Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Side 15
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. 15 Dounrey ógnvaldur íslands nr. 1 Á hinu fjölmenna Hrafnagilsþingi Sambands ungra framsóknarmanna, sem haldið var í ágúst á síðasta ári, var lagður grunnur að harðri bar- áttustefnu í umhverfismálum. Steín- an byggir á rótgróinni hefð innan Framsóknarflokksins en Framsókn er eini græni flokkurinn á íslandi. Andóf gegn Dounrey Eitt stærsta og þýðingarmesta bar- áttumál okkar, ungra í Framsókn, í dag er andófið gegn Dounrey. Doun- rey liggur á norðurströnd Skotlands, steinspar frá túngarði okkar Islend- inga. Þar er nú fyrirhugað að reisa stærstu endurvinnslustöð á plútón- íum í heimi og eiga framkvæmdir að heQast í júní. Nú þegar er fyrir kjamorkuver og lítil endurvinnslu- stöð í Dounrey. Plútóníum, hættulegasta efni heims Plútóníum er hættulegasta efni í heimi. Það er mjög geislavirkt og hefur 24.000 ára helmingunartíma. Það þýðir að /i milljón ára tekur að það verði skaðlaust. Við skulum líta á nokkrar stað- reyndir um plútóníum. - aðeins 5 kg nægja til að framleiða kj arnorkusprengj u. - aðeins 2 kg nægja til að drepa hvert mannsbam á jörðinni. - aðeins 0,000 01 kg nægir til að drepa mann á þremur vikum. - aðeins 0,000 000 000 2 kg nægja til að valda geislun. I Dounrey munu á hverju ári verða endurunnin 6000 kg af hreinu plú- tóníum. Það nægir til að drepa hvert mannsbarn á jörðinni 3000 sinnum. ÞRJÚ ÞÚSUND SINNUM!!! Magga Thatcher fær mót- mæli Norðmanna á morgun Við í Sambandi ungra framsóknar- manna höfum unnið með systrasam- tökum okkar í Noregi í andófi gegn Dounrey á norrænum vettvangi. Á morgun, 20. febrúar, mun Gro Harlem Bmndtland, forsætisráð- KjáOarinn Hallur Magnússon formaður FUF i Reykjavík herra Noregs, afhenda Margaret Thatcher, forsætisráðhema Breta, undirskriftalista með nöfnum tug- þúsunda Norðmanna þar sem fyrir- hugaðri stækkun á endurvinnslu- stöðinni í Dounrey er mótmælt. Það vom einmitt systrasamtök okkar í Framsókn sem stóðu fyrir undirskriftaherferðinni. Undirskriftalistar SUF gegn Dounrey Við í Sambandi ungra framsóknar- manna höfum ekki aðeins unnið gegn Dounrey á alþjóðavettvangi: Við höfum unnið að þessum málum innan Framsóknarflokksins og inn- an stjómkerfisins. Þótt sú barátta hafi ekki farið hátt vakti undir- skriftasöfnun okkar gegn Dounrey á flokksþingi Framsóknarflokksins í nóvember nokkra athygli. Þá skrif- aði þingheimur allur undir áskomn á ríkisstjómina um að hún beitti öllum ráðum til að koma í veg fyrir byggingu endurvinnslustöðvarinnar í Dounrey. Greinargerð sérfræðinga Að beiðni stjómvalda var í des- ember samin greinargerð af íslensk- um sérfræðingum Geislavama ríkisins, Hafrannsóknastofnunar, Siglingamálastofnunar og prófessor Magnúsi Magnússyni um hættuna af Dounrey. I ' greinargerðinni segir m.a.: „Vegna ríkjandi hafstrauma munu geislavirk efhi, sem losuð verða í sjó frá stöðinni, berast á hafsvæðið umhverfis ísland, meðal annars fiskislóðina milli Jan Mayen og ís- lands.“ Þá segir einnig: „Bygging endurvinnslustöðvar í Dounrey mun auka mengunarhættu fyrir Norður- Atlantshaf ekki hvað síst af völdum slysa sem orðið geta bæði við flutn- ing á geislavirkum efnum með skipum á erfiðum siglingaleiðum og vegna óhappa sem ekki er hægt að útiloka að geti orðið í endurvinnslu- stóðinni." Hvað geturgerst? Við skulum aðeins athuga betur „í Dounrey munu á hverju ári verða endur- unnin 6000 kg af hreinu plútóníum. Það nægir til að drepa hvert mannsbarn á jörð- inni 3000 sinnum. Þrjú þúsund sinnum!!!