Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Side 38
38
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Fréttir
Tvísýn barátta
um jöfnunarsætið
Suðurlandskjördæmi er sá lands-
hluti þar sem einna erfiðast er að
spá fyrir um kosningaúrslitin þar
sem þar er að finna sterkasta fram-
boðslista Borgaraflokksins utan
höfuðborgarinnar. Menn eru ekki í
vafa um að efsti maður Borgara-
flokksins í þessu kjördæmi kemst inn
á þing en spumingin er hvort hann
kippi öðrum með sér.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur löng-
um verið sterkur á Suðurlandi, fékk
tæp 40% atkvæða i síðustu þing-
kosningum og 3 menn inn. Nú er
þeim aðeins spáð einum kjördæma-
kjömum en hins vegar er líklegt að
þegar öldur „Albertsmálsins" lægja
er líður á mánuðinn að Eggert
Haukdal nái einnig kjöri sem kjör-
dæmakjörinn enda átti hann nægt
fylgi 1979 til að komast á þing af
T-listanum. Áma Johnsen verður
hins vegar að telja vonlausan eins
og staðan er.
Borgaraflokkurinn býr að því að
aðrir listar en D-listinn eru taldir
mun veikari en þeir vom í síðustu
kosningum. Þannig hefúr brotthvarf
Garðars Sigurðssonar af G-listanum
veikt hann vemlega. Er bent á í því
sambandi að fylgi Garðars í Vest-
mannaeyjum hafi náð langt út fyrir
raðir alþýðubandalagsfólks þar. Og
hvað A-listann varðar er talið að
Magnús Magnússon eigi nær ekkert
fylgi utan Vestmannaeyja, raunar
sagði einn viðmælenda DV að hann
skildi ekki af hverju þeir væru með
Magnús efstan i stað þess að hafa
þar ungan og frískan frambjóðanda
og nefndi hann að sonur Magnúsar,
Páll, hefði sennilega náð kjöri létti-
lega ef hann hefði fengist í framboð.
Framsóknarflokkurinn er í nokk-
urri kreppu í þessu kjördæmi með
óvinsælan landbúnaðarráðherra í
broddi fylkingar. í síðustu kosning-
um náði Framsókn tveimur mönnum
inn en nú er talið að ekki sé ömgg-
ur nema einn. Guðni Ágústsson
hefúr að vísu unnið mikið kosninga-
starf undanfarinn mánuð én honum
hefúr ekki tekist að ná til ungs fólks
Fylgi Magnúsar Magnússonar, efsta manns á lista Al-
þýðuflokksins, er aðallega bundið við Vestmannaeyjar.
Guðni Ágústsson, annar maður á lista Framsóknarflokks-
ins. Hann hefur unnið mikið kosningastarf, en Framsókn
er talin í nokkurri kreppu í Suðurlandskjördæmi.
og er almennt álitinn einn af þessum
íhaldssömu framsóknarmönnum
sem ungt fólk hefúr ekki áhuga fyrir.
Flokkur mannsins og Kvennalist-
inn blanda sér ekki í baráttuna um
þingsæti í þessum kosningum en þó
ber að gæta þess að Kvennalistinn
náði inn manni í bæjarstjómarkosn-
ingum á Selfossi. Konurnar em
taldar taka fylgi frá G-listanum.
Flokkur mannsins mun ekki
blanda sér í baráttu um þingsæti í
þessu kjördæmi.
Fréttaskýring
Friðrik Indriðason
Ef þetta er síðan allt. lagt saman
verður útkoman sú að Framsóknar-
flokkurinn fær 1 mann, Sjálfstæðis-
flokkur 2, Borgaraflokkur 1 og
Alþýðubandalagið 1 en tvísýn bar-
átta verði milli Ólafs Gránz af S-lista
og Magnúsar Magnússonar um jöfn-
unarsætið.
Oli eins og Albert
„Óli Þ. Guðbjartsson er Al-
bertstýpan. Hann hefur setið lengi í
bæjarstjóm og er ekta fyrirgreiðslu-
pólitíkus. í gegnum þetta starf sitt
hefur hann eignast hönk upp í bakið
á ótrúlegum §ölda fólks og ég tel
víst að margir muni kjósa hann í
laumi,“ sagði einn af viðmælendum
DV.
