Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. 37 Sviðsljós Krúttlegir karlar Kynþokki er vist eitt þessara afstæðu hugtaka en svo mikið er víst að á meðfylgjandi Reutersmynd eru tvö stykki sem stingandi er í - eins og kerlingin sagði. Hinn 232ja kílóa Konishiki þjarmar þarna að hinum 119 kílóa Wakashimazu í Spring Grand Sumo Tournament fjölbragðaglímunni sem fram fer í Osaka í Japan þessa dagana. Þar með vann Konishiki þriðja daginn í keppninni og stefnir í stórsigur ef fram heldur sem horfir. Fendisysturnar i Romaborg glæsilegu vetrarkápu. eiga heiðurinn af þessari Og á sýningunni í Milanó sýndu þær sömu kvöldkjól úr loðskinni. Tískan: Vítt fyrir veturinn Áfram skal haldið við að skýra frá nýjustu tískulínum vetrarins. Með- fylgjandi Reutersmyndir sýna hugmyndir Fendisystra - stutt og vítt skal það vera. Kvöldkjóllinn, sem var á sýningunni í Mílanó á þriðjudaginn, er gerður úr loðskinni - safalaskinn í pilsinu rakað á köflum til þess að fá út mynstur og hreysiköttur í brjóst, fald og hanskahnappa. Átfittið það fæst víst seint á tilboðsverði. Kápumyndin barst frá Rómaborg og er flíkin í flokknum sem sendur var á Mílanósýningarnar. Þar er notað vandað ullarefni og sérstaka at- hygli vekur herða- og kragasnið með nýstárlegu yfirbragði. Sýningunum lýkur um helgina. Ólyginn sagði.. Joan Collins þykir erfið í samskiptum eftir skilnaðinn. Þegar verið var að taka upp atriði sem ger- ast átti á veitingahúsi hætti leikkonan skyndilega að fylgja handritinu og starði út í salinn. Ekki lét hún stað- ar numið við það heldur hrópaði skerandi röddu að tvær konur úr hópi statist- anna skyldu umsvifalaust fjarlægðar. Ástæðan var sú að henni þótti sem tvímenn- ingarnir horfðu óþægilega fast í áttina að stjörnunni í tökunum. Aðdáunaraugu er á óvinsældalistanum um þessar mundir. Prem Tinsulanonda er forsætisráðherra Thai- lands og þurfti sem slíkur að þola þá meðferð að vera tyllt varnarlausum upp á úlfalda- bak og uppálagt að hanga þar um tíma. Tilefnið var opinber heimsókn ráðherr- anstil Egyptalands-reyndar sú fyrsta frá árinu 1944. Frá þeim tíma hafa heldur lítil samskipti verið milli ríkjanna tveggja og var því mikið um dýrðir í Kairó í tilefni kom- unnar. Hlífðartjásu var tyllt á höfuð karli svo hann fengi ekki sólsting á staðnum og nú er stóra spurningin - kemur reynsla okkar manns - Steingríms - af ógnvekj- andi skíðabrekkum að nokkru haldi á slíkum neyð- arstundum? Sean Connery og Audrey Hepburn eru í Parísarborg til þess að vera viðstödd verðlaunaveit- ingu frönsku kvikmyndaklík- unnar þetta árið. Franska menntamálaráðuneytið veitti þeim heiðursviður- kenningu og þykir mörgum gaman að sjá þessi gamal- kunnu andlit á tjaldinu að nýju. Bæði voru að mestu búin að draga sig í hlé frá öllu slíku en hafa nú tekið til við leikinn að nýju - og af endurnýjuðum krafti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.