Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987. Fundir Ályktun Fundur haldinn í 5. deild Starfsmannafé- lags Reykjavikur 8. apríl 1987, á Slökkvi- stöðinni í Reykjavík, ályktar eftirfarandi um nýgerðan kjarasamning milli Starfs- ^mannafélags Reykjavíkur og Reykjavík- urborgar. Þrátt fyrir þónokkra lagfæringu á launastiga samningsins og öðrum minni- háttar atriðum sjáum við okkur ekki annað fært en greiða atkvæði á móti þess- um samningi. Ástæður þessarar ákvörðun- ar eru fyrst og fremst þær að samkvæmt nýjum samningsréttarlögum, sem tóku gildi í desember sl., er gert ráð fyrir að um einn kjarasamning sé að ræða þar sem kröfur einstakra starfshópa um leiðrétt- ingar séu teknar til afgreiðslu. Það er hins vegar skoðun okkar að þessi samningur sé eingöngu miðaður við vanda borgaryfir- valda við að halda opnum sjúkrastofum, en sinni á engan hátt vandamálum ann- arra borgarstofnana og starfsmanna ^þeirra. Þar sem ekkert tillit er tekið til sjálfsagðra og eðlilegra krafna einstakra starfshópa varðandi leiðréttingu um röðun í launaflokka þrátt fyrir að auðvelt sé að fmna semanburð bæði á hinum almenna vinnumarkaði, hjá ríkinu og hinum ýmsu sveitarfélögum. Og að hann innsigli enn frekar en verið hefur það sjónarmið að Starfsmannafélagi Reykjavíkur beri áfram titillinn: „Lægst launaða félag opinberra starfsmanna á landinu". Vð leyfum okkur því að skora á aðra starfshópa innan fé- lagsins að gera upp hug sinn til þessara þátta. jafnframt því að við áskiljum okkur rétt til að gera þær ráðstafanir sem þurfa þvkir til að ná fram okkar sjálfsögðu og eðlilegu kröfum um leiðréttingar. ÁÍyktun þessi var samþykkt samhljóða. Ýmislegt Kökubasar og barnafatamarkaður verður í Fram- heimilinu við Safamýri, laugardaginn 11. apríl og hefst kl. 15. Framkonur Ferðalög Útivistarferðir Dagsferð sunnudag 12. apríl. Kl. 13 Tröllafoss-Haukafjöll. Létt og íjöl- breytt gönguleið. Verð. 600 kr.. frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ. bensín- sölu. Páskaferðir Útvistar 16.-20. apríl. 1. Þórsmörk 5 og 3 dagar. Gist í Útivistar- skálunum Básum. 2. Öræfi-Skaftafell-Kálfafellsdalur. 5 dagar með dagsferð með snjóbíl á Vátna- jökul. 3. Snæfellsnes-Snæfellsjökull. 3 og 5 dag- ar. Gist á Lýsuhóli. Sundlaug. 4. Gönguskíðaferð í Esjuíjöll. 5 dagar. Gist í skála. Uppl. og farm. á skrifst. Gróf- inni 1. símar: 14606 og 23732. Sjáumst. Feróafélag íslands Dagsferðir sunnudag 12. apríl 1. Kl. 10.30 Stíflisdalur um Kjöl að Fossá, skiðaganga. Ekið verður að bæn- um Stíflisdal, gengið þaðan upp á Kjöl og komið niður hjá Fossá í Kjós. Verð kr. 600. 2. Kl. 13 - Reynivallaháís - Fossá. Ekið að Reynivöllum í Kjós, gengið þaðan um Kirkjustíg yfir Reynivallaháls að Fossá. Verð kr. 600. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag Islands. STURTUKLEFAR Sérsmíðaðir sturtu- klefar frá Háborg. Áttu í vandræðum með að koma sturtuklefa fyrir í bað- herberginu? Hafðu þá sam- band. Við getum leyst málið með sérsmiðuðum sturtuklefa í hvert baðherbergi. Tilkyimingar „Jassað í Heita pottinum“ Sunnudagskvöldið 12. apríl leikur Þorleif- ur Gíslason saxófónleikari í jassklúbbnum Heita pottinum í Duus-húsi. Honum til aðstoðar eru þeir Árni Scheving. er leikur á bassa. Alfreð Alfreðsson trommur og Kristján Magnússon píanóleikari. Undan- farin sunnudagskvöld hafa verið mjög vel sótt og virðist jassinn í Heita pottinum hafa haslað sér völl í tónlistarlífi höfuð- borgarinnar. Ráðstefna um samskipti fjöl- miðla og hljómplötuframleið- enda Samband hljómplötuframleiðenda, sem er félag fyrirtækja sem standa að hljómplötu- útgáfu hérlendis, hefur ákveðið að boða til ráðstefnu að Hótel Sögu laugardaginn 11. apríl nk. kl. 14 um framangreint fund- arefni. Starfsfólki frá stærstu íjölmiðlum landsins. er boðið til fundarins í því skyni m.a. að gera grein fyrir þeirri þjónustu sem æski- legt er að hljómplötuframleiðendur geti veitt íjölmiðlum. Einnig verður rætt um sérstöðu á útgáfu íslenskra hljómplatna gagnvart þeim erlendu og kynningu á slíku efni í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Framsöguerindi munu halda Steinar Berg ísleifsson, formaður Sambands hljóm- plötuframleiðenda, Einar Sigurðsson, útvarpsstjóri á Bylgjunni, og Kolbrún Halldórsdóttir frá rás 2. Að framsöguræð- um loknum munu hefjast panelumræður með þátttöku ofangreindra aðila auk Jón- asar R. Jónssonar, dagskrárstjóra Stöðvar 2. og Sveins Guðjónssonar, blaðamanns hjá Morgunblaðinu. Ráðstefnan verður haldin í sal C í nýbyggingu Hótel Sögu. Tónlistarfélag Akraness Tónleikar verða hjá Tónlistarfélagi Akra- néss laugardaginn 11. apríl í safnaðar- heimili Akraneskirkju kl. hálffjögur. Sigurður Pétur Bragason óperusöngvari syngur ásamt Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanóleikara. Á efnisskránni eru íslensk lög, þýsk ljóð og ítalskar óperuaríur. Sigurður Pétur Bragason hóf nám í píanó- leik við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni og lauk tón- menntakennaraprófi frá skólanum árið 1978. Hann lauk 8. stigs prófi úr Söngskól- anum í Reykjavík 1981. Kennarar hans voru Sigurður Björnsson og Magnús Jóns- son. Hann var við söngnám hjá Maestro Pier Miranda Ferraro í Mílanó á Ítalíu frá 1983' til 1986. Sigurður hefur sungið með íslensku óperunni hlutverk í óperunum Búum til óperu eftir Benjamin Britten og Töfraflautunni eftir Mozart. í Þjóðleik- húsinu nú í haust söng’ hann í óperunni Tosca eftir Puccini tvö hlutverk, Sciarr- one og Sacristan. Síðastliðið vor söng hann hlutverk Jesú Krists í verkinu Sjö orð Krists á^krossinum eftir Allori á mik- illi sönghátíð í Mílanó sem haldin er um hverja páska. Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk píanó- kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1978. Eftir það lá leið hennar til Þýskalands þar sem hún stund- aði framhaldsnám við tónlistarháskólann í Freiburg im Breisgau. Þaðan lauk hún Diplom-prófi 1981 og var síðan við nám í tónlistarháskólanum í Stuttgart en þar valdi hún ljóðaflutning sem sérgrein undir handleiðslu prófessors Konrads Richter. Eftir að Þóra Fríða kom heim frá námi árið 1984 hefur hún aðallega starfað sem píanóleikari og kennari í Reykjavík. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 Skólasýning Ásgrímssafns hefur verið opnuð. Sýningin er opin almenningi á opnunartíma safnsins: sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgang- ur er ókeypis. Kvennalistinn í Reykjaneskjördæmi Kvennalistinn verður með opið hús og vöfflukafíí laugardag kl. 15 að Reykjavík- urvegi 68, Hafnarfirði (2. hæð). Verið öll velkomin. Ræðum málin. 