Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Page 28
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
28
Skák
Deildakeppnin í skák:
Hörð barátta TR-sveit-
anna um sigurinn
Um síðustu helgi lauk hinni ár-
' legu deildakeppni Skáksambands
íslands. Ekki er haft hátt um þetta
mót utan hóps skákmanna en er
það þó hið merkasta. Sem flokka-
keppni i skák er það einstakt. auk
þess trúlega fjölmennasta skákmót
á íslandi ár hvert. í þetta sinn voru
þátttakendur fleiri en nokkru sinni
fvrr eða alls 28 sveitir og tefldu í
þremur deildum. í fyrstu deild er
teflt á 8 borðum, á 6 borðum í ann-
arri og þriðju deild.
Nokkur undanfarin ár hefur
keppninni verið tvískipt. Á haust-
dögum safnast saman skákkappar
af landinu öllu. sviðnir af sól-
breyskju sumarsins og óðir og
uppvægir að loka sig inni yfir timb-
‘ urmönnum og skákklukkum. Þá
er fyrrihluti keppninnar tefldur
yfir eina helgi. Þegar sól hækkar
á lofti á ný og líður að vori taka
menn sig upp á nýjan leik, leggja
land undir fót og koma saman á
hentugum stað yfir eina helgi til
að Ijúka keppninni. Þegar svona
háttar til er mikilvægt að allt gangi
upp og veður og færð sé ekki til
að spilla margslungnum áætlunum
skámannanna. Þetta gengur þó
ekki alltaf eftir og í þetta sinn var
tvísýnt um að allir kæmust til
Reykjavíkur í tæka tíð. Þannig var
alls óvíst um flug frá ísafirði fram
á síðustu stundu og leit jafnvel út
fvrir að Vestfirðingar yrðu að
fresta sínum feikjum. Akureyring-
ar komu landleiðina í stað þess að
bíða í von og óvon eftir flugi. Allt
fór þó betur en á horfðist um tíma
og þegar klukkurnar voru settar í
gang á föstudagskvöldið voru allir
mættir til leiks í fundarsal Sóknar
við Skipholtið. Nú skyldi teflt til
Sóknar!
1. deild
Taflfélag Reykjavíkur ber ægis-
hjálm yfir önnur taflfélög á landinu
og það heyrir til algerra undan-
tekninga ef sigri þeirra í deilda-
keppninni er ógnað. Reyndar tefla
þeir fram tveimur sveitum í 1. deild,
kenndum við norðvestur og suð-
austur, eftir því hvar liðsmenn búa
i bænum. Var suðaustursveitin i
þetta sinn sýnu sigurstranglegri,
gat enda stillt upp fjórum stór-
meisturum ef sterkasta liðið hefði
náðst saman. Þá var norðvestur-
sveitin einnig með fjöld sókn-
djarfra meistara innanborðs.
Forysta TR-sveitanna eftir fyrri-
hluta keppninnar var þó í naum-
asta lagi. Á hæla þeim komu lið frá
Taflfélagi Seltjarnarness og Skák-
félagi Akureyrar og virtist ekki
ómögulegt að þessar sveitir gætu
náð að ógna veldi stórabróður í
seinni hlutanum. Svo virðist sem
þeir TR-ingar með yfirkalífa sinn í
deildakeppnismálum, Ólaf H. Ól-
afsson, í fararbroddi hafi bitið
hressilega í skjaldarrendur frammi
fyrir þessari hættu og strax í fyrstu
umferð seinni hlutans voru ferðal-
únir Akureyringar lagðir eftir-
minnilega að velli. Náðu
norðanmenn einungis að krækja
sér í tvö jafntefli í átta skákum og
töpuðu 7-1. Eftir þetta var einung-
is spurt um það hvor TR-sveitin
yrði snarpari á endasprettinum.
Suðaustursveitin, sem hafði 'A
vinnings forskot þegar hér var
komið sögu, náði saman 21 vinn-
ingi af 24 mögulegum en það dugði
ekki til. Bræðraliðið gaf einungis
frá sér 1 'A vinning og skaust fram
B-sveit Taflfélags Seltjarnarness og A-sveit Taflfélags Reykjavíkur.
