Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 11. JUNI 1987.
5
pv________________________Fréttir
Orðið „eyðni“
hefur sigrað
„Flest bendir því til að þessari „orða-
deilu“ sé lokið,“ eru lokaorð eJónasar
Ragnarssonar, ritstjóra Heilbrigðis-
mála, í grein i tímaritinu um skoðana-
könnun sem Hagvangur gerði fyrir
það um hvaða íslenskt orð ætti að
nota um sjúkdóminn AIDS.
Orðið „eyðni“, sem DV notaði fyrst
fjölmiðla að staðaldri, sigraði svo af-
gerandi að helstu áhrifamenn, bæði
meðal lækna og íslenskumanna, mæla
með því í viðtali við tímaritið að það
verði hér eftir notað um sjúkdóminn.
Skoðanakönnunin var gerð í apríl.
Náði hún til 1.158 karla og kvenna á
aldrinum 15 til 79 ára. Af þeim tóku
809 afstöðu.
Orðið „eyðni" vildi 491 nota eða
60,7%. Næst kom orðið „alnæmi", sem
310, eða 38,3%, vildu nota. Mjög fáir,
aðeins 1%, nefhdu orðið „ónæmistær-
ingu“.
Orðanefnd læknafélaganna mælti
með orðinu ónæmistæringu sumarið
1985, áður en DV kynnti orð Páls
Bergþórssonar veðurfræðings, eyðni, í
nóvember 1985.
Öm Bjamason, formaður orða-
nefhdarinnar, kveðst í viðtali við
Heilbrigðismál nú búast við að nefhd-
in muni leggja til við lækna að orðið
eyðni verði notað um smitun af völd-
um HIV-veiru. Hins vegar finnst
honum vanta sérstakt orð yfir lokastig
eyðni, sem honum finnst þó ekki rétt
að kalla alnæmi.
Tímaritíð hefur eftir Ólafi Ólafssyni
landlækni að með hliðsjón af þessum
niðurstöðum verði orðið eyðni notað
um sjúkdóminn í þeim gögnum sem
embætti hans sendir frá sér. Telur
Páll Bergþórsson, höfundur orðsins
eyðni.
Ólafur að eyðni geti átt við allan sjúk-
dóminn og ekki sé þörf fyrir annað
orð um lokastigið. Ekki væru sérstök
orð höfð um lokastig berkla, krabba-
meins eða kransæðasjúkdóma.
Baldur Jónsson, prófessor og for-
stöðumaður Islenskrar málstöðvar,
segir að orðið eyðni hafi þann ótví-
ræða kost að það sé ekki notað um
neitt annað, sé stutt og ósamsett. Það
sé rétt málfræðilega myndað og ekkert
sem mæli á móti því í stað AIDS.
-KMU
VÖNDUÐ HÚSGÖGN
/ SÓLSTOFUNA
EÐA SUMARBÚSTAÐINN
MJÖG GOTT VERÐ
Opið laugardag til kl. 17 og
sunnudag fvá kl. 14-17.
TM-HÚSGÖGN
Sídumúla 30, sími 68-68-22
Sigurvegarinn i lendingarkeppninni,
Gunnlaugur Jónsson frá Selfossi,
með bikar Karls Kristmannssonar.
Ljósm. ÓG
Vestmannaeyjar:
Keppt í
lendingu
Qmar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
í síðustu viku fór fram lendingar-
keppni á flugvélum í Vestmannaeyj-
run. Keppt var um svonefndan Karls
Kristmannssonar bikar en Karl var
einn af frumkvöðlum í flugsam-
göngum Vestmannaeyinga. Keppend-
ur voru 9 frá Vestmannaeyjum og
Suðurlandi. Vegna veðurs komust
keppendur frá Faxaflóasvæðinu ekki
til Eyja í tæka tíð.
Gunnlaugur Jónsson frá Selfossi
sigraði i keppninni en mjótt var á
mununum hjá efstu mönnum.
Mikill flugáhugi er í Vestmannaeyj-
um og hafa yfir 15 Eyjamenn tekið
einkaflugmannspróf. Fimm eins hreyf-
ils flugvélar eru í eigu heimamanna.
li
1.010.000
1.108.000
CHIEF ., 1.160.000
Lúxus útgáfa -
WAGONEER LIMITED
Verð kr. 1.635.000,-
ATH. Þegar að endurnýjun
kemur tryggir bíll
innfluttur af AGLI
mun betrl endursölu.
Bíll þar sem fara saman
gæði og glæsilegt útlit.
...................
Stuttur afgreiðslufrestur.
m
EGILL VILHJALMSSON HF.
umboðið Smiðjuvegi 4, Kóp., s. 7 72 00 - 7 72 02.