Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Síða 7
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. 7 Gæði, mat og fiskverð: Atvinnuinál BJóða bátum fast mat á allan afla vetrarins Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna, seg- ir i viðtali við DV að yfirborganir á fiski séu nú meiri en dæmi eru til um áður. Yfirborganir þessar eru með fleiri en einum hætti. Sumir greiða beint til seljenda, 5% til 15%, eftir því hvort um er að ræða línu- eða neta- fisk, þorsk eða ýsu. Aðrir nota fisk- matið sem nú hefur verið fært til kaupenda og seljenda frá Ríkismatinu. Samkvæmt heimildum DV bjóða sumir fiskkaupendur fast mat á afla vetrarins hjá bátum, 90% í 1. flokk og 10% í 2. flokk og setja engin skil- yrði fyrir netafjölda. Heldur ekki hvort net eru látin liggja í sjó yfir helgi eða ef um 2ja nátta fisk er að ræða vegna brælu. Aðrir greiða eftir sama mats- hlutfalli en setja skilyrði um netafjöld- ann og að net séu tekin upp um helgar. Eins skal samið sérstaklega um afla ef um 2ja eða 3ja nátta fisk er að ræða vegna brælu. Þessi aðferð er fullkom- lega eðlileg og ekki aðfinnsluverð, enda gera kaupendur trauðla svona Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson samninga nema þeir geti treyst við- komandi skipstjóra og áhöfn fullkom- lega. Mun í þeim tilfellum flestum miðað við að aflinn sé þveginn og sett- ur í fiskkör um borð. Hættumerki Hitt má telja alvarlegt hættumerk ef afli er fyrirfram metinn 90%/10°/ alveg án skilyrða. Allir vita að algengi er að bátar séu með fleiri net í sjó er leyfilegt er. Þetta hefur minnkað efth að kvótakerfið var sett á, en nú ei þessu aftur boðið heim með fyrirfrair föstu mati án skilyrða. Ef þessi hlut föll raskast til að mynda í 80%/20°/ eða eitthvað álíka þá freistar það fisk kaupanda að ganga fram á ystu nö með gæði til frystingar. Hann er búim að greiða fyrir 2. flokks fisk sem 1 flokkur væri. Allir þeir sem nálægt fisksölumálur koma vita og viðurkenna að okka stærsti möguleiki í hinni grimmu sarr keppni á heimsmarkaðnum er betr hráefni en aðrir geta boðið. Ef bæc sjómenn og fiskverkendur leggjast eitt í þessum efnum er þetta hægt. Vi getum komið með að landi nýrra hrr efni en nokkur önnur þjóð í heiminur vegna þess hve stutt við eigum á mif in. Allir vita að ekki þarf nema ein gikk í hverri veiðistöð. Þannig er þa líka varðandi fiskvinnsluna. Ef eir hverjir freistast til að fara yfir þa mörk sem sett eru hvað gæði varðt kemur það niður á heildinni. Því m taka undir með þeim fjölmörgu sei efast um ágæti þessarar aðferðar vi að yfirborga. Hvers vegna hikuðu fiskkaupendur? í ljósi þess sem Kristján Ragnarsso segir um yfirborganir og að þær sýr aðeins að fiskkaupendur hafi ekki át eins bágt og þeir létu þegar ákvörðun in um fiskverð var ákveðin vaknar s\ spuming hvers vegna þeir vildu ekk að fiskverð yrði gefið fijálst frá síð ustu áramótum. Sigurður Einarssoi hjá Hraðfrystistöðinni í Vestmanna eyjum segir að frystihúsin þar komis ekki hjá því að yfirborga til að fá fisl í samkeppninni við gámaútflutning inn. Mörg frystihús úti á landi, sen jafhframt eiga togara, hafa farið út það að greiða sjómönnum gámaveri fyrir ákveðið fiskmagn á ári. Hefði það ekki verið hreinlegri aðferð að gefa fiskverð einfaldlega fijálst og láta fisk- inn síðan lúta eðlilegu gæðamati? Fiskseljendur vildu að fiskverð yrði gefið frjálst og sögðu að fiskurinn yrði hvort sem er yfirborgaður vegna sam- keppninnar við gámana. Með því að hafa fiskmat með ýmsum hætti í yfir- borganakapphlaupi er hættu boðið heim varðandi gæði fiskafurða sem seldar eru úr landi. Loðnuverðið Við verðákvörðun á loðnu í haust er leið var ákveðið að gefa það fijálst í tilraunarskyni. Það mun samdóma álit manna að þetta hafi tekist nokkuð vel varðandi bræðsluna. Verðið hefur verið nokkuð mismunandi eftir því hve langt hefur verið af miðunum á lönd- unarstað. En svo kom loðnufrystingin. Þá breyttist þetta þannig að frystihús- in frá Vestmannaeyjum og