Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Blaðsíða 36
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
Mat þing-
flokka að
leysa megi
ágreininginn
Þingflokkar Alþýðuflokks, Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
mátu allir í gærkvöldi að ágreinings-
efni flokkanna væru ekki það mikil
að þau væru óleysanleg.
Þingflokksfundir hófust hjá þeim
þremur í Alþingishúsinu klukkan
20.30 í gærkvöldi. Allir voru fundim-
ir langir. Sjálfstæðis- og framsóknai'-
menn luku sínum fundi laust eftir
miðnætti. eftir þrjár og hálfa
klukkustund. Aiþýðuflokksmenn
funduðu hins vegar til klukkan
hálftvö um nóttina.
Þorsteinn Pálsson sagði eftir fiind
sinna manna í nótt að nú væri veður
til að skapa nýja ríkisstjórn. Sjálf-
stæðismenn væm tilbúnir að ganga
í það verkefni og reyna að finna
lausnir á ágreiningsefnum.
Hann sagði spuminguna um skatt-
heimtu eitt stærsta ágreiningsefhið.
Bjóst hann við að skattamálin yrði
erfiðast að yfirstíga.
Steingrímur Hermannsson sagði
að framsóknarmenn legðu áherslu á
fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum
sem bæði drægju úr fjárhagshalla
ríkissjóðs og verðbólguþrvstingi.
______________________-KMU
Leyfa útifund
á Hagatorgi
Samtök herstöðvaandstæðinga
munu efna til útifundar á Hagatorgi
í dag klukkan 18.00. Tilgangur fund-
arins mun vera að krefjast úrsagnar
íslands úr NATO og mótmæla aukn-
um hemaðarumsvifum hér á landi
og í norðurhöfum.
Að sögn Bjarka Elíassonar yfiriög-
regluþjóns hafa herstöðvaandstæð-
ingar fulla heimild fyrir fundinum
og örvggisráðstafanir við Hótel Sögu
verða ekki auknar frá því sem nú
er þrátt fvrir hann, í gær var Hagat-
org afgirt og sagði Bjarki það hafa
verið gert til að gæta fánanna sem
þar blakta. Ekki sagðist hann hins
vegar vita hvemig gæslu þeirra yrði
háttað meðan á fundinum stæði eða
hvort þeir yrðu yfirhöfuð uppi.
-JFJ
Framsóknarmenn krefjast tillagna frá Þorsteini:
Annars skammt í
að upp úr slitni
,,Ef Þorsteinn fæst ekki til þess,
strax í dag, að koma með tillögur
um það hvemig megi draga úr hall-
anum á ríkissjóði þá er skammt í að
upp úr slitni,“ sagði einn af foiystu-
mönnum Framsóknarflokksins í
samtali við DV í morgun.
Töluvert virðist enn í land í stjórn-
annyndunarviðræðunum. Helst er
deilt um ríkisflánnálin og hallann é
ríkissjóði. Alþýðuflokkur og Fram-
sóknai'ílokkur vilja að gripið verði
til ýmissa skattahækkana í því skyni
að minnka hallareksturinn. Þannig
telja Jfrarasóknarmeim að auka þurfi
tekjur ríkissjóðs um 1,5 til 2,5 millj-
arða króna á árí. Þeir hafa lagt til
að eignaskattar verði hækkaðir og
skylduspamaður tekinn upp á há-
tekjur.
Sjálfstæðismenn hafa hins vegar
staðið þvert gegn slíkum áformum
og virðast ekki tilbúnir til að grípa
til skattahækkana nema í litlum
mæli. Á þingflokksftmdi Sjálfetæðis-
flokksins í gærkvöldi sögðu menn í
fyrirlitningartóni að þeir vildu ekki
taka þátt í stofhun „einhverrar
vinstri stjómar“.
