Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987.
11
Utlönd
Hústakar hefna
sín með táragasi
Haukur L. Hauksson, DV, Káupmaraiahö&i;
Þrír lögreglumenn neyddust til að
loka lítilli nærlögreglustöð í Kaup-
mannahöfn eftir að þrír hettuklæddir
hústakar höfðu kastað táragas-
sprengju og smjörsýru inn á stöðina.
Kom svo mikill ínykur af smjörsýr-
unni að lögreglustöðin varð ekki
opnuð aftur þann daginn.
Einn lögreglumannanna varð að
leita sér lækninga vegna sviða í aug-
um undan táragasinu.
Samkvæmt rannsóknarlögreglunni í
Kaupmannahöín er unnt að sækja
hústakana til saka fyrir ofbeldi gegn
embættismönnum að störfum. Varðar
slíkt allt að sex ára fangelsi. Talsmað-
ur hústaka segir að þetta hafi verið
gert í hefndarskyni eftir að lögreglan
beitti táragasi gegn hústökum á
sunnudaginn. Þá var einbýlishús í
Hellerup, sem hústakar höfðu á sínu
valdi, rutt af lögreglunni. Segja hú-
stakar að táragashylkin, sem lögregl-
an skaut af tíu metra færi að
hústökunum, geti samkvæmt áletrun,
sem finna má á hylkjunum, farið í
gegnum útidyrahurð þótt skotið sé af
allt að 90 metra færi.
Kreisky segir af
af sér forsætinu
Bruno Kreisky, fyrrum kanslari
Austurríkis, hefúr boðist til þess að
segja af sér varaforsetaembættinu í
alþjóðasamtökum jafnaðarmanna.
Talsmaður Kreiskys (sem er 76 ára)
segir að hann bíði enn svars frá aðal-
skrifstofúm samtakanna í London en
ekki var látið uppi hvaða ástæða ræki
Kreisky til þessa. Hann er um þessar
mundir í V-Þýskalandi sér til heilsu-
bótar eftir illkynjaða flensu.
Kreisky sagði af sér í síðasta mán-
uði sem heiðursforseti jafhaðar-
mannaflokks Austurríkis sem hann
sagði að vanrækti jafnaðarmannahug-
sjónina undir forystu Franz Vranitzky,
núverandi kanslara.
Heróíni smyglað í tréfíl
Þessar tvær bresku systur voru handteknar á flugvellinum i Kairó i Egyptalandi á sunnudaginn. í fil úr viði, sem
þær höfðu í farangri sínum, fundust sex kiló af heróíni. Konurnar segjast ekkert hafa vitað um að eiturlyfjum hafi
verið komið fyrir í fílnum. - Simamynd Reuter
Friðarvika Yoko Ono
Yoko Ono, ekkja John Lennon, hélt upp á fimmtugasta og fjórða afmælis-
daginn sinn i gær með þvi að heimsækja friðarbuðir kvenna fyrir utan
Greenham kjamorkuvopnabækistöðvamar fyrir vestan London. Endaði Yoko
þar með friðarviku sina en hún var meðal margra frægra gesta er sóttu friðar-
ráðstefnuna i Moskvu um helgina. - Simamynd Reuter
Efhahagsaðgerðir
á prjónum Dana
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahö&i;
Samkvæmt heimildum úr ríkis-
stjómarbúðum Poul Schlúters forsæt-
isráðherra mun danska ríkisstjórnin
hafa umtalsverðar efiiahagsaðgerðir á
prjónunum. Markmið þeirra mun vera
að minnka neysluna og rétta af
greiðsluhallann við útlönd.
Það getur þó fyrst orðið af efriahags-
aðgerðum eftir næstu kosningar, sem
eftir öllu að dæma verða síðast á þessu
ári, og er það frekar seint með tilliti
il efiiahagsráðstafana að áliti margra
stjómarsinna. Stjórnarsinnar em þó
allsigurvissir um komandi kosningar.
Samkvæmt talsmanni ríkisstjómar-
innar em það einkum hinir nýaf-
stöðnu kjarasamningar sem kalla á
þessar efnahagsráðstafanir. Stjórnar-
sinnar viðurkenna raunar að efna-
hagsástandið hafi versnað mikið
síðustu fimm mánuði og þar með ýtt
undir nauðsyn ráðstafana. Hér með
hefur ríkisstjómin gefið upp á bátinn
vonir um árangur af hinum svokallaða
kartöflukúrs haustsins. Var honum
ætlað að minnka einkaneysluna með
gjöldum á neyslulán og afborgunar-
viðskipti.
En smásala hefur verið á uppleið
síðan í desember, einkum eftir aukna
kaupgetu fólks, að afstöðnum hag-
stæðum kjarasamningum. Hagstofa
Danmerkur opinberaði í gær endan-
legar tölur yftr greiðsluhallann við
útlönd 1986. Hann nemur 34,5 mill-
jörðum d.kr. og nema vaxtagreiðslur
28 milljörðum.
Verðið mun haldast óbreytt nœstu sólarhringa 4 SAMSUNG
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) - Simi 622025
W-17
Féfdotoeki meó tvöföldu segulbondi og FM sterió og MW bylgjum ó hreint ótrúlegu verói.
6.900
stgr.
PD-52S
Stórskemmtilegt
feróotœki meó
lousum „2 woy"
hótölunjm. 3
bondo tónjofnaro
og tvöföldu segul-
bondi.
10.960
stgr.
VERÐFREGNIR FRÁ STERÍÓ:
ÞRUMUTILDOD
PD-70
Fróbœrt ferðotoeki.
2x10 votto mognori,
5 bonda tónjofnori,
tvöfolt segulbond
með hroóupptöku,
„Long Ploy" kerfi,
„metol", „chrom"
og „normol-stillingor,
tengi fyrir plötuspiloro,
lousir „2 woy" hótoloror,
FM LW, MW og SD bylgjur
ósomt mörgu fleiru.
14.990
ttgr.