Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1987, Qupperneq 40
JS&'. FRETT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 12. MARS 1987. Fólk spennt upp - segir Bjarki Elíasson „Ég held að fólk geri sér yfirleitt " '7‘kki grein fyrir þvi þegar það svarar svona spumingum hverju það er að svara. Þetta er svo teygjanleg spum- ing,“ sagði Bjarki Elíasson, vfirlög- regluþjónn í Revkjavík. „Skilgreining á því hvað er kvnferð- isafbrotamaður er náttúrlega ekki með í spumingunni. Þetta er svo mismun- andi hvort um lítilfjörlegt atvik er að ræða eða alvarlegt. Þetta er tilfinningamál og ekki síst vegna þeirrar umræður sem núna er í þjóðfélaginu. Fóik hefur verið svolít- ið spennt upp. Þannig að ég er ekkert hissa á þessari niðurstöðu. Hins vegar mætti benda fólki á að hugsa þetta frá hinni hiiðinni líka. Mvndbirting er ákaflega mikil refsing ij'rir manninn. En hún er kannski ennþá meiri refsing fvrir aðstandendur mannsins. böm hans og maka. Ef fólk velti því fyrir sér líka þá kannski mundu renna á það tvær grímur og ég er ekkert viss um að þá vrði sú niðurstaða sem nú er. Myndbirting er einnig .miklu meiri refsing í fámennu þjóðfélagi heldur en milljónaþjóðfé- lagi.“ sagði Bjarki. -KMU Díana Sigurðardóttir: 'Myndbirtmg ekki lausnin /s/ 2Ó0ÓÖIM LOKI Voru menn ekki búnir að fá nóg af skarnanum? Mannbjörg er bátur sökk í ísafjarðardjúpi: „Gerðist allt mjögsnögglega“ - sagði annar skipverja Mannbjörg varð er rækjubáturinn Hafrún frá Bolungarvík sökk skammt frá Ögumesi við ísafjarðar- djúp rétt eftir kl. 17 í gær. Tveir menn vom um borð og tókst að ná þeim um borð í annan rækjubát, Sigurgeir Sigurðsson, rétt áður en Hafnin sökk. „Þetta gerðist allt mjög snögglega en váð vorum í miðju togi er bátur- inn tók að sökkva." sagði Steíán Ingólfsson, annar skipveija, í sam- tali við DV en hann .og Friðberg Emanúelsson vom á Hafrúnu. Atburðarásin var hröð. Hafrún sendi frá sér nevðarkall kl. 17.05. Báturinn Sigurgeir Sigurðsson heyrði kallið en hann hafði þá ný- lega siglt fnunhjá Hafrúnu. Var Sigurgeir snarlega snúið við og stóð á endum að hann var kominn að stefni Hafrúnar um leið og skip- verjamir tveir vom komnir í gúmmíbjörgunarbát. Stuttu síðar sökk Hafrún. Tck ekki nema um 7 mínútur ffá því að neyðarkallið var sent þar til mönnunum hafði verið bjargað. Stefán sagði að þeir hefðu verið búnir að veiða um 600 kg af rækju er Hafrún sökk en hann vildi að öðm leyti ekki tjá sig um málið fyrr en sjópróf hefðu farið fram. Veður var mjög gott á þessum slóðum er óhappið varð. -FRI „Ég er ekki mjög hlynnt mynd- birtingum af kvnferðisafbrotamönn- um af þeirri einföldu ástæðu að ég tel það ekki lausn vandamálsins," sagði Díana Sigurðardóttir. forystu- maður um stofnun baráttusamtaka gegn kynferðisglæpum. „Ég tel lausnina hins vegar felast í því að ná til þessara afbrotamanna. dæma þá eða koma í meðferð ef þörf þvkir. Með því móti væri ef til vill hægt að koma í veg fvrir að þeim _ ^'rði hlevpt aftur út í þjóðfélagið verri en þeir voru. Aftur á móti er engum vafa undirorpið að mvndbirt- ing af kynferðisglæpamanni er í sjálfu sér refsing gagnvart honum,“ sagði Díana um skoðanakönnun DV. -EIR Það er upplagt að fara að dæmi þessa manns og nota frostleysið til að skólpa af bilnum sinum. Seppi situr þarna spakur í skottinu á meðan húsbóndinn sýnir tilþrif við hreingerninguna. DV-mynd KAE/-Dr Byggingamenn: Árangurslítill næturfundur Fundur stóð til klukkan 3 í nótt í kjaradeilu byggingamanna og við- semjenda þeirra en árangur varð heldur lítill. Að sögn Guðlaugs Þor- valdssonar ríkissáttasemjara