Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Page 34
34
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987.
I gærkvöldi
Séra Ólarfur Skúlason dómpréfastur:
„Stórbætti ímynd prestsins“
Lítið fór fyrir útvarpshlustun í
gær. Og hefði reyndar éngu breytt
þótt ég hefði vitað um morguninn
að ég yrði beðinn um umsögn um
útvarp og sjónvarp að kvöldi. Ég
hafði ekki einu sinni tök á þvi að
hlusta á fréttimar eins og ég er van-
ur á hverjum þeim klukkutima sem
þeim er útvarpað svo framarlega sem
ég er nærri einhverju tæki. Og slíkur
var dagurinn að ég gat ekki einu
sinni hlýtt á hádegisútvarpið. En
enn frekar var forvitnin vakin að
vita hvað mundi gerast á alþingi við
það að þingmaður sat hádegisfund
þann sem ég sótti og sagðist þurfa
að fara fyrr en aðrir niður á þing til
þess að greiða atkvæði. Þá vissu all-
ir hvað hékk á spýtunni. Og ég rétt
náði því að heyra í fréttunum klukk-
an sjö að tillögu um fræðslustjórann
og ráðherrann hefði verið vísað frá.
Síðan var komið að sjónvarpinú.
Fréttasjúklingi eins og mér þykir
það gott að'- geta nú fylgst með því
helsta samfleytt í hálfan annan tíma.
Séra Olafur Skúlason.
Þó að títt sé um sömu fréttir að
ræða og ami að því að sjá sömu
myndimar frá útlöndum, það breyt-
ist nú vonandi fljótlega, þá er gott
að virða fyrir sér blæbrigðin og mis-
munandi áherslur. Að ekki sé talað
um þegar sjónvarpsstöðvarnar tvær
taka til við að leggja út af sömu
könnunum og fá gjörólíkar útkomur.
En til þess að reynast nú betri rýn-
ir kíkti ég við og við á spurninga-
þáttinn og þótti hann snöggtum
skárri en sá fyrsti, sem ég hafði séð,
en sá var býsna ömurlegur. Eftir
fréttayfirlitið sneri ég yfir á hina
stöðina af því að ég vissi hver var
gestur hjá Bryndísi. Þar var forvitni-
legt efhi og réð þar ekki einvörðungu
um þátttaka prests sem ég vildi sjá
af stéttlegri hollustu. En hjónaband-
ið, stofnun og slit og styrking er eitt
af viðfangsefnum svo til hvers dags
í starfinu. Þátturinn var góður, séra
Þorvaldur Karl afslappaður og
skilningsríkur án jjess að þykjast
hafa svör við öllu. Eg er viss um það
að hann stórbætti ímynd prestsins í
huga áhorfenda. En alltaf er ég jafn-
hissa á því hversu landinn er fús til
þess að hringja og tjá sig, já, jafnvel
syngja í útvarpið.
Bingó
r
Klúbburinn Þú og ég
- verður með bingó sunnudaginn 22. febrúar
J kl. 14 að Mjölnisholti 14 fyrir félaga og
f gesti þeirra.
Ýmislegt
Kristján Jóhannsson
á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveit íslands
1 Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tvenna
óperutónleika í þessari viku. Einsöngvari
með hljómsveitinni verður Kristján Jó-
hannsson óperusöngvari og stjórnandi
ítalski hljómsveitarstjórinn Maurizio
Barbacini. Fyrri tónleikarnir verða í
kvöld, 19. febrúar, kl. 20.30 í Háskólabíói.
Uppselt er á tónleikana og verða þeir end-
* urteknir á sama stað laugardaginn 21.
febrúar kl. 14.30. Á efnisskrá tónleikanna
i verður vinsæl óperutóníist eftir Verdi,
- Donizetti, Gounod, Ciléa og Puccini, aríur
og forleikir.
