Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
Iþróttir
Þjálfari PSV
hætti störfum
Kristján Batnburg. DV, Bdgíu;
Þjálferi hollenaka knatt-
spyrnufétegsins PSV Eindhoven
hætti störfum hjá félaginu í gær.
Astæðuna fyrir afeögn þjálfar-
ans má rekja tíl ummæla Rudi
Gullit í hollenska útvarpinu en
þar fór hann styggðarorðum um
þjálfarann sem fór fram á það
við stjóm PSV Eindhoven að
Gullit yrði refeað fyrir ummælin.
Stjóm PSV ákvað síðan í gær
að hundsa beiðni þjálíarans og
þá hvarf hann á braut
-SK
Svíar til
Man. Utd?
Njósnarar frá Manchester Un-
ited hafa verið á ferð í Svíaríki
að undanfömu í eilífri leit þeirra
United-manna að knattspymu-
mönnum til að styrkja lið sitt
Það eru þeir Stefan Pettersson
frá IFK Götaborg og Mats
Magnusson frá Malmö FF sem
eru undir smásjánni. Ekki er vit-
að hversu mikil alvara er bak
við þessar njósnir United-manna
en erfitt gæti orðið að útvega
þessum mönnum atvinnuleyfi í
Englandi vegna þess að Svíar eru
ekki í Efiiahagsbandalaginu.
-SMJ
NBA-úrslit
Átta leikir fóm fram í banda-
rísku atvinnumannadeildinni í
körfúknattleik í fyrri nótt og
urðu úrslit leikjanna sem hér
segír:
Atlanta-Washington..118-98
Cleveland-New Jersey.110-91
Denver-New York....133-111
Milwaukee-Boston...123-115
Dallas-Chicago......114-96
Utah Jazz-Golden State..ll8-103
Portland-Cilppers..134-123
Spurs-Sacramento....108-106
-JKS
SigurPólveija
Pólveijar sigruðu Finna, 3-1, í
vináttulandsleik á milli þjóð-
anna sem fór fram í Rybnik í
Póllandi í gær. Fyrir Pólland
skoruðu Jan Urban, Marek
Lesniak og Jan Furtok. Mark
Finna skoraði Jukka Ekaelainen.
-SMJ
• Verðlaunahafar á mótinu. Frá vinstri: Sveinn Andrésson, Hjalti Egilsson, Sveinn Kristinsson, Tryggvi Halldórsson, Garðar, Halldór Matthiasson með
eignarbikarinn, Lilja Þorleifsdóttir og Svanhildur Árnadóttir.
DV-mynd S
Halldór Reykjavíkur-
meistari 3. árið í röð
Halldór Matthíasson, SR, varð
Reykjavíkurmeistari í 15 km skíða-
göngu á sunnudag. Þetta er þriðja
árið í röð sem hann sigrar og hlaut
hann bikar til eignar. Hann gekk á
46.24 mín. Remi Spilliert, SR, varð
annar á 49.51 mín. Reykjavíkurmeist-
ari í 5 km skíðagöngu kvenna varð
Lilja Þorleifedóttir, SR, á 27.13 mín.
Sif Björg Eðvarðsdóttir, SR, varð önn-
ur á 27.25 mín. og Svanhildur Áma-
dóttir, SR, þriðja á 27.41 mín.
í 5 km skíðagöngu öldunga sigraði
Tryggvi Halldórsson, SR, á 22.11 mín.
Páll Guðbjartsson, Fram, varð annar
á 22.43 mín., Sveinn Kristinsson, SR,
þriðji á 23.10 og Leif Múller, SR, fjórði
á 30.24 mín. I drengjaflokki sigraði
Hjalti Egilsson, KR, á 22.20 mín.
Sveinn Andrésson, SR, varð annar á
23.00 mín. Drengimir gengu einnig 5
km. Keppt var í Bláfjöllum og var
Pálmi Guðmundsson mótsstjóri.
