Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Qupperneq 28
40 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. Dægradvöl Mikil nákvæmnisíþrótt Billiard „Þetta er mikil nákvæmnisíþrótt," sagði Gunnar Hjartarson, einn af mörgum sem stunda Billann eins og billiardstofan á Klapparstíg er gjaman kölluð. Við hittum Gunnar og fleiri þar í hádeginu einn góðviðr- isdaginn. Úti skein sólin en þeim félögum virtist finnast tímanum bet- ur varið í biliiard heldur en að liggja einhvers staðar í sólinni og flatmaga. Billiard, eða ballskák, sem er ís- lenska heitið yfir þessa íþrótt, er töluvert stundaður hér á landi og fara vinsældir hans vaxandi. „Það er alltaf eitthvað minna um billiard á sumrin," sagði Kári Ragn- arsson, starfsmaður á Billanum, í samtali við DV. „En það er hópur af mönnum sem stundar þetta að staðaldri allt árið. Sumir þeirra koma hér á hverjum degi í hádeginu eða á kvöldin til að spila. Ég myndi giska á að það séu svona þrjú til fjögur hundruð manns sem spila billiard mikið. Og þeim hefur fjölgað verulega í vetur. Það kom oft fyrir að það var beðið eftir öllum borðum og ég veit að hinar billiard- stofúmar hafa sömu sögu að segja.“ - Hver heldur þú að sé skýringin á því? „Sjónvarpið er farið að fjalla meira um þetta sport. Þeir sýndu til dæmis frá úrslitaleiknum í fyrra. Ég gæti trúað að það hefði haft áhrif,“ sagði Kári. Óánægja með stigamótin - Hvemig er mótafyrirkomulaginu háttað? Er eitt stórt mót á ári eða mörg minni? „Það em haldin sex stigamót á ári og sextán stigahæstu spilaramir komast í meistaraflokk og keppa á Islandsmeistaramótinu. Það em svona þrjátíu til fjömtíu manns sem taka þátt í þessum mótum. Það em reyndar margir óánægðir með þessi stigamót. Þau taka heila helgi og til að mynda fjölskyldumönnum finnst - Allir sem eru i þessu af einhverri alvöru eiga sinn eigin kjuða og meðhöndla hann með virðingu, segir Gunnar Hjartarson billiardspil- ari. DV-mynd KAE - Tekur það langan tíma að verða góður billiardspilari? „Það em strákar héma núna sem em sautján ára og búnir að spila billiard í þrjú til fjögur ára. Þeir em að verða nokkuð góðir. Þetta er spuming um tíma eða ástundun. En svo em alltaf einhveijir sem ná bara ekki tökum á þessu þótt þeir reyni.“ Nauðsyn að eiga kjuða Kjuðinn er billiardspilaranum allt og þó hægt sé að fá leigða kjuða á billiardstofúnum eiga flestir spilarar sjálfir kjuða. „Allir sem em í þessu af einhverri alvöru nota sinn eigin kjuða. Það em sárafáir sem ekki eiga kjuða. Það er fyrsta reglan í billiard að skjóta alltaf með sama kjuðanum. Það er með billiardspilarann eins og þann sem æfir skotfimi, hann skýtur alltaf af sömu byssunni,“ sagði Gunnar. „Kjuðinn er mikið atriði. Það byggist á honum hversu miklum snúningi þú getur náð á kúluna. Menn velja því kjuðann af mikilli nákvæmni. Hann þarf að vera af réttri stærð og lögun, með rétta brún og svo framvegis." Að þessum orðum töluðum gekk mótspilari Gunnars inn á Billann og þá var ekki meiri timi fyrir hangs. Þeir félagar tóku upp kjuðana og hófu leikinn. segir Gunnar Hjartarson billiardspilari inu þijátíu til sextíu þúsund pund þannig að það er mikið í húfi. Þetta er náttúrlega atvinnumennska hjá þessum mönnum,“ sagði Gunnar. Spila upp á peninga - Spilar þú í marga tíma á dag? „Það er allur gangur á því. Það kemur fyrir að ég spila allan daginn en stundum bara stutt og stundum eyði ég litlum sem engum tíma í þetta.“ - Spila menn upp á peninga hér? „Það er alltaf gert. Ef ekki eru lagðir peningar undir er spilað upp á tímann á borðinu, það er að segja sá sem tapar borgar borðið. Þetta eru samt engar stórar upphæðir en menn leggja undir til þess að fá meiri alvöru, meiri spennu í spilið. Þetta er spuming um að tapa eða græða eitt, tvö eða þrjú hundruð krónur.“ - Eru þetta oftast sömu mennimir sem spila saman eða spila allir við alla? „Það er ákveðin styrkleikagrúppa sem spilar saman. Það þýðir ekkert fyrir lélegan spilara að spila við ein- hvem sterkan upp á peninga. Það yrði bara plokk,“ sagði Gunnar og brosti. - Kanntu einhverja skýringu á því hvers vegna svona fátt kvenfólk spil- ar billiard? „Þær hafa bara ekki áhuga á því held ég.