“ „Árið 1984 urðu 194 kjarnorkuslys við Dounrey kjarnorkuverið. Átta þeirra voru skiigreind sem „alvarleg" eða „meiriháttar“. hvað felst í þessum orðum. Mestar líkur eru á að mengun muni verða vegna sjóslysa. Það verða 60 skipa- komur til Dounrey þar sem farmur- inn verður kjamorkuúrgangur. Ef alvarleg sjóslys verða eigum við á hættu að fiskistofnar okkar verði ónýtanlegir um ófyrirsjáanlega framtíð. Annar möguleiki er að geislavirk efni leki úr stöðinni út í sjó. Nú þegar mælist geislavirkni í sjónum kringum Dounrey mun meiri en eðli- legt getur talist. Þó á eftir að stækka endurvinnslustöðina um 1500%. Þriðji og hættulegasti möguleik- inn er að sprenging verði í stöðinni eða að geislavirk efni leki á einhvern hátt út í andrúmsloftið. Það yrði til þess að geislavirku úrfelli rigndi yfir Island, Noreg, Færeyjar, hluta Dan- merkui- og N-Skotlands og jafhve! fleiri landsvæða. Það úrfelli yrði banvænt og slysið í Tsjernóbfl talið bamaleikur í þeim samanburði. Hverjar eru líkurnar? Líkurnar á slysi í Dounrey eru miklu meiri en menn vilja vera láta. Árið 1984 urðu 194 kjarnorkuslys við Dounrey kjarnorkuverið. Átta þeirra voru skilgreind sem „alvar- leg“ eða „meiriháttar". Á tímabilinu 1977 til 1984 urðu 1262 slys sem opin- berlega voru kölluð „atvik“, þar voru 41 skilgreind sem „alvarleg“ eða „meiriháttar". Líkur á slysi em því miklar. Kjarnorkan er örugg... ... og jörðin er flöt Það eru menn sem halda því fram að kjamorkan sé örugg. Dæmin sanna hið gagnstæða. Windscale 1957, Harrisburg 1979, Tsjernóbíl 1986. Verður það Dounrev næst? Þeir sem halda því fram að kjarn- orkan sé ömgg gætu allt eins haldið fram að jörðin sé flöt. Trúir þú að jörðin sé flöt? Ef ekki þá átt þú samleið með okkur, ungum í Framsókn. í baráttu gegn Dounrey. Hallur Magnússon Sigurlistinn Ljóst er nú hverjir það verða sem bera hitann og þungann af kosn- ingabaráttu Alþýðuflokksins í vetur. Sigurlistinn liggur fyrir um allt land. Síðast small listinn saman á Vest- fjörðum með bræðralagi þeirra Karvels Pálmasonar Bolungarvík- urjarls og Sighvats Björgvinssonar, fv. fjármálaráðherra og þingmanns Vestfirðinga. Er listinn á Vestfjörð- um nú svo sigurstranglegur að bæði Karvel og Sighvati er spáð þingsæti í vor. Pólitískt hugrekki Listinn í Reykjavík var kynntur við mikinn fögnuð fyrir rúmri viku og er talið að Alþýðuflokkurinn megi vænta fimm þingmanna í Reykjavík í vor. Mesta athygli vekur að sjálfeögðu skipan þjóðhagsstjóra, Jóns Sigurðssonar, í fyrsta sæti list- ans og að formaður flokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, skuli standa upp úr fyrsta sætinu og flytja sig í það þriðja og raunar vera tillögu- maður að þessu öllu sjálfur. Sýnir þetta pólitískt hugrekki formanns Alþýðuflokksins ásamt því að hafa boðist til þess að taka efsta sæti lista flokksins á Austfjörðum ef ekki yrði eining um skipan efsta sætisins þar. Það mál leystist þó farsællega með sameiningu Bandalags jafnaðar- manna við Alþýðuflokkinn og framboði Guðmundar Einarssonar, þingmanns Bandalagsins, í fyrsta sæti á Austfjörðum. Er Guðmundi núna spáð þingsæti í kjördæminu og er langt síðan Alþýðuflokkurinn hefur átt þingmann á Austfjörðum. Sterkur jafnaðarmanna- flokkur Jón Baldvin stendur því uppi sem hið mikla sáttaafl í Alþýðuflokknum og stefhir hraðbyri í að leiða flokk- inn í mesta kosningasigur flokksins fyrr og síðar, ásamt þvi að sameina öll öfl lýðræðis, jafnaðar, samvinnu og verkalýðsbaráttu í einn sterkan jafnaðarmannaflokk á íslandi. Á margan hátt er Jón Baldvin sérstak- lega kjörinn til þessa verkefnis. Hann er fæddur í Alþýðuflokkn- um, reyndar í Alþýðuhúsinu á Isafirði eins og frægt er, sonur einn- ar helstu kempu verkalýðsbaráttu á Islandi, Hannibals Valdimarssonar, fv. formanns Alþýðuflokksins og Alþýðusambands Islands. Jón Baldvin stóð uppi á svölunum í Iðnó þegar sundur gekk með Al- þýðuflokknum og Hannibal þannig að hann þekkir sundurlyndisfjand- ann í röðum jafnaðarmanna á íslandi