Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987. Útlönd____________________________________________ Elding skaut upp eldflaugum Elding, sem laust niður við tilraunastöð bandarísku geimferðastofnunar- innar í Virginia-fylki í gœr, varð til þess að þrjár litlar eldílaugar skutust á loft. Þœr lentu skömmu síðar á hafi úti og ollu hvorki tjóni á mann- virkjum né fólki. Þetta gerðist skömmu áður en skjóta átti einni flauginni á loft. Weinberger í deilum á þíngi Caspar Weinberger, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, lenti í hörðum deilum í fulltrúadeild bandaríska þingsins í gær þegar steíha bandarískra stjórnvalda í málefnum Pereaflóa var tekin þar til urnræðu. Deildu þing- menn hart á þá ætlan stjómarinnar í Washington að setja ellefu skip frá Kuvvait undir bandarískan fána til þess að veija þau gegn árásum Irana og sökuðu stjómina um að ástunda barnaleiki á þessu svæði. Weinberger varð að sitja fyrir svörum í þinginu í tvær klukkustundir og gengu þingmenn mjög hart að honum. í gær var tilkvnnt að Bandaríkjamenn hygðust nota njósnaþotur sínar í auknum mæli til öryggisgæslu á Persaflóa. Er ætlunin að þotumai- hefy eftú'lit yfir endilöngimi flóanum áður en bandarísk herskip fara að fylga olíuskipum frá Kuwait í næsta mánuði. Styðja uppreisnarmenn áfram Bandarísk stjórnvöld hyggjast halda ófram leynilegri aðstoð sinni við uppreisnamienn í Angóla og er ætlunin að veita þeim að minnsta kosti fimmt- án miltjón dollara hemaðaraðstoð á þessu óri, að því er stórblaðið New York Times skýrði fró í morgun. Dagblaðið hafði það eftir ónefhdum embættismönnum að Bandaríkjastjóm vonaðist til þess að aukin aðstoð við skæmliða Unita-hreyfingarinnar, und- ir stjórn Jonas Savimbi. mvmdi neyða stjórnvöld marxísta í Angóla til þess að senda á brott þrjátíu og fimm þúsund kúbanska hermenn sem nú em í landinu. Blaðið bætti því við að stjómvöld í Angóla hefðu lýst því yfir að aukin aðstoð við skæmtiða myndi fremur verða tii hins gagnstæða, að hindra að Kúbanimir verði sendir á brott. Blaðið sagði að skæmliðunum wðu meðal annars fengnar í hendur Stin- ger toftvamaflaugar og skriðdi’ekaflaugar og að heildarverðmæti aðstoðar- innai' gæti orðið allt að sautján milljónum dohara. Ríkisstjóm Reagans Bandaríkjaforseta veitti Unita-skæruliðum aðstoð sem nemur fimmtán milljónum dollara á síðasta ári. Aðstoðin er veitt úr sjóðum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. í gær kom enn til mikilla átaka milli lögreglu og mótmælenda í Panaraa- borg. Stórir hlutar borgarínnar em nú líkastir því að sfyrjöld hafi staðið þar eftir að óeirðir andstæðinga Manuel Noriega. herforingja breiddust út um borgina. Lögreglan beitti haglabyssum og tóragasi á mótmælendur í gær en óeirð- irnar stafa af ásökunum á hendur Noriega um að hann hafi átt hlut að morðum og öðrum glæpum í Panama. Þúsundir stúdenta söfhuðust saman við háskólann í borginni og víða annars staðar. Lokuðu þeir götum, kveiktu í bifreiðum og hrópuðu slagorð gegn Noriega. Þegar kvöldaði gengu almennir borgarar í lið með stúdentun- um, hrópuðu og lömdu potta og pönnur til áherslu. Ekki er ljóst hversu margir hafa meiðst í ótökunum við lögreglu né held- ur hvort skothríð lögreglunnar hefúr orðið einhveijum að bana. Styrkja tengsl við Albaníu Ríkisstjóm Vestur-Þýskalands tilkynnti í gær að hún hygðist efha til stjómmálasambands við kommúnistaríkið Albaníu. Eins og er mun Albanía vera eina Evrópuríkið sem V-Þjóðveijarhafa ekki stjómmálasamband við. Talsmaður v-þýska utanríkisráðuneytisins skýrði blaðamönnum frá því í gær að þýsk sendinefhd væri nú í Tirana, höfuðborg Albaníu, til að ganga frá tæknilegum og skipulagslegum atriðum málsins. Talsmaðurinn vildi ekki segja til um hvenær löndin myndu skiptast á sendiherrum en gaf í skyn að það gæti orðið mjög fljótlega. V-Þýskaland og Albanfe hafe þegar náð samningum um stríðsskaðabætur vegna aðgerða Þjóðverja í Albaníu í síðári heimsstyrjöldinni. Skaðabótakröf- ur Albaníu vom það sem lengst stóð í vegi fyrir stjómmálasambandi milli ríkjanná. AIls kröfðust Albanir liðlega 4,6 milljarða Bandaríkjadala í skaðabætur. DV Sósíalistar