Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. Stjómmál dv Fmmvarpi um rannsóknamefnd vísað frá í spennandi afkvæðagreiðslu: Alþýðubandalag og Framsókn klofnuðu Forseti Hæstaréttar á að láta Alþingi í friði „Ég tel afskipti forseta Hæsta- réttar aldeilis fráleit og með öllu ólíðandi að svona vinnubrögð séu ástunduð hér,“ sagði Steingrímur J. Sigfusson, þingmaður Alþýðu- bandalagsins og einn af flutnings- mönnum lagafrumvarpsins um rannsóknamefad. „Þetta er auðvitað slettireku- skapur frara í störf Alþingis sem forseta Hæstaréttar koma ekki við á þessu stigi málsins. Hann á aö láta Alþingi í friði rétt eins og Alþingi á að láta hann í friði. Þetta mál var ekki þess eðlis að það færi raeð nokkrum hætti inn á verksvið Hæstaréttar frekar en til dæmis var með frumvarpið um rannsóknamefadina í Hafskips- málinu sem væntanlega og vonandi á eftir að fara til Hæsta- réttar. Og ég geri ráð fyrir að forsetinn sé ekki að afsala sér lög- sögu í því þó að hann hafi skipað í þessa nefad í fyrra. Ura niðurstöðima hef ég það að segja að ég er óhress með hana. Þetta er áfall fyrir þingræðið og góðar þinglegar venjur að mál fái hér skoðun í nefadum. Þetta er gerræði og valdníðsla af hálfa ríkisstjómarinnar sem er auðvitað einstaklega ósraekklegt þegar það er haft í huga að það er forsetí deildarinnar sem er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Ég tel að sá ágæti maður eigi annað skilið af neðri deild Alþingis þetta kjörtímabil heldur en að hún synji máli sem hann Ðytur. Um afstöðu þeirra rainna félaga, sem ekki treystu sér til að greiða atkvæði gegn þessari frávísun, hef ég ekkert um það að segja annað en það að þeir hafa valið sér vini hingað til, gera það nú og munu gera það óáreittir af mér. Ég tek það fram að Hjörleifur Guttormsson var alveg af óviðráð- anlegum ástæðum fjarstaddur. Hann hafði löngu ákveðið ferðalag út land og gat ekki breytt því. Við það varð ekki ráðið,'1 sagði Stein- grímur J. -KMU „Þetta er ekkert undrunarefai. Við gerðum ráð fyrir þessu álíka. Fram- sókn er vitlaus hvort sem er,“ sagði Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra um þá samþykkt neðri deildar Alþingis að vísa frá lagafrum- varpi Ingvars Gíslasonar, Steingríms J. Sigfússonar, Guðmundar Bjama- sonar og Kristínar Halldórsdóttur um að Hæstiréttur skipaði nefad utan- þingsmanna er rannsakaði deilur menntamálaráðuneytis og fræðslu- yfirvalda í Norðurlandi eystra. Frávísunartillaga Ólafs G. Einars- sonar, þingflokksformanns Sjálfstæð- isflokksins, var samþykkt í spennandi atkvæðagreiðslu í gær með 21 atkvæði gegn 17. Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í deildinni, 16 að tölu, studdu tillög- una, þeirra á meðal Halldór Blöndal. Framsóknarflokkurinn klofaaði. Ráðherrar Framsóknarflokksins sögðu já, þeir Steingrímur Hermanns- son, Halldór Ásgrímsson og Alexander Stefánsson, og einn óbreyttur þing- maður, Ólafur Þórðarson. Sex framsóknarþingmenn greiddu atkvæði gegn frávísun, þeir Ingvar Gíslason, Guðmundur Bjamason, Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson, Stef- án Valgeirsson og Þórarinn Sigur- jónsson. Mikla athygli vakti stuðningur Guð- mundar J. Guðmundssonar og hjáseta Garðars Sigurðssonar. Þessi klofaing- ur í Alþýðubandalaginu tryggði samþykkt frávísunartillögunnar. Einnig vantaði atkvæði Hjörleifs Guttormssonar sem var fjarstaddur. Þingmenn Alþýðuflokks og Kvennalista lögðust óskiptir gegn frá- vísun. -KMU KvennalístSnn styður ekkl kosningalögin Kvennalistinn, einn flokka, styð- ur ekki kosningalagafrumvarpið. Þmgmenn Kvennalistans ætla þó ekki að greiða atkvæði á móti heldur sitja hjá. Þetta upplýsti Guðrún Agnars- dóttir við fyrstu umræðu ura kosningalögin á Alþingi í gær. Sagði hún Kvennalistann ekki ánægðan raeð þennan áfanga en þetta væru þó breytingar í rétta átt, einkum hvað varðaði mögu- leika smáflokka til að ná kjöri. Hún sagði reglumar aJlt of flóknar. Kvennalistinn teldi að til væri einfaldari og betri lausn. Karvel Pálmason, Alþýðuflokki, lýsti sig andvígan frumvarpinu og var harðorður. Sagði hann gengið á rétt dreifbýlisins. -KMU 25. april verði lög Steingrímur llennannsson byggst láta Alþingi staðfesta ák- vörðun sína um kjördag í vor. Hann hefar lagt til að eftirfarandi ákvæði bætist til bráðabirgða við lög um kosningar til Alþingis: „Kjördagur við almennar al- þingiskosningar 1987 skal vera laugardagurinn 25. apríl.