Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. Utlönd Iraka-dátar í Bagdad í orlofi frá vígstöðvunum. - Ljósmynd JN. íbiðsal einræðisherrans Andlitið á tollaranum í Irak var eitt spuminj'armerki. - „Hver getur verið svo vitlaus að vilja inn í land sem all- ir aðrir reyna að komast út úr?“- En í stað þess að segja orð lét hann duga að hrista höíúðið í forundran og byrj- aði síðan, eins og tíu arma kolkrabbi, að gramsa í ferðatöskunni minni. í bakgrunni stóðu tveir íraka-dátar með hlaðna AK-47 hríðskotariffla. Stöðugt þyngdist á þeim brúnin sem hækkaði haugurinn af segulbands- tækjum og ljósmyndavélum á borðinu hjá tortryggna tollaranum. Til allrar lukku sást honum yfir ferðaritvélina mína. Það er nefnilega bannað að taka með sér ritvélar inn í írak. Einræðis- herrar óttast ritvélar næstum jafn- mikið og vélbyssur. Skrítin árátta Yfirhöfuð talað þarf einhverja óskaplega áráttu eða þá mikla heimsku til þess að vilja heimsækja land á borð við írak sem heyr upp á líf og dauða stríð við æjatollana í ír- an. Og það þarf einnig heppni. En þennan morgun sem ég er staddur í landamærastöðinni Safwan, á landa- mærum Kuwait og írak, er lánið einhvers staðar á flakki annars staðar og ekki með mér. Vegabréfsskoðarinn innan gluggarúðunnar stimplar alls konar pappíra af hjartans lyst, en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum gleymir hann að stimpla vegabréfið mitt, sem ég uppgötva þó ekki, illu heilli, fyrr en löngu síðar. Á landamærastöðin er steikjandi sólskin þegar ég skömmu síðar legg grunlaus af stað eftir þjóðveginum. Formlega séð hef ég verið stimplaður út úr Kuwait en eins og síðar kemur á daginn ekki stimplaður inn í Irak. Ég er á leið inn í nokkurs konar einsk- ismannstilveru. Á leið til vígstöðvanna Leigubíllinn þaut í átt til hellis Aladdíns milli fljóta Babýloníu. Því meir sem við nálguðumst Basra því fleiri fallbyssur meðfram þjóðveginum. Dátar, herbílar og sendiboðar á bif- hjólum voru úti um allt. Við nálgumst vígstöðvarnar. Á einu vegaskiltinu stendur: Fao - 19 km. Nítján mínútna akstur um forboðna veginn og ég gæti rekið puttann upp í byssuhlaup írana. Daglega heimtar Persaflóastríðið sínar blóðugu fómir og Basra er í augum íraka hinsta vígið. Hér er bar- ist með öllum tiltækum ráðum til að halda árásarsveitum írans í skefj- lun. I anddyri Sheraton-hótelsins í Basra er örtröð þegar ég kem að. Fólkið streymir inn til þess að leita sér hælis innan þykkra múrveggjanna. I heilan sólarhring hafa íranir haldið uppi samfelldri skothríð á Basra. Bærinn er nær týndur á bak við sandpoka- hrúgur. - En mitt verkefni hlýtur að vera að komast til vígstöðvanna sem liggja í tíbránni hinum megin við sjón- deildarhringinn, 25 km í burtu. í viðureign við báknið Blaðafulltrúi staðarins, útnefhdur af Saddam Hussein einræðisherra, kærir sig lítið um blaðasnápa, sem hafa laumað sér inn í hans umdæmi um bakdymar frá Kuwait og setja alla skipulagningu úr skorðum. Ef ég vildi til vígstöðvanna skyldi ég fyrst fara til Bagdad og þá væri unnt að gera fyrir mig „áætlun“ sem væri ámóta endalaus eins og þégar Franz Kafka lætur í bók sinni, Höllinni, söguhetj- una „K“ grufla í prótókollum embætt- ismanna. Fjöltengillinn og ég sitjum lengi og störum hvor á hinn án þess að segja orð. Þá er meira lið í breska rúllettustjór- anum í spilavíti hótelsins, hann hitti ég síðar að baki múrstoð i hóteland- dyrinu, þar sem við höfðum leitað skjóls fyrir skeytum Irana. Hann hvíslar: „Ef þú sérð í grænum einkenn- isbúningi sköllóttan, miðaldra mann, sem stingur litið eitt við skaltu koma þér í kunningsskap við hann. Hann er yfirmaður öryggis- og leyniþjón- ustunnar hér í Basra. Þú getur fundið hann alla daga á tennisvellinum. Ann- ars getur þú einnig þekkt hann á fulltrúanum sem fylgir honum hvert fótmál og heldur á lítilli stresstösku sem hann leggur einungis frá sér þeg- ar hann af skyldurækni dustar af axlaskúfum herra síns.“ Strand vegna áætlunarleysis Síðdegis hitti ég þennan mafíufor- ingja í kaffihúsi hótelsins og er hann þá umkringdur skuggalegum undir- foringjum. Ég blanda mér í selskapinn og kem af stað samræðum við sjeff- ann. Menn fá sér mörg glös af moðvolgu, bragðvondu öli meðan sjeffinn flytur langa tölu um afrek sín. Einu sinni lætur hann í það skína að það verði enginn vandi að koma mér til vígstöðvanna. Mörgum ölkollum og klukkustundum síðar legg ég til: „Eigum við að hittast snemma á morg- un og aka niður til Fao?