úr á síðustu metrunum. I sigur-
sveitinni tefldu m.a. meistararnir
Karl Þorsteins, Sævar Bjarnason,
Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi
Kristjánsson, Davíð Ólafsson og
Dan Hansson. Hin sveitin skartaði
með kappa eins og Jóhann Hjartar-
son, Margeir Pétursson og
Guðmund Sigurjónsson. Þeirtefldu
þó lítið nema Jóhann. Eins og svo
oft áður börðust Akureyringar og
Seltirningar um 3. sætið. I þetta
sinn urðu norðanmenn hlutskarp-
ari, sigruðu í innbyrðis viðureign
sveitanna og innsigluðu þriðja sæt-
Skák
Áskell Örn Kárason
ið með stórsigri á lánlausum
Vestirðingum í síðustu umferð.
Hafi verið hart barist um sigur-
inn var fallbaráttan ekki síður jöfn
og spennandi. Þegar síðasta um-
ferðin hófst var helmingur sveit-
anna í 1. deild í bráðri fallhættu.
Skákfélag Hafnarfjarðar rak lengi
lestina og um tíma var útlitið mjög
dökkt hjá Taflfélagi Garðabæjar.
Báðar þessar sveitir héldu þó haus
í lokaumferðunum og það kom í
hlut nýliðanna í deildinni, B-sveit-
ar Taflfélags Seltjarnarness, að
bíta í eplið súra. Þeir byrjuðu mjög
vel en allt hrundi saman í síðustu
umferðunum. Eins og taflan ber
með sér var munurinn á sveitunum
í 5.-8. sæti sáralítill.
2. deild
í 2. deild sigraði sveit Taflfélags
Kópavogs af öryggi. TK er gamal-
gróið 1. deildar félag en hefur verið
í nokkurri lægð undanfarin ár.
Félagið er nú á uppleið á ný, missti
naumlega af 1. deildar sætinu i
fyrra. í næstu tveimur sætum eru
sveitir frá TR. Þar sem reglurnar
kveða á um að einungis tvær sveit-
ir frá sama félagi megi tefla í 1.
deild stóð TK engin ógn af þeim.
3. deild
Fyrr í vetur lauk keppni í þremur
riðlum i 3. deild. Sigurvegararnir
tefldu nú til úrslita um 2. deildar
sæti. B-sveit Skákfélags Akur-
eyrar, sem að mestu er skipuð 15-16
ára gömlum unglingum, vann
Norðurlandsriðil 3. deildar með
yfirburðum og úrslitakeppnina af
engu minna öryggi. Efnilegir ungir
menn þar á ferð.
Arnar Þorsteinsson, nýbakaður
Akureyrarmeistari, var drjúgur að
hala inn vinninga fyrir lið sitt. Hér
má sjá hvernig hann leikur gamal-
kunnan meistara grátt í viðureign
sveitanna sem börðust um brons-
verðlaunin á mótinu:
Hvítt: Harvey Georgsson (Taflfél.
Seltjarnarness).
Svart: Arnar Þorsteinsson (Skák-
fél. Akureyrar)
Benkö-bragð
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6
5. bxa6 Bxa6 6. Rc3 d6 7. g3 g6 8. Bg2
Bg7 9. Rf3
I þessarri byrjun fórnar svartur
peði fyrir hraða liðsskipan. Svarta
staðan teflir sig nánast sjálf og
áætlunin einföld: sókn eftir opnum
linum á drottningarvæng með lið-
sinni biskupsins á löngu skálín-
unni. Þetta kostar eitt peð sem
fæst þó gjarnan aftur með vöxtum
ef hvítur gætir ekki að sér. Hér
teflir Harvey fulllinkulega. Betra
er talið 9. Rh3 með hugmyndinni
Rf4 þar sem hann hefur vakandi
auga með d5, d3 og e2 sem oft verða
veikir hjá hvítum í þessari byrjun.
9. - 0-0 10. 0-0 Rbd7 11. h3 Dc7 12.