Þegar rætt er um framboð Borg-
araflokksins og vem Óla í efsta
sætinu þar verður að kynna aðeins
forsögu mála í Sjálfstæðisflokknum
í þessu kjördæmi. Óli var á sínum
tíma „Gunnarsmaður" i valdabar-
áttu þeirra Gunnars Thoroddsen og
Geirs Hallgrímssonar. Hann taldi sig
eiga víst þingsæti fyrir flokkinn i
síðustu kosningum þegar Þorsteinn
Pálsson var kallaður til sögunnar
og hefur hann aldrei fyrirgefið Þor-
steini að hafa haft af sér sætið.
Fylgi Óla er talið aðallega bundið
við Selfoss og nágrenni en hins veg-
ar virðist hann eiga einhverja
atkvæðablokk í Rangárvallarsýslu,
allavega hafa menn á Selfossi tekið
eftir nokkrum §ölda L-bifreiða við
kosningaskrifstofu Borgaraflokks-
ins á staðnum er fúndir hafa verið
þar.
Framsókn í tvo?
Þeii' menn sem DV talaði við höfðu
mjög skiptar skoðanir um hvort
Framsóknarflokkurinn næði sínum
tveimur mönnum inn í kjördæminu
eða ekki. Eins og fyrr segir hefúr
Jón Helgason þótt óvinsæll land-
búnaðarráðherra, það er að honum
hafa nokkuð beinst spjótin vegna
þess að hag bænda hefur stöðugt
hrakað meðan núverandi stjórn hef-
ur setið að völdum. Sökum þessa er
almennt talið að Guðni komist ekki
á þing.
Þeir sem aftur spá Guðna þingsæti
benda á að síðustu vikumar hafi Jón
nokkuð rétt úr kútnum og nefna
samning þann sem gerður var milli
ríkis og bænda um óbreyttan
„kvóta“ þeim til handa næstu árin,
samningur sem m.a. hefur verið
nefndur stuldur aldarinnar. Telja
þeir af þessum sökum að nær sé að
segja að Guðni og Magnús, í stað
Ólafs og Magnúsar, keppi um jöfn-
unarsætið. Ef Guðni fer á þing með
þessum formerkjum yrði það ugg-
laust dýrkeyptasta þingsæti íslands-
sögunnar.
-FRI
Kosningamar á Suðurlandi:
Loftorka
25
Konráð Andrésson, forstjóri Loftorku
sf. í Borgarnesi.
ara
Siguiján Guimarsson, DV, Borgamesi;
Loftorka sf. i Borgarnesi var með
opið hús nýlega og bauð öllum, sem
áhuga höfðu á, að koma og skoða
húsakynni og aðstöðu. Var þessi
kynning í tengslum við 25 ára afmæli
fyrirtækisins.
Það var árið 1962 sem fyrirtækið var
stofnað og var keypt ein loftpressa og
ráðinn starfsmaður sem er Indriði
Bjömsson og er hann enn starfsmaður
fyrirtækisins. Síðan þetta var hefúr
mikið vatn runnið til sjávar og fyrir-
tækinu vaxið fiskur urh hrygg.
Eigendur þessa fyrirtækis hafa verið
frá upphafi þeir sömu og stjóma þeir
því frá tveim stjómstöðvum, þ.e. Kon-
ráð Andrésson sér um þá starfsemi sem
fer fram í Borgamesi en Sigurður Sig-
urðsson um Reykjavíkursvæðið.
Fyrirtækið hefúr frá upphafi verið í
Hluti athafnasvæðis Loftorku sf. í Borgarnesi.
DV-myndir Sigurjón
jarðvegsvinnu og 1969 var bætt við
framleiðslu á steyptum rörum. Fyrir
fjórum árum hóf Loftorka sf. fram-
leiðslu á svokölluðum samlokueining-
um sem em steinsteyptir húshlutar
með einangmn í. Þegar er fjöldi þess-
ara húsa kominn Vel á annað hundrað-
ið.
Hjá Loftorku sf. starfa nú um 110
manns og þar af eru í Borgamesi um
60 manns.
Fjöldi manns kom og skoðaði að-
stöðu þeirra Loftorkumanna og þáði
veitingar og hægt var að sjá hvemig
fyrirtæki þetta hefur þróast þessi tutt-
ugu og fimm ár því á veggjum vinnslu-
sala mátti líta ljósmyndir, línurit og
teikningar af þeim húsum sem nú er
verið að ffamleiða.
Auk einingahúsaffamleiðslu er í
Borgamesi unnið við rörasteypu og
steinsteypuframleiðslu, framleiddar
em gangstéttarhellur og milliveggja-
steinn, svo eitthvað sé nefnt.