“ „Ekkert mál!“ segir þessi djúpradd- aði öryggisforingi. „Þú ert auðvitað með áætlunina frá ráðuneytinu í Bagdad, ekki satt?“ - Neehei, hana hafði ég ekki. Ekki hafði ég fyrr sleppt orðinu en sjeffinn umbreytist þama frammi fyrir mér - líkt og prins sem breytist í frosk aftur. Leiður ypptir hann öxlum og ráðleggur mér að koma til Basra aftur einhvem tíma seinna. Svo líður hann út á tennisvöllinn og fulltrúinn, dillandi rófunni, fylgir hon- um. Eftir láta þeir tignarlegan ölreikn- ing. Það horfði ekki beinlínis vænlega til Cavling-verðlauna fyrir æsilegar stríðsfréttir. Glóandi sjónir forsetans á risamálverki í hótelanddyrinu töluðu til mín ským máli: „Hypjaðu þig heirn. Hér kemst enginn upp með neitt rnúður." Stimpill eða ekki stimpill -það er málið Nokkrum dögum síðar komst hin kafkanska ringulreið í algleymi í Bagdad þegar ég uppgötvaði að í vega- bréfið mitt vantaði stimpilinn. Nú varð allt í einu mikilvægari en að komast til vígstöðvanna spumingin um það hvort ég yfirleitt kæmist burt, hvert sem ég svo sem vildi fara. Með tregðu vogaði ég mér inn í völ- undarhús skrifstofubáknsins í írak. Það var í „dvalarstaðadeild“ innan- ríkisráðuneytisins sem örlög mín skyldu ráðin. Þar hafa menn strangt eftirlit með öllum vegabréfsáritunum. Fyrstu klukkustundimar liðu við það að færa sig úr einum biðstólnum yfir í annan. Hinn hræðilegi sannleik- ur var einkar einfaldur og skýr: Stimpill í vegabréfi er bara stimpill, ef maður hefur hann. Stimpill, sem maður hefur ekki í vegabréfi, hefur aldrei verið til. Og það sem aldrei hef- ur verið til verður ekki útvegað. Þetta var mér gert ljóst á 4. hæð í rykugum biðsal. Leið nú og beið og síðdegis er ég sendur yfir götuna í grámuggulega byggingu þar sem hvergi sést svo mik- ið sem eitt nafnskilti. í völundarhúsi kerfisins Eftir langa gönguferð um ýmsa rangala, upp og niður stiga, í gegnum forsali og nýja rangala fer loks svo að ég hef ekki hugmynd um hvar ég er niðurkominn. Hér gæti ég týnst til eilífðar. Möguleiki, sem ég verð hér eftir að reikna alvarlega með, þar sem ég hef engan innkomustimpil og er því, opinberlega séð, alls ekki í Irak! Þar kom að ég var leiddur fyrir mann sem ég vonaðist til að gæti veitt mér afgreiðslu. Eftir hálfa klukku- stund rennur upp fyrir mér að ég er til yfirheyrslu hjá háttsettum foringja í leyniþjónustu Iraks. Bolabíturinn situr innan við víðáttuskrifborð og drekkur sykrað te. Sterklegir kjálka- vöðvamir eru það eina sem sýna að eitthvað líf hrærist innra með þessum skrifstofubúdda. Kolsvört augun vega mig og meta blákalt. Yfirbragðið er það sama og hjá flestum valdapáfum sem njóta til fullnustu valdsins unað- ar. Hvers vegna kom blaðamaðurinn til írak í gegnum Safwan-landamæra- stöðina? Hvað er skrifað í flugfarseðil ■ hans um áfangann Kuwait-írak? Var þetta ekki ónotaður farseðill þá? Hvi hafði blaðamaðurinn ekki notað far- miðann í staðinn fyrir að eyða ofljár í leigubílaakstur i gegnum írak? Hvað hafði hann þá séð? Hafði hann þá nokkum tíma séð landamærastöðina? Kannski komið annars staðar inn í landið og á kannski allt öðrum tíma í hugsanlega allt öðrum erindum en frá var greint? Með kveðju frá Kafka Viðtalinu lauk með því að ég varð að skrifa undir einhverja skýrslu á persnesku. Með skjálfandi hendi und- irritaði ég eitthvað sem allt eins gat verið játning á njósnum eða óhæíú- verkum einhveijum. I tvo næstu daga hélt ég mig á hótelinu og beið fram- vindunnar. Heppinn var ég þá að hafa ritvélina. Hvað síðan um mig varð stendur ekki í opinberum skýrslum íraks. Það eina, sem þeir í gestamóttök- unni hafa getað sagt af mér var að snemma einn morgun hafði gert upp reikninginn í móttökunni yfirmáta stór ritvél, svört og gljáandi, sem kom- ið hafði ofan af efri hæðum með lítinn, næstum ósýnilegan blaðamann undir hendinni. Ritvélin hafði gefið rausnar- legt þjórfé og síðan skrifað í gestabók- ina: „Með kærri kveðju frá Franz Kafka.“ Eftir Jens Nauntofte

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.