Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987. 31 dv Sandkom Góðu númerin það kom í ljós við atkvæða- greiðslu á Alþingi um nýju umferðarlögin að þingmönn- um er mörgum hverjum virki- lega annt um bílnúmerin sín. Var á endanum samþykkt að halda gamla númcrakerfinu, með naumum meirihluta þó. Það er annars svolítið fróð- legt að gaumgæfa bílnúmer þeirra þingmanna sem börðust hart gegn því að nýtt kerfi yrði tekið upp. Meðal þeirra var Ingvar Gíslason sem ekur á A-778, Friðjón Þórðarson á P-16, MatthíasÁ. Mathiesen á G-222, Ólafur G. Einarsson á G-2000, Páll Pétursson á H-1500, Pálmi Jónsson á H-21 og Stefán Guðmundsson á K-600. Ij<)ks var Garðar Sig- urðsson eini þingmaður Alþýðubandalagsins sem vildi halda fast við gamla kerfið. Hann ekur um á V-3. Einhver myndi nú freistast til að álíta að ofangreindir þingmenn hcfðu ekki haft hag bifreiðaeftirlitsins í huga þeg- ar þeir greiddu atkvæði gegn nýju bílnúmerakerfi. Haildór Ásgrímsson. Jón Baldvin Hannibalsson. Múrbrjóts- menn... Þingmennirnir okkar tala stundum svolítið illa hver um annan þcgar þeir eru fjarri þingsölum. Eflaust gera þeir þetta til að kæta áheyrendur í trausti þess að sá umtalaði komist ekki að ummælunum. En það getur oft brugðið til beggja vona. Það var á dögunum að Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra mætti á fund í Skansinum í Vestmannaeyj- um. Þar ítrekaði hann stíft þá skoðun sína að hafa fiski- skipamarkaðinn lokaðan eins og nú er. Minnti hann í því sambandi á stefnu Jóns Bald- vins Hannibalssonar í þessum málum og sagði í því sam- bandi: „Múrbrjótsmenn eins og Jón Baldvin og svoleiðis andskotar." En nú má búast við að skrattinn hafi komist í skyrið því blaðið Bæjartíðindi sagði frá fundinum og hafði þessi ummæli meira að segja í fyrir- sögn. Gottið í kaupfélaginu Það tíðkast víða, meðal annars á Húsavík, að börnin klæði siguppáá öskudaginn ogheimsæki verslanir. Þar hefja þau upp raust sína og syngja nokkur lög. Að launum fá þau sælgæti eða peninga eftiratvikum. Á öskudaginn síðasta hcim- sóttu einhveijir krakkar kaupfélagið. Þeirtrölluðu þar af hjartans lyst eins og gott- erísjúkar sálir einar geta. En heldur urðu vonbrigðin sár þegar félagshyggjufyrirtækið rétti þeim umbun fyrir afrekið. Gotteríið reyndist nefnilega vera eldgamalt og alls ekki söluhæft. Þar á meðal voru gulir ópalpakkar með brúnu ópali og fleira komið til ára sinna. Olli þetta vonbrigðum þeirra y ngri og hneykslun þeirra eldri. En Húsvíkingar velta því nú fyrir sér hvort kaupfélagið geti ekki komið þessu gamla góssi milliliðalaustá ösku- haugana. Stjómar- skráin féll Margir hafa haft gaman af mælskukeppni framhaldsskól- anna sem sjónvarpað hefur verið frá að undanfómu. Er oft gaman að fylgjast með til- þrifum snillinganna sem þar eigast við. Hið eina sem að því mætti finna er að þeir virðast allir hafa æft eftir sömu bók- inni svo líkir eru taktarnir sem þeir nota í pontu. Ein er sú viðureign sem lík- lega hefur vakið mesta at- hygli. Það var keppni MR og Garðbæinga. Rifust þeir um ágæti einræðis og lýðræðis. Það hefur vafalaust komið nokkuð flatt upp á tilheyrend- ur þegar einn Garðbæingur- inn dró úr pússi sínu stjómarskrá íslands og hamp- aði henni um stund. Að því loknu henti hann henni í gólf- ið. Að vonum hneyksluðust