Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987. 9 Útlönd Saudi Arabíu-diplómatinn Bakr Damanhuri (t.h. á myndinni) á blaðamannafundi i Vestur-Beirút i gær eftir aö honum hafði verið sleppt en þá hafði hann veriö gísl shita-múslima í 64 daga. Næstur honum situr Saudi Arabi, siðan Nabih Berri, leiðtogi amalita, og loks (t.v.) Ghazi Kanaan ofursti, yfirmaður leyniþjónustu sýrlenska herliðsins í Libanon. - Simamynd Reuter Einum gísl sleppt í Beirút Isbijóta þórf til mafloka Gurmkugur A. Jónsaai, DV, Lundi Meiri ís er nú við strendur Sví- þjóðar en verið hefur síðastliðin þrjátíu ár og fyrri hluti marsmán- aðar er sá kaldasti á þessari öld í Svíþjóð. Jafhvel frostaveturinn í stríðinu 1942, sem oft er talað um sem ótrú- lega kaldan og erfiðan vetur, var marsmánuður hiýrri. Þrátt fyrir að veðurfræðingar reikni með að eitthvað hlýni á næstu dögum er langt í að samgöngur á sjó komist i eðlilegt Horf. Veðurfræðingar segja að reikna megi með að ísbrjótar þurfi að aðstoða skip við Álandseyjar allt fram til loka maímánaðar. Bokassa lét safha sjö þús- und demöntum fyrir krýnínguna Fyrrum keisari Miðafríkulýð- veldisins, Jean-Bedel Bokassa, safnaði að sér sjö þúsund demönt-. um og dró sér tvær milljónir dollara úr alþjóðlegum sjóði til að greiða kostnaðinn við krýningu sína. Samkvæmt vitnisburði fyrrum starfsmanns fjármálaráðuneytis voru það íbúar landsins sem söfii- uðu sjö þúsund demöntum handa Bokassa. Og milljónirnar tvær, sem hann dró sér, voru ætlaðar til að greiða laun opinberra starfs- manna. Réttarhöldin yfir Bokassa hafa nú staðið yfir í fimmtíu og þrjá daga. Starfsmenn dómstólsins hafa látið hafa eftir sér að skortur á fullnægjandi sönnunum dragi úr þeim vitnisburði að stjóm Bokassa hafi verið sú spilltasta í Afríku. Lögreglumenn íOsló flýja starfið PéB Vilhjálmsson, DV, Osló: Siðastliðinn mánuð hættu ellefú lögreglumenn við lögregluna £ Osló. Alla eru nú hundrað og fimm- tíu stöður lausar við Oslóarlög- regluna. Yfirmenn iögreglunnar segja starfsflóttann eiga sér tvær ástæð- ur. Annars vegar lág laun og hins vegar tekur lögregluskólinn ekki við nægilega mörgúm nemendum. Núverandi mannafli hrekkur ekki til að sinna þeim störfúm sem lög- reglan á að sinna. Mannfæð lögreglunnar gefúr hugmyndum um borgaralögreglu byr undir báða vængi. Lögreglu- stjórinn í Osló og yfiiTOaður glæpadeildarinnar hafa báðir komið með hugmyndir um slíka starfsemi. Eldur í kjamoikuveri Slökkviliðsmenn létu eld í eina kjamorkuveri Austurríkis deyja út af sjálfú sér vegna hættu á geislavirkni. Að sögn slokkviliðs- manna var aðeins um lítinn eld að ræða og ógnaði hann aldrei kjamakljúíhum. Þar sem slökkviliðsmönnunum var greint frá hættunni á geisla- virkni lokuðu þeir dyrunum að þeim stað þar sem logaði þannig að ekkert loft komst að. fbúar í grennd við kjamorkuve- rið hafa raargsinnis farið fram'á að því verði lokað. Einum gíslanna útlendu, sem rænt hefur verið í Líbanon, var sleppt í Beirút í gær. Var það diplómatinn frá Saudi Arabíu, Bakr Damanhuri, sem rænt var fyrir rúmum tveim mánuðum. Damanhuri hafði verið í Beirút til þess að vera innanhandar saudiarab- ískum námsmönnum í Líbanon. Diplómatinn bar það með sér að hann hefði ekki átt mjög sæla daga en hins vegar hafði hann sloppið við líkamsmeiðingar eða misþyrmingar. EF ÞU ATT VIDEOTÆKI þá viljum viö vekja athygli á þessu frábæra myndefni fyrir unga jafnt sem aldna. Nú fáanlegt á næstu myndbandaleigu. ti i r fflLösaiEs Elmer Fudd's Comedy Capers (teikni- myrid, Golden Jubilee serían) Þessi stórgóöi karakter teiknimyndanna, sem jafn- an hefur átt undir högg aö sækja í endalausri viöur- eign sinni við Bugs Bunny, hefur veitt börnum jafnt sem fullorönum ófáar ánægjustundir. Á þessu frábæra myndbandi eru 8 óborganleg ævintýri þar sem þeir leiöa enn saman hesta sína, Elmer og Bugs Bumy- iwi Mögnuð spennumynd, byggð á metsölubók eft- ir Harold Robbins og fjallar um uppgang araba í viðskiptaheimi Vesturlanda og vægðarlausa baráttu þeirra innbyrðis jafnt sem út á við. Per- sónugervingur þessarar baráttu er Bayor A1 Fay, vellauðugur viðskiptajöfur sem selur clíu um allan heim. Öfgasamtök araba telja Bayor vera samnefnara hins úrkynjaða araba sem lát- ið hefur glepjast af siðmenningu Vesturlanda á kostnað sinnar eigin. Youngblood: Ein vinsaelasta og jafnframt mest sótta mynd síðasta árs. Þessi frábæra mynd fjallar um ungan óharönaö- an ísknattleiksleikmann sem þrátt fyrir geysimikla hæfileika nær lengi vel ekki aö sýna hvaö í honum býr sökum hins mikla of- beldis sem viögengst í þessari íþrótt. Meö aðal- hlutverk fer einn vinsælasti leikari heims, Rob Lowe (St. Elmo’s Fire. Outsiders, Oxford Bluse). Leikið rétta leikinri - takið mynd frá TEFLI LiJ Ármúla 36,108 Reykjavík - sími 686250

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.