60 ára verður á morgun, sunnudag- inn 12. apríl, Lára Kristjánsdóttir, Gyðufelli 12. Hún tekur á móti gest- um í veitingahúsinu Bakka, Lækjar- götu 8, sunnudaginn 19. apríl kl. 18. Neskirkja 30 ára Neskirkja, sem kölluð hefur verið fyrsta nútímakirkjan á íslandi, á vígsluafmæli næstkomandi sunnudag. Hún var vígð á pálmasunnudag árið 1957 af þáverandi biskupi, herra Ásmundi Guðmundssyni, en fyrsti sóknarprestur safnaðarins, séra Jón Thorarensen, þjónaði fyrir altari. Afmælisins verður minnst næsta sunnu- dag en þá mun biskup landsins, herra Pétur Sigurgeirsson, predika við guðs- þjónustu kl. 14. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn organistans, Reynis Jónas- sonar, og Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau leika á flautur. Núverandi sókn- arprestar, séra Frank M. Halldórsson og séra Guðmundur Óskar Ólafsson, þjóna fyrir altari. Að lokinni guðsþjónustu mun Stefán Jóns- son, fyrrum formaður sóknarnefndar, rifja upp þætti úr byggingarsögu hússins og kórkirkjunnarsyngja. Núverandi formað- ur sóknarnefndar er Baldur Jónsson. Sýning á útskurðarlist í Eden Nú stendur yfir i Eden í Hveragerði sýn- ing á blómasúlum og skúlptúrum unnum úr tré eftir Erlend Finnboga Magnússon. Listamaðurinn hefur á undanförnum árum nær eingöngu helgað sig útskurðarlistinni og af verkum hans má nefna útskorna hurð Þorlákshafnarkirkju, útskomar inn- réttingar Eden í Hveragerði, Hótel Geysi í Haukadal og Skiðaskálann í Hveradöl- um, Sýningin í Eden er sölusýning og stendur yfir til 15. þ.m. Kvenfélag Kópavogs Spiluð verður félagsvist næstkomandi mánudag, 13. apríl, kl. 20.30 í félagsheimil- inu í Kópavogi. Allir velkomnir. Veðurfar á íslandi eftir Mark- ús A. Einarsson Nú er aftur fáanleg hjá Bókaútgáfunni Iðunni bókin Veðurfar á Islandi eftir Markús Á. Einarsson veðurfræðing, en hún hefur verið uppseld um tíma. Bókin gefur yfirlit um helstu niðurstöð- ur rannsókna á veðurfari íslands og skiptist í tíu meginkaíla. Hún er í senn handbók og almennt fræðslurit - jafnt til fróðleiks áhugamönnum sem og til nota fyrir verkfræðinga, náttúrufræðinga og fleiri þá sem upplýsinga er þörf um veður- far starfa sinna vegna. Leikfélag Akureyrar sýnir Kabarett föstudags- og laugardags- kvöld kl. 20.30. Ásmundarsafn við Sigtún Opnunartími safnsins er á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudög- um frá kl. 14-17. Gullni haninn Myndlist-matgerðarlist. 18 olíu- og vatnslitamyndir eftir Sólveigu Eggerz Pétursdóttur með dönskum „mót- ívum“, hanga á veggjum veitingastaðar- ins, sem nú býður sælkerum gómsæta danska rétti ásamt hinum hefðbundna matseðli Gullna hanans. Sýning á Mokka kaffi Birgir Schiöth sýnir verk sín á Mokka kaffi, Skólavörðustíg 3a. Sýningin er opin virka daga frá kl. 9.30 23.30 og sunnudaga frá kl. 14 23.30, Sýningin sem er sölusýn- ing stendur í mánuð. Alþýðuleikhúsið Um þessar mundir sýnir Alþýðuleikhúsið leikritið „Eru tígrisdýr í Kongó?