vestur úr greiða sama verð fyrir kílóið af loðnu til frystingar. Sjómenn ásaka fiysti- húsin um hringamyndun og Kristján Ragnarsson segir grundvöllirm fyrir ffjálsu loðnuverði brostinn vegna þessa. Hætt er við að frystihúsin hafi með þessu stefht í hættu hugmynd manna um að gefa fiskverð frjálst, með því að bindast samtökum um verð á fiystri loðnu að þessu sinni. Hættan á að hið sama gerist ef allt fiskverð verður gef- ið fijálst er fyrir hendi eftir þetta. Það segir ekkert í þessu sambandi þótt menn yfirborgi nú fiskinn vegna þess að fiskverðið sem ákveðið var um ára- mótin var svo lágt að það má telja það úr tengslum við raunveruleikann. Á meðan menn fá á milli 60 og 70 krónur fyrir kílóið á mörkuðum erlendis er út í hött að bjóða hér rúmar 30 krónur fyrir kílóið af úrvalsþorski. Með því að gefa fiskverð fijálst og með stofnun fiskmarkaða hafa menn talið að gæði hráefnis yrðu meiri en nú er. Þegar verð á fijálsum markaði ræðst ein- göngu af stærð og gæðum þá hugsa þeir sem afla fengsins öðruvisi en ef fast mat er á aflanum hvemig sem ástand hans er, eins og nú þekkjast dæmi um. Þá er um að gera að koma með sem mest magn, án tillits til þess hver gæðin eru. I allri þeirri miklu umræðu sem átti sér stað í haust um að leggja niður Ríkismat sjávarafurða, bæði á þingi Fiskifélagsins og á þingi Landssam- bands ísl. útvegsmanna og raunar víðar, töldu menn það til bóta að fá matið í hendur seljendum og kaupend- um. Vel má vera að svo sé þar sem strangt ferskfiskmat fer ffarn. Það skiptir þó í sjálfu sér ekki máli hver matið framkvæmir. Hitt er aftur á móti ljóst að með flötu mati á heilli vertíð, án tillits til gæða, er stigið spor aftur á bak. Og að þetta skuli gerast á sama tíma og fisksölufyrirtækin hrópa á meiri gæði hráefhis vegna aukinnar samkeppni á erlendum mörkuðum er óskiljanlegt. Við eigum í samkeppni v'ð ríkisstyrktan sjávar- útveg í Noregi sem undirbýður okkur í sölu á síld og saltfiski. Við eigum í samkeppni við Kanadamenn sem und- irbjóða okkur á fiskmarkaði í Banda- ríkjunum og Japan, þar sem þeir bjóða frysta loðnu á verði sem ekki þýddi fyrir okkur að hugsa um. Eina svarið sem við íslendingar eigum eru meiri gæði og enn meiri gæði. Þegar svona er komið á auðvitað að herða á gæða- eftirlitinu en ekki slaka á þvi. Þetta þýðir ekki að Ríkismatið sé endilega hið eina rétta til þess. Eflaust má tryggja það með öðrum hætti. Hvað sem það kostar verður að finna þá leið sem tryggir að einungis úrvals- fiskur fari á okkar hörðustu markaði. Kassar og kör Á nokkrum stöðum á landinu eru bátar famir að setja allan sinn fisk í sérstök fiskkör. Þetta er gert á Rifi, Hellissandi og Patreksfirði. Þessir staðir skáru sig úr á síðustu vertíð hvað gæði afla snertir. Sá bátur sem var hæstur yfir landið hvað gæði snertir, Hamar SH, er frá Rifi. Bátar Jóns Magnússonar frá Patreksfirði voru við hlið hans að kalla. Allir setja þeir afla sinn í fiskkör. Þegar árangur þessa liggur fyrir, en aðrir bátar taka þetta ekki upp, er spuming hvort ekki á að grípa í taumana og skikka báta til að fara þannig með aflann. Það kom upp á vertíðinni í fyrra að bátar frá Norðurlandi, sem veiddu í Breiðafirði, treystu sér ekki til að sigla með aflann óskemmdan til heimahafriar. Þeir settu fiskinn ekki í kör. Breiðafjarð- arsjómenn, sem kunna með fiskkör að fara, tóku þetta að sér og skiluðu úr- valshráefhi. Væri ekki ástæða til að velta þessu máli fyrir sér? -S.dór Wagoneer riAMCJeep ÞAÐ ER VALIÐ Cherokee Ný, öflug, sparneytin, 6 cyl. vél 173 HÖ Þróaðasta íjórhjóladrifið Selec Trac. „Var 115 hö“ Fullkominn 4ra gíra sjálfskipting með vinnsluvalrofa sem gerir það að verkum að vélin er allt- af á réttum snúningi, orkan nýtist að fullu og eyðslan verð- ur í lágmarki. 1987 er glæsilegri, kraftmeiri, þægilegri og fullkomnari. ECILL VILHJÁLMSSOIM HF Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202 Söluumboð Akureyri: Þorshamar hf. - simi 22700.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.