Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Fyrir rúmri öld fluttu ástralskir
bændur starra til landsins frá Evr-
ópu. Fuglunum var ætlað að hafa
hemil á skordýrum sem lögðust á
uppskeru bænda. Nú er hins vegar
- svo komið að starrarnir eru orðnir
verra vandamál en skordýrin sem
þeim var ætlað að éta.
Enn halda fuglamir sig að mestu
í landinu austanverðu en á síðustu
árum hafa þeir verið að færa sig í
átt að vesturströndinni, mönnum
til mikillar skelfingar. Landbúnað-
arráðuneytið ástralska hefur hafið
herferð gegn fuglunum og gerir út
sveitir skotmanna til að fella þá.
Víða um lönd, einkum þó í
Bandaríkjunum, er töluverðum
fjármunum varið til að halda störr-
unum í skefjum. í Ástalíu er
Hópar starranna eru stórir og erfitt verk að halda þeim í skefjum.
ætlunin að koma í veg fyrir að fugl-
arnir leggi allt landið undir sig.
Starrarnir hafa ekki átt greiða leið
til vesturstrandarinnar vegna þess
að eyðimörkin um miðbik landsins
er þeim mikill farartálmi.
Yfir eyðimörkina
Þó fór að bera á því eftir 1970 að
starrarnir kæmust yfir eyðimörk-
ina. Síðan hefur verið lögð mikil
áhersla á að þeir nái ekki fótfestu
á vesturströndinni.
Starrarnir valda miklum ursla á
ökrum því þeir éta fræ sáðjurt-
anna. Einnig eru þeir skæðir í
ávaxtagörðum. Þegar hóparnir eru
mjög stórir keppa starrarnir einnig
um fæðuna við búpening þannig
að bændur hafa hinn mesta ímu-
gust á þessum fuglum.
Leið starranna til vesturstrandar
Ástralíu liggur með járnbrautun-
um sem nú hafa verið lagðar yfir
eyðimörkina. Fuglarnir sækjast
mjög eftir að gera sér hreiður í
húsum og öðrum mannvirkjum.
Þannig hafa áningarstöðvar við
leið járnbrautanna yfir eyðimörk-
ina einnig orðið að áningarstöðum
fuglanna á leið vestur. Því þykir
mörgum sem þessi barátta sé næsta
vonlaus því straumur fuglanna
vestur sé stöðugur og litlu skipti
þótt nokkrir skotmenn elti þá.
Náttúruverndarmenn hafa mót-
mælt þessum veiðum án þess þó að
gera mikið veður út af herferðinni.
„Náttúruverndarsinnar virðast
halda að nánast allar dýrategundir
séu í útrýmingarhættu," er haft
eftir fulítrúa í landbúnaðarráðu-
neytinu. „Þeir virðast hins vegar
ekkert hugsa um það að ef starr-
arnir ná fótfestu á vesturströndinni
raska þeir lífríkinu þar eins og
annars staðar þar sem þeir hafa
numið land.“ Snarað/GK
Hópur skotmanna sem astralska stjornin hefur ráðið til að veiða starra.
Flug og skip. Flug út, skipheim, skip út og flug heim,
eÓa eins og þú vilt.
Ferðaskrifstofa ríkisins og Flugleiðir bjóða nú enn
einn ferðamöguleikann, - flug og skip.
Við bjóðum þér að fljúga með Flugleiðum og sigla
með Norrænu, hvort heldur þú vilt heiman eða heim.
Þú gætir t.d. flogið innanlands, siglt út og flogið heim,
eða flogið út og siglt heim.
Möguleikarnir eru margir. Hafðu alla þína hentisemi.
Flugið er fljótlegra, en skemmtisigling með Norrænu
er óneitanlega freistandi.
Nota má „Flug og skip“ til þess að komast til og frá
Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og Skotlandi.
Flug og skip,
ánægjuleg tilbreyting á ferðamáta landsmanna.
Leitið upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu Ríkisins, Flugleiðum og ferðaskrifstofum.
FR! Ferðaskrifstofa Ríkisins FLUGLESÐIR