Dc2 Rb6 13. Hdl Hfb8 14. e4 Rfd7 15.
b3 c4 16. Bb2.
Það er freistandi að reyna að
skipta upp á „langa“ biskupnum á
g7, en þetta reynist óheillaspor.
Með 16. b4 vinnur hvítur rými á
drottningarvæng og gerir svörtum
erfitt fyrir að sýna fram á réttmæti
peðsfórnarinnar.
16. - Rc5 17. Bfl cxb3 18. axb3
Bxfl 19. KxD?
Tapar peði, en eftir 19. Hxfl Hxal
20. Bxal Rbd7 er hvítur í krappri
vörn.
19. - Hxal 20. Bxal Rbd7 21. Rd2
Rxb3! 22. Rxb3 Dc4+ 23. De2 Dxb3
24. Del
Hvítum eru allar bjargir bannað-
ar. Ekki dugir 24. Hbl vegna
Dxbl+ 25. Rxbl Hxbl+ og hvíta
drottningin má ekki við margnum.
24. - Rc5 25 f3 Ha8
Hvítur gafst upp.
39. Rd6+! Hxd6 40. He8 +
Svartur gafst upp.
1. DEILD 1 2 3 4 5 6 7 8 V
1. Taflfélag Rvíkur Nv 3/2 4/2 6/2 8 7/2 5/2 7 42'/,
2. Taflfélag Rvíkur Sa 4'/2 7 5 4'/, 6/2 7 7 41/2
3. Skákfélag Akureyrar A 3/2 1 4 '/2 6 5 4/2 5 29/2
4. Taflfélag Seltjness A f/2 3 3/2 4/2 6 5/2 5 29
5. Skáksamb. Vestfiarða 0 3’/2 2 3'/, 3/2 4!4 4 21
6. Skákfélag Hafnarf A '/2 l'/2 3 2 4/2 1 4 5 20/2
7. Taflfélag Garðabæjar 2'/; 1 3/2 2/2 3/2 4 31/, 20/2
8. Taflfélag Seltjness B 1 1 3 3 4 3 4/2 19/2
Að lokum ein snaggaraleg sókn-
arskák úr herbúðum deildarmeist-
aranna:
Hvítt: Hannes H. Stefánsson (TR-
norðvestur)
Svart: Ágúst S. Karlsson (Skákfél.
Hafnarfjarðar)
Caro-Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4.
Rxe Rf6 5. RxfB gxf6 6. Rf3 Bf5 7.
Bf4 e6 8. Bd3 Ra6 9. c3 Bxd3 10.
Dxd3 h5 11. Bg3 Dd5 12. 0-0 0-0-0
13. b4 Rc7 14. c4 Dd7 15. Dc3 Bd6
16. Bh4 Hh6 17. a4 Hg8 18. b5 Hhg6
19 Khl Re8 20. a5 Bb8 21. a6 Rd6
22. Hfbl Hxg2 23. b6 bxa6 24. Bg3
Hxg3 25. fxg3 Db7 26. Da5 Rxc4 27.
bxa7 Dxa7 28. Dc3 Rb6 29. Dxc6 +
Bc7 30. d5 exd5 31. DxfB Hd8 32.
Rd4 Hd7 33. Ha2 Bd8 34. Hc2+ Rc4
35. Dc6+ Bc7 36. He2 Hd8 37. Rf5
Rb6 38. He7 Db7
2. deild
1. Taflfélag Kópavogs 30 v.
2. Taflfélag Reykjavikur C
28'A v.
3. Taflfélag Reykjavíkur D
26'/2 v.
4. UMSE 19 v.
5. Skáksamb. Austurlands 18 v.
6. USAH 17 v.
7. Skákf. Sauðárkróks 15 /2 v.
8. Skákf. Hafnarfjarðar B 13 '/2 v.
3. deild
úrslitakeppni:
1. Skákfélag Akureyrar B 8 'A v.
2. Skákfélag Keflaavíkur 6 'A v.
3. Umf. Geisli, Súðavík 3 v.