Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Fréttir
Réttindasviptingar krafíst yfír flugumferðarstjórum og flugstjóra:
Sakaðir um að hafa ekki
sýnt nægjanlega aðgæslu
Ríkissaksóknari krefst þess að flug-
umferðarstjóramir þrír, sem ákærðir
hafa verið vegna tveggja flugumferð-
aratvika, verði dæmdir til refsingar
og sviptir flugumferðarstjóraréttind-
um.
Saksóknari krefst þess einnig að
flugstjórinn, sem ákærður er, verði
dæmdur til refsingar og sviptur rétti
til að starfa í loftfari.
Flugleiðaþoturnar
Fyrra atvikið varð þann 6. septemb-
er 1984. Flugumferðarstjóri á Kefla-
vikurflugvelli og flugstjóri TF-FLl,
Boeing 727-þotu Flugleiða, með 145
manns um bcrð, eru ákærðir fyrir að
hafa eigi sýnt riægjanlega aðgæslu við
brottflug flugvélarinnar frá Keflavík
þannig að mjög litlu munaði að hún
rækist á TF-FLB, DC-8-þotu Flugleiða,
með 258 manns innanborðs, yfir eða
nálægt Herdísarvík.
Flugumferðarstjórinn er ákærður
fyrir að hafa eigi gætt þess að halda
nægjanlegum aðskilnaði á milli flug-
vélanna og fyrir að hafa eigi gripið
nægjanlega fljótt til takmarkana á
hraða og klifri Boeing-þotunnar.
Flugstjórinn er ákærður fyrir að
hafa haldið óbreyttri stefnu og klifri
flugvélarinnar eftir að honum varð
ljóst að flugvélamar höfðu fengið
áþekka brottflugsheimild frá flugvell-
inum og að flugvél hans nálgaðist
mjög DC-8-þotuna. Ennfremur fyrir að
hafa ekki sinnt síðbúnum fyrirmælum
flugumferðarstjórans um að halda sig
1.000 fetum neðan við DC-8-þotuna.
Þess í stað hafi hann flogið undir hana
og siðan upp í gegnum fluglag henn-
ar, rétt fyrir framan hana, þrátt fyrir
að hann hefði misst sjónar á DC-8-
þotunni, sem þá bar við sólu „og
munaði mjög litlu að flugvélamar
rækjust saman,“ eins og segir í ákæm-
skjalinu.
Austfjarðaatvikið
Síðara tilvikið varð 2. júní 1986.
Tveir flugumferðarstjórar í flugtum-
inum í Reykjavík eru ákærðir fyrir
að hafa eigi sýnt nægjanlega árvekni
og aðgæslu við flugumferðarstjóm er
Boeing 747-þotu frá British Airways,
með 375 farþega innanborðs, og
DC-8-þotu frá SAS, með 186 farþega
innanborðs, var flogið í venjubundnu
áætlunarflugi um flugstjómarsvæði
þein-a í 33.000 feta hæð með þeim af-
leiðingum að leiðir flugvélanna
skámst í lofti nálægt Egilsstöðum „svo
að mjög litlu munaði að flugvélamar
rækjust saman og grönduðu hvorri
annarri".
Öðrum flugumferðarstjóranum er
gefið að sök að hafa eigi athugað hvort
leiðir flugvélanna skærust er nemandi
hans í flugumferðarstjóm, með sam-
þykki ákærða, heimilaði júmbóþo-
tunni hækkað flug.
Hinum flugumferðarstjóranum er
gefið að sök að hafa, þegar hann sam-
þykkti hækkað flug júmbóþotunnar,
eftir fyrirspum frá fyrrgreindum nema,
eigi sýnt nægjanlega árvekni og að-
gæslu við flugumferðarstjóm þannig
að honum yfirsást sú mikla árekstrar-
hætta sem flugvélamar vom í.
-KMU
Ráðherrann breski, Lucas lávaröur, mætti til fundar hjá Verzlunarráði í gær. Þar tóku menn forskot á sæluna og
gáfu ráðherranum páskaegg sem hann þáði með þökkum.
DV-mynd KAE
Breskur ráðherra á Islandi
Aðstoðarviðskiptaráðherra Breta,
Lucas, lávarður af Chilworth, hefúr
verið í heimsókn hér á landi undan-
farna daga. Lucas fer með málefni
viðskipta og iðnaðar í bresku stjórn-
inni og er hann hér á landi m.a. í þeim
tilgangi að liðka til fyrir auknum við-
skiptum Islendinga og Breta.
