Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987. Fréttír „Fasteignasalinn" er enn í farbanni: Sveik út úr fólki á annan tug milljona leiddi síðan til þess að það missti teignasalanum. fasteignina í Smáíbúðahefi sem það Samkvæmt heimildum DV ætlaði ,fasteignasalinn“ að öýja land en „Fasteignasalinn", sem sat til skamms tíma í gæsluvarðhaldí en hefur verið í farbanni síðan hann var látinn laus, er talinn hafa svikið á annan tug milljóna út úr fólki sem fól honum að annast fasteignavið- skipti sín, samkvæmt upplýsingum sem DV hefirr aflað sér. í samtölum sem DV hefur átt við nokkra hlutaðeigandi hafði „fast- eignasalinn“, sem í raun hafði ekki löggildingu sem slikur, þann háttinn á að kaupendur og seljendur eigna hittust aldrei, en hann hafði sjélfur milligöngu, en þó þannig að pening- amir skiluðu sér ekki frá kaupanda til seljanda. „Fasteignasalinn1' starf- aði á ábyrgð manns sem hefur réttindi fasteignasala, en sá mun ekki hafa kornið nálægt fasteigna- sölunni. DV hefur heimildir fyrir því að „fasteignasalinn“ hafi tekið að sér að aðstoða fólk við kaup á fasteign í Smáíbúðahverfi, eftir að það hafði selt fasteign í Álftamýri, en þetta fólk missti tvær útborganir og skuldabréf upp á eftirstöðvamar í hendur mannsins, samtals að nafn- verði um 600 þúsund krónur. Þetta hefði fest kaup á. Talið er að tjón fólksins nemi um 2 milljónum króna. Um annað dæmi er blaðinu kunn- ugt þar sem „fasteignasafrnn“ skilaði ekki milljón króna útborgun sem seljendur einbýlishúss í Breiðholti áttu að fó. Þá mun maðurinn hafa falsað framsal á að minnsta kosti með handtöku hans kom rannsókn- ariögreglan í veg fyrir það. Ekki mun ljóst vera hver mun bera skað- ann af því að fasteignasafrnn kom ekki til skila greiðslum sem honum var trúað fyrir, hvort það verður kaupandi eða seljandi viðkomandi einum tékka sem honum var af- eignar, en meginreglan mun vera sú hentur, en tékkinn var stílaður á að kaupandinn beri þann skaða seljanda eignar en gefinn út af kaup- andanum. Hátt í tíu lögfræðingar -ój eru með mál í gangi á hendur fas- Sveik hundruð þúsunda út úr Tiyggingastofnun Aðstoðarstúlka á tannlæknastofu. er sveik umtalsverða fjárhæð út úr Tryggingastofnun, hefur gengist við broti sínu og gert samkomulag um að endurgreiða það sem hún tók ófrjálsri hendi. Þetta staðfesti Amar Guð- mundsson, deildarstjóri hjá rannsókn- arlögreglunni. Að sögn Amars nema upphæðirnar hundruðum þúsunda og mun stúlkan hafa útbúið reikninga fyrir tannvið- gerðir sem aldrei vom framkvæmdar og hirt sjálf endurgreiðsluféð frá slysa- tiyggingadeild Trvggingastofnunar. Málið hefur nú verið sent til n'kis- saksóknara og mun hann meta hvort ástæða er til að leggja fram refsiákæru fyrir auðgunarbrot. -JFJ A skákmót í Sovétríkjunum Stórmeistaramir Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson lögðu í morgun af stað til Sovétríkjanna þar sem þeir munu taka þátt í skákmóti í borginni Dubana. Hér er um að ræða mót í 12. styrkleikaflokki. Nokkrir þekktir stórmeistarar eru meðal þátttakenda, má þar til nefna Efemi Geller, Romanishin, Razuvajev, Dalmatov og Maranjuk, sem allir em stórmeistarar frá