Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. fþróttir •Avi Cohen, sem lék áður með Liverpool, skallar hér boltann frá Nigel Worthington. Símamynd/Reuter Jafht hjá ísrael og N-írum ísraelsmenn náðu þeim óvænta árangri í gærkvöldi að gera jafn- tefli við Norður-íra í vináttulands- leik í knattspyrnu. Bæði lið gerðu eitt mark. Leikurinn, sem fór fram í Tel Aviv, var spennandi og vel leikinn af báðum liðiun. írar áttu þó fleiri færi og tóku því forystuna snemma í leiknum. Steven Penney skoraði markið með laglegu skoti utan úr teig. Heimamenn jöfhuðu síðan rétt fyrir ieikslok, beint úr auka- spymu, eftir að hafa sótt um hríð að marki gestanna. Markið skor- aði Zion Mariii. -JÖG. Ítalía vann Portúgal Einn ieikur fór fram í B-riðli undankeppni fyrir ólympíuleikana í gær en eins og kunnugt er leika íslendingar í þessum riðii. Italir unnu þá Portúgali, 1-0, eftir að staðan í hálfleik var 0-0. Það var Roberto Galia sem skoraði markið á 72. mínútu. 25 þúsund áhorfendur fylgdust með leiknum. -SMJ Spurs sigraði Tveir leikir fóm fram í NBA deiidinni b;mdarísku í fyrrakvöld. San Antonio Spurs liðið, sem Pétur Guðmundsson var seldur til í síð- ustu viku, sigraði Denver Nuggets með 131 stigi gegn 126. Atlanta Hawks sigraði Detroit Pistons með 107 stigum gegn 103. JKS Kristján yfir 4,85 Á innanfélagsmóti KR í gær- kvöldi setti Kristján Gissurarson persónulegt met þegar hann stökk 4,85 m. Hann átti 4,81 m best áð- ur. Felagi Kristjáns, Sigurður T. Sigurðsson, sigraði og stokk 4,95. Að sögn Valbjöms Þorlákssonar var Kristján um það bil 30 cm yfir ránni þegar hann bætti sig og er ekki langt að bíða að þeir félagar stökkvi yfir 5 metra. -SMJ Cottee skoraði Landslið Englands, skipað leik- mönniun 21 árs og yngri, lagði Spánverja að velli í vináttulands- leik í knattspymu í gærkvöldi með 2 mörkum gegn 1. Mörk Englend- inga skomðu þeir Tony Cottee og David Rocastle. Dadieskoraði hins vegar mark Spánverja. -JÖG. Mætast Lewis og Johnson? 4 mörk hjá Lineker - og Englendingar unnu Spánverja, 4-2, í vináttulandsleik •Gary Lineker er líklega mesti markaskorari knattspyrnunnar I dag. Símamynd/Reuter við þriðja markinu með skalla eftir að Zubizarreta, félagi Linekers hjá Barcelona, sem fyrir leikinn hafði að- eins fengið 13 mörk á sig í vetur, hafði slegið skot Peters Beardsley frá. Síð- asta mark Linekers kom á 56. mín. og skoraði hann það með hnitmiðuðu skoti frá vítateig. Lineker og Hoddle áttu góð færi í lokin en Ramon Vaz- quez minnkaði muninn fyrir Spán- veija á 77. mínútu. ósigrandi í 60 m og 50 m hlaupum inn- anhúss í vetur. Hann hefur hlaupið 60 m á 6,44 sek. og 50 m á 5,55 sek. Hvort tveggja er heimsmet. Carl Lew- is hefúr hins vegar átt við meiðsli að stríða og þurft að gangast undir upp- skurði á síðasta ári. Nú eru menn hins vegar að vonast til þess að Lewis sé búinn að jafha sig og geti farið að mæta Johnson í keppni. Yrði það svo sannarlega stórkostlegt að sjá þessa tvo afreksmenn, en þeir eru báðir 25 ára, mætast á hlaupabrautunum. Er i undirbúningi að koma á keppni milli þeirra og þá fyrr en síðar. Markamaskínan mikla, Gary Liné- ker, stóð svo sannarlega undir nafni í gærkvöldi. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörk Englend- inga í stórsigri þeirra á Spánverjum á Santiago Bemabeu leikvanginum í Madrid. Þetta var vináttuleikur milli þjóðanna og lokatölur urðu 4-2. Enska liðið sýndi mjög góðan leik með Lineker sem besta mann. Glenn Hoddle var mjög góður á miðjunni og Tony Adams steig varla rangt niður fæti í vöminni en þetta var hans fyrsti landsleikur. Lineker hefur ekki leikið jafnvel með enska landsliðinu en frammistaða liðsins var góð afmælis- gjöf til Bobby Robson landsliðsein- valds sem varð 54 ára í gær. Það var aðeins Emilio Butragueno sem eitthvað sýndi í spænska liðinu og hann færði Spánverjum forystuna með góðu marki á 14. mínútu. En þá byrjaði flugeldasýning Linekers. Hann skoraði fyrsta markið á 23. mínútu með skalla eftir sendingu frá Hoddle. Fjórum mínútum síðar skallaði Viv Anderson knöttinn fyrir fætur Line- kers sem skoraði af stuttu færi með vinstri fótar skoti. Þannig var staðan í leikhléi en eftir aðeins eina minútu af seinni hálfleik hafði