Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
31
Sandkom
Næsta skrefið
í Keflavík
Styrjöldin á Sjúkrahúsi Kefla-
víkur heldur áfram og þar
hefur ekkert vopnahlé verið
samið. Ljósmæðurnar kveðja
sjúkrahúsið hver af annarri
og láta ekki þar við sitja held-
ur flytja burt úr bænum og
helst sem lengst í burtu. Ein
er þegar flutt til Noregs.
Stjórnarformanni sjúkra-
hússins, Ólafi Bjömssyni
útgerðarmanni, er legið á
hálsi fyrir ónærgætni við ljós-
mæðurnar en hann hefur
gengið svo langt að kenna
þeim um fátíða barnsburði á
sjúkrahúsinu. Eftir nokkra
útreikninga komst hann að
þeirri niðurstöðu að þar fædd-
ist ekki barn nema á 12 daga
fresti að meðaltali. Þar með
telur Ólafur að ljósmæður séu
svotil óþarfaráþessusjúkra-
húsi, ef ekki hreinlega til
óþurftar.
I framhaldi af þessu öilu
saman má alveg eins búast við
því að fæðingardeild Sjúkra-
húss Keflavíkur verði lokað i
sumar vegria sumarleyfa ef
einhverjir starfsmenn verða
þá eftir til þess að fara í leyfi.
Sjúkrabíll verður þá í förum
með sængurkonur af Suður-
nesjum til Reykjavíkur,
væntanlega 12. hvern dag.
Veisla hjá
Amarflugi
Það verður væntanlega eng-
inn hversdagsmatur á boðstól-
um um borð í flugvélum
Arnarflugs þegar þær halda
frá Leifsstöð hér eftir. Flugfé-
lagið hefur nefnilega gert
samning um matarkaup við
Veisluþjónustuna í Keflavík.
Bláa lóns
tískan
Þótt það hafí ekki farið hátt
að undanfömu, nema þá á
Suðurnesjum, er Bláa lónið
við Hitaveitu Suðurnesja ekki
síður en áður notað á nóttunni
af kófdrukknum lýð sem hefur
ráðist á nýja, himinháa girð-
ingu og rammlæst hlið og
subbað út nýþrifinn staðinn.
Lögreglan ræður ekki við
neitt enda hefur hún ekki að-
setur á staðnum og varla við
því að búast að hún standi til
lengdar í svona bardúsi.
Liðið, sem brýtur öll bönn
og spillir þessari heilsulind,
kemur yfirleitt ekki sérstak-
lega undir það búið að baða
sig í lóninu. Það lætur sig
hafa það að fara út í annað-
hvort á nærbrókunum einum
saman ellegar allsnakið. Hef-
ur lögreglan verið að tína fólk
þarna upp úr í þessari nýju
baðtísku sem virðist vinsælli
með hverri helginni sem líður.
Annars er þetta meiri háttar
alvörumál því Bláa lónið er
engin venjuleg sundlaug og
hreinlega hættuleg fyrir ölvað
og lítt sjálfbjarga fólk. Botn-
inn er misjafn og ýmist leðja
eða hraunnybbur. Iðulega er
skyggni ekkert vegna gufu og
loks er lónið mjög misheitt.
Allt gerir þetta það að verkum
að teljast má heppni umfram
annað að ekki skuli hafa orðið
þarna fleiri stórslys en raun
ber vitni. Líklega er beðið eft-
ir slíku áfalli eins og vant er.
Hverju svaraði
Seljan?
Skáldin senda stundum hvert
öðru meinlegar örvar. Jó-
hannes úr Kötlum sendi
Kristmanni Guðmundssyni
þessa:
Lít ég einn, sem list kann,
löngum hafa þær kysst
hann,
Kristmann.
Kristmann svaraði auðvitað
fyrir sig:
Fleiri þó við ötlum,
farið hafi úr pjötlum,
í Kötlum.
En hagorður Alþýðubanda-
lagsmaður og sagður renna
hýru auga til hins k^ nsins
notaði sama bragarhátt í smá-
skot til flokksbróður síns,
HelgaSeljan:
Fáar virðast velj ’ann,
kvensemin þó kvelji’ann,
Seljan.
En hverju svaraði Seljan?
Úr kjúklingum
í steinsteypu
Ásmundarstaðabræður, sem
gerðust á tímabili stórtækir í
kjúklingaframleiðslu, drógu
sig nýlega út úr henni og seldu
þann hluta Holtabúsins sem
framleiðir kjúklinga en halda
eggjaframleiðslu áfram. Eins
séldu þeir hlut i Kornhlöðunni
í Sundahöfn. Eitthvað hafa
þeir haft upp úr krafsinu þótt
sá búskapur sem þeir stund-
uðu hafi þótt ganga köflótt
hér á landi síðustu ár. Bræð-
urnir hafa nefnilega keypt að
minnsta kosti tvö stórhýsi í
höfuðborginni, annað þeirra
af Bílaborg hf. þar sem M az-
da-umboðið hafði allan sinn
rekstur til skamms tíma.