Sovétríkjunum, Ivanovic frá Júgóslavíu og Hodgeson frá Englandi. Að þessu móti loknu mun Margeir, ásamt Jóni L. Ámasyni, taka þátt í Norðurlandameistaramótinu í skák sem haldið verður í Færeyjum í júlí. íslendingar mega senda þrjá þátttak- endur í efsta flokk Norðurlandamóts- ins en ekki hefur enn verið ákveðið hver sá þriðji verður. Líkur em á að Helgi Ólafsson stór- meistari taki þátt í skákmóti í Fíladelf- íu í Bandaríkjunum sem hefst um miðjan júlí. -S.dór Sigurður E. Sigurðsson sést hér með fyrsta stórlax sumarsins, veiddan í Þverá á Kaðalstöðum. Þetta var 22 punda hængur og tók viðureignin 55 mínútur. Fiskurinn tók svarta og gula túpu nr. 6. Millisvæðamót í skák: Jóhann til Ungverjalands Eins og skýrt var frá í DV fyrir skömmu hefur gengið illa að fá ein- hveija aðila til að taka að sér milli- svæðamótið í skák sem Jóhann Hjartarson ávann sér rétt til þátttöku í fyrr á þessu ári. Nú hafa Ungveijar tekið mótshaldið að sér og hefst það 17. júlí í borginni Szirak. Þetta er firnalega sterkt mót sem nokkrir af sterkustu skákmönnum heims taka þátt í. Þar má nefna meðal annarra Boris Spassky, Ljubojevic og Sax frá Ungverjalandi. -S.dór Akureyri: Tíu þúsund til að upplýsa bílstuld Ungur Akureyringur, Þórður Kára- son, borgar 10.000 krónur þeim sem getur upplýst hver stal bíl hans og skemmdi aðfaranótt laugardags. Bíll Þórðar er Volkswagen Golf ár- gerð 1982, vínrauður. Honum var stolið á Brekkugötu við Ráðhústorg og ekið utan í kantstein á homi Drottningarbrautar og Kaupvangs- strætis. Bíllinn skemmdist töluvert og var skilinn eftir fyrir neðan leikhúsið á Akureyri. Þórður segist gjaman vilja fá upp- lýsingar um þann sem skemmdi bílinn og býður þeim sem kemur lögreglunni á sporið 10.000 krónur í verðlaun Ungfrú ísland: IVær áður með báða titlana Ekki reynist það vera rétt að Anna Margrét Jónsdóttir sé sú fyrsta sem hlýtur báða titlana, ungfrú ísland og ungfrú Reykja- vík, eins og sagt var eftir að úrslit vom kynnt í Broadway á mánu- dagskvöldið. Halldóra Björk Jónsdóttir, sem varð ungfrú ísland árið 1978, hlaut jaftifi-amt Reykja- víkurtitilinn. Einnig féllu báðir titlamir til sömu stúlkunnar árið 1980 en þá hlaut Elísabet Trausta- dóttir þá. Anna Margrét er því sú þriðja í röðinni sem hlýtur báða þessa eftirsóttu titla. BTH í dag mælir Dagfari Fjölskyldustefna Um hvítasunnuna tók þjóðin sér fri frá störfum. Menn héldu að stjómmálamennimir gerðu það líka. En annað kom á daginn. Sú fréttatil- kynning var gefin út að þeir hefðu notað tímann til að fjalla um fjöl- skyldustefnu næstu ríkisstjómar. jínginn hefur áður heyrt talað um fjölskyldustefnu í pólitík og ráku því flestir upp stór augu. Allir þekkja atvinnumálastefnu, efnahagsstefnu, utanríkisstefnu og svo ffamvegis en fjölskyldustefna var nýtt í orðabók- inni og í fyrsta skipti frá því lýðveld- ið var endurreist tókst íslenskum stjórnmálamönnum að koma kjós- endum sínum á óvart. Ekki einu sinni í kosningabaráttunni var minnst einu orði á fjölskyldustefhu enda hafa kjósendur staðið í þeirri trú að stefhur væru myndaðar um flokka en ekki fjölskyldur. Einhveijum datt í hug að eitthvað hefði komið upp