Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987. Fréttir Frá v.: Brigitte Lemery, blaðamaður frá La Voix du Nord, Silvie Singier, nemandi, frú og herra Delaporke, bæjarritari í Hem. Fiönsk innrás í Keflavík Magnús Gíslason, DV, Suðumesjum; Mikil eftirvænting ríkti meðal nemenda 9. bekkjar Holtaskóla í Keflavík á sunnudagskvöld eitt fyrir stuttu en þá var von á 70 frönskum jafnöldrum þeirra frá St. Paul-skóla í Hem í Norður-Frakklandi. Búið var að baka pönnukökur, steikja kieinur og leggja á borð þegar Frakkarnir komu í Holtaskólann. Aðdragandinn að „innrás Frakk- anna“ í Keflavík er nokkuð langur. Francois Scheefer, yfirkennari við St. Paul-skólann, sem er fararstjóri hópsins, tók ástfóstri við ísland þeg- ar hann kom hingað 19 ára að aldri og hefur m.a. gefið út bók um ísland á frönsku. Hann kom á þessu vin- áttusambandi við Holtaskólann, með aðstoð Þórs Stefánssonar, forseta Alliance Francaise, sem einnig kenn- ir frönsku við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Nemendurnir hafa skrifast á og þekkjast því orðið bréflega síðan í haust," sagði Sigurður Þorkelsson, skólastjóri í Holtaskóla, „og hafa skrifin farið fram á ensku til þessa en áhuga fyrir frönsku hefur eigi að síður aukist hjá nemendum hér. Frönsku ungmennin munu dvelja á Suðurnesjum í hálfan mánuð. Þau búa á einkaheimilum nemenda 9. bekkjar Holtaskóla sem eru frá flest- um byggðum á Suðurnesjum. Við munum reyna að sýna þeim landið eins og kostur er og meðal annars dvelja að Krumshólum í þrjá daga. I maíbyrjun munum við síðan fara í boði þeirra til Hem og dvelja hjá þeim í tvær vikur.“ Eftir að Frakkarnir höfðu gætt sér á því sem á borðum var dreifðist hópurinn - hver og einn hélt á brott með íslenskum jafnaldra. Allt gekk vel og skipulega enda höfðu kennar- ar skólans lagt miklu vinnu í að allt gengi greiðlega. Samskipti skólanna hafa vakið at- hygli í Frakklandi og verið getið í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Einn blaðamaður kom með hópnum, Brig- itte Lemery, frá „La Voix du Nord“ (Rödd norðursins) sem hefur, eftir því sem hún sagði, um milljón lesend- ur. Fleiri fjölmiðlamenn komu 3. apríl frá Frakklandi til að fylgjast með heimsókninni. I framhaldi af heimsókninni stend- ur til að undirrita vinabæjarsamning á milli Keflavíkur og Hem og bæjar- ritarinn í Hem, Delaporke, kom með hópnum ásamt eiginkonu sinni. Hópmynd af Frökkunum við komuna til Keflavíkurflugvallar. DV-mynd Magnús Stöð 2 til Eyja fyrir kosningar? Ómar Gaiðaisson, DV, Vestmannaeyjuin; Nú er allt útlit fyrir að sendingar Stöðvar 2 verði komnar til Vest- mannaeyja fyrir kosningar. Á fimmtu- dag var von á þrem sendum til landsins og eru þeir ætlaðir til sendinga á efni stöðvarinnar til Selfoss, Hvolsvallar og Vestmannaeyja. Sent verður með ljósleiðurum til Hvolsvallar og þaðan með örbylgjusendi til Vestmannaeyja. í Eyjum verður sendirinnr á Stóraklifi og mun hann taka á móti efriinu firá Hvolsvelli. Frá Stóraklifi verður sent yfir bæinn. Hannes Jóhannsson, tæknistjóri á Stöð 2, sagði í viðtali við DV að stefiit væri að því að koma sendunum upp fyrir þingkosningamar þann 25. þ.m. Póstur og sími sér um uppsetningu sendanna en vegna mikilla anna þeirra starfsmanna, sem vinna við upsetningima, er óvíst hvort það tekst. Eins getur veður hamlað framkvæmd- um. „En við leggjum allt í sölumar til að þetta geti orðið,“ sagði Hannes. Þess má geta að verslanir í Eyjum em famar að undirbúa komu Stöðvar 2 með því að auglýsa loftnet og af- ruglara. Hin hliöin • Kristján Sigfús Sigmundsson segir að sinn helsti veikleiki sé aó geta ekki sagt nei. „Þorbergur er minn uppáhalds íþróttamaður' ‘ - segir Kristján Sigmundsson, markvörður og framkvæmdastjóri Kristján Sigmunds- son, landsliðsmark- vörður í handknatt- leik og nýkrýndur Islandsmeistari með Víkingi, sýnir lesend- um DV hina hliðina á sér að þessu sinni. Kristján hefur um langt árabil verið í fremstu röð mark- varða hér á landi og í hófí, sem Víkingar héldu eftir síðasta leik Islandsmótsins á dög- unum, var Kristjan kosinn handknatt- leiksmaður ársins hjá Víkingi ásamt fyrir- liða liðsins, Guðmundi Guðmundssyni. íristján var hinn íressasti að venju >egar við slógum á >raðinn til hans í vik- unni og varð fuslega við því að svara spum- ingum okkar og fara svór hans hér á eftir: Fullt nafn: Kxistján Sigfús Sig- mundson. Aldur: 29 ára. Fæðingarstaður; Reykjavik. Maki: Guðrún Herdís Guðlaugs- dóttir. Böm: Einn strákur, Sigmundur, þriggja ára. Bifreið: Toyota Corolla, árgerð 1987. Starf: Framkvæmdastjóri. Laun: Sæmileg. Helsti veikleiki: Ég kann ekki að segja nei. Helsti kostur: Sveigjanlegur. Hefur þú einhvem tíma unnið í Umsjón: Stefán Kristjánsson happdrætti eða þvílíku? Nei, aldrei nokkum tíma. Uppáhaldsmatur: Lambakjöt. Uppáhaldsdrykkur: Mjólk. Uppáhaldsveitingastaðun Hótel Holt. Uppáhaldstegund tónlistar Ég er alæta á tónlist. Uppáhaldshljómsveit: Genesis. Uppáhaldssöngvari: Phil Collins. Uppáhaldsblað: Morgunblaðið. Uppáhaldstímarit: Heimsmynd. Uppáhaldsíþróttamaður: Þorberg- ur Aðalsteinsson. Uppáhaldsstjómmálamaður: Finnur Ingólfsson, annar maður á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson. Uppáhaldsrithöfundur: Alistair MacLean. Besta bók sem þú hefur lesið: Ég lifi eftir Martin Gray. Hvort er í meira uppáhaldi hjá þér ríkissjónvarpið eða Stöð 2? Eins og staðan er í dag myndi ég segja Stöð 2. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Ætlar þú að kjósa sama flokk í komandi alþingiskosningum og þú kaust síðast? Já, ég reikna fastlega með að gera það. Hvar kynntist þú eiginkonunni? f Verslunarskólanum. Helstu áhugamál: Handknattleik- ur og tónlist. Fallegasti kvenmaður sem þú hef- ur séð: Konan mín. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Mig langar mikið til að ræða málin við Gaddafi, leiðtoga Líbýu. Fallegasti staður á íslandi: Siglu- fjörður. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Það er alveg óráðið eins og er. Eitthvað sérstakt sem þú stefnir að á þessu ári: Ég stefhi bara að því að standa mig sem best í því sem ég tek mér fyrir hendur hveiju sinni. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.