Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. Utlönd Nancyfékk blendnar viðtökur Lögreglan í Stokkhólmi handtók á sunnudag um níutíu mótmælendur fyrir utan hótel það sem Nancy Reagan, forsetafi-ú Bandaríkjanna, dvaldi á en hún var þá stödd í Svíþjóð til að kynna sér meðferð á fíkniefnaneytend- um þar í landi. Forsetafrúin fékk ákaflega blendnar móttökur hjá Svíum. Á samkomu foreldra og barna vai' henni fagnað mjög þegar hún dansaði við sænska poppstjörnu á sviðinu. Þegar írúin hins vegar kom út af samkomunni mætti henni stór hópur mótmælenda sem gerði hróp að henni og sagði henni að hypja sig heim. Síðar um kvöldið kom svo til mótmæla við hótelið sem hún dvaldi á og hétu mótmælendur, sem kváðu það hræsni einbera hjá forsetafrúnni að koma til Svíþjóðar að predika gegn fíkniefnaneyslu meðan Bandaríkin stæðu í myrkraverkum i Suður-Ameríku, að hrella frúna meðan á dvöl hennar stæði. Tamílar flýja Jaffnaskagann Hundruð tamfla hafa flúið Jaöha- skagann á Sri Lanka undanfama tvo daga. Óttast þeir frekari árásir örygg- issveita á aðskilnaðarsinna tamíla, að því er íbúamir sjálfír greina frá. Fjögur hundruð tamílar komu í gær í sex langferðabílum til Vavuniya sem er hundrað og fjömtíu kílómetra fyrir sunnan Jaffria . Fleiri hundmð hafa lagt leið sína til nálægra bæja. Indverski sendiherrann hefur beðið stjómina um vemd fyrir indverska borgara í Colombo þar sem hann ótt- ast að mótmælagöngu búddamunka gegn Indlandi, sem ráðgerð er í dag, fylgi ofbeldi. Hyggjast munkarhir mót- mæla því er Indverjar rufu lofthelgi Sri Lanka í síðustu viku með því að fljúga yfir Jaffnaskagann og fleygja niður matarbirgðum til tamíla. Einnig mótmæla þeir fjöldamorði skæruliða tamíla á þrjátíu og tveimur munkum fyrir viku. Fullyrða munkamir að Ind- land hafi átt þar hlut að máli. Siglingar á Persaflóa ræddar á Feneyjafundinum Hermaður skammtar tamilum hrísgrjón úr hjálmi sínum. Sýndu hermennirnir á sér betri hliðina og deildu út matvælum í héruðum þeim er þeir hertóku af aðskilnaðarsinnum tamíla í siðustu viku. Símamynd Reuter Herða aðgerðir gegn ríkisóvinum Sex Kuwait-búar voru í síðustu viku dæmdir til dauða fyrir að hafa unn- ið skemmdarverk á olíumannvirkjum í landinu og að hafa staðið að samsæri gegn stjóm þess. Á sama tíma boða stjórnvöld í Kuwait harðari aðgerðir gegn óvinum stjómarinnar og segja að lögregla landsins muni taka harka- lega á öllum þeim sem ógna öryggi þess. Talsmaður stjómarinnar sagði í síðustu viku að það væri ekki stefna stjórnvalda að nota kúgun sem stjórntæki en til hennar yrði þó gripið þegar á [jyrfti að halda. Undanfarið hefur verið framið töluvert af pólitískum afbrotum í Kuwait, meðal annars hefur emír landsins, Jaber Al-Ahmed al-Sabah, verið sýnt banatilræði. 2000 handtekin í Suður-Kóreu Um tvö þúsund manns vom handtekin í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, aðfaranótt mánudagsins í aðgerðum sem lögreglan vonaðist til að kæmu í veg fyrir óeirðir í tengslum við mikla mótmælafúndi, sem ætlað er að halda í borginni á miðvikudag. Margir hinna handteknu vom látnir lausir aftur en um eitt þúsund verða dregnir fyrir rétt, sakaðir um að hafa ætlað að setja öryggi almennra borgara í S-Kóreu í hættu. Lögreglan í landinu er í viðbragðsstöðu vegna fundanna sem haldnir em sama dag og tilkynna á að Roh Tae-Woo hafi verið útnefndur sem arftaki Chund Doo Hwan í embætti forseta S-Kóreu á næsta ári. Ríkisstjóm landsins hefur bannað fúndarhöld á miðvikudagiunn en þau hafa verið skipulögð af hópum andstöðufólks, kirkju landsins og stjómarand- stöðuflokkum. Mótmælaaðgerðir í Pakistan Mótmælendur í Karachi, stærstu borg Pakistan, kveiktu í almennings- farartækjum og bmtu rúður í borginni í átökum sem urðu við lögreglu þar á sunnudag. Til átakanna kom í