, var skyndi- lega hætt við áform um áfengisút- sölu, sem þar átti að koma og ákveðið haföi verið af fyrrverandi fjármáhu'áðherra. Staðurinn haföi í engu breyst, aðeins orðið eigenda- skipti. Það kæmi ekki é óvart þó fleiri en Þröstur hafi orðið undrandi á slíkum viðbrögðum fjármálaráð- herra. I Kringlunni eða Hagkaupum haföi fyrrverandi fjármálaráðherra keypt pláss fyrir 40 milljónir, að sagt hefur verið, og þá um leið aðrar verslunareiningar farið að seljast eins og heitar lrnnmur. Það sjá allir að þetta stóreykur viðskipti í Kringl- unni um milljónatugi með árunum. í þessu sambandi vil ég segja að ég er sammála Félagi matvörukaup- manna og Gunnari Snorrasyni, sem hafa bent á að létt vín, matarvín, ættu að vera á boðstólum í öllum matvöruverslunum. Að lokum þetta, Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra! Láttu Hagkaup endurgreiða þess- ar 40 milljónir, það má styrkja með þeim aðra sem hafa meiri þörf fyrir þær. Að öðrum kosti afturkallar þú opnun áfengisútsölu þar. Gerðu Kaupstaðnum svo sömu kosti. Ríkið á ekki bara að vinna fyrir séra Jón. Guðlaugur Guðmundsson Osjálfstæðir einstaklingar í Háskóla Islands Stúdentagengið er félag háskóla- stúdenta um og yfir 30 ára aldri og er meiri hluti félagsmanna konur. Margar þeirra hafa átt í erfiðleikum með að fá námslán vegna þess að eiginmenn þeirra hafa verið taldir of tekjuháir. Okkur þykir ástæða til að líta á hjón sem tvo sjálfetæða einstaklinga. Undanfarið hefur þróunin orðið sú að tvær fyrirvinnur þarf til að fram- fleyta heimili. Flestar þessara kvenna hafa unnið utan heimilis þar til þær hófu nám og hefur heimilið þurft á tekjum þeirra að halda. Þá er ótalin sú staða kvenna að þurfa að ganga bónarveg í hvert sinn er þær þurfa á peningum að halda varðandi nám sitt. Nokkuð er síðan hætt var að tengja greiðslu atvinnuleysisbóta tekjum maka en það er m.a. viður- kenning á þeirri staðreynd að í hjónabandi er um tvo einstaklinga að ræða. Önnur viðurkenning á þessu er sérsköttun hjóna og okkur finnst ástæða til að ganga út frá sömu við- miðun við veitingu námslána, Þjóðfélag okkar hefúr breyst óhemju mikið á síðustu áratugum. Menntunarkröfur vaxa ár frá ári. Fjöldamörg ný starfsheiti hafa skot- ið upp kollinum og menntunarkröfur til eldri starfa hafa aukist. Þjóðfélag- ið hefur komið til móts við þessa þróun með því að fjölga þeim skólum sem útskrifa nemendinr með stúents- próf og ýmis starferéttindi. I dag eiga fleiri kost á slíku námi í sinni heima- byggð. Meirihluti konur Svar skólakerfisins við þeirri kröfii að þeir sem eldri eru en „tvævetur“ þyrftu á aukinni skólagöngu að KjaUaiinn Þóra I. Stefánsdóttir námsmaður Alma Vestmann námsmaður námi ef það á annað borð þarf á aðstoð sjóðsins að halda. Hér skal bent á nokkur atriði. Þegar bjartsýnishjón i stundar- brjálæði reyna að auka menntun annars aðilans þá reynir það hjón- anna, sem vinnur fyrir kaupi, að taka alla þá aukavinnu sem býðst. Við þetta hækka tekjur þess og meira af þeim fer í hærra skattþrep. unglinga eru í flestum tilfellum lægri en framfærslukostnaður þeirra. Á haustönn 1986 var hjónum ætlað að lifa af 43.100 kr. og er það naumt skammtað þó að ekki þurfi að taka af því hluta framfærslukostnaðar unglings. Mismikill réttur til menntunar Fyrir utan hinn fjárhagslega „Reglur sjóðsins virðast við fyrstu sýn vera til þess gerðar að þetta fólk hrökklist frá námi, ef það á annað borð þarf á að- stoð sjóðsins að halda.