Lucas hélt erindi um viðskiptamál á
morgunfundi Verzlunarráðs síðastlið-
inn miðvikudag. Þá hefur hann rætt
við ýmsa aðila hér á landi, þar á með-
al viðskiptaráðherra, um tengsl og
viðskipti verslunarbandalaganna
tveggja í Evrópu, EFTA (Frísverslun-
arbandalags Evrópu) og EEC (Efna-
hagsbandalag Evrópu).
-ES
Tímarít:
Frjálst framtak
kaupir Fjölni
: ::ísienski túnaritamarkaðurinn tók
snöggum breytingum í gær er Frjáist
framtnk festi kaup á útgáfufyrirtæk-
inu Fjölni. Var starfemönnum fyrir-
tækjanna tilkynnt um kaupin í gær.
Á fundi er Magnús Hreggviðsson,
eigandi Fijáls framtaks, hélt með
starfsfólki Fjölnis bauð hann því öllu
að halda áfram störfúm enda ekki
ráðgert aðV' útgáfústarfsemi Fjölnis
verði lögð niður.
Fijálst framtak hefur gefið út
túnartið Nýtt líf en Fjölnir tímaritið
Mannlíf. Bæði ritin munu halda
áfram að koma út. Einhverjar breyt-
ingar vorða þó gerðar á timaritaút-
gáfú fyrirtækjanna þar sem
umfjöllunarefhi ritanna skarast.
Frjálst framtak mun stækka um 30
prósent eftir kaupin á Fjölni miðað
við mannafla og umfang útgáfú.
Tímaritin sem Frjálst framtak gef-
ur út eftir kaupin eru þessi: Á
veiðum, Áfangar, Bamablaðið ABC,
Bílablaðið, Bíllinn, Bóndinn, Fiski-
fréttir, Fréttablað iðnaðarins, Frjáls
verslun, Gróður & garðar, Hús &
garður, Iðnaðarblaðið, íþróttablað-
ið, Mannlíf, Nýtt lff, Sjávarfréttir,
Viðskipta- og tölvublaðið og Við sem
fljúgum.
-EIR
Yoko Ono í Heimsmynd:
„Við eigum sama
afmælisdag"
- segir ritsljórinn
Yoko Ono og Herdis Þorgeirsdóttir.
Yoko Ono ræðir um Bítlana, eit-
urlyf, ást, vonbrigði og lífið eftir að
John Lennon var myrtur í viðtali
er birtist í næsta tölublaði Heim.s-
myndar er kemur út eftir helgi.
Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri ræddi
við Yoko í Dakota-byggingunni í
New York þar sem John Lennon var
myrtur í desember 1980.
„Mér hefur verið sagt að Yoko
Ono hleypi ekki að sér fólki nema
skoða fyrst stjömukort þess. I mínu
tilviki bað hún ekki urn neitt, ef til
vill vegna þess að við eigum sama
afinælisdag, 18. febrúar," sagði Her-
dís Þorgeirsdóttir í samtali við DV.
Yoko Ono veitir örsjaldan viðtöl,
það síðasta birtist í New York Times
árið 1982: „Ég ræddi við lrana þegar
ég var í New York í tvo daga um
síðustu mánaðamót. Yoko er stór-
kostleg manneskja,“ sagði Herdís
Þorgeirsdóttir.
-EIR
Samningar við Kenýa:
íslendingar vinna fýrir
2,5 milljarða
íslensk sendinefnd frá iðnaðarráðu-
neytinu hefúr verið í Kenýa að
undanförnu og gengið frá endanlegum
samningum um hluta þeirra verkefna
sem íslensk fyrirtæki munu vinna á
næstunni í Kenýa.
Albert Guðmundáson, þáverandi
iðnaðarráðherra, undirritaði ramma-
samning um verkefni íslendinga í
Kenýa í febrúar. í heild hljóðar samn-
ingurinn upp á 2,5 milljarða. Þessi
fyrsti hluti nemur um 650 milljónum.
Islenskir aðilai' munu í heild bora 11
vinnslu- og rannsóknarholur og veita
verkfræðilega ráðgjöf vegna boran-
anna og fyrirhugaðra virkjana.
Mikil áhersla hefur verið lögð á það
að undanförnu að afla íslendingum
verkefna erlendis þar sem sérþekking
þeirra nýtist. Virkjun jarðvarma er
eitt af þeim sviðum þar sem Islending-
ar eru í fremstu röð í heiminum og
því náðust samningar við Kenýamenn
um þetta mikil verkefni á því sviði.
-ES