Skipulagsbreytingar í Náms-
gagnastofnun
Um síðustu áramót gekk í gildi nýtt
' stjórnskipulag í Námsgagnastofnun.
j Deildir voru sameinaðar og ráðnir yfir-
Ímenn verksviða.
Fjármálasvið: Korstöðumaður er Halldór
t Árnason hagfræðingur. Hann starfaði að
S loknu prófi í viðskiptafræði tvö ár í
* menntamálaráðuneytinu. Halldór lauk
^ mastersprófi í þjóðhagfræði frá háskólan-
•• um í Uppsölum árið 1983 og hefur síðast-
í liðin þrjú ár starfað í Þjóðhagsstofnun.
Námsefnissvið: Forstöðumaður er Sig-
, urður Pálsson guðfræðingur. Hann starf-
* aði sem kennari í Í2 ár að loknu
kennaranámi 1957. var skrifstofustjóri hjá
Ríkisútgáfu námsbóka 1969 1977, lauk
: RA-prófi í kristnum fræðum og uppeldis-
J fræði 1978 og starfaði sem námsstjóri í
« menntamálaráðuneytinu til ársins 1985.
Þá var hann ráðinn deildarstjóri í Náms-
f gagnastofnun þar sem hann hefur haft
< umsjón með námsefnisgerð.
Deildarstjórar á námsefnissviði: Bogi
; Indriðason hefur umsjón með framleiðslu
námsefnis. Hann hefur verið deildarstjóri
. í Ríkisútgáfu námsbóka og síðar í Náms-
. gagnastofnun síðastliðin 10 ár.
Karl Jeppesen hefur umsjón með
fræðslumyndagerð. Að loknu kennara-
prófi 1965 stundaði hann kennslu til ársins
1979. Hann starfaði við sjónvarpið frá
1966-1970 og aftur 1980-1981 er hann tók
• við stöðu deildarstjóra fyrst í Kennslumið-
stöð og síðan í fræðslumyndadeild.
Sölu- og afgreiðslusvið: Forstöðumaður
j er Haukur Viggósson. Haukur starfaði
; sem kennari í 6 ár að loknu kennaranámi
i 1979. Hann hefur verið innkaupastjóri
[ Námsgagnastofnunar frá 1983.
t Kennslumiðstöð: Deildarstjóri er Jón
} Guðmundsson. Að loknu kennaraprófi
* stundaði hann kennslu frá 1978-1985 er
» hann tók við starfi deildarstjóra í
? Kennslumiðstöð.
Skrifstofustjóri: er Eiríkur Grímsson en
hann hefur verið deildarstjóri fjármaál-
1 deildar Ríkisútgáfu námsbóka og síðar
; Námsgagnastofnunar sl. 10 ár.
Námsgagnastjóri er Ásgeir Guðmunds-
1 son.
Sérfræðiþjónusta íslendinga
vegna orku í Kenýa
Dagana 12. 16. febrúar 1987 ræddu full-
trúar frá orkumálaráðuneyti Kenýa við
íslenska aðila um hugsanlegt framhald á
sérfræðiþjónustu Islendinga vegna nýt-
inga jarðvarma í Kenýa. Undanfarin 10
ár hefur Virkir hf. unnið við ráðgjöf og
hönnun 45 MW jarðgufuvirkjunar á Olk-
aria svæðinu, en sú virkjun var komin í
full afköst árið 1985.
Frumkvæði að þessum umræðum átti
Albert Guðmundsson, iðnaðar- og ork-
umaálaráðherra íslands, en hann bauð
K.N.K. Biwott, orkumálaráðherra Kenýa,
í opinbera heimsókn til íslands. Viðræður
ráðherranna hafa lagt sterkan grunn að
frekari samskiptum milli fyrirtækja á ís-
landi og Kenýa á sviði orkumála.
Umræðurnar núna snerust um ráðgjöf
við að reisa nýja 60 MW jarðgufuvirkjun,
aðra nýtingu jarðvarma, jarðboranir og
rafvæðingu dreifbýlis. Fulltrúar frá Virki
hf., Jarðborunum hf. og Orkustofnun er-
lendis hf. tóku þátt í þessum umræðum
við fulltrúa frá stjórnvöldum Kenýa.
