Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1987, Side 33
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1987.
33
DV
Menning
Gunnar Karlsson - Smalastúlkan, olía á striga, 1985.
Einsær
tvíæringur
FÍM-sýningin að Kjarvaisstöðum
Hinar risavöxnu haustsýningar
FlM virðast nú endanlega fyrir bí
enda er nú nánast ógjömingur að
bjóða hinum rúmlega eitt hundrað
félagsmönnum til samsýningar einu
sinni á ári hverju. I staðinn eru FIM-
arar að prófa sig áfram með breyti-
legt fyrirkomulag á sýningum, með
misjöfnum árangri.
Reynt hefur verið að halda sam-
sýningar á tveggja ára fresti, efna
til sérstakra boðsýninga, jafhvel
óformlegra sumarsýninga, og nú
stendur yfir sýning er nefhist „Tví-
æringur FÍM 1987“ að Kjarvalsstöð-
um.
Áður fyrr gerði maður talsvert
miklar kröfur til hinna árlegu FIM-
sýninga, ætlaðist til þess að þær
gæfu marktæka mynd af ástandi og
horfum í íslenskri myndlist á hverj-
um tíma.
Nú, þegar meirihluti starfandi
listamanna tekur ekki þátt í samsýn-
ingum FÍM, er auðvitað ekki nokkur
leið að gera þessar kröfur til þeirra.
Sem er út af fyrir sig alveg ágætt.
Þar með getur maður gaumgæft
samsýningar FIM með sama hugar-
fari og aðrar samsýningar úti í bæ,
litið á þær sem tilviljunarkennt sam-
ansafri nýlegra myndverka af ýmsum
toga, haft ánægju af góðum verkum
en horft framhjá slökum.
Kurteisleg
Sýningarskráin upplýsir ekki
hvemig staðið var að vali lista-
manna til þessa tvíærings nema
hvað meira ber á yngri kvnslóð FÍM-
ara en á mörgum fyrri samsýningum
félagsins.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Alls eru sýnendur 29 talsins en
verkin 97: málverk, teikningar, graf-
ík, blönduð verk og skúlptúr.
í heildina séð er þetta fremur kiut-
eisleg sýning sem ekki ætti að koma
neinum í opna skjöldu.
Ef undan skilin eru verk eftir þá
Pétur Stefánsson og Bjama Þórar-
insson er varla hægt að segja að
malerísk villimennska sé á dagskrá
hjá sýnendum.
En það verður líka að segjast að
á henni er fátt sem er beinlínis vont
sem gefur tilefni til að álvkta að
sýningamefndin hafi unnið starf sitt
af kostgæfni.
Þótt engum komi hún í opna
skjöldu em á sýningunni verk sem
koma ánægjulega á óvart.
Mér finnst til dæmis full ástæða
til að bjóða Arnar Herbertsson vel-
kominn til leiks með' „and-helgi-
myndir“ sinar en nú em mörg ár
liðin frá því þessi sérstæði listamað-
ur sýndi síðast verk sín.
Sigurður Örlygsson kemur líka
hamramur út úr þessari sýningu.
Þrjú glæný verk eftir hann hanga
fyrir gafli í salnum. Þau em fram-
hald á flekunum miklu á einka-
sýningu Sigurðar í fyma og benda
til þess að listamaðurinn sé í æ rík-
ari mæli farinn að velta fyrir sér
ráðrúmi í landslaginu.
Stílhrein og margræð
Það er líka nýnæmi að málverkum
Margrétar Jónsdóttur sem virðist
vera að þróa dálítið fjarstæðu-
kennda myndveröld. ólíka öllu öðm
sem málað er hér á landi.
Málverk Eyjólfs Einarssonar
mynda einfalda en magnaða heild.
Listamaðurinn virðist hafa lagt
skæm litunum og kompónerar nú
með dökku í dökkt.
Ása Ólafsdóttir er hér með verk
úr blandaðri tækni sem hún sýndi
áður í Galleríi Hallgerði. Þetta em
fíngerð, stílhrein og margiæð verk
sem eflaust þola talsverða stækkun.
Loks má ég til með að geta Sigurð-
ar Þóris. sem er hér upp á sitt allra
besta, Kristínar Jónsdóttur, sem
sýnir lágvær og fölskvalaus ljóð úr
ull. bleki og öðrum efnum, og Rutar
Rebekku, sem er komin út úr þeirri
formrænu spennitreyju sem hún not-
aði áður en málar nú frítt, mjúklega
og með mikilli tilfinningu fyrir hin-
um margháttuðu blæbrigðum lit-
anna.
Skúlptúrinn á sýningunni er ekki
mikilla sanda en er þó engum til
skammar.
Sem sagt, virðingarverð FÍM-sýn-
ing og gleðigjafi í vetrarveðrum.
-ai
LYFTARAR ATH! IMýtt heimilisfang
Eigum til afgreióslu nú þegar mikið úrval notaðra raf-
magns- og dísillyftara, ennfremur snúninga- og
hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum
lyftara, flytjum lyftara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
Vatnagörum 16, simar 82770-62655.
VOLVOSALURINN
SKEIFUNN115. S. 35200
Volvo 245 GLT ðrg. 1982, ekinn
82.000 km, sjálfsk., m/vökvast., 6
cyl., 155 hö., rafmrúöur, sport-
felgur. Veró kr. 495.000,-
Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn
51.000 km, sjálfsk., m/vökvast.,
blár. Verö kr. 420.000,-
Volvo 244 DL árg. 1982, ekinn
75.000 km, beinsk., m/vökvast.,
beige, góöur bíll á góóum kjörum.
Verö kr. 350.000,-
Volvo 245 DL árg. 1982, ekinn
66.000 km, rauöur, beinsk., m/
vökvast., toppbíll. Veró kr.
415.000,-
Volvo 244 DL árg. 1982, eklnn Volvo 245 GL árg. 1980, eklnn
75.000 km, beinsk., m/vökvast., 82.000 km, sjálfsk., m/vökvast.,
Ijósbrúnn. Verð kr. 350.000,- Ijósblár metal. Verö kr. 330.000,-
Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn
119.000 km, silfur metal, sjálf-
skiptur, m/vökvastýri. Verð kr.
Subaru 1800 GL station, árg.
ekinn 83.000 km, rauöur metal.,
beinsk., góö kjör. Verö kr.
Volvo 343 GLS árg. 1982. Ekinn
48.000 km. Blár metal, beinskiptur,
sumar-/vetrardekk. Verö 290.000.-
Datsun Sunny station árg. 1984.
Ekinn 54.000 km. Sjálfskiptur, blár
metal. Góóur bíll á góöum kjörum.
Verð 350.000.-
390.000,- 370.000,-
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar
bíla á staðinn.
★ Nýjar hugmyndir.
★ Góð kjör.
★ Úrval notaðra bíla
★ Heitt á könnunni.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 18.00.
LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00.
VOLVOSALURINN
SKEIFUNNI 15, SÍMI 35200 - 35207.