Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. Fréttir Mikil ölvun í Húsafelli og á Geirsárbökkum: Síðasta sinn sem Húsafell verður opið um hvrtasunnu - segir Kristleífur Þorsteinsson bóndi Eitthvað virðast þeir hafa átt vantalað hvor við annan strákarnir og ákveðið að best væri að láta hendur skipta. Félag- ar þeirra fyigjast spenntir með viðureigninni. DV-mynd S „Það var ógurlega mikil ölvun hér og víst er að áfengissalan leggur ekki mikið til umhverfismála. Umgengnin var mjög slæm,“ sagði Kristleifur Þor- steinsson, bóndi að Húsafelli, í samtali við DV í gær, en þar var töluverður mannsöfhuður um helgina, eins og reyndar undanfarin ár. Kristleifur sagðist giska á að á milli átta hundruð og þúsund manns hefðu verið í Húsafelli þessa hvítasunnu- helgi. „Það var ekki meira af tjöldum hér en um meðalhelgi á sumrin, en talsvert um að fólki þvældist hingað stund og stund.“ Að sögn Kristleifs var vakt við sund- laugina og svæðið þar í kring jafnt nótt sem dag alla helgina og slapp það svæði sæmilega. Annars staðar var heldur hörmulegt um að litast og mik- ið að gera við að hirða rusl og lagfæra skemmdir. „Fjölskyldan er ákveðin í að þetta verði í síðasta skiptið sem við höfum opið hér um hvítasunnuhelgi. Ég hef reyndar verið þeirra skoðunar eftir hverja hátíð, en nú er fjölskyldan ein- huga um þetta. Það er meira tjón af þessu en gróði. Það komu inn um það bil hundrað þúsund krónur fyrir tjald- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur óbund. 10-12 Ib.Lb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 11-15 Sb 6 mán. uppsögn 12-20 Ib 12 mán. uppsögn 14-25,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 22 24,5 Bb Ávisanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-7 Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb. Lb.Sb. Úb.Vb 6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum 2,5-4 10-22 Ab.Úb Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5,5-6,5 lb Sterlingspund 7,5-10 Vb Vestur-þýsk mork 2.5-3.5 Ab.Vb Danskarkrónur 9-9,5 Ab.Sb. Sp.Úb ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir víxlar(forv.) 21-24 Bb.Úb Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 24-26 eða kge Almennskuldabréf 21,5-25 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningaríyfirdr.) Útlán verðtryggð 21,5-25 Úb Skuldabréf Að2.5árum 6,5-7,5 Lb Til lengritíma Útlán til tramleiðslu 6,75-7,5 Úb isl.krónur 18,5-24 Ab SDR 7.75-8 Bb.Lb, Úb Bandarikjadalir 8-9 Sb Sterlingspund 10,25-11,5 Lb Vestur-þýsk mörk 5,25-5,75 Bb.Lb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 3.5 5-6,75 Dráttarvextir 33,6 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júní 1687 stig Byggingavisitala 305 stig Húsaleiguvisitala Hækkaöi 3% 1. april HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 110 kr Eimskip 248 kr Flugleiðir 170 kr. Hampiðjan 114 kr. lönaðarbankinn 134 kr. Verslunarbankinn 116 kr. Úgerðarf. Akure. hf. 150kr. Skagstrendingurhf. 350 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla gegn 24% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaðlnn blrtast i DV á fimmtudögum. stæðin en brotin og eyðilögð verðmæti fyrir svipaða upphæð. Og þá er meðal annars eftir að borga laun. Þessi krakkagrey eru svo sem ágætis mann- eskjur, þó auðvitað séu einstaka skúrkar innan um, þau voru bara mið- ur sín af áfengisneyslu," sagði Krist- leifur bóndi að Húsafelli. Eins og öskutunna Auk mannsafnaðarins að Húsafelli voru margir unglingar samankomnir á Geirsárbökkum. Stuðmenn stóðu fyrir dansleikjum í Logalandi um helg- ina og sóttu þá krakkar bæði úr Húsafelli og frá Geirsárbökkum. Var að vonum mikið að gera hjá lögregl- unni í Borgamesi þar sem bæði þessi svæði em í hennar umdæmi. Fékk hún til liðs við sig einn bíl og áhöfn frá lögreglunni á Akranesi, auk þess sem eftirlitsbílar frá Reykjavík vom öðm hvom á ferðinni þama. „Miðað við fólksfjölda og þá ölvun sem alltaf fylgir þessum útihátíðum þá gekk helgin sæmilega fyrir sig,“ sagði Þórður Sigurðsson hjá lögregl- unni í Borgamesi er DV ræddi við hann í gær. „Þessi helgi skar sig ekkert úr öðrum hvítasunnuhelgum, þetta er hálfgerð flatneskja," sagði Þórður. Að sögn Þórðar var töluvert um ölv- un, bæði í Húsafelli og á Gerisárbökk- um. Yngri krakkar á aldrinum þrettán til tuttugu ára vom í meirihluta á Geirsárbökkum en þeir eldri sóttu fremur í Húsafell. „Þessum samkomum fylgir alltaf eitthvað af smáum og stórum óhöpp- um. Það var brennt tjald ofan af fólki, en það slapp sem betur fer ómeitt. Síð- an brenndi einn sig á grillolíu, eithvað var um tognun, fingurbrot og minni- háttar líkamsmeiðsl.“ Aðspurður um umgengnina sagði Þórður hana hafa verið slæma. „Ég hef að vísu ekki komið þama upp etir nýlega, en mér er sagt að þetta sé eins og í öskutunnu." VAJ Brjóstbirtan þykir ómissandi í útilegum, ailavega vandar hann sig, ungi piltur- Ekki er annað að sjá en þau skemmti sér konunglega við spilirí og söng, inn sem hér sést blanda guðaveigamar, áður en hann skellir sér í fjörið. þessir krakkar sem Ijósmyndari DV rakst á á útimótinu á Geirsárbökkum. Mikill fjöldi ungmenna var samankominn bæði á Geirsárbökkum og í Húsa- DV-mynd S felli og ölvun talsverð. DV-mynd S Mikill fjöldi unglinga fór í Borgarfjörðinn um helgina. Hér sjást nokkur þeirra bókstaflega velta út úr einni rútunni þegar á áfangastað er komið. Virðist hafa verið svo margt í bílnum að þegar hurðin var opnuð ultu krakkarnir út. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.