Islensku fyrirtækin kunna iðnaðarráð-
herra sérstakar þakkir fyrir hans einstaka
frumkvæði og hversu hann lagði sig fram
um að árangur næðist af umræðunum.
Öldrunarráð íslands
Á undanförnum árum hefur Öldrunarráð
Islands staðið fyrir námskeiðum og ráð-
stefnum um ýmis þau mál er varða velferð
aldraðra. Þátttakendur hafa verið úr röð-
um þeirra Ijölmörgu hópa er vinna störf
er snerta aldraða á einn eða annan hátt.
Sem kunnugt er hefur þjónusta við aldr-
aða farið vaxandi víðast hvar á Jandinu
og hefur því þörfin fyrir menntun og þjálf-
un starfsfólks farið vaxandi að sama skapi.
Því býður Öldrunarráð Islands nú upp á
tvær námsstefnur fyrir starfsfólk í öldr-
unarþjónustu. Hinn fyrri verður föstudag-
inn 27. febrúar nk. og verður haldin í
Hrafnistu, Hafnarfirði. Námsstefnan hefst
kl. 9 f.h. og henni lýkur um kl. 17 e.h. Þar
verður fjallað um mannleg samskipti, sam-
vinnu og samstarf, félagsstarf og þjónustu
og viðhorf til aldraðra. Þá verður að lok-
um rætt um markmið. og leiðir í öldrunar-
þjónustu og hver sé stefnan í framtíðinni.
Námsstefna þessi er fyrst og fremst ætluð
starfsfólki á dvalarstofnunum og þeim er
vinna að félagsmálum aldraðra. Leiðbein-
endur verða Þórir S. Guðbergsson og
Sævar Berg Guðbergsson. Síðari náms-
stefnan fjallar um geðheilsu aldraðra og
er haldin í samvinnu við Sálfræðingafélag
íslands. Verður sú námsstefna haldin
föstudaginn 13. mars í Borgartúni 6,
Reykjavík. Verður hennar getið nánar síð-
ar. Innritun í námsstefnur þessar er hjá
Öldrunarráði íslands sem nú er til húsa á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
Hringbraut 50. Sr. Gylfi Jónsson gefur
allar nánari upplýsingar og tekur við inn-
ritunum í síma 23620.
Sveitakeppni Júdó-
sambands íslands
var haldin í íþróttahúsi Kennaraháskóla
íslands laugardaginn 14. febrúar sl. Keppt
var í 2 flokkum. I drengjaflokki var keppt
í 5-manna sveitum, sem komu frá 4 félög-
um, Ármanni, 2 sv., KA. Akure.vri, 2 sv..
Grindavík, 2 sv. og ein sveit frá Suðurnesj-
um. Samtals 7 sveitir og 33 keppendur.
Keppt var með útsláttarformi, sem áður
hefur verið lýst, með tvöfaldriuppreisna-
rumferð. Til úrslita glímdu sveitir KA og
Ármanns, A-sv. Lauk þeirri viðureign með
sigri KA, 3 vinningum gegn 1. Einni viður-
eign lauk án þess að keppendum tækist
að skora stig. KA, Akureyri, varði þar
með titil sinn frá því í fyrra.
Röðin var annars þessi:
1. A sveit KA
2. A sveit Ármanns
3. B sveit KA
3. B sveit Ármanns
I flokki karla var keppt í 7 manna sveit-
um. Til leiks mættu 5 sveitir: frá Ármanni
2 sveitir og ein sveit frá Gerplu, Suðurnesj-
um, og blönduð sveit skipuð 2 Finnum, 2
Islendingum og 1 Hollendingi.
Keppt var í 1 riðli, allir við alla. Leikar
fóru þannig að A sveit Ármanns sigraði
með 4 vinningum, í 2. sæti var sveit Suður-
nesja og í 3. sæti B sveit Ármanns.