-hsím
Slagurinn í körfúnni
fer af stað í kvöld
- Þá leika ÍBK - Valur og Njarðvík - KR í úrslitakeppninni
•Valur
UMFN
Ingimundarson, þjálfari
Úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni í
körfúknattleik hefst í kvöld með leik
ÍBK og Vals í Keflavík kl. 20.00. Á
föstudagskvöld á sama tíma leika
UMFN og KR í Njarðvík. I næstu
viku fara svo síðari leikir liðanna
fram.
I fyrri umferð úrslitakeppninnar leika
liðin tvo leiki, heima og heiman. Verði
FIRMAKEPPIMI
í innanhússknattspyrnu veröur haldin dagana 21. og 22. mars í Breiðholtsskóla.
Þátttaka tilkynnist í síma 75013 milli kl. 13.00 og 16.00 og í síðasta lagi fyrir kl.
16.00 föstudag 20. mars.
VEGLEG VERDLAUN
liðin jöfn að loknum þessum tveimur
leikjum verður þriðja viðureignin á
heimavelli Suðumesjahðanna. Sama
fyrirkomulag verður í seirrni umferð-
inni. Úrslitaleikimir verða 1. og 4.
apríl en þriðji leikurinn ef með þarf
6. apríl.
• Njarðvíkingar hafa leikið mjög vel
í deildinni í vetur en þeir urðu sem
kunnugt er deildarmeistarar. Liðið
tapaði aðeins þremur leikjum í deild-
inni. f liðinu er skemmtileg blanda
leikmanna og hefur Valur Ingimund-
arson, sem jafnframt þjálfuninni hefur
leikið með liðinu, náð býsna góðum
árangri. Njarðvíkingar verða að telj-
ast mjög sigurstranglegir í úrslita-
keppninni. En í svona keppni reynir
fyrst á taugar leikmanna og er því
ómögulegt að spá fyrir um úrslit.
• „Við vorum daufir fr aman af keppn-
istímabilinu en í síðustu leikjum
liðsins hefúr verið góð stígandi í lið-
inu. Það verður gaman að eiga við
Njarðvíkingana. Við tökum þá sem
eina heild en ekki sem einstaklinga.
Ég vona að við stöndum okkur vel í
leikjunum gegn þeim,“ sagði Gunnar
Gunnarsson, þjálfari KR-inganna.
Eins og fram kom í máli Gunnars hef-
ur KR-liðið sýnt miklar framfarir í
síðustu leikjum og má af þeim sökum
búast við hörkuleikjum á milli KR og
UMFN í úrslitakeppninni.
• „Frá áramótum hefúr verið tröppu-
gangur á gengi okkar en undir það
síðasta hafa hlutimir verið að smella
saman og þá sérstaklega í vöminni.
Allir leikmenn liðsins em heilir. Við
reynum alltaf að leika vel og ég vona
aðeins það besta í leikjunum gegn
ÍBK,“ sagði Jon West, bandaríski
þjálfarinn hjá Val.
• „Það ríkir mjög góður andi í okkar
herbúðum fyrir þessa úrslitakeppni.
Við erum bjartsýnir á góðan árangur.
Áhorfendumir hafa stutt vel við bakið
á okkur í vetur og í úrslitakeppninni
verður engin breyting á. Það er mikill
hugur í okkur,“ sagði Bjöm Skúlason,
einn af forráðamönnum ÍBK-liðsins.
Ekki er að efa að leikimir í úrslita-
keppninni verða jafnir og spennandi
og er ástæða fyrir áhorfendur að fjöl-
menna á leikina. Óvíst er hvort þetta
fyrirkomulag verður notað í úrvals-
deildinni á næsta keppnistímabili.
Starfandi hefur verið neftid á vegum
Körfúknattleikssambandsins í vetur
til að endurskoða þessi mál og má
vænta niðurstöðu af störfum hennar
um næstu mánaðamót. Ýmsar tillögur
varðandi fyrirkomulag úrvalsdeildar
hafa komið fram á fundum nefiidar-
innar og er spennandi að sjá hvað
verður.
-JKS