Kvennaíþróttir
Ársrit Kvenréttindafélagsins,
19. júní, er helgað kvenna-
íþróttum að þessu sinni. Þykir
þar margt mega betur fara til
þessaðkonurnjótij afnréttis
Bjarni Fel. - gleymdi knatlspyrnu-
konunum á laugardaglnn.
til þess að stunda íþróttir sín-
ar á við karlana að stunda
sínar íþróttir. Minna er fjallað
um þær íþróttir sem kynin
stunda saman, enda sérefni.
Auðvitað er ágreiningur um
ástæður þess að kvennaíþrótt-
ir á íslandi eru minna metnar
í fjárveitingum og fjölmiðlum
en karlaíþróttir. Lengi hafa
menn hangið á þeim mæli-
kvarða að árangur skapaði
athyglina og stuðninginn við
íþróttaiðkun en það er alveg
óvíst að þetta eigi lengur við.
Að minnsta kosti virðast sum-
ir gagnstæðrar skoðunar um
þessar mundir og að stuðning-
urinn skapi árangurinn.
En hvað um það. Vissulega
má finna fyrir þeim mun sem
fjölmiðlar gera á íþróttum
karla og kvenna. Og rétt á
meðan kvenréttindakonur
auglýstu ársrit sitt um síðustu
helgi gleymdi Bjarni Felixson
knattspyrnukonum okkar al-
veg í íþróttaþættinum á
laugardaginn. Hann komst
alla leið niður í 4. deild karla
með úrslit láugardagsleikja en
lét 1. deild kvenna alveg eiga
sig. Þannig smíða menn vopn-
in í hendur þeirra sem heimta
jafnrétti og ekkert nema jafn-
rétti.
Umsjón: HerbertGuómundsson
Kvikmyndir
Bíóborgin/Moskítóströndin ★★★
I fötspor snillings
The Mosqulto Coast.
Leikstjóri: Peter Weir.
Handrit: Paul Schrader eftir sögu Paul
Theroux.
Framleiöandi: Jeromie Hellman.
Myndataka: John Seale.
Tónlist: Maurice Jarre.
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Helen Mirren,
River Phoenix, Jadrien Steele, Hilary Gor-
don, Rebecca Gordon, Dick O’Neill og
Andre Gregory.
Draumur eins getur hæglega orðið
að martröð annars. Það sannast á
fjölskyldu snillingsins Allie Fox sem
neyðist til að elta hann á endimörk
jarðar í leit hans að paradís. Land
tækifæranna, Ameríka, fullnægir
ekki metnaði og draumum Fox sem
segist flytja í burtu til að þurfa ekki
að horfa upp á fósturjörð sína deyja
en Fox er sannfærður um að kjam-
orkustyrjöld sé yfirvofandi. Reyndar
telur hann að hún sé löngu dáin fyr-
ir áhrif sölumennsku og hnignandi
verkmenningar. Fox dreymir um
óspillt land með óspilltu fólki þar
sem hann geti byggt sér sina prívat
paradís eftir eigin höfði. Paradís sem
verður auðvitað fullkomin en einnig
það sem er meira virði nefnilega
sköpuð af honum. En maðurinn hef-
ur jafnóðum glatað þeim paradísum
sem hann skapar sér þannig fer
fyrir Fox og hans hrjáðu fjöskyldu.
Móskítóströndin hefur vakið
mikla athygli og verið imideild. Það
er forvitnilegt lið sem stendm’ að
gerð myndarinnar og fyrir þær sakir
hlaut hún að vekja umtal. Ford og
Weir hittust fyrst við gerð Vitnisins
sem vakti verðskuldaða athygli.
Ford er nú komin í þá óskastöðu að
geta allavega leikið i einni mynd á
ári, óháð því hvað hann fær í laun.
Hann gat því hlaupið hér inn í stað-
inn fyrir Jack Nicholson sem fór
fram á sínar venjulegu milljónir.
Margir hafa ekki viljað sætta sig
við meðferðina á sögu Theroux og
þykir vandlætingarmönnum að hún
hafi fengið hina hefbundnu „út-
þynningar/einföldunarmeðferð" hjá
kvikmyndagerðarmönnum. Ekki get
ég dæmt um það - bókina hef ég
ekki lesið. Hins vegar er því ekki
að neita að aðalpersóna myndarinn-
ar Allie Fox verður lítt heillandi í
myndinni. í raun er hann hálfgerður
andstyggðarkarakter sem dreymir
drottnunardrauma þótt hann ráði
aðeins yfir fjölskyldu sinni sem
vegna ástar sinnar á honum er tilbú-
in til að elta hann á endimörk jarðar.
„Is er menning” hrópar hann í tíma
og ótíma. Fox reyndist að sögn
margslunginn persónuleiki í bók
Theroux en hér er það aðeins af-
burðaleikur Harrison Ford sem
bjargar honum. Eitthvað hefur
greinilega farið úrskeiðis í hanch-iti
Schraders.
Eins og áður sagði kemst Ford
mjög vel frá hlutverki sínu hér og
tryggir hann mjög stöðu þá er hann
náði með Vitninu. Helen Mirren er
einnig mjög vönduð í hlutverki hinn-
ar hljóðlátu móður en án efa muna
margir eftir henni í myndum eins
og Cal. 2010. White Nights og Hea-
venly Pursuits. Þrátt fyrir sterka
móðurmynd hennar. sem birtist með-
al annars í því að hún er aldrei
kölluð annað en mamma. tekur hún
afstöðu með eiginmanninum gegn
bömunum á dramatísku augnabliki.
Þó hér sé um gevsilega forvitnilega
mynd að ræða. en án efa má enda-
laust velta sér upp úr symbólisma í
henni. þá tekst henni varla að standa
undir þeim væntingimi sem gerðar
em til hennar.
-Sigurður Már Jónsson
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
SUMARBUÐIRNAR
ÁSASKÓLA,
Gnúpverjahreppi, Árnessýslu. Við erum með
hálfsmánaðarnámskeið í sumar fyrir börn á
aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára. Góð íþrótta-
aðstaða úti og inni. Skoðunarferðir á
sveitabæi. Smíðar, leikir, kvöldvökur, farið á
hestbak og fleira. Vegna mikillar eftirspurnar
verður námskeiðið 14.-26. júní einnig fyrir
börn á aldrinum 7-9 ára. Tryggið ykkur pláss
í tíma.
Upplýsingar í síma 91-651968 og 99-6051.
RAFMAGNSVERKFRÆÐINGAR,
RAFMAGNSTÆKNIFRÆÐINGAR
Hitavita Suðurnesja framlengir hér með umsóknar-
frest um stöðu forstöðumanns rafmagnsdeildar til 26.
júní.
Starfið felst í yfirstjórn rafmagnsdeildar HS, þ.e. dag-
legum rekstri, skipulagningu og uppbyggingu að-
veitu-, stýri- og dreifikerfa, auk rafmagnseftirlits.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu menntaðir raf-
magns verk- eða tæknifræðingar og hafi háspennu-
réttindi. Starfsreynsla er nauðsynleg.
Laun eru byggð á taxta Verkfræðinga- eða Tækni-
fræðingafélags íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní nk. Umsóknum
skal skilað á umsóknareyðublöðum sem fást á skrif-
stofu Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 34-36, 260
Njarðvík.
Umsóknir þeirra, er sóttu um starfið fyrir 15. maí síðast-
liðinn, eru fullgildar og þurfa því ekki að endurnýjast.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 92-3200.
HITAVEITA SUÐURNESJA
^K.rúiv
HL'l-O
1/otVFL.
'íMtoe
CA^A
bíiaVaost
Daihatsu Runabout árg. 1983, fallegur
bíil á krómfelgum. Verð 255.000.
Honda Accord EX árg. 1982, ekinn
aðeins 45.000 km. Ath. skipti á Range
Rover '82.
Honda Civic árg. 1983, ekinn aðeins
34.000 km. Verð 290.000.
Daihatsu Charade árg. 1986, ekinn
13.000 km. Verð 330.000.
Fiat Uno 45 árg. 1984, ekinn 47.000
km. Verð 185.000.
Range Rover árg. 1976, uppt. vél og
kassi, gullfallegur bill. Ath. skipti á dýrari.
Honda Civic sport 1,5 árg. 1984,
ekinn 53.000 km. Verð 380.000.
VW Golf CL árg. 1982, ekinn aðeins
49.000 km. Ath. skipti á Golf '84-'85.
Verð 245.000.
Mazda 626 1600 XL árg. ’85, ekinn
32.000 km. Verð 430 000. Ath. skipti á
ódýrari.
Lada Lux árg. 1985, ekinn aðeins
15.000 km. Verð 180.000. Skipti á dýrari.
BMW 520 árg. 1981, ekinn 100.000
km. Verð 380.000. Skipti á ódýrari.
M. Benz 608 D árg. 1979. Verð
730.000.
Saab 900i árg. 1987, ekinn aðeins
5.000 km. Ath. skipti á nýlegum Range
Rover.
M. Benz 913 árg. 1974, uppt. vél, lyfta.
Verð 580.000.
BÍLASALAN
HLÍÐ
Borgartúni 25,
SÍMAR 17770 og 29977