“ halda voru öldungadeildimar. Þörf- in var brýn sem sést á þeim fjölda nemenda sem hefja nám alls staðar þar sem öldungadeildir taka til starfa. Gegnum þessar deildir hefur Hí fengið marga góða nemendur sem lokið hafa prófi með láði og tekið til starfa á öðrum vettvangi en áður. Þessir nemendur eru e.t.v. tveimur til þremur áratugum eldri en þeir sem fara hina heföbundnu leið skólakerfisins en þeir hafa oft reynslu sem hinir eiga eftir að til- einka sér. Meirihluti þeirra nem- enda, sem hafa lokið námi í öldungadeildum, er konur, enda var til skamms tíma mun algengara að konur vikju af menntabrautinni en karlar. Ástæður voru margvíslegar, t.d. viðhorf til menntunar, menntun- arkröfur voru aðrar, hjúskapur, bameignir o.fl. Flestir sem stunda nám í öldunga- deildum gera það með fullri vinnu en nemendur utan höfuðborgar- svæðisins þurfa oft að sækja dag- skólann til að geta lokið stúdents- prófi. Reynir þá á það hvemig gengur að semja við vinnuveitanda um að fá að „skreppa11 í tíma. Þessir nemendur eru ekki lánshæfir í Lána- sjóði íslenskra námsmanna og fá enga fyrirgreiðslu aðra en skattaaf- slátt. Hærri skattur, meiri námslán En þó að það takist að klofa yfir þennan þröskuld þá tekur annar hærri við ef þessir nemendur eru svo bjartsýnir að ætla sér í nám við Háskóla íslands. Það nám er erfitt að stunda með fullri vinnu og því verður að treysta á LÍN. En þá fyrst tekur steininn úr. Reglur sjóðsins virðast við fyrstu sýn vera til þess gerðar að þetta fólk hrökklist frá Afleiðingin verður hærri skattur, engin námslán, því námslánin eru tengd tekjum makans. Með öðrum orðum: einstaklingurinn er „hjón“. Hér er ekki spurt um skuldir, aðeins tekjur. Oft eru unglingar í ólánshæfú námi á heimilinu. Að vísu er nú far- ið að lána til framfæris þessara unglinga til 18 ára aldurs og er það til bóta. Heimilt er einnig að veita lán vegna unglinga, eldri en 18 ára, í ólánshæfú námi en þá dragast sum- artekjur þeirra frá lífeyrinum og nýtist þetta ákvæði því ekki náms- mönnum nema þessir unglingar stundi litla sem enga sumarvinnu eða þurfi ekki að telja tekjur af henni fram til skatts. Á haustönn 1986 nam þessi lánsviðbót rúmum 4.000 krónum fyrir fyrsta bam en rúmum 3.000 krónum fyrir hvert bam eftir það. Sumarvinnutekjur vanda kemur einnig til beinn og óbeinn þrýstingur á námsmanninn að hætta þessu streði. Ættingjunum finnst oft illa farið með „veslings Jónatan" og bömin og nær væri að sinna heimilinu en vera sí og æ að vesenast í þessum skóla, jafnvel að sitja yfir skruddum á kvöldin og um helgar. Þjóðfélagið gerir því auknar kröf- ur til menntunar þegnanna án þess að gefa þeim öllum jöfri tækifæri til að afla sér hennar. En hvemig væri þetta ef makinn væri andvígur þessu námsbrölti? Er þá e.tv. eina ráðið að slíta hjúskap? Sú krafa virðist gerð til fjölskyldufólks, sem vill mennta sig, að það selji eigur sínar eða skilji við maka sinn. Eftir sem áður hafa allir rétt til menntunar, aðeins mismikinn. Alma Vestmann, Þóra I. Stefánsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.