Sigursveitirnar skipuðu eftirtaldir
menn: A sveit KA, Akureyri: Ómar Arnar-
son, Þorgrímur Hallsteinsson, Friðrik
Hreinsson, Hans Rúnar Snorrason, Vern-
harður Þorleifsson.
A sveit Ármanns: Þór Kjartansson,
Rúnar Guðjónsson, Karl Erlingsson. Dav-
íð Gunnarsson, Halldór Hafsteinsson,
Arnar Marteinsson, Bjarni Friðriksson.
Átak til skjóls
Átak til skjóls hefur, svo sem þjóðin veit.
staðið yfir frá því fyrir hátíðirnar. Enn er
ekki talið að því sé lokið og mun að sjálf-
sögðu haldið áfram að taka á móti fram-
lögum, énda eru ónotaðir gíróseðlar frá
Skjóli enn víða á heimilum. Er það ósk
framkvæmdanefndar Skjóls að gíró-
seðlarnir verði notaðir þegar vel stendur
á fyrir fólki. Framkvæmdir við aðhlynn-
ingar- og hjúkrunarheimilið Skjól í
Laugarási standa nú sem hæst og eru 5
hæðir uppsteyptar. Útboði er lokið á múr-
verki öllu, gerð loftræstikerfis, raforku-
virkja , hita- og hreinlætiskerfi. Vinna
gengur skv. áætlun og verður fyrsti hluti
hússins væntanlega tekinn í notkun um
næstu áramót. Við bráðabirgðareiknings-
skil 1. febrúar höfðu 2.150.000 safnast á
bankareikning Skjóls. Til viðbótar fjár-
framlögum í söfnunina hafa ýmsar aðrar
góðar gjafir borist, tölvubúnaður, innrétt-
ingar, gólfmottur, gólfteppi o.fl. Þá hefur
stjórn Skjóls verið tilkynnt að ákveðið
hafi verið að ánafna aðhlynningarheimil-
inu nokkrar eignir. Erfitt er að meta
verðmæti gjafa og áheita sem enn berast.
Forráðamenn Átaks til skjóls færa þjóð-
inni alúðarþakkir fyrir veittan stuðning
og heita á hana til áframhaldandi hjálpar.
Samkeppni um ritun barna-
bóka
Námsgagnastofnun hefur efnt til sam-
keppni um gerð lesbóka fyrir 6-9 ára börn.
Samkeppnin mun standa næstu. tvö til
þrjú ár með þeim hætti að skil handrita
verður þrisvar á ári, 1. maí, 1. september
og 1. janúar. I fyrstu verður lögð áhersla
á bækur handa 6-7 ára börnum. Allt að
þrenn verðlaun verða veitt hverju sinni,
fyrir texta og/ eða myndefni, að upphæð
kr. 30.000 hver. Auk þessa verða veittar
sérstakar viðurkenningar fyrir verk sem
þykja álitleg. Ráðgert er að dómnefnd skili
áliti eigi síðar en mánuði eftir skiladag
hverju sinni. Samkeppnin hefur verið aug-
lýst í dagblöðum en Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir, Námsgagnastofnun, og Guðmundur
B. Kristmundsson, Æfinga- og tilrauna-
skóla K.H.I., munu veita væntanlegum
þátttakendum nauðsynlegar upplýsingar,
m.a. um lengd, þyngd, hlut myndefnis og
efnissvið. 1. skiladagur er 1: maí 1987.
Rauði krossinn
Um tvö hundruð og fimmtíu þúsund krón-
ur hafa nú safnast til fólksins sem missti
aleiguna í brunanum á Völlum í Mýrdal.