kjölfar mótmæla gegn aukinni skattheimtu sem staðið hafa í Karachi alla síðastliðna helgi. Til átaka kom líka milli þjóðarbrota Pashtuna og Mohajira en í kjölfar þess réðust Pashtunar á lög- reglustöðvar til að mótmæla því að lögreglan vemdaði þá ekki gegn Mohajirum. Við upphaf fundar sjö helstu iðnríkja heims í Feneyjum í gær reyndu Bandaríkjamenn að róa bandamenn sína með því að fullvissa þá um að þeir hygðust ekki biðja þá um.að senda skip til eftirlits á Persaflóa. Varðandi efnahagsmál tilkynnti Reagan Bandaríkjaforseti að inn- flutningsbanni á japönskum vörum væri aflétt en því var komið á fyrir tveim mánuðum vegna meints niður- greidds verðs á japönskum tölvukubbum. Fundurinn hófst með þriggja klukkustunda kvöldverði sem jafn- framt var vinnufundur. Rædd voru samskipti austurs og vesturs, auk þess sem vopnaeftirlit og umbóta- stefna Gorbatsjovs var meðal þess sem bar á góma, að sögn embættis- manna. Áður en fundurinn hófst átti Reag- an Bandaríkjaforseti viðræður við leiðtoga Ítalíu, Japans og Vestur- Þýskalands til þess að leita eftir stuðningi til þess að tryggja siglingar á Persaflóa. Fjallað verður nánar um siglingarnar í fundinum í dag. Kanadamenn og Bandaríkjamenn hvöttu leiðtoga iðnríkjanna til þess að takast á við umframframleiðslu og lækkandi verð á landbúnaðaraf- urðum. Að sögn embættismanna er mikill skoðanaágreiningur meðal Evrópuþjóða hvað varðar slíkt þann- ig að ekki er gert ráð fyrir árangri á fundinum. Efnahagsmál eru aðalviðfangsefni fundarins en samkvæmt hefð eru stjórnmál á dagskrá þegar menn koma fyrst saman. Þeir snæddu saman i Feneyjum i gærkvöldi, leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims. Símamynd Reuter Sprengjutilræði í kosningabaráttunni Spánska lögreglan hefúr fundið rúmlega hundrað kíló af sprengiefni sem komið var fyrir á bílastæði við þjóðveg nálægt Barcelona. Fullyrða embættismenn að öfgamenn Baska hafi ætlað sér að sprengja fyrir kosn- ingamar sem haldnar verða á morgun. Var sprengiefnið af svipaðri gerð og það sem notað hefur verið við sprengjutilræði í Barcelona undan- fama níu mánuði. Það sem af er þessu ári hafa Baskar aðeins einu sinni látið til sín taka i Madrid. Var það við upphaf kosningabaráttunnar fyrir þremur vikum þegar sprengjum var komið fyrir í þremur bílum fyrir utan aðalbækistöðvar hersins. Aldraður vegfarandi beið bana við sprengjutil- ræðið. Ef frá er talið rán á kaupsýslumanni af Baskaættum hefur kosningabarátt- an ekki einkennst af ofbeldi. Telja stjómmálamenn skýringuna vera þá að samtök Baska vilji ekki eyðileggja tækifæri róttæklingsins Herri Batas- una í kosningunum en hann aðhyllist kröfur þeirra um sjálfstætt ríki. Samstöðumenn handteknir Jóhannes Páll páfi II. hóf í gær sjö daga heimsókn sína til heimalands síns, Póllands. Eftir að páfi hafði kropið á kné og kysst jörðina, eins og venja hans er á slíkum ferðum, heilsaði hann Jaruzelski leiðtoga og öðrum leiðtogum, bæði stjórnarinnar og kirkjunnar. Miklar öryggisráðstafanir vom viðhafðar og þess var séstaklega gætt að engin mótmæli ættu sér stað þar sem leið páfa lá um. Nokkrum klukkustundum fyrir komu páfa voru fjórir meðlimir Samstöðu hand- teknir í Lublin en þangað kemur páfi í dag. Lögreglan kom í veg fyrir að með- limir friðarhreyfingar sýndu spjöld sín þar sem páfi fór um miðborg Varsjár en mannfjöldinn kom í veg fyrir að lögreglan gæti haft á brott með sér leiðtoga friðarhreyfingar- innar. Meðlimir Samstöðu héldu spjöldum á loft þar rétt hjá og sungu nafn samtakanna. Páfi hvatti til einingar í Póllandi og vitnaði í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna í ávarpi. Átti hann langan fund með Jaruzelski en ekkert hefur verið greint frá inni- haldi viðræðna þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.