ríkti engin kyrrstaða á fúndinum, menn ræddust mikið við en hreyfing í sam- komulagsátt varð ekki mikil. Nokkur hreyfing komst á samninga- málin hjá byggingarmönnum í fyrri- nótt og voru menn harla bjartsýnir í gær en ekki virðist hafa orðið fram- hald á þessu í nótt. Annar samninga- fundur hefur verið boðaður í dag kl. 17. -S.dór Veðrið á morgun: Élum vestanvert landið Á fóstudaginn verður suðvestanátt um land allt. É1 um vestanvert landið en úrkomulaust og víða létt- skýjað um landið austanvert. Hiti verður á bilinu 0-2 stig. Máni GK fékk Það óhapp varð um áttaleytið í morgun, að Máni GK-36 fékk á sig brotsjó þegar hann var á leið til veiða. Mikill leki kom að bátnum og var honum fljótlega snúið til hafnar. í morgun var unnið við að dæla upp úr honum þar sem hann lá í höfninni í Grindavík. Máni, sem er rúmlega 70 tonna bát- ur í eigu Hraðfrystihúss Grindavíkur, var kominn vel út úr höfninni þegar hann lenti í slæmri kviku. Sprungu þiljur í lúkar og sló úr á milli planka. Kom þegar mikill leki að bátnum. Honum var fljótlega snúið til hafhar og komst hann þangað af eigin ramm- leik. Var þá sjórinn í lestinni orðinn 1,20 m djúpur. Að sögn hafnarstjórans í Grindavík, Bjama Þórarinssonar, var mildi að báturinn var ekki kominn lengra út því vafammál er áð dælur hans hefðu haft lengi við lekanum. Báturinn ligg- ur nú í höfninni í Grindavík og vann slökkviliðið í morgun við að dæla úr honum. Veður var slæmt í Grindavík í nótt, kröpp bára og vindasamt. í morgun var komið stilltara veður og bátar all- flestir komnir á sjó. -JSS Áform um að reisa sorpbrennslu fyr- ir allt höfuðborgarsvæðið og framleiða úr sorpinu brennsluefni fyrir verk- smiðjur eru dottin upp fyrir í bili. Lækkun olíu á heimsmarkaði kippti fótunum undan þessum áætlunum. Nú er líklegast að sorp af höfúð- borgarsvæðinu, frá Halnarfirði upp á Kjalames, verði urðað við Selöldu sem er sunnan Krísuvíkur. Helsti gallinn við það úrræði er langur vegur frá mesta sorpsvæðinu, höfuðborginni sjálfri, en sú leið er yfir 40 kílómetra löng. Hugmyndir um urðun við Salt- vík eða Álfsnes á Kjalamesi hafa ekki hljómgmnn þar í nágrenninu. Núna eru tveir sorphaugar á þessu svæði, við Gufunes og sunnan Hafnar- fjarðar við Krísuvíkurveg. Þeim haug á að loka í sumar og flytja allt sorp af svæðinu til Gufuness. Þar er hægt að taka við sorpi í fjögur ár til við- bótar en eftir það verður að finna annað eða önnur úrræði. Um 115.000 tonn af sorpi falla til á i þessu svæði yfir árið. Við athuganir á nýtingu sorpsins þótti arðbærast að I velja úr því til þess að búa til brennan- legt eldsneyti í kubbum eða mjöli sem j hægt væri að selja i gámum hvert sem | væri. Eldsneytið gæti hentað vel fiski-1 mjölsverksmiðjum og fleiri iðnfyrir- tækjum. Fleiri kostir voru kannaðir til þess [ að nýta sorpið og var niðurstaðan sú ’ að hægt væri að ná út úr því samsvar- andi og 5-10 megavatta orkuveri. I Þegar olíuverðið snarlækkaði var | framleiðsla sorporkuversins orðin of0 dýr. -HERB Aðalsteinn Sigfusson: Allt annað fyrst „Ég tel ekki rétt að birta myndir af kynferðisafbrotamönnum fyrr en búið er að gera allt sem hægt er gagnvart þeim,“ sagði Aðalsteinn Sigfússon, sálfræðingur hjá bamaverndamefnd. „Þar á ég við langa fangelsisvist, meðferð eða þá að eftirlit með þeim sé skilyrt fangelsisdómi. Það er síðan fagfólks að meta hvort viðkomandi sé hættulegur umhverfi sínu. Ef svo er geta myndbirtingar ef til vill átt rétt á sér,“ sagði Aðalsteinn um niðurstöð- ur skoðanakönnunar DV. -EIR i 4 i á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.