í fjölskyldunum hjá pólitíkusunum, einhver hefði skilið eða krakkamir farið í hundana og þess vegna þyrfti að móta nýja steftiu í heimilishaldinu hjá þeim sjálfum enda ekki haft tíma til að sinna fjöl- skyldunum af því að þeir em að sinna þjóðinni. Það getur auðvitað verið erfitt fyrir stjómmálamenn að mynda ríkisstjóm ef allt er í kalda koli heima fyrir og þess vegna skilj- anlegt að þeir þurfi að sýna lit í familíumálunum. Smám saman rann þó upp fyrir Islendingum að stjórnmálaforin- gjamir vom ekki að tala um sínar eigin frölskyldur heldur annarra manna fjölskyldur. Foringjar stjóm- málaflokkanna, sem nú sitja niðri á Lindargötu til að mynda alvöru stjóm á íslandi, vom um hvítasunn- una niðursokknir í umræður um nýja stefnu í fjölskyldumálum. Það var meira að segja áður en þeh vissu að unglingamir höfðu lagt þjóðgarð- ana undir sig til að drekka frá sér vitið, lausir undan eftirliti fjölskyld- unnar. Það er skiljanlegt að stjómmála- flokkar vilji hafa afskipti af fjöl- skyldunum í landinu. Hingað til hefur fátt verið þeim óviðkomandi. Þeh hafa verið með nefið niðri í hvers manns koppi svo lengi sem elstu menn muna. Best hafa þeir unað sér þegar enginn hefur átt til hnífs og skeiðar og þurft að leita ásjár og fyrirgreiðslu hjá pólitíkus- um. Þeh vita sem er að fyrirgreiðsl- an er aðgöngumiði að atkvæðunum eins og dæmin sönnuðu i síðustu kosningum. Þess vegna verður að reyra þjóðina í fjötra stjómmála- flokka sem öllu stjóma og öllu ráða. Almenningur verður að vera þeim háður og undirgefinn til að flokkam- ir geti haldið völdunum og deilt og drottnað. Ekki hefur þetta allt gengið eftir því þjóðin hefur verið að hrista af sér okið og kýs jafnvel eins og henni sýnist sem kemur sér bölvanlega fyr- ir flokka sem vilja stjóma landinu án þess að hafa atkvæðafylgi til þess. Þess vegna hefur það forgang í stjórnarmyndunarviðræðum hvem- ig næsta ríkisstjóm getur haft afskipti af fjölskyldunum í landinu til að þær verji atkvæðum sínum rétt. Ráherramir eiga þá væntanlega að fylgjast með því hvernig hjóna- bandið gengur, hvemig krökkunum gengur í skólanum og ríkisstjómin getur tekið kynlífsnámskeiðið inn í stefhuskrána hjá sér þar sem konum er kennt að fá fullnægingu þegar karlamir eru ekki heima. Þessi fjölskylduráðgjöf mun eflaust mælast vel fyrir hjá einstæð- um mæðrum sem ekki hafa haft neina fjölskyldustefnu aðra en þá að bjarga sér frá degi til dags. Það verður ekki dónalegt þegar ríkis- stjórnin mun gera það að forgangs- verkefni hjá sér að kynna sér heimilishagi þessara mæðra og setja á stofn hjúskaparmiðlun sem lið í fjölskyldustefnunni. Enginn fröl- skyldustefna stendur undir nafni nema heimilið og hjónabandið standi traustum fótum. Hjónabandið er homsteinn þjóðfélagsins segja kristnir stjómmálaflokkar og það er í þeim anda sem frölskyldustefnan var mótuð um hvítasunnuna. Aðilar vinnumarkaðarins bíða nú eftir nýrri ríkisstjóm. Það gera fjöl- skyldumar í landinu líka. Fólk er beðið um að fresta hjónavígslum, skilnuðum og bameignum. Ríkis- stjómin er að móta stefhuna um það hvemig þetta skuli gert. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.