Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. JUNl 1987. Fréttir „Lét mig ekki dreyma um báða titiana” -segirAnna Margrét Jónsdóttir sem bæði var kjörin ungfrú Reykjavík og ungfrú ísland ígær „Þegar tilkynnt var að ég hefði hlot- ið titilinn ungírú Reykjavík reiknaði ég með að ég væri útilokuð frá ungfrú ísland-titlinum. Það hvarflaði ekki að mér að ég gæti hlotið báða. Þetta 'er auðvitað alveg stórkostlegt, ég trúi þessu varla enn,” sagði Anna Margrét Jónsdóttir, 19 ára Reykjavíkurmær, eftir að hún hafði verið valin fegurst þeirra tíu stúlkna sem tóku þátt í keppninni Ungfrú ísland, sem haldin var í veitingahúsinu Broadway í gær. Anna Margrét var bæði kjörin ungfrú ísland og ungfrú Reykjavík og er það i fyrsta skipti sem báðir titlarn- ir falla til sömu stúlku. í öðru sæti varð Magnea Magnúsdóttir, í þriðja sæti Sigríður Guðlaugsdóttir, Fjóla Grétarsdóttir í fjórða og Hildur Guð- mundsdóttir í fimmta. Húsfyllir var á Broadway. „Ég starfa núna sem flugfreyja og þetta á varla að breyta mínum áætlun- um mikið, að vísu kem ég til með að taka þátt í fegurðarsýningum erlendis í haust og hef meira að gera við sýn- ingarstörf hér heima. Það er allt annað að starfa við ljósmyndafyrirsætustörf með svona titil heldur en venjulegt er, það er engin hætta á að ég fái leið á því en hins vegar hlakka ég mikið til að takast á við það,” sagði Anna en Úrslitin tilkynnt. Viðbrögðin iétu ekki á sér standa, Anna Margrét hrópar af undrun og ánægju yfir ungfrú Island-titlinum. Hamingjusöm í hásætinu eftir krýn- ingu. Anna Margrét var kjörin bæði ungfrú Reykjavik og ungfrú ísland. þegar spumingar voru lagðar fyrir stúlkumar fym um kvöldið sagðist hún vera orðin hálfleið á sýningar- störfúm enda væri hún búin að starfa við slíkt fjögur sl. ár. Foreldrar Önnu Margrétar, þau Jón Kristófersson og Marín Samúelsdóttir, voru að sjálfsögðu yfir sig ánægðir með sigurinn svo og unnnusti hennar, Ami Harðai-son. „Það er mikil spenna búin að ríkja á heimilinu að undan- förnu,” sagði Marín en hún átti heiðurinn af glæsilegum kvöldkjól sem Anna Margrét kom fram í og stóð saumaskapurinn fram á síðustu stundu. Anna Margrét sagði að ekkert frí væri hjá henni á næstunni þótt dag- skráin fyrir keppnina hefði verið ströng enda hefði hún nóg að gera næstu daga. Verðlaunin, sem hún hlaut, vom ekki af verri endanum, hvitagullshringur skreyttur átján demöntum að verðmæti um 150 þús- und krónur, blárefsjakki, gull- og sifurúr auk fleiri veglegra gjafa . -BTH Ámi Harðarson, unnusti önnu Margrétar, sagðist hafa fengið mikinn hjartslátt á síðasta augnablik- inu áður en úrslitin voru birt. Það var alltaf möguleiki, þótt hann teldi það ólíklegt eftir að Anna haföi hlotið Reykjavíkur-titilinn. Hér sjást þau saman eftir krýninguna. Dularfullur dauði Þverárhrossanna Jón G. Haukssan, DV, Akuieyri; Sagan um huldufólkið hefúr feng- ið byr undir báða vængi í Öxarfirði, svo dularfúllt þykir mönnum hvar týndu hrossin frá Þverá komu í leit- imar. Þau fundust á föstudaginn í gili ofarlega í fjallinu Sandfelli sem er um 3 km frá Þverá. Fjallið blasir við frá bænum. Enginn skilur hvað hrossin vom að gera uppi á fjallinu, hvað þá hvemig þau komust upp. Fjallið var kolófært í vetur, harð- frosið þegar hrossin týndust. „Það er fyrir mestu að hrossin em fundin. Ég varð að finna þau,“ segir Kristján Benediktsson, bóndi á Þverá, við DV í gær. Flestir skýra atburðinn þannig að hrossin hafi fælst og steðjað upp á fjallið, farið þar út á fönn og hrapað 100 metra niður snarbratta hlíðina, í gil ofarlega í fjallinu. Hestamir stöðvuðust á steinum, hastarlega. Sumir þeirra vom möl- brotnir. Fjórir vom ofar en þrír neðar í fjallinu, þeir höfðu farið fram af lítilli ídettabrún þar. Næstneðstur Hrossin hröpuðu 100 metra og drápust. En hvernig og hvers vegna komust þau upp fjallið? DV-mynd Kári Þórarinsson var Lýsingur, foringi hópsins, 15 vetra, alinn upp á Þverá og hafði aldrei farið frá bænum. Hrossin vom öll ójámuð og ekkert bar það með sér að brotnað hefði úr hófunum þegar þau klöngmðust upp fjallið. Og aldrei er vitað til þess að hross hafi farið upp Sandfell. Það sem meira er; fjallið var koló- fært í vetur og vart fyrir aðra en vel útbúna klifurmenn að komast upp. Vélsleðamaður ætlaði í vetur að þeysa upp melrindann norðaustan- megin í fjallinu en það er eini staðurinn sem er uppgengur. Vél- sleðamaðurinn varð að snúa við, svo miklir svellbunkar vom á leiðinni. Kristján bóndi flaug meðfram hlíð fjallsins í vetur. Engin vegsummerki sáust þá, ekki einu sinni jarðrask. Hrossin hurfu frá bænum snemma í janúar. Það var eins og jörðin hefði gleypt þau. Þótt hrossin séu fundin er málið bara enn dularfyllra. Seint á sunnu- dagskvöld vom hrossin dregin niður fjallið og urðuð við rætur Sandfells.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.