Lineker bætt Svíar óttast velgengni handboltamanna sinna OFyrsta mark Linekers staðreynd. Þess má geta að Spánverjar fengu aðeins 8 mörk á sig í 13 landsleikjum 1986. Símamynd/Reuter Kanadamaðurinn Ben Johnson hef- ur tekið við af Carl Lewis sem fljótasti maður heims. Johnson hefur verið -vitna í flótta íslendinga í atvinnumennsku Þótt Svíar séu um þessar mundir í sjöunda himni yfir ágætri frammistöðu handknattleikslandsliðs síns óttast þeir jafhframt að velgengnin taki sinn toll. Erlend félagslið hafa nefnilega fylgt hvarvetna á hæla sænskum leik- mönnum og boðið þeim gull og græna skóga. Sænska handknattleikssam- bandinu er lítt um þessi tilboð gefið enda óttast forsprakkar þess að hrun handboltans í Svíþjóð sigli í kjölfarið. Til þess að spoma við þessu hmni hafa þær hugmyndir verið reifaðar að setja fastar reglur um kaup erlendra félagsliða á leikmönnum. Hefúr upp- hæðin 200 þúsund sænskar krónur verið nefnd í þessu sambandi fyrir hvern leikmann. Viðbrögð við þessum hugmyndum hafa verið með ýmsu móti en þó má segja að menn hafi mjög skipst í tvær andstæðar fylking- ar. Áhorfendur hugsa um pyngju sína og vilja fá eitthvað fyrir aurinn. Þeir standa því kröftuglega að baki þessum drögum handknattleikssambandsins. Leikmenn vilja hins vegar ekki láta binda sér haft um fót. „Ég get ekki ímyndað mér að þessar reglur nái fram að ganga,“ segir sænski landsliðsmaðurinn Erik Hajas. „I raun em þær mjög vafasamar. Þær hljóta að koma niður á leikmönnum þótt sú sé vitanlega ekki ætlunin. Kaupverð leikmanna verður nefnilega dregið af launum þeirra." „Það dugir ekki þeim sem hér búa að landsliðið eitt sé sterkt," lét einn handknattleiksunnandi hins vegar hafa eftir sér nú nýlega. „Við viljum sjá góðan handbolta hér heima fyrir - allan þann tíma sem hann er leik- inn.“ Það er nokkuð til í fullyrðingum beggja. Erik Hajas bendir til að mynda réttilega á að fjármunir séu ekki jafn- ráðandi þáttur í handknattleik og margur ætlar. Þeir leikmenn íslenskir sem spila í Þýskalandi þurfa til að mynda að sinna fúllu starfi með íþrótt sinni. Slíkt viðgengst ekki í knatt- spymu, enda em peningar í þeirri íþrótt ótrúlegir. íslendingar þekkja leikmanna- flótta af raun Islendingar þekkja svo sannarlega vel af raun hver áhrif það hefur er frambærilegir leikmenn hverfa til er- lendra félagsliða. Á blóðtökuna sem slíkum flutningum fylgir bendir Frank Ström, fulltrúi handknattleikssam- hands þeirra Svía; „Ef ekki er unnt að setja reglur sem hefta gegndarlausan flótta leikmanna úr landi verðum við samt sem áður að hafa hönd í bagga með ákvarðana- töku leikmanna. Það er nauðsynlegt að menn átti sig á hvílík blóðtaka leik- mannaflóttinn varð á íslandi. Góðir leikmenn hurfu í stórum hópum til erlendra félaga og eftir sátu vængstýfð liðin heima fyrir.“ Rætur lægingar- skeiðs handboltans hér á íslandi liggja vitanlega djúpt og víða en þessir þætt- ir, sem Ström nefnir hér að ofan, vega án efa þungt. Það er rétt nú í vetur sem hand- knattleikurinn hefur dafhað að nýju hér heima eftir nokkur dauf misseri. Efnilegir leikmenn eru nú komnir fram á sviðið og margir þeirra eru nú þegar burðarstólpar í sínum liðum. Áhorfendur hópast í hallir og íþróttahús til að fylgjast með sínum liðum enda standa íslendingar nú loks undir merkjum á Evrópumótum. Það er því óneitanlega bjart framundan í handknattleiknum hér á landi. Það er hins vegar eðlilegt að áhorf- endur og aðrir óttist atvinnumennsk- una. Skuggi hennar fellur jafnan á deildarmótin í hvert sinn sem leikmað- ur hverfúr úr landi - með svipuðum hætti á íslandi og i Svíþjóð. -JÖG. • Erik Hajas í glímu við tvo Spánverja. Fyrir stuttu léku Svíar tvo landsleiki við Spán og sigruðu, 21-20, og töpuðu, 19-20. Beveren vann án Gumma Torfa Kristján Benihurg, DV, Belgfu; Þrír leikir fóru fram í belgísku bik- arkeppninni í knattspymu í gær- kvöldi. Voru þetta fyrri viðureignir liðanna en léikið er heima og heim- an. Beveren vann Aalst á útivelli með tveimur mörkum gegn engu. Athygli vakti að Guðmundur Torfason var ekki í liði Beveren að þessu sinni. Þá sigraði CS Bruges Lokeren, einnig 2-0, og KV Mechelen sigraði Seraing, 3-0. -JÖG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.