Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
Neytendur
Verðkönnun á matvöram í verslunum
á Suðurlandi og á höfuðboigarsvæðinu
Um miðjan maímánuð kannaði
Verðlagsstofnun verð á sjötíu og sex
vörutegundum í sautján matvöru-
verslunum í Þorliíkshöfh, Hvera-
gerði, á Eyrarbakka, Stokkseyri,
Flúðum, í Þykkvabæ, á Hellu,
Hvolsvelli, í Vík og á Kirkjubæjark-
