Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
Neytendur
Skýlið gróðri sem er upp úr
snjó og vonum það besta
- segir forstöðumaður Grasagarðsins í Laugardal
Svona var einn toppurinn vel kominn til en óþarfi að óttast um afdrif hans.
DV-myndir Brynjar Gauti
Sigurður Albert Jónsson garðyrkju-
fræðingur, forstöðumaður Grasa-
garðsins í Laugardal, hjá yllinum.
hlýnar aftur, án þess að nokkur skaði
hljótist af,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að langsamlega verst
væri mikill vindur samfara frosti, því
þá er kælingin svo gífurleg. Því er
mikilsvert að skýla lágvöxnum trjám
og runnum sem standa upp úr snjó
fyrir vindinum en á meðan snjór er á
jörðu sleppa fjölærar jurtir við allan
skaða.
Víða eru ýmsar víðitegundir komnar
langt áleiðis og sagði Sigurður að þeim
væri yfirleitt ekki hægt að skýla.
Frostskemmdimar drepa ekki víðinn
heldur tefja fyrir blómgun. Svo getur
þurft að klippa víðinn aðeins til.
Við héldum út í kuldann með Sig-
urði og hann sýndi okkur runna sem
famir vom að vakna einum of vel fyr-
ir kuldann sem er í lofti þessa dagana.
„Þetta kuldakast er sérlega slæmt
fyrir þá mnna sem blómstra snemma,
eins og ýmsar tegundir af kvistum t.d.
sigurkvist. Einnig fyrir sírenur sem
famar em að vakna til lífsins núna.
Það eina sem hægt er að gera er að
skýla þessum runnagróðri eins og
hægt er með yfirbreiðslum," sagði Sig-
urður Albert Jónsson garðyrkjufræð-
ingur og forstöðumaður Grasagarðs-
ins í Laugardal í samtali við DV. Við
vorum að leita ráða hjá Sigurði um
hvað til bragðs ætti að taka í þeim
görðum þar sem gróður væri kominn
eitthvað áleiðis nú í þessu ótímabæra
kuldakasti.
„Hér í lægðinni hjá okkur virðist
gróður vakna aðeins hægar en víða
annars staðar í borginni og því ekki
orðinn eins grænn hjá okkur. En það
mátti ekki dragast öllu lengur að það
kólnaði til þess að stöðva gróðurinn,"
sagði Sigurður Albert.
„Það er breytilegt hvað tegundimar
þola mikinn kulda eftir að þær laufg-
ast. Það fer að öllum líkindum eftir
sykurinnihaldi. Sykurinn virkar eins
og frostlögur. Mig langar að nefna
eina tegund sem góð revnsla er komin
af en það em toppamir, lonicera caer-
ulea. Toppamir geta laufgast í hlý-
indaköflum að vetrinum eins og t.d.
núna en svo þegar kólnar stöðvast
vöxturinn og heldur síðan áfram þegar
Þannig getur hugsanlega þurft að skera greinar af alveg niðri við rót ef þær
kelur núna í kuldanum, sagði Sigurður Albert.
Þama var rifs frá Arkangelsk sem sáð
var til árið 1982, annað rússneskt tré,
reyniblöðkutegund frá 1982, en ekki
er komin reynsla á hvemig þessar
jurtir standa sig í frostinu. En þama
var einnig yllir sem var langt kominn.
Sigurður sagði að hægt væri að bjarga
einstaka plöntum en ekki stórum
svæðum. Selja heitir ein víðitegund
sem safnað er fræi af. En nú er útlit
fyrir að lítið verði um seljufræ í ár,
því ræklamir vom svo langt komnir
að þá kelur ömgglega að sögn Sigurð-
ar.
„í hretinu 1963, sem kom 9. apríl,
var allur gróður orðinn allaufgaður.
Eins og frægt er orðið skemmdust nær
allar Alaska aspimar sem uxu hér.
Rætumar vom komnar í gang og safi
lcominn út í allar æðar trjánna. Safinn
fraus hreinlega eins og vatn frýs í
leiðslum og sprungu æðamar. Trén
eyðilögðust en rætumar ekki. Það
varð því að skera af við rót og síðan
uxu nýjar aspir upp af gömlu rótunum.
Eins getur farið seinna í sumar, að
það verði að skera einstaka kalgreinar
af trjám og runnum eins og t.d. af yllin-
um,“ sagði Sigurður.
Þannig standa ekki neinar sérstakar
ráðstafanir fyrir dyrum í Grasagarðin-
um vegna kuldans.
En innan dyra er ekki eins kalt. Sig-
urður sagði að Grasagarðurinn fengi
fræ frá grasagörðum víðs vegar um
heim. I Grasagarðinum em milli 4 og
5000 tegundir jurta. Þar er að finna
um 300 af 400 íslenskum plöntum sem
fyrirfinnast.
-A.BJ.
Frá gólfi
til lofts
Nú fer tími vorhreingeming-
anna í hönd. Enn em þeir til sem
gera sjálfir hreint í hólf og gólf
eins og það er gjaman kallað.
Langsamlega flestir byija efst og
þvo vegginn niður og enda niðri
við gólfið.
í erlendu blaði sáum við bent
á að miklu heppilegra væri að
byija að hreinsa neðst og vinna
sig upp eftir veggnum.
Ef byrjað er efst er hætta á að
vatnstaumar renni niður á
óhreinan vegginn og það komi
för eftir vatnið. Erfitt getur verið
að ná þeim taumum í burtu.
Notið volgt vatn og milda sápu
eða hreingemingarlög og notið
svamp eða mjúkan klút. Skolið
vel með hreinu vatni á eftir.
Skiptið oft um hreina vatnið.
í mörgum verslunum em nú
fáanleg hreingemingartæki með
löngu skafti og svampi á endan-
um þannig að hægt er að ná til
lofts án þess að nota stól eða
tröppu.
-A.BJ.
þeirra.
Hnjáhlrf úr frauðplasti
Margir kannast við hnjáhlífar sem
settar em á smábamabuxur þegar
bömin em farin að skríða. Mjög snið-
ugt er að sauma litríkt efni utan um
bætur úr frauðplasti og sauma svo eða
líma á buxumar.
Það lengir lífdaga buxnanna og
mýkra er fyrir litlu hnén að skríða á
hörðu gólfinu.