Sjálfetæðismenn virðast hins vegai'
ekki hafe lagt fram neinar sannfær-
andi tillögur um minnkun á hallan-
um á ríkissjóði og því hefúr mikil
óþolinmæði gripíð um sig hjá Fram-
sókn og krötum
-ES
Framsóknarmenn þóttu fremur þungbúnir er þeir gengu út af þingflokksfundi í Aiþingishúsinu laust eftir
miðnætti i nótt. Við bíl Jóns Helgasonar standa ásamt honum Guðmundur G. Þórarinsson, Stefán Guðmunds-
son og Steingrímur Hermannsson. DV-mynd JAK
Obreytt
blíðviðri
Blíðviðrið heldur áfram óbreytt
um sinn - norðangola eða hvassviðri
og léttskýjað um sunnanvert landið
en skýjað víða norðan- og austan-
lands. Hitstigið verður á bilinu sjö
til fjórtán stig.
LOKI
Því ekki að setja
hallamál á Þorstein?
Drög
ganga
á milli um
skiptingu
ráðuneyta
Imprað hefur verið á hugsanlegri
ráðuneytaskiptingu á milli Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks. Flokkamir eiga þó alveg
eftir að takast á um þetta mál.
Samkvæmt lauslegum drögum, sem
gengu á milli manna í gær, er talað
um þessa skiptingu:
Sjálfstæðisflokkur fengi forsætis-,
dóms- og kirkjumála-, iðnaðar- og sam-
gönguráðuneyti.
Framsóknarflokkur fengi utanríkis-,
viðskipta-, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneyti.
Alþýðuflokkur fengi fjármála-,
menntamála-, félagsmála- og heil-
brigðis- og tryggingai-áðuneyti.
Sjálfstæðisflokkur gerir mjög ein-
arða kröfu um að hann fái fleiri
ráðherra en hinir. 1 Framsóknarflokki
og Alþýðuflokki hefur verið uppi það
sjónarmið að Sjálfstæðisflokkur þurfi
að fóma manni fyrir forsætisráðuneyt-
ið og að allir hafi jafnmarga ráðherra
eða þrjá. Líklegra þykir þó að skipt-
ingin verði 4-3-3.
Þessar hugmyndir um ráðuneyta-
skiptingu hafa þegar valdið óróa í
flokkunum. Þannig hrýs bæði sjálf-
stæðis- og alþýðuflokksmönnum í
Reykjaneskjördæmi hugui' við að fá
Steingrím Hermannsson í utanríkis-
málin þvi um leið fengi hann sterka
stöðu í atvinnumálum á Suðurnesjum
sem yfirmaður Vamarliðsfram-
kvæmda.
Ennfremur er talað um að Stein-
grímur fái viðskiptaráðuneytið undir
sig, annaðhvort allt eða hluta af því
ef ráðuneytinu verður skipt upp.
Meðal þingmanna Alþýðuflokks ut-
an Reykjavíkur er urgur því sam-
kvæmt þessum hugmyndum er nánast
óhjákvæmilegt að ráðherrar flokksins
verði allir þrír úr Reykjavík, Jón Sig-
urðsson, Jóhanna Sigurðardóttir og
Jón Baldvin.
Nær víst þykir að hjá framsóknar-
mönnum verði Guðmundur Bjamason
ráðherra með Steingrími og Halldóri
Ásgrímssyni.
Þorsteins Pálssonar bíður hins vegar
afar erfitt verkefni að velja ráðherra
úr þingliði Sjálfstæðisflokksins.
-KMU
Nato-fundurinn:
Vopna
leitað á
Seyðisfirði
Þegar Norræna kom til Seyðisfjarð-
ar klukkan átta í morgun var hafin
mikil leit að vopnum. Lögregluþjónar
frá Seyðisfirði, Egilsstöðum, umferðar-
lögreglan og útlendingaeftirlitið
annast leitina. Á meðan á Nató-fund-
inum stendur eru gerðar sérstakar
ráðstafanir við móttöku farþega sem
koma með Norrænu.
Þetta er önnur ferð Norrænu á þessu
sumri. 1 síðustu viku voru svipaðar
aðgerðir i gangi - mikið leitað, en þá
fannst ekkert athugavert,.
-sme