Strax daginn eftir að bruninn varð lagði
Rauði kross Islands fram eitt hundrað
þúsund krónur til Rauðakrossdeildarinn-
ar í Vík og deildin setti þá um leið af stað
söfnun í héraðinu. Rauðakrossdeildin á
Kirkjubæjarklaustri fylgdi svo fordæminu
og safnaði líka. Loks var tekið við frjálsum
framlögum á aðalskrifstofu Rauða kross
íslands í Reykjavík. Sem kunnugt er af
fréttum varð einnig bruni í húsi við
Freyjugötu í Reykjavík og þar missti ung
kona allt sitt. Áf hálfu Rauða kross ís-
lands hafa verið lagðar fram fimmtíu
þúsund krónur til Reykjavíkurdeildarinn-
ar og mun hún taka við frjálsum framlög-
um næstu daga. Reykjavíkurdeildin er til
húsa á Öldugötu 4 og síminn þar er 28222
á venjulegum skrifstofutíma.
Embætti æskulýðsfulltrúa
Þjóðkirkjunnar laust til um-
sóknar
Biskup Islands hefur auglýst embætti
æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkjunnar laust tíl
umsóknar og er frestur til 18. mars. Æsku-
lýðsfulltrúinn leiðir æskulýðsstarf kirkj-
unnar og hefur til samstarfs ])rjá
aðstoðaræskulýðsfulltrúa sem eru stað-
settir á Akureyri, Reyðarfirði og í Reykja-
vík. Við hlið æskulýðsfulltrúans starfar
æskulýðsnefnd Þjóðkirkjunnar og auk
þess starfsnefndir í héraði. Séra Agnes
Sigurðardóttir hefur gegnt embætti æsku-
lýðsfulltrúa undanfarin ár en hefur nú
verið skipuð sóknarprestur í Hvanneyrar-
prestakalli í Borgarfirði. Guðmundur
Guðmundsson guðfræðingur hefur verið
settur æskulýðsfulltrúi upp á síðkastið í
hennar stað.
Forsætisráðherra til
Sovétríkjanna
Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra og kona hans, frú Edda Guðmunds-
dóttir, hafa þegið boð sovésku ríkisstjórn-
arinnar um að koma í opinbera heimsókn
til Sovétríkjanna 1.-3. mars nk. Boð þetta
er m.a. þakklætisvottur fyrir góðan undir-
búning leiðtogafundarins og vegna mikilla
viðskipta landanna. Forsætisráðherra
mun m.a. eiga fund með Mikhail Gor-
batsjov, aðalritara miðstjórnar Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna, og viðræður við
Nikolai Rysjkov forsætisráðherra.
Ferðalög
Útivistarferðir
Dagsferðir sunnud. 22. feb.
1. kl. 13: þjóðleið mánaðarins. Lága-
skarð-Raufarhólshellir. Skemmtileg
gönguleið suður frá Hveradölum. Skoðað
verður mynni Raufarhólshellis en þar eru
oft ísmyndanir á þessum tíma.
2. ld.13: Skiðaganga um Hellisheiði. Gott
skíðagönguland. Verð kr. 600 í ferðirnar,
frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá
BSl, bensínsölu. Ath. Öskjur fyrir ársritin
eru komnar. Góuferð í Þórsmörk 13.-15.
mars.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 22. febrúar.
KI. 13: Jósepsdalur - göngu- og skíða-
ferð. Ekið verður að kaffistofunni og
gengið þaðan í Jósepsdal á skíðum eða
fótgangandi. Þægilegt gönguland er í Jós-
epsdal og við allra hæfi. Verð kr. 400.
Gangið með Ferðafélaginu í hressandi eft-
irmiðdagsgöngu. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Ath. Kvöldvaka um eyðibýlin á Jökuldals-
heiði verður miðvikudaginn 25.. febrúar.
