Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987. 3 Fréttir ÁhlaupiðáAkureyri: Lystigarður- inn slapp fyrir hom Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: „Ég held að þetta sleppi. Það hefði orðið verulegt tjón í lystigarðinum ef hlýindin hefðu haldið áfram næstu tvær vikurnar og þetta óveður skoll- ið þá á,“ sagði Axel Knútsson, garðyrkjufræðingur og forstöðumað- ur lystigarðsins á Akureyri, við DV í gær. Akureyringar vöknuðu þá heldur betur upp við vondan draum, komin norðanstórhríð eins og hún gerist best og fimm stiga frost. Snjókófið gekk á allan daginn í gær, en með smáhléum. Fjölærar plöntur í Lystigarðinum voru farnar að taka vel við sér og mátti litlu muna. „En sem betur fer eru langflest blómin og runnarnir hér í garðinum sofandi ennþá,“ sagði Axel. Snjómoksturstæki Akureyrarbæj- ar voru öli á fljúgandi ferð við að moka götur bæjarins í gær, í nógu að snúast við að moka og ryðja. Sjón sem Akureyringar hafa ekki séð lengi. Það eru ekki allir sem hafa áhyggjur af görðum sinum i kuldakastinu. Þennan rákumst við á úti á Seltjarnarnesi sem engar áhyggjur þarf að hafa þvi garður hans er gerður úr grjóti og engar plöntur að finna i honum. DV-mynd GVA Hvolsvöllur: Trjágróður skrælnaði í kuldanum HaDdór Kristjánssan, DV, HvolsveDi; Trjágróður og runnar liggja nú undir skemmdum vegna kuldakastsins sem nú stendur yfir. Var trjágróðurinn víða farinn að grænka þegar veður kólnaði og hefur hann skrælnað af völdum kuldans. Þá voru laukar og blóm í görðum farin að taka við sér, en verða að sjálfsögðu illa úti. Veður hafði verið með eindæmum gott áður en kólnaði og var víða farið að grænka. Snjóföl setti niður þegar veður kólnaði. Telja menn að það hafi bjargað miklu og komið í veg íyr- ir teljandi kal i túnum í vor. Á nokkrum stöðum hefúr færð verið slæm á vegum vegna skafrennings, til dæmis í Landeyjunum. Urðu einhverj- ir að skilja bíla sína eftir á þeim slóðum vegna ófærðar. Þess má geta að verið er að kenna sund í 10 stiga gaddi á Hvolsvelli. Bíta menn á jaxlinn og mæta til leiks, þrátt fyrir kuldann. Norðanbræla Hatstínn JónsBcn, DV, Hefliasandr Um helgina gerði norðanbrælu en annars hefúr verið bh'ða frá áramót- um. Snjólaust er á Hellissandi og nágrenni og mesta frost sem komið hefur er 8 stig á Gufúskálum. Gróður hafði ekkert tekið við sér, þegar kólnaði, þannig að hann ligg- ur ekki undir skemmdum. Vertíðin fór vel af stað þegar fiskiríið hófst eftir verkfallið. Síðan datt það niður í ekki neitt. Þannig hefúr það verið þar til fyrir rúmri viku að þó kom þriggja daga vertíð, eins og menn þekkja hana hér, með rúmum 20 tonnum á bát. Svo datt það niður og síðan ekki söguna meir. Ahlaupið í Vestmannaeyjum: Fólki hjálpað til og fra vinnu Ómar Garöarsson, DV, Vestmarmaeyjum; Á aðfaranótt þriðjudagsins byrjaði að snjóa í Vestmannaeyjum. Á þriðju- dagsmorguninn var kominn allmikill jafnfallinn snjór. Voru flestar ef ekki allar götur bæjarins ófærar. Lögregla hjálpaði fólki milli húsa á meðan hún gat en þegar hennar bíla- kostur dugði ekki til voru Hjálparsveit skáta og Björgunarfélag Vestmanna- eyja kölluð til, en báðar þesar sveitir hafa yfir að ráða stórum og öflugum bílum. Var fólk aðstoðað við að kom- ast á milli húsa, til að mynda fékk starfsfólk sjúkrahússins aðstoð við að komast í og úr vinnu. Þennan morgun voru tveir sjúkra- flutningar sem sveitimar aðstoðuðu við. Skólum var ekki lokað, nema Ham- arsskóla sem var lokað um tíma á þriðjudaginn. Seinni hluta þriðjudagsins fór svo að hvessa af norðri og skóf þá tals- vert. Hélst svo alla aðfaranótt mið- vikudagsins og í gærmorgun hafði skafið í slóðir. Vom þá bílar fastir hér og þar um bæinn. Reyndist frekar er- fitt að halda götum í úthverfum opnum vegna þessa. Ékki er kunnugt um gróðurskemmd- ir, en fyrir áhlaupið var hitinn 6-8 stig í Vestmannaeyjum. Gróður var því farinn að grænka. Þá munu blóm í görðum hafa verið farin að springa út. Trjágróður í Eyjum er ekki mikill og er ekki vitað til þess að skemmdir hafi orðið á honum. En viðbrigðin em mikil að fara úr 6-8 stiga hita í 6-8 stiga frost og fylgir því vindur upp á ein 10 vindstig. Höfh, Homaflrði: Vindhraði 90 hnútar í verstu hviðunum Júlia Imsland, DV, Hofn; Eftir þá dásemdarveðráttu sem verið hefur að undanfömu bregður mönnum við þegar veturinn bærir á sér. Engin snjókoma er á Suðausturlandinu en víða mjög hvasst. Á Homafjarðarflug- velli mældist vindhraðinn í gærmorg- un 90 hnútar í sterkustu hviðunum og 60-70 hnútar þess á milli framan af degi. 64 hnútar samsvara 12 vind- stigum. Þegar vindátt er á norðan eða norð- austan, eins og núna, og hvasst er mikið moldrok. Annars em vegir eins og á sumardegi og jörð alauð. Gróður mun ekki hafa skemmst, að minnsta kosti ekki ennþá. Ekki hefur frést af tjóni í rokinu, nema hvað að þak tók af gamalli hlöðu í Miðfelli. En bóndinn sagði að það teldist aðeins til hjálp- semi skaparans því eiginlega hefði átt að vera búið að rífa hlöðuna Kennslu aflýst eystra Arma IngöKsdóBir, DV, Egilsaöðum; Aiwtfirðingar urðu að taka fram vetrarfötin aftur í gærmorgun. í fyrrinótt gerði skafrenning sem haföi í för með sér að ófærð varð milli nánast allra staða á Austurlandi. Virtist veðriö vera einna skást á Héraði en mun verra á fjörðunum enda kennslu aflýst víðast hvat. Að sögn vegagerðarmanna á Reyðarfirði var allt ófært nema hvað fært var jeppum og stórum bílum til Fáskrúðsfjarðar frá Reyðarfirði. Ekki er talið að þetta áhlaup valdi miklum gróðurskemmdum en í Hall- ormsstaðarskógi var lerki aðeins farið að taka við sér en menn telja að veðrið nú valdi því ekki skaða. ÁTT KJ 100.000 KR. OG ELDRIFORD ESCORT? Með Ford skiptíkjörum getur þú auðveldlega eignast nýjan ESCORT ’87 Dæmi: Peningar 100.000.- lán 101.700.- eldri Escort u.þ.b. 270.000.- = Nýr ESCORT1300CL 5 dr. kr. 471.700.- Ford Escort - framdrifími þýskur gæðabíll j > SVEINN EGILSSON HF. j Skeifunni 17. Sími 685100. í Wm Laugardaga 13-17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.