Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. Fréttir Portisch kvartar. DV-mynd: S Portisch strax með aðfínnslur - verðlaun hækkuð Það ku ekki vera auðvelt að gera hinum snjó- og myrkfælna stórmeist- ara í skák, Lajos Portisch, til geðs. Hann er frægur fyrir hvers konar and- mæli og aðfinnslur þar sem hann tekur þátt í mótum. Hann breytti ekkert út af þessari venju sinni í gær þegar dregið var um töfluröð á IBM-skákmótinu. Eftir að búið var að draga um töfluröð bað hann um orðið. Hann taldi of mikið álag að teíla biðskákimar í tveimur síðustu um- ferðunum strax að lokinni umferðinni. Skákmenn mættu ekki tefla nema 7 klukkutíma í einu. Hann vildi að byrj- að yrði fyrr að tefla þessa tvo síðustu daga þannig að hlé gæfist á milli um- ferðar og biðskáka. Þá sagði hann að hann hefði eitt sinn misst af loka- veislu þar sem svona stíft var teflt í lokaumferð. Einnig taldi hann frídag- ana á mótinu ekki á réttum stað. Þá töldu þeir Portisch og Kortsnoj eðlilegt að hækka verðlaunaféð fyrir unnar skákir úr 10 þúsund dollurum í 12 þúsund þar sem búið væri að fjölga þátttakendum úr 10, eins og fyrir- hugað var í upphafi, í 12. Forstjóri IBM, Gunnar M. Hansson, svaraði að bragði að það yrði gert. Um aðrar kvartanir Portisch verður fjallað í dag. -S.dór Loðnufrysting í Eyjum: Búið að frysta um 6-700 tonn Ómar Garðaisaan, DV, Vestmarmæyjum: Loðnufrysting heíúr nú staðið í tæpa viku og er búið að frysta 6-700 tonn, að því er næst verður komist. Hefur frystingin gengið mjög vel. Unnið er dag og nótt í öllum stöðvum, ekki ein- göngu heimamenn, heldur einnig aðkomufólk sem er fjölmargt í Eyjum þessa dagana. Það eru einkum þrír bátar sem landa í Vestmannaevjum. Þeir koma inn daglega með fullfermi. Sjá þeir stöðv- unum fyrir hráefhi. Veður hefur verið með afbrigðum gott, þannig að engar frátafir hafa orðið. Horfur eru á að veður haldist gott þann tíma sem loðn- an er í frystingarhæfú ástandi, en reiknað er með því að hrognataka hefyst þegar líður að mánaðamótum. Frystihúsin í Vestmannaeyjum hafa ákveðið eftirfarandi verð á loðnu til fiystingar: Þegar minna en 50 stykki fara í kílóið er verðið 13,50 krónur, en 10,50 krónur fyrir kg þegar 50 stykki eða fleiri fara í kílóið, eða hrognafylling er minni en 15%. Verðið miðast við 8,5 kg til frystingar en um stærðarflokkun og eftirlit sjá Japan- imir sjálfir. DV Skreiðarsala til Nígeriu: 30 þusund pakkar sendir í óvissu nýtt breskt umboðsfyrirtæki ætiar að reyna sölu MS Hvalvik er nú að lesta 30 þús- und pakka af skreið víðs vegar um land og fer með farminn til Nígeríu. Það sem er sérstakt við þennan farm er að hann er óseldur ytra. Það er breskt fyrirtæki sem tekið hefúr að sér umboð við að reyna að selja farminn, að sögn Ólafs Bjömssonar hjá Samlagi skreiðarframleiðenda. Ólafur segir að þetta umboðsfyrir- tæki hafi séð um sölu á lýsi og mjöh frá íslandi og þyki áreiðanlegt í við- skiptum. Það sem ekki tekst að selja áður en farmurinn kemur til Nígeríu mun umboðsfyrirtækið láta setja í kæli- geymslu og selja síðan úr henni eftir því sem hægt er. Með þessu móti er mögulegt að selja í einu nógu lítið magn sem kaupendur í Nígeríu ráða við hvað gjaldeyrisyfirfærslum við- víkur, en þær hafa verið mestur þrándur í götu viðskiptanna undan- farin ár. Að sögn Ólafs hefur ekki enn feng- ist gjaldeyrisyfirfærsla fyrir 5 milljón dollara skuld síðan 1983. Það skreið- armagn hafa kaupendur í Nígeríu greitt til Central Bank í Nígeríu en bankinn hefur síðan ekki staðið í skilum. Þetta em aðeins 5 milljónir dollara af 19,5 milljarða dollara skuldasúpu Nígeríu. Fyrir dyrum stendur ráðstefiia um skuldamál Nígeríu, sem Alþjóða gjaldeyrissjóð- urinn gengst fyrir, og á þar að reyna að semja um skuldaskil á 6 árum með aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins. -S.dór Dregið um röð á skákmótinu: Korstnoj dregur sitt númer. IBM-skákmótið: Jóhann teflir við Polugaévski Margeir gegn Kortsnoj og Jón L. gegn Helga „Þú færð okkur ekki til að segja orð um þetta,“ sogðu þeir Helgi ðl- afsson og Jón L. Ámason eftir að búið var að draga um töfluröð á IBM-skákmótinu sem hefet í dag. Upp kom að Jón L. er númer 1 en Helgi númer 12 og því tefla þeir sam- an í 1. umferð. Margeir Pétursson, sem er númer 2, teflir í dag gegn Viktor Kortsnoj, stigahæsta manni mótsins, sem er númer 11, og Jóhann Hjartarson, númer 6, teflir gegn Pol- ugaévski sem er númer 7. Annars er töfluröðin þessi: 1. Jón L. Ámason 2. Margeir Pétursson 3. Nigel Short 4. Jan Timman 5. Lajos Portisch 6. Jóhann Hjartarson 7. Lev Polugaévski 8. Mikhael Tal 9. Simen Agdenstein 10. Ljubomir Ljubojevic 11. Viktor Kortsnoj 12. Helgi Ólafsson Mikhail Tal sagði í stuttu samtali við tíðindamann DV að hann hefði teflt á sterku móti í Tíbilísi í Sovét- ríkjunum í desember og náð þar 1. til 2. sæti ásamt ungum og lítt þekkt- um stórmeistara frá Sovétríkjunum. Hann sagðist enn reyna að halda sínum hvassa sóknarstíl, en bætti svo við: „Maður verður friðsamari með aldrinum þvert gegn vilja sín- um, þannig er það hjá öllum skákmönnum. Ég get þó lofað ís- lenskum skákunnendum því að ég mun gera mitt besta á þessu móti. Þetta er feikilega sterkt mót og það verður ekki auðvelt að ná í verð- launasæti. Mér hefúr alltaf þótt gott að tefla á íslandi og yfirleitt hefur mér gengið vel. Ég vona bara að svo verði að þessu sinni“. Hinn Sovétmaðurinn á mótinu, Lev Polugaévskí, var ekki bjartsýnn. Hann sagðist ekkert hafa teflt síðan í júlí. Þann tíma sem liðinn er síðan sagðist hann hafa notað til að skrifa bók um skák. „Þess vegna veit ég eiginlega ekkert í hvemig formi ég er núna og hlakka mjög til að gera á því könnun á þessu fimasterka móti,“ sagði Polo. Fyrsta umferð IBM-mótsins hefst í dag kl. 16.30 að Hótel Loftleiðum. -S.dór Stefansmenn harðir: Vilja Steingrím ekki norður Jón G. Hauksson, DV, Akureyit „Steingrímur hefúr ekkert hingað að gera til að tala við okkur fyrst hann gat ekki séð af tveim mínútum þegar hann var á KEA um daginn," sagði Haraldur M. Sigurðsson, kosn- ingastjóri Stefáns Valgeirssonar, við DV í morgun. Haraldur sagði að forsætisráðherra hefði tilkynnt þeim aðilum sem standa að sérframboðinu að hann gæti komið norður til viðræðna laugardaginn 28. febrúar. „En við höfúm ekkert við hann að tala um þetta mál núna.“ - Em margir búnir að segja sig úr Framsóknarflokknum? „Ursagnimar ganga reyndar hægt og rólega fyrir sig en þetta verða ein- staklingar og á Raufarhöfn og Þórs- höfn ganga heilu félögin úr Framsóknarflokknum. Þessar úrsagn- ir koma til framkvæmda." „Annars telja þeir okkur vera ljótu Evubömin," sagði Haraldur. „Þegar við sóttum um BB fyrir listann var sagt, þegar þeir neituðu því, að betra væri að hafa lítinn flokk og samstæð- an heldur en stóran flokk og sundur- leitan. Þeim verður greinilega að ósk sinni." Byggingamenn: Kjaradeila til sáttasemjara í morgun hófst hjá sáttasemjara fyrsti samningafundurinn í kjaradeilu byggingamanna og viðsemjenda þeirra. Nokkrar samningaumleitanir hafa átt sér stað hjá þessum aðilum í vetur en án árangurs og var málinu vísað til Guðlaugs Þorvaldssonar sáttasemjara. -S.dór Kaffibaunadómurinn: Gísli áfrýjar „Ég hef ákveðið að áfrýja þessum dómi til Hæstaréttar," sagði Gísli The- ódórsson, fyrrum forstöðumaður Lundúnaskrifstofu Sambandsins, í samtali við DV. Gísli var sem kunnugt er einn þeirra starfsmanna SÍS sem sakfelldir voru vegna „kaffibaunamálsins" svokall- aða en dómur í málinu gekk á þriðju- dag og hlaut þar Gísli 3ja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Þá sagði Gísli, í tilefni forsíðufréttar í Þjóðviljanum í gær, að hann hefði aldrei rætt við það blað um þetta mál og því væru ummæli eftir sér höfð innan gæsalappa í fréttinni hreinn til- búningur blaðamanns. Hann hefði ekki rætt dóm sakadóms við Þjóðvilj- ann frekar en aðra fiölmiðla. -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.