Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. 13 Neytendur Stórsparnaður að því að drekka undanrennu Verð á landbúnaðarafurðum hækk- aði um síðustu mánaðamót. Nú kostar kg af lambakjöti í 1. verðfiokki í heil- um skrokkum 269 kr. Ef um er að ræða úrvalsflokk D* kostar kg 277,90 í heilu. Nautakjötið er litið eitt dýrara, stjörnunaut í 1. verðflokki kostar í heilum og hálfum skrokkum 322,90 kr. og 1. verðfl. UNI, sem er algengasta kjötið, kostar 287,20 kr. kg. Athugið að rugla þessu verði ekki saman við verð sem þið sjáið í kjöt- borðum verslana. Þar gildir írjáls álagning, enda verðið allt annað. Þó er hægt að fá heila lambaskrokka í flestum stórum kjötverslunum á þessu verði. Mjólkurafurðir hækkuðu einnig í verði núna um mánaðamótin. Lítrinn kostar nú í femum 42,80 kr. Undan- renna kostar 28,80, rjómapeli kostar 67,30. Ópakkað kg. af skyri kostar 75,40, 1. flokks smjör kostar 267,40. 45% ostur kostar 407 kr. kg í bitum en 367 kr. í heilum eða hálfum ostum. 30% ostur er á 306 kr. Langódýrasti osturinn er eins og áður mysuostur sem kostar 161 kr. kg. Bent skal á að mikill spamaður er að þvi að drekka undanrennu í staðinn fyrir nýmjólk eða léttmjólk en hollusta undanrennu er sú sama og nýmjólkur nema hvað hún inniheldur færri hita- einingar. -A.BJ. NEVI - IÐNAÐARBANKINN -SLEIPNER ÁRMÚLI7, 108 REYKJAVÍK. SlMI: 91-681040. Hvað kostar að láta reykja eða grafa lax? Reyktur lax hefur löngum verið tal- inn herramannsmatur og grafinn lax með tilheyrandi sósum verður æ vin- sælli forréttur. En það er hins vegar ekki á allra færi að reykja laxinn eða grafa hann samkvæmt kúnstarinnar reglum. < Aðstandendur Neytendasíðunnar komust á snoðir um að að minnsta kosti þrír aðilar á höfuðborgarsvæð- inu sjá um að reykja og grafa lax fyrir þá sem þess óska og færist eftirspum- in eftir þessari þjónustu mjög í vöxt. Egill Thorarensen hjá Síldarréttum hf. fræddi okkur um það að nú orðið kæmi fólk ekki einungis með lax og silung til reykingar heldur einnig ýmsar aðrar fisktegundir, t.d. grálúðu, sem þykir prýðilegt álegg. Auk Síldarrétta veita Reykofninn og íslensk matvæli þessa þjónustu. Þess ber að geta að laxinn rýmar töluvert við reykinguna, þannig að búast má við að úr reykingu fáist u.þ. b. 50-60% af upphaflegri þyngd fisks- ins. Reykofninn og Síldarréttir hf. taka 220 kr. fyrir hvert útvigtað kíló, þ.e.a. s. laxinn er ekki vigtaður fyrr en búið er að fullvinna hann. í þessu verði er innifalin flókun, söltun, reyking eða grafkrydd, snyrting og lofttæmd pakkning. Þeir hjá íslenskum matvælum taka hins vegar 110 kr. fyrir hvert kíló af fiski sem er þá vigtaður áður en vinnsl- an hefst. Snyrting og pakkning er þá ekki innifalin í verðinu en lofttæmd pakkning á bitum kostar 30 kr. en 60 kr. fyrir heilt flak. Samkvæmt upplýsingum frá Agli Thorarensen er búðarverð á reyktum laxi, sem veiddur var í fyrra, 900-950 kr. en nýr reyktur lax, sem aldrei hef- ur verið frystur, mun kosta 1125-1200 kr. kílóið. Með hliðsjón af töflunni yfir verð á nýjum laxi ættu lesendur nú að geta reiknað út hve mikið þeir spara með þvi að láta sjálfir reykja laxinn sinn. En þá verður að taka fyrr- nefnda rýmun með í reikninginn og svo kostar ferðin í reykhúsið sitt. KGK Ódýrari plöntur í Hveragerði Við sögðum frá algengu verði á sumarblómum í höfuðborginni í vikunni sem leið og gátum um verð á plöntum hjá nokkrum stöðvum. Við höfum fengið ábend- ingar um að bæði blóm og matjurt- ir séu ódýrari hjá gróðrastöðvum í Hveragerði. Þar er oftast opið til kl. 22 á kvöldin. Dæmi um Hveragerðisverð: Þar kostar tóbakshomið 95 kr. en 150 kr. í Reykjavík, stjúpmæður kosta 24 kr. en 30 kr. í Reykjavík og matjurta plöntur 17 kr. í Hvera- gerði en 22 kr. í Reykjavík. VAMARÞIG FJÁRMAGN TIL FJÁRFESTINGAR í ATVINNUTÆKJUM ? Sé svo, bendum við á góða leið til lausnar - fjármögnunarleigu (leasing). Meðal kosta fjármögnunarleigu Glitnis M. eru: • 100% fjármögnun til nokkurra ára. • Viðstaðgreiðumseljandatækiðogkemur staðgreiðsluafsláttur þér til góða í lægri leigu. • Engin útborgun við afhendingu tækis. • Þægilegar mánaðarlegar leigugreiðslur. • Óskertir lánamöguleikar hjá þínum viðskiptabanka. • Eitt símtal til okkar og á 48 klukkustundum getur þú leyst fjármögnunarvanda þinn. GlitnirM. Nýtt og öflugt fyrirtæld á íslenskum Qármagnsmarkaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.