af biturri reynslu. Auk þess bókstaflega að vera alinn upp i verkalýðsbaráttunni sem Alþýðu- flokkurinn var einmitt stofnaður til þess að heyja sem hinn pólitíski arm- ur verkalýðsbaráttunnar á íslandi. Persónugervingur jafnaðarstefnunnar Með þessa lífsreynslu í farteskinu, auk frábærra gáfha, rit- og ræðu- snilldar og glæsilegrar menntunar verður Jón Baldvin Hannibalsson persónugervingur þeirrar þróunar til jafhaðarstefnu sem íslenskt þjóð- félag er smám saman að laga sig að. ■ Gömlu fúnu stoðirnar undir úrelta kjördæmiaskipan gefa smám saman eftir en ferskur blær pólitísks raun- veruleika og farsællar efnahags- stjómunar streymir um íslenskt þjóð- og athafnalíf. Sá mikli efna- hagsbati, sem fylgir í kjölfarið, mun endanlega festa Alþýðuflokkinn í því sessi sem erlendir bræðraflokkar hans í Evrópu hafa skipað í sínum löndum. KjaUaiinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur Hrakfarir andstæðinga Alþýðuflokksins Ándstæðingar Alþýðuflokksins fara nú slíkum hrakförum að næst- um aumkunarvert er upp á að horfa. Á Norðurlandi eystra keppast bæði Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn við einhvers konar innbyrðis hjaðningavíg þannig að varla er gert ráð fyrir að þeir verði yfirleitt grónir inmi sára sinna þegar til kosninga kemur. Verður það mik- il sárabót fyrir Árna Gunnarsson, eftir að hafa fallið með nokkmm utankjörstaðaatkvæðum í síðustu kosningum, að leiða sigur Alþýðu- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra í vor. Gvendur smali á jöklinum Á Norðurlandi vestra vita sjálf- stæðismenn ekki sitt rjúkandi ráð eftir að Eyjólfur Konráð tók upp merki Geirs Hallgrímssonar í Reykjavík. I- stað hans er mættur galvaskur boðberi þess að kunn- ingja- og byggðaþjóðfélag íslenska lýðveldisins hafi kostað þjóðina 35 milljarða króna. Hans verkefhi verð- ur svo í framhaldi af því að sjá fram úr byggingu Blönduvirkjunar sem enginn hefur neitt við að gera en hefúr samt kostað þjóðina vænan part af tölunni sem hann nefndi, auk beitarlanda í Húnaþingi og ræktun- arstefnu upp í 550 metra hæð yfir sjávarmál. Verður fróðlegt að fylgj- ast með honum við smalamennsku uppi á Hofsjökli á nýju stráunum Blönduvirkjunarpostulanna og get- ur hann þá hugsað örlög steinullar- verksmiðjunnar og Vallhólmsgi'as- kögglaverksmiðjunnar, þá hann sest niður á Miklafell til þess að kasta mæðinni. Jón Sæmundur og Birgir Dýríjörð leiða stórsigur Alþýðuflokksins á Norðurlandi vestra í vor. Þingprýði í Reykjaneskjördæmi má ætla að Álþýðuflokkurinn fái fjóra menn og verður mikil þingpifyði að þeim Kópavogsbúum, Rannveigu Guð- mundsdóttur, forseta bæjarstjómar, og Guðmundi Oddssvni, formanni bæjarráðs Kópavogs. Verður gaman fyrir gömlu kempurnar, Kjartan Jó- hannsson, fv. sjávarútvegsráðherra, og Karl Steinar Guðnason, vara- formann Verkamannasambandsins, að mæta svo liðsterkir við stjómar- myndunarviðræðurnar í vor. Mia Farrow í Vestmannaeyjum Á Vesturlandi leiðir Eiður Guðna- son alþingismaður sigur listans í kjördæminu og nýtur þar fulltingis Borgnesingsins Sveins Hálfdánar- sonar. Á Suðurlandi er almennt talið að Magnús H. Magnússon sé ömgg- ur inni en annar maðurinn á lista Alþýðuflokksins, alþýðubandalags- maðurinn, þriðji sjálfstæðismaður- inn og jafnvel annar framsóknar- maðurinn séu í deiglunni. Þetta er nokkuð tvísýnt en von gefur um bjartsýni að heyra yfirlýsingu mannsins sem las Suðurlandsblað Alþýðublaðsins um helgina: „Ekki vissi ég að Mia Farrow byggi í Vest- mannaeyjum." Guðlaugur Tryggvi Karlsson „Gömlu fúnu stoðirnar undir úrelta kjör- dæmaskipan gefa smám saman eftir en ferskur blær pólitísks raunveruleika og farsællar efnahagsstjórnunar streymir um íslenskt þjóð- og athafnalíf.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.