Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Page 27
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987.
39
dv Sandkom
Dominerandi
Fats Domino gerði storm-
andi lukku á Akureyri, eins
og hans var von og vísa. Hann
bjó á KEA en aðrir í hljóm-
sveitinni á Hótel Akureyri
sem Laufdal er með á leigu.
Hann kom með einkaþotu
Þotuflugs en hinir með áætl-
unarflugi Flugleiða. Domino
var með lífvörð og hafði
Mercedes Benz við höndina
ef hann þyrfti að skreppa eitt-
hvað. Hinir röltu um bæinn á
tveimjafnfljótum.
Þetta kallar maður að vera
dominerandi.
Domino
kulvís?
Það kom gestum í Sjallan-
um á óvart hve heitt var þar
þegar Domino spilaði. Haft er
fyrir satt að hann hafi fyrir-
skipað að húsið yrði kynt í
botn á meðan hann spilaði.
Sömu sögu var að segja þegar
hann borðaði uppi í Mánasal.
Þar var eins og í gufubaði.
Platters
Nú heyrist að hljómsveitin
Platters, sem kom til íslands
fyrir nokkrum árum, sé á leið-
inni aftur upp á Frón. Hún
mun koma norður til Akur-
eyrar og skemmta í Sjallanum.
En nóg um það í bili
Oddurekki
heftur
Prentsmiðja Odds Bjöms-
sonar á Akureyri ætti ekki að
vera ávísanaheft næstu þrjú
árin. Prentsmiðjan hefur feng-
ið það verkefni að prenta
tékkheftin fyrir Landsbanka
íslands. Rætt er um að við-
skiptavinir Landsbankans
noti 150.000 tuttugu og fimm
blaða hefti og 40.000 fimmtíu
blaða hefti á ári.
Skattstiginn
og KEA
Allt er nú að verða vitlaust
á Akureyri vegna þess að
rúllustiginn í vöruhúsi KEA
var tekinn úr notkun. Það
þótti alltaf meiri háttar sport
að fara upp rúllustigann. Nýr
rúllustigi kostar þrjár milljón-
ir króna og setja menn verðið
fyrir sig þannig að hefðbund-
inn stigi er notaður núna. Sagt
var um þennan ífægasta
rúllustiga á Akureyri að hann
væri eins og skattstiginn, færi
aðeins í eina átt, upp.
Skemmtileg samlíking nema
það vill bara enginn lenda í
efsta þrepinu.
Hræddir
Framarar
Nú er maður alveg hættur
að skilja lafhrædda Fram-
sóknarmenn vegna framboðs
Stefáns Valgeirssonar. Snorri
Finnlaugsson, formaður Kjör-
dæmissambands Framsóknar-
flokksins á Norðurlandi
eystra, sagði í Degi á föstu-
daginn:
„Stefán Valgeirsson sagði í
sjónvarpsviðtali að framboð
sitt væri óháð fr amboð. I víð-
ustu merkingu þess orðs er þá
ekki um að ræða stjómmála-
samtök og því þarf ekki að líta
á það sem sjálfsagða úrsögn
úr Framsóknarflokkum, þótt
menn fari í framboð fyrir slíkt
afl.“
Ég held að Stefán verði nú
að fá HB sem listabókstaf, sem
stendur fyrir Hræðslubanda-
lagið. Það er að sjálfsögðu
mjög óháð afl, að minnsta
kosti mjög óháð Stefáni.
Bárðurog
Gisli
Bárður Halldórsson,
menntaskólakennari í MA,
hefur kvartað yfir ffétta-
mennsku Gísla Sigurgeirsson-
ar, fréttamanns sjónvarpsins,
vegna Sturlumálsins í Kast-
ljósi. Bárður var sá eini sem
sté í pontu og studdu Sverri.
I Kastljósi sleppti Gísli hon-
um.
Nú er sagt um Gísla á Akur-
eyri að hann hafi verið
bölvaður aulabárður.
Bárður Halldórsson.
Gísli Sigurgeirsson.
Nautsterkir
Þeir Jón Páll og Capes, sem
reyna kraftana á Ungó-mót-
inu á Húsavík í sumar, velja
ekki mjög unga leiki til að
keppa í. Þeir ætla að reyna
með sér í hráskinnsleik en sá
leikur hefur ekki verið stund-
aður á fslandi í 800 ár eða frá
því á Sturlungaöld hinni fyrri.
Hráskinnsleikur felst í því að
togast er á um blauta nauts-
húð. Ábyggilega bestu skinn,
þeir Jón ogCapes.
Reagan
76ára
Reagan Bandaríkjaforseti
varð 76 ára á föstudaginn. Það
er sagt að hann hafi hringt í
kunningja sinn, Bob Hope,
sem kominn er yfir áttrætt og
boðið honum í afmælið sitt.
Hope var fljótur til svars að
vanda og sagði:
„Ég fer ekki í bamaafmæli."
Umsjón:
Jón G. Hauksson
Dömur og herrar:
Núdrífiðþið
ykkur í leikfimi!
Tímarviðallra hæfi
5 vikna námskeið
byrjar 16. febrúar
Leikfimi fyrir konur á öllum
aldri.
Hressandi, mýkjandi, styrkj-
andi ásamt megrandi
æfingum.
Nýtt!
Bjóðum einnig
músíkleikfimi.
Karlmenn
Hinir vinsælu herratímar eru
í hádeginu.
Þarftu að missa
15 kíló?
Sértímar fyrir konur sem vilja
léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og
þær sem eru slæmar í baki eða
þjást af vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, nýinnréttuð
gufuböð og sturtur. Kaffi og
sjónvarp í heimilislegri setu-
stofu.
ðöáraí
,1957-1987
Brautryðjendur
Júdódeild Ármanns, sem
verður 30 ára á þessu ári, er
brautryðjandi í frúarleikfími.
Mörg hundruð, ef ekki þús-
undir kvenna, hafa tekið þátt
í starfi okkar - viltu ekki slást
í hópinn? Fyrsti prufutíminn
ókeypis.
Innritun
og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl.
13-22 í síma
83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
ALTERNATORAR
STARTARAR
NÝiR OG VERKSMIÐJUENDURBYGGÐIR í
Chevrolet Nova, Blaser, Malibu, Oldsmobile dísil,
Ford Bronco, Fairmont, Maveric, Dodge
Dart, Aspen, Ramcharger, Wagooner, Cherokee,
Hornet, AMC,Toyota, Datsun, Mazda, Mitsub-
ishi, Lada, Fiat, Land Rover, M. Benzo.fl. o.fl.
Einnig tilheyrandi varahlutir.
Mjög hagstætt verð. Póstsendum.
BILARAF HF.
Borgartúnl 19. Siml 24700.
Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777
íO
s >1
4 Í*C
fVí'
CZ5
moigna
....hei/sunnar vegna
/ILRNE
Toppurinn í bíltækjum
Flestir LAMBORGHINI bílar hafa Alpine hljómtæki.