Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sínrti 27022
Frjálst, ohaö dagblao
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
Lögreglan handtekur sprengjugabba-
rann. DV-mynd S
Spengjugabb á Alþingi:
Ölvaður
maður
handtekinn
Hringt var í Alþingi í gærkvöldi og
sagt að sprengja væri í húsinu.
Sá sem hringdi var greinilega undir
áhrifum áfengis og hélt starfsfólk
þingsins honum í símanum með sam-
ræðum meðan símtalið var rakið.
Lögreglan handtók síðan manninn í
tramhaldi af því.
í morgun yfírheyrði rannsóknarlög-
reglan hann. Þessi sprengjuhótun var
ekki tekin alvarlega í þinginu.
-FRI
Skipstjórar
verða áfram
við stýrið
Ekkert verður úr verkfalli skipstjóra .
á kaupskipaflotanum. Þeir sömdu við
vinnuveitendur við sólarupprás í
morgun. Samningurinn er sambæri-
legur öðrum samningum við farmenn.
Umfram það samdist um lífeyrisrétt-
indi, sem voru áður mjög ólík innan
stéttarinnar, milli útgerða. Samið var
til þriggja ára. Skipstjórar greiða at-
kvæði um samninginn á næstu sex
vikum. -HERB
^ 26060
LOKI
Nordal á sýnilega
erindi í
Víkingasveitina!
Opinberir starfsmenn haldi lífeyrisréttindunum:
Bankastjörínn setti
mothi á sprengjuna
Stóra lífevrisnefndin, sem hefur
haft það hlutverk í áratug að end-
urskoða lífeyrissjóðamál lands-
manna, var hætt komin þegar hún
mætti á fund í gær. Kvisast hafði
út fyrir fund þessarar 17 manna
nefndar að Kristján Thorlacius,
formaður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, myndi segja sig úr
nefndinni. Ekkert varð úr upp-
hlaupinu þar sem formaðurinn.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri,
varpaði fram óvæntri sáttatillögu.
Samkvæmt heimildum DV er sú
tillaga studd af Alþýðusambandini;
og Vinnuveitendasambandinu. í
henni felst nánast alger sigur opin-
berra starfsmanna í deilum um
lífeyrissjóðastefnuna. Undirnefnd
hafði lagt fram drög að lagafrum-
varpi þar sem lífeyrisréttindi voru
framvegis algerlega bundin inn-
borguðum iðgjöldum. Opinberir
starfsmenn hafa þar á móti lengi
fengið verulegar uppbætur, ígildi
verðtryggingar, á lífeyri sinn, frá
ríki, sveitarfélögum og öðrum sem
greiða í lífeyrissjóði þeirra.
Þessum réttindum vildu þeir ekki
fórna, heldur hvöttu aðra til þess
að sækja sama rétt. Tillaga Jó-
hannesar Nordal gerir ráð fyrir að
opinberir starfsmenn haldi réttind-
um sínum, nema um annað semjist
milli aðila. Haldist réttindin verði
þau metin af sérstökum dómi inn í
iðgjaldagreiðslur hins opinbera.
Iðgjöld starfsmanna verði óbreytt
eftir sem áður. Þetta telur Kristján
Thorlacius viðunandi sáttagrun-
dvöll og þar með er að minnsta
kosti komið á vopnahlé í lífeyris-
sjóðastríðinu.
-HERB
Skattrannsóknarstióri sendi Albert bréf:
Krafinn
skýringa
á framtali
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og Kristín Sigurðardóttir forn-
leifafræðingur fyigjast með er Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur
tekur upp forláta hverfistein sem var meðal þess sem fannst undir gólf-
inu í Bessastaðastofu við fornleifauppgröft þar undanfarnar tvær vikur.
DV-mynd GVA
Sjá bls. 2
„Fundurinn á föstudag var bara
venjulegur þingflokksfúndur og á
honum var auðvitað rætt um ýmis
mál. Þar á meðal sagði Albert Guð-
mundsson þingflokknum frá því að
honum heföi borist bréf frá skattrann-
sóknarstjóra og hann beðinn skýring-
ar á ákveðnum þáttum," sagði Friðrik
Sophusson í morgun er DV bar undir
hann fullyrðingar Helgarpóstsins þess
efíiis að Þorsteinn Pálsson, formaður
flokksins, heföi kallað Albert Guð-
mundsson á sinn fund fyrir nokkru
og krafist þess að hann segði af sér
ráðherradómi, hyrfi af framboðslistan-
um í Reykjavík og hætti jafrivel
þingmennsku.
„Það lá ekkert fyrir um neina af-
sögn. Albert bara sagði frá þessu.
Hann sagði okkur frá þessu í sumar.
Þá lýsti hann öllu þessu máli fyrir
þingflokknum."
- Veistu til þess að búist sé við ákæru
á hendur Albert?
„Nei. Ég veit ekki hvort það er búið
að ákveða eitt eða neitt í þessu máli
af hálfu skattrannsóknarstjóra.
- Urðu einhveijar umræður í þing-
flokknum eftir að Albert skýrði frá
bréfinu?
„Nei. Formaðurinn tók til máls. Þið
verðið að tala við hann um það ef það
hafa verið einhveijar einkaviðræður
þeirra á milli sem ég veit ekki um.“
- Kom fram krafa um afeögn á þing-
flokksfúndinum?
„Nei, það kom engin slík krafa
fram,“ sagði Friðrik.
Þorsteinn Pálsson var spurður í
morgun hvort þetta væri rétt. Ráð-
herrann svaraði því einu að hann heföi
ekki lesið frétt Helgarpóstsins.
Ekki náðist í Albert Guðmundsson
í Kaupmannahöfri í morgun þar sem
hann situr fund iðnaðarráðherra
Norðurlanda.
-KMU
Veðrið á morgun:
Suðvestanátt
á landinu
Á föstudaginn verður suðvestanátt
á landinu með skúrum eða slydduélj-
um á Suðvestur- og Vesturlandi en
þurrt norðaustanlands. Hiti 2-5 stig.
Þingmenn
heim í dag
Stefht er að þinglausnum klukkan
16 í dag. Tólf þingmenn stefna ekki
að endurkjöri og eru því að ljúka þing-
mannsferli sínum. Aðrir hefja kosn-
ingabaráttuna að fullu til að ná
endurkjöri 25. aprfl.
Fundir í efri og neðri deild Alþingis
voru á dagskrá klukkan 11 í morgun.
Nokkur lagafrumvörp verða væntan-
lega samþykkt.
I sameinuðu þingi er áætlað að setja
fúnd klukkan 14. Þar á að samþykkja
nokkrar þingsályktunartillögur og
kjósa í nefndir og ráð.
-KMU
f
f
i
\