Tilkynningar
Æfingar hafnar á Óánægju-
kórnum
Æfingar eru hafnar á næsta viðfangsefni
Leikfélags Reykjavíkur, breska gaman-
leiknum Óánægjukórnum eftir Alan
Ayckbourn. Þetta leikrit er nýtt af nál-
inni, var frumsýnt fyrir hálfu öðru ári í
breska Þjóðleikhúsinu og er enn sýnt þar
og hefur hlotið fjölda verðlauna. Höfund-
urinn er meðal þekktustu núlifandi
gamanleikjahöfunda og hefur samið á
þriðja tug leikrita. Óánægjukórinn fjallar
um áhugaleikflokk sem er að æfa Betl-
araóperuna eftir John Gay. Uppburðarlít-
ill skrifstofumaður gengur til liðs við
leikflokkinn en fyrr en varir er hann orð-
inn sá sem allt snýst um, bæði innan sviðs
og utan. Þetta er fjölmenn og litrík sýning
með fjölda söngva. Tólf leikarar koma
fram í sýningunni. Með aðalhlutverkin
fara Sigurður Sigurjónsson, Kjartan
Ragnarsson og Margrét Ákadóttir. Leik-
stjóri er Þorsteinn Gunnarsson.
Fundir
Norðlægt eyríki og umheim-
urinn
Félag vinstrimanna í Háskóla Islands
stendur fyrirfundi í Stúdentakjallaranum,
í dag, fimmtudaginn 19. febrúar, kl. 20.30.
Gestir fundarins með erindi verða Gylfi
Páll Hersir: Hvað er að gerast í S-Afríku?
Torfi Hjartarson: Mið-Ameríkustarfið á
Islandi. Guðrún Agnarsdóttir: Tengsl Is-
lands við alþjóðlegt friðarstarf. Álfheiður
Ingadóttir: Umhverfismál, hvar stöndum
við? Hvað er að gerast úti í heimi. Hver
er okkar skerfur til friðar- og umhverfis-
mála á alþjóðlegum vettvangi. Umræður
og kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði
er 75 ára í dag. Þetta er elsti kór lands-
ins en hann var stofhaður 19. febrúar
árið 1912. Stofhandi var Friðrik
Bjamason tónskáld og organisti,
söngmenn í upphafi ellefu en þeir eru
í dag fjörutíu og tveir.
Haldinn verður sérstakur -afmælis-
MS félag íslands
Fundur verður haldinn í kvöld, fimmtu-
daginn 19. febrúar, kl. 20 í Hátúni 12, 2.
hæð, matsal. Mætið vel og stundvíslega.
Kirkjufélag
Digranesprestakalls
heldur aðalfund sinn í dag, fimmtudaginn
19. febrúar, kl. 20.30 í safnaðarheimilinu
Bjarnhólastíg 26. Venjuleg aðalfundar-
störf. Hermann Lundholm sýnir litskyggn-
ur frá Kínaferð sinni.
Aðalfundur Kattavinafélags
íslands
verður haldinn í félagsheimili Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg sunnudaginn 22.
febrúar og hefst kl. 14.
Spilakvöld
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður spiluð laugardaginn 21.
febrúar kl. 14 í félagsheimilinu Skeifunni
17. Allir velkomnir.
Spilakvöld SÍBS og Samtaka
gegn asma og ofnæmi
Fimmta og næstsíðasta spilakvöld SlBS
og SAO í vetur verður á Hallveigarstöðum
við Túngötu í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Góð verðlaun eru í boði og kaffiveitingar
við vægu verði. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Árshátíðir
Átthagafélag Ingjaldssands
heldur árshátíð sína laugardaginn 28. fe-
brúar kl. 19 að Ármúla 40.
konsert í Hafnarfjarðarbíói klukkan
20.30 í kvöld. Efnisskráin verður fjöl-
breytt með erlendum og innlendum
lögum og einsöngvari verður Kristinn
Sigmundsson. Stjórnandi er Kjaptan
Sigurjónsson og undirleikari Bjami
Jónatansson.
Þrestirnir eru fjörutiu og tveir og halda í dag upp á þriggja aldarfjórðunga
afmæli. DV-mynd KAE
Afmæli Þrasta
í Hafnarfirði