“ Nákvæmt auga Á hverju byggist það að vera góð- ur í billiard, er þetta fyrst og fremst spuming um að vera hittinn? „Fyrst og fremst byggist þetta á nákvæmni augans, að sjá homin. Það em ákveðin lögmál í þessu. Þú getur ekki skorið boltann nema níu- tíu gráður. Þetta byggist á því að ná réttum snúningi á boltanum. Síð- an er auðvitað mikilvægt að hafa réttar hreyfingar og sveigjanleika, en fyrst og fremst er þetta æfing.“ r fara of mikill tími í þetta. Menn vilja heldur eitt stórt mót á ári. Það em nokkrir spilarar sem eiga tvímæla- laust heima í meistaraflokki en em þar ekki af því þeir vilja ekki taka þátt í stigamótunum." - Hveijir em það sem stunda þetta? „Þetta em mest fúllorðnir menn sem stunda þetta og nær eingöngu karlmenn. Það em í mesta lagi tvær þijár stelpur sem spila þetta af ein- hveiju ráði hér,“ sagði Kári. Brennivín og sukk „Já, ég kem hér oft í hádeginu," sagði Gunnar Hjartarson aðspurður en Kári hafði bent mér á að hann væri einn af þeim bestu. - Ertu búinn að spila billiard lengi? „Það em tuttugu og fimm til þijá- tíu ár síðan ég byrjaði í þessu.“ Blaðamaðurinn rak upp stór augu og spurði hvort það væri virkilega svona langt síðan menn byijuðu að stunda billiard hér, hafði haldið að þetta væri tiltölulega ný íþróttagrein á íslandi. „Mikil ósköp, billiard hefur verið stundaður hér síðan 1930. Það er bara svo nýlega byijað að fjalla um þetta opinberlega. Þegar ég byijaði í þessu var mikið um brennivín og sukk á billiardstofunum og foreldrar ekki par hrifnir ef þeir fréttu að strákamir þeirra stunduðu billiard. Það var hálfgert óorð á þessu, mikið óverðskuldað, en að vísu sóttu rónar dálítið í þessa staði af því þeir höfðu ekki í önnur hús að venda. Þetta hefur mikið breyst og nú er farið að fjalla meira um billiard. Þetta er til dæmis eitt vinsælasta sjónvarpsefnið i Bretlandi. Bestu spilaramir, eins og til dæm- is heimsmeistarinn, æfa átta tíma á dag. Það em haldin mót á tíu daga fresti og verðlaunin geta verið á bil- - Þeim hefur fjölgað mikið sem spila billiard, sérstaklega í vetur. Senni- lega er það vegna þess að fjölmiðlar eru farnir að fjalla meira um þessa íþrótt, segir Kári Ragnarsson, starfsmaður á Billanum. DV-mynd BG Spilum fýrir ánægjuna og félagsskapinn Billjardspilaramir Sigmar Bjöms- son, starfsmaður glerverksmiðjunnar Esju, Haraldur Sæmundsson kaup- maður, Halldór Harðarson skrifetofu- maður og Bjöm Ámason prentari, tímdu tæplega að eyða dýrmætum hádegistímanum í að tala við blaða- mann, billiardinn átti hug þeirra allan. Þeir tilheyra þeim hópi manna sem að staóaldri stundar billiard og hefur gert það í fjölda ára. „Ég kem héma mjög oft í hádeg- inu,“ sagði Bjöm, „Ég vinn héma rétt hjá og kem þess vegna hingað. En ég spila reyndar ekki alltaf, stundum horfi ég bara á.“ Bjöm sagðist ekki stunda þetta sem keppnisíþrótt. „Þetta er bara gert fyrir ánægjuna og félagsskapinn,“ sagði hann um leið og hann stillti sér upp við borðið og handfjatlaði kjuðann af öryggi. „Hann skorar fallega bolta, hann Bjöm,“ sagði Haraldur sem hafði fylgst með meistaralegum leik Bjöms. Haraldur sagðist sjálfur hafa byrjað að spila billiard sem ungur strákur. „Síðan snerti ég ekki á þessu í þijátíu ár en er nú byrjaður aftur,“ sagði hann og brosti. Hann sagðist þó ekki stunda billi- ardinn alveg reglulega. „Stundum kem ég héma á hverjum degi í nokkrar vikur og stundum ekkert i dálítinn tíma.“ Þeir Halldór og Sigmar höfðu sömu sögu að segja og spilafélagamir. Þeir em búnir að stunda billiard í mörg ár en keppa ekki, heldur stunda þetta sjálfum sér til gamans. Allir em þessir menn þó meira en liðtækir spilarar, þótt þeir vildu sem minnst úr því gera sjálfir. Sigmar Bjömsson mundar kjuðann en spilafélagarnir, þeir Bjöm Árnason, Halldór Harðarson og Það fylgja þvi oft heilmiklar tilfæringar að spila billjard, eins og sést á þessum myndum. Haraldur Sæmundsson fylgjast spenntir með. DV-mynd BG DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.