Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1987, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987. 37 Sviðsljós Tíska frá Jakarta Indónesar ætla sér heilmikið í tískuheiminum og standa nú að átaki til þess að koma batikvörum sínum á vestrænan markað. Gert er ráð fyr- ir að vörurnar seljist til Bandaríkj- anna fyrir um það bil einn milljarð dollara og hafa Indónesar í huga að auka hlut sinn enn meira á næsta ári. patikkóngur þeirra - Iwan Tirta - notar hefðbundin og þjóðleg mynst- ur sem sum koma frá konungsfjöl- skyldunni í Jogyakarta og er þeim spáð miklum vinsældum þetta sum- arið. Markmiðið er að koma Indónesíu á blað með Hong Kong, Taiwan og Suður-Kóreu sem framleiðslulandi í tískuheiminum - aðallega hvað sum- artískuna snertir. Erfiðleikarnir eru að lítill markaður er heima fyrir þrátt fyrir fólksfjölda upp á 168 millj- ónir manna því landsmenn hafa litlar áhyggjur af vestrænum tískusveifl- um. Útflutningurinn er það sem gildir og hefur hann vaxið úr rúmum fimm hundruð milljónum dollara árið í fyrra í rúman milljarð á þessu ári. Þetta eru tölur fyrir Bandaríkin en Evrópubúar sýna aukinn áhuga þannig að ef til vill er þess ekki langt að bíða að frostbitnir Frónbúar klæðist Jakartakjólum og frökkum. Yngri fulltrúar bresku konungsfjölskyldunnar byrjuðu skiðaleyfið á sérþjáifuðu Ijósmyndarabrosi. Konunglegar salíbunur Vart var Fergie komin heim í höllina úr skíðaferðinni með kunningjunum þegar komið var að því að fara í eina slíka íjölskylduferð. Þau eru íjögur í Klosters á skíðum - Karl prins og Di, Andrés og Fergie. Sægur ljósmyndara situr um þau hvert sem haldið er og hinar konunglegu salí- bunur eru myndaðar í bak og fyrir. Strax í upphafi hafði Di það af að missa jafnvægið í miðri myndatöku og hafði næstum krækt Kalla og kompaníi í eina ólögulega hrúgu fyrir framan hlakkandi fjölmiðlamenn. Fergie bjargaði í horn og er nú í miklum metum innan bresku hirðarinnar. Fréttamynd af hinni konunglegu hersingu spriklandi í snjónum hefði glatt blaðamenn og ljósmyndara ósegjanlega en verið flokkað sem stórslys innan hirðarinnar. Uppréttur skal Karl standa hvað sem tautar og raular - er honum því vorkunn þótt á stundum minni einna helst á miður líflegan spýtukarl manna á meðal. Ber er hver að baki... Fergie reynir að halda Di á réttum kili meðan mestu myndahrinurnar ganga yfir. Ölyginn sagði... Steven Spielberg keypti húsið í Hollí þar sem áður bjuggu kempur eins og Douglas Fairbanks og Cary Grant. Draughræddir hafa á orði að ef til vill eigi andar fyrri eigenda það til að vafra um á fornum slóðum en það hreyfir lítt við filmusnillingn- um Spielberg. Reyndar þykja möguleikar á góðum drauga- gangi heldur kostur en hitt því þá má ef til vill taka á staðnum einhverja ógleymanlega kvik- mynd um dulin öfl frá öðrum tilverustigum. Victoria Principal er ákveðin í því að yfirgefa Dallasfamilíuna nú alveg á næstunni. Leikkonan segist hundleið á hinni dísætu Pam- elu og vill fara að túlka kvenfólk gert af holdi og blóði. Eiturtungurnar segja þetta aðallega vera launastríð og geri Victoria ráð fyrir að launaumslagið þykkni veru- lega þegar hún snýr aftur til Dallasþáttanna eftir stundar- hlé frá störfum. Patrick Duffy varð mun ríkari eftir slíka brottför og vill nú sykurkvens- an beita sömu aðferðum við framleiðendur. Það er eins gott að beita lyfjum sem virka á sjúklinginn strax í upphafi meðferðar - eða þannig! Gitte Nielsen, sem nú er orðin maddama Rambó, hatar ekkert meira en þegar fólk segir hana hæfi- leikalausa framadúllu. Hún var fyrir sjö árum orðin eftir- sóttasta fyrirsæta Dana og dvöl Gitte í Hollívúdd síðar bein afleiðing af margra ára velgengni á því sérsviði. Kvensan brá sér á heimaslóðir fyrir allnokkru og sat fyrir á nokkrum tískumyndum til þess að sýna löndum sínum að lengi lifir í gömlum glæð- um. Árangurinn sýndi að hún hefur engu gleymt og þykja myndirnar hin ágætasta sönn- un þess að Gitte þurfti ekkert á Stallone að halda til þess að komast á sinn stað í stjörnufestingunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.