Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Agnetha Fáltskog er að gefa út plötu þessa dagana og þar syngur hún barnalög með syninum Christian. Áður hefur Abba- sprautan sungiðjólalög með dótturinni Lindu þannig að komin var röðin að síðara Abbabarninu. Ennþá er Agnetha sögð á lausu - einn sjáðasti kvenkostur í Svíaríki - því skammt er um liðið síð- ap hún sparkaði síðasta elskhuganum út í ystu myrk- ur. En söngkonan er víst ekki af auðveiddu gerðinni og ófáir sem setið hafa eftir með sárt ennið eftir atlögu að kerlu. Silvia Svíadrottning kaupir kjólana sína á sama stað og Elizabeth Taylor. Þegar eitthvað fer að þynn- ast í fataskápnum hjá frauk- unum er stefnan tekin á Munchen þar sem hönnuð- urinn Maja Schultze-Lackn- er er til húsa. Sú harða Maja er þekkt fyrir pottþéttan smekk og treysta Silvia og Liz fullkomlega á ráðlegg- ingar hennar. Maja byrjaði sem sýningarstúlka en er nú talin meðal virtustu tísku- hönnuða Evrópu. Tenórinn Olafur G. Einarsson og söngvarinn Friðjón Þórðarson þöndu Omar Ragnarsson syngur sig, sem islenskur kavaler, hálfa leið f fang borg- brjóst og sperrtu stél - eöa þannig. arstjórafrúarinnar - Ástríöar Thorarensen. Davið Oddsson borgarstjóri brosandi að baki Ástríðar. Fergie er ásamt öðrum breskum frammámönnum mætt til Belgíu og ræðir þar við eftir- lifendur úr ferjuslysinu mikla. Hér sést hún ásamt Julie Zutic og dóttur henn- ar, Carly, en þær sluppu lífs af úr ferjunni Herald og Free Enterprice og dveljast á sjúkrahúsi í Knokke Heist í Belgíu. Syngjandi glaðir sjálfstæðismenn Skyldi Matthias Á. Mathiesen hafa reynt að tromma útlendinga upp úr skón- um? Hann lagði altént Laugardagshöllina að fótum sér meö nokkrum höggum. Árni Johnsen leitar textans með Eykoni og sá fyrrnefndi sagði síðar að þetta hefði verið eina atriðið sem heppnaðist hundrað prósent. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lauk með hófi í Laugardalshöll þar sem þingflokkurinn gegndi veiga- miklu hlutverki - sem endranær - söng og lék við hvurn sinn fingur. Veislustjóri var Sverrir Hermanns- son sem kynnti hljómleika þing- manna meðal annars með þessum orðum: „Nú kemur Ámi Johnsen á svið og djöflast." Fleiri en Árni tróðu upp, Matthías Á. Mathiesen tók trommusóló og léttar ballöður á píanó, Friðjón Þórðarson og Ólafur G. Einarsson kömu fram sem dúett en sá síðar- nefndi spilaði á munnhörpu að auki, Rómantíkerinn í hópnum er Birgir Isleifur Gunnarsson sem leikur listavel á píanó. Egill Jónsson á Seljavöllum tók lag- ið á nikkuna og tríó Kristínar Kvaran, Ragnhildar Helgadóttur og Salóme Þorkelsdóttur lét ekki sitt eftir liggja. Reyndar er haft eftir Kristínu Kvaran af því tilefni að hún hafi gengið af fúsum og frjálsum vilja í Sjálfstæðisflokkinn en þá ekki órað fyrir því að hún þyrfti að troða upp sem skemmtikraftur. Þeir eru ólíkt veraldarvanari frændur vorir í henni Ameríku þar sem alþjóð veit að allt slíkt er ómetanlegur grunnur fyrir verðandi pólitíkusa - að ekki sé nú minnst á forseta. Meðfylgjandi DV-myndir tók GVA Seljavallabóndinn, Egill Jónsson, tók lagið á nikkuna. v<- The Surprise Sisters? Tríóið er skipað þingmönnunum Ragnhildi Helgadóttur, Kristínu Kvaran og Salóme Þorkelsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.