margir á þessu framferði sem ekki þjónaði neinum tilgangi að því er séð varð. En það er svona þegar mál- skrúðið þrýtur... Guómundur Einarsson. Eðlileg afleiðing Kosningabarátta kratanna tekur á sig ýmsar myndir. Þeir hafa hampað ..sigurlist- anum“ svokallaða sem mun að þeirra sögn vera óvinnandi virki. En ekki mun alls staðar tak- ast sem skyldi ef taka má mark á Alþýðublaðinu í gær. Þar var íjallað í stórri grein og myndskreyttri um framboð Guðmundar Einarssonar á Austfjörðum og áherslumál hans í kosningabaráttunni. Og fyrirsögnin var: „Fólksflótti hafinn frá Aust- urlandi.*' Skvldi annars nokkurn undra. llmsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Opið i laugardögum PANTANIR SÍMI13010 m ' ! KREDIDKOR TAPJONÚS TA HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. BÍLASALAN Borgartúni 25, sími 17770. M. Benz 280 GE '85, sjálfsk. 24. þ. km. V. 1.420 þ. Range Rover '84, sjálfsk., 31 þ. km. V. 1.100 þ. AMC Eagle J 10 79, sjálfsk., 97 þ. km. V. 670 þ. Toyota Hilux bensín ’82, 100 þ. km. V. 430 þ. Chevrolet K 10 dísil, hús R. Vals '78, nýuppt. vél, splittuð drif. V. 590 þ. Wagoneer 79, 129 þ. km. V. 450 þ- Toyota Hiace dísil, m/sætum, '82, nýuppt. vél + kassi. V. 430 þ. Willys CJ7 ’81,35 þ. míl. V. 550 þ. Wiilys CJ5 ’67, 6 cyl., 4 gíra, m/ húsi. V. 230 þ. Isuzu Gemini ’81, 60 þ. km. V. 180 þ- Lada Sport ’82,60 þ. km. V. 200 þ. Daihatsu Cap Van 4x4 ’85, 53 þ. km. V. 350 þ. Subaru 1800 hatchback 4x4 ’84, 60 þ. km. V. 430 þ. Mazda 323 ’85,12 þ. km. V. 340 þ. Subaru 1800 station GLE ’84, 80 þ. km. V. 460 þ. Vantar nýlega bila á skrá og á staðinn. Upplýst og vaktað svæði. Nokkrir af þeim bílum sem eru á skrá fást á 12 til 24 mán. kjörum. Dalarafn VE-508 i höfninni í Eyjum. DV-mynd Ómar 4P* f Vél bilaði í Dalarafhi VE Ómar Gaiðaisaan, DV, Vestmarmaeyjum: Það óhapp varð á dögunum að Dalar- aíh VE-508, sem var að netaveiðum fyrir austan Eyjar, varð vélarvana. Veður var slæmt, vestanrok, þegar óhappið varð. Lóðsinn fór til að aðstoða Dalarafn og gekk vel að koma taug yfir í hann. Dró lóðsinn síðan bátinn til lands, Fljótlega eftir, að taug var komin milli skipanna lægði, þannig að heim- ferðin gekk vel. Er nú verið að kanna hvað er að vélinni í Dalarafni. en út- lit er fyrir að það sé nokkuð alvai-Ieg vélarbilun. Flokkur m Framboðslisti Flokks mannsins á annsins á V< 2. Þórdís Una Gunnarsdóttir verka- sstfjörðum 4. Pétur Hh'ðar Magnússon sjómað- Vestljörðum hefúr verið ákveðinn. maður, Patreksfirði. ur, Bolungarvík. Efstu sætin skipa: 5. Birgir Ingólfsson sjómaður. Pat- 1. Þór Öm Víkingsson afgreiðslu- 3. Hrefha Rut Baldursdóttir verka- reksfirði. maður, Reykjavík. maður, fsafirði. -KMU Flokkur mannsins á Suðuriandi Framboðslisti Flokks mannsins á Suðurlandi hefur verið ákveðinn. Efstu sætin skipa: 1. Sigrún Þorsteinsdóttir húsmóðir, Vestmannaeyjum.. 2. Sigurður BjörgVin Sigurðsson af- greiðslum., Neistastöðum, Villinga- holtshr. 3. Katrín Baldursdóttir húsmóðir, Hveragerði. 4. Hrönn Ásgeirsdóttir nemi, Hvera- gerði. 5. Kalmann de Fontenay nemi, Út- garði, Hvolhreppi. 6. Davíð Kristjánsson iðnverkamaður, Skógsnesi, Gaulverjabæjarhr. -KMU Sýningarsalur fyrir flísar og hreinlætistæki. j.PORLÁKSSON OC NORPMANN HJr Réttarhálsi 2 - sími 83833.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.