töpuðu miklu fýlgi á Spáni Ljóst er nú, eftir að nær öll atkvæði hafa verið talin í kosningum þeim sem fram fóm á Spáni í gær, að sósíalista- flokkur landsins hefur tapað verulegu fylgi og hlaut innan við fjörutíu af hundraði atkvæða. Kosið var um sæti Spánar á Evrópuþinginu, svo og í borgar og sveitarstjómir. Sósíalistar settu niður í öllum þremm- þáttum kosninganna. Eftir að 85 prósent atkvæða höfðu verið talin höfðu sósíalistar hlotið lið- lega 39 prósent greiddra atkvæða og talið var að þeir myndu hljóta tuttugu og átta af þeim sextíu sætum á Evr- ópuþinginu. sem Spáni hafa verið úthlutuð. Alþýðubandalag hægri manna hafði þá hlotið nær 25 prósent atkvæða og sautján sæti á Evrópu- þinginu. Aðrir flokkai' hlutu minna magn atkvæða og skiptu með sér fimmtán sætum. Þá virtist ljóst að sósíalistar höfðu einnig tapað miklu fylgi í kosningum til borgarstjóma og héraðsstjóma. Meðal annars virtist flokkurinn hafa misst meirihluta sinn í borgarstjóm Madiid. Talið er að orsök hrakfara sósíalista sé óánægja með harða stefhu flokksins undir forystu Felipe Gonzalez forsæt- isráðherra, svo og aukning afbrota í landinu og vaxandi fíkniefnavandi, sem ríkisstjóm hans virðist ráða illa við. Manuel Fraga, leiðtogi spænsku stjórnarandstöðunnar, greiðir atkvæði í kosn ingunum á Spáni í gær. Simamynd Reute Guyana French Guyana Surinama e Brasiiía Sakar Hollendinga um tvöfeldni í samskiptum Jules Wijdenbosch, forsætisráðherra S-Ameríkuríkisins Surinam, sakaði í gær hollensku ríkisstjórnina um að stvðja skæruliða í tilraunum þeirra til að steypa stjórn hans. Við sama tæki- færi hét forsætisráðherrann því að frjálsar kosningar yrðu haldnar í landinu á þessu ári. Forsætisráðherrann sagði í ræðu á þingi samtaka Ameríkuríkja í gær að hollensk stjómvöld sýndu tvöfeldni í því að ráða, Qármagna og heimila flutninga á skæmliðum um landsvæði sín. Sagði hann hollensku ríkisstjórn- ina hafa heimilað útlögum.frá Surin- am að ráða og vígbúa hópa af skæruliðum sem síðar voru hand- teknir og dæmdir fyrir samsæri gegn ríkisstjóminni í landinu. Surínam var áður hollensk nýlenda en hlaut sjálfstæði árið 1975. Landið hafði mjög náin tengsl við Holland þar til herforingjar tóku völdin í Surinam í sínar hendur í febrúar 1980. Atlantshaf Surinam er fyrrverandi hollensk nýlenda á norðausturströnd S-Ameríku. Kannanir sýna örugga forystu Thatchers Margareth Thatcher virðist nú örugg um sigur í kosningunum, sem fram fara á Bretlandseyjum i dag, þótt skoðanakannanir sýni mjög misjafn- lega mikið forskot. Símamynd Reuter Síðustu skoðanakannanir fyrir þingkosningamar, sem fram fara á Bretlandseyjum í dag, benda til þess að Margareth Thatcher, forsætisráð- herra og leiðtogi íhaldsmanna, haldi enn ömggri forystu og muni hljóta meirihluta þingsæta í neðri málstofú breska þingsins þriðja kjörtímabilið í röð. Kannanir þessar greinir þó nokk- uð á um hversu mikil forysta íhalds- flokksins er og því hversu stór meirihluti flokksins á þingi verður. Skoðanakönnun, sem birt var í The Times í morgun, benti til þess að íhaldsflokkurinn myndi hljóta 44 pró- sent atkvæða í kosningunum og hafa tólf prósentustiga forskot á Verka- mannaflokkinn, sem talið var að hlyti 32 prósent. Kosningabandalag frjáls- lyndra og sósíaldemókrata var talið fá uitv 22 prósent atkvæða. Breska blaðið Guardian birti aðra skoðanakönnun sem benti til þess að forskot íhaldsmanna á Verkamanna- flokkinn væri aðeins sjö prósentustig. Þar vom íhaldsmönnum ætluð 42 pró- sent atkvæða, Verkamannaflokki 35 prósent og Kosningabandalaginu 21 prósent. Engar skoðanakannanir undan- fama daga hafa bent til þess að sigur Ihaldsflokksins væri í hættu, en stærð meirihluta flokksins á þingi gæti haft afgerandi áhrif á stefnumörkun hans næstu árin. Ef flokkurinn nær hundr- að sæta meirihluta, líkt og könnunin í Times bendir til, má búast við að Thatcher haldi ótrauð áfram þeim breytingum sem hún hefúr verið að framkvæma. Ef meirihlutinn hins veg- ar verður aðeins liðlega fjömtíu sæti, eins og könnun Guardian bendir til, verður frúin líklega að fara sér mun hægar en ella.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.