“ í veit- ingahúsinu Kvosinni. Uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa. Hér er á ferð- inni nýtt finnskt leikrit eftir þá Johan Bergum og Bengt Ahlfors sem frumsýnt var í Helsinki sl. haust. Leikritið fjallar um hinn skelfilega sjúkdóm eyðni frá sjón- arhóli hins almenna borgara. leikstjóri verksins er Inga Bjarnason en leikarar Viðar Eggertsson og Harald G. Haralds- son. Næstu sýningar verða í dag, laugar- dag, kl. 13, mánudaginn 13. apríl, þriðjudaginn 14. apríl og miðvikudaginn 15. apríl kl. 12 stundvíslega. Miðaverð er kr. 750 og í því er innifalið, leiksýningin, léttur hádegisverður og kaffi. Miðapant- anir eru í síma 15185 og tekur sjálfvirkur símsvari við pöntunum allan sólarhring- inn. Stjórn Félags íslenskra mynd- listarmanna fagnar samþykkt Alþingis á breytingum á tollskrá þar sem tollar á litum til listmál- unar eru lækkaðir verulega. Ennfremur samþykkt stjórnarfrumvarps á uppboðs- lögum þar sem söluskattur á listaverkum er felldur niður og þess í stað stigið stórt • skref í þá átt að viðurkenna höfundarrétt myndlistarmanna með því að taka upp 10 % gjald er greiðist til eigenda höfunda- réttar. Fríkirkjan í Reykjavík: Messur á páskum 1987 Fermingarguðsþjónusta verður í Fríkirkj- unni kl. 11.00 á skírdag. Sama dag verður kvöldmessa með altarisgöngu kl. 20.30. Magnús Steinn Loftsson tenórsöngvari syngur stólvers. Á föstudaginn langa er guðsþjónusta kl. 14.00. Flutt verður Litanía sr. Bjarna Þor- steinssonar. Oddur Björnsson básúnuleik- ari leikur einleik. Á páskadag verða tvær hátíðarguðsþjón- ustur, önnur kl. 8.00 árdegis, hin kl. 14.00. Annan í páskum verður svo barnaguðs- þjónusta að venju. Guðspjallið er útskýrt með hjálp mynda, smábarnasöngvar og barnasálmar sungnir, afmælisbörn boðin sérstaklega velkomin og lesin sögulok framhaldssögunnar Dísu frænku eftir Stef- án Jónsson. Við píanóið er Pavel Smid. Kaþólskir í Sovétríkjunum Nk. sunnudag, 12. apríl, kl. 16 verða sýnd- ar þrjár stuttar frétta- og fræðslumyndii frá Sovétríkjunum í bíósal MÍR að Vatns- stíg 10. Ein myndanna segir frá starfi kaþólsku kirkjunnar í Sovétríkjunum og önnur er frá Sovétlýðveldinu Kazakhstan. Skýringar með myndunum eru á ísiensku og ensku. Aðgangur að kvikmyndasýning- um MÍR er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Maraþon íTrivial Pursuit byrjar kl. 12.00 á hádegi á laugardag og stendur til klukkan 12 á sunnudag í sal Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Ný (skammtíma) útvarpsstöð Um helgina verður útvarpað stansiaust í 48 tíma frá félagsmiðstöðinni Þróttheim- um á FM 106. Útsendingar hófust í gærkvöldi og og standa yfir til kl. 20 á sunnudagskvöld. Útvarpsstöðin heitir „Sundarás" og hafa unglingarnir sem bera veg og vanda af framkvæmdum unnið að undirbúningi undanfarnar íjórar vikur og lagt dag við nótt marga sólarhringa. Tapað - Fundið Læða týnd Grá og hvít læða tapaðist frá Grettisgötu fyrir rúmri viku. Ef einhverjir hafa orðið varir við hana vinsamiegast hafið sam- band í síma 29758. Afmæli 75 ára varð í gær, föstudaginn 10. apríl, Jón Þ. Sigurðsson, vélstjóri frá Hnífsdal. Af því tilefni tekur hann á móti gestum í Gullna hanan- um, Laugavegi 178, Reykjavík, sunnudaginn 12. apríl frá kl. 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.