“ -KMU í dag mælir Dagfaii Fo rs^ jór in in sýk naðu ir Þá er loks komin niðurstaða í kaffibaunamálið margfræga. Fjórir af yfirmönnUm Bambandsins hafa verið dæmdir til fangelsisvistar en sjálfur forstjórinn er hins vegar sýknaður af ákærunum. Mál þetta hefar vakið mikla athygli og þá ekki síst fyrir þá sök að hér hafa átt í hlut forsvarsmenn stærsta fyrirtækis landsins. Hafa þeir statt og stöðugt haldið því fram að málaferlin væru af pólitískum toga og fjölmiðlar stunduðu ofsóknir gagnvart sér að ósekju. Eftir að dómurinn er birtur er Ijóst að sakadómur ætlar sér að taka þátt í þessum ofsóknum. Tildrög málsins eru þau að upp komst að skrifstofa SÍS notaði tvo vörureikninga vegna innflutnings á kaffibaunum, annan til að senda kaffibrennslunni fyrir norðan, sem var gjaldfærður, og hinn til að skjóta afslætti undan í sjóði SÍS. Þessi reikningsfærsla var talin bijóta í bága við gjaldeyris- og verðlagslög og vera meint fjársvik. Ákæran gekk út á að Samband íslenskra samvinnufélaga hefði haft af kaffibrennslunni og þá um leið af neytendum tugmilljónir króna með því að verðleggja vöruna hærra heldur en ástæða var til miðað við rétt innkaupsverð. í sakadómi er talið sannað að fJamkvæmdastjóri verslunardeildar og aðrir yfirmenn bæru ábyrgð á þessu misferli og voru dæmdir til tugthúsvistar. Hins vegar ber svo við að sjálfur forstjórinn er sýknaður af öllum ákærum meðan undirmenn hans eru dæmdir sekir. Að vísu segir í dóminum að líklegt þyki að forstjórinn hafi vitað hvem- ig staðið var að reikningsfærslunni og hann hafi haft um það fuíla vitn- eskju. En eitthvað finnst sakadómi á það skorta að sektin sé sönnuð og þess vegna sleppur hann fyrir hom. Þessi dómur er hinn fróðlegasti fyrir þær sakir að hann varpar ljósi á það hvemig stærsta fyrirtæki landsins er rekið. Einhverjar undir- tyllur taka sig til og búa til tvöfalda vörureikninga og mynda hagnað fyrir SÍS upp á tugmilljónir króna án þess að forstjórinn hafi af því sannanleg afskipti. Þegar til kas- tanna kemur er síðan sagt að for- stjórinn viti ekki það sem hann veit vegna þess að ekki er hægt að sanna á hann vitneskjuna. Það þarf sem sagt að sanna fyrir rétti að forstjór- inn kunni skil á bókhaldi til að sakadómur geti ákveðið að forstjór- inn beri ábyrgð á fyrirtækinu sem hann stjómar. Nema að undirmenn- imir hafi haldið hagnaðinum leynd- um fyrir forstjóranum. Undirmenn- imir hafi með öðrum orðum skipulagt reikningsfærslumar með það fyrir augum að blekkja bæði kaffibrennsluna og neytendur og forstjórann að auki. Sjálfeagt í þágu samvinnuhugsjónarinnar. Þetta er mikil fómfysi í þágu málstaðarins og stendur aðeins eftir sú spuming hvort undirmennimir hafi gmnað forstjórann um græsku og ekki talið hann nógu heilan í samvinnuhug- sjóninni. Það er vitaskuld illt undir því að sitja fyrir forstjóra sem setið hefur í stól sínum í marga áratugi að njóta ekki þess trausts meðal undirmanna sinna að fá að vita hvemig hagnað- urinn verður til. En á hinn bóginn hlýtur honum að vera nokkur léttir að þessari tortryggni gagnvart sér þegar réttarfarið kemst að þeirri nið- urstöðu að engin sekt sé á hann sönnuð af því undirmennirnir leyndu fyrir honum laumuspilinu. Forstjórinn sleppur að minnsta kosti við tugthúsvistina sem hinir hafa upp úr krafsinu fyrir að vinna skít- verkin í þágu hugsjónarinnar. Annars virðist það lítið mál í aug- um réttarkerfisins að svindla á lögunum. Og það jafavel upp á tugi og hundmð milljóna. Svo lengi sem svindlið er framkvæmt í þágu ann- arra og menn hagnast ekki á því persónulega sleppa skúrkamir með skilorðsbundna fangelsisdóma í par mánuði. Það er mikill munur á þeirri refsingu eða margra ára fangelsis- dómum yfir smátittlingunum sem em svo vitlausir að svindla fyrir sjálfa sig. Nú er bara fyrir strákana hjá Sam- bandinu að vera góðir og þægir og halda sig á mottunni í bókhaldinu. Og svo náttúrlega skila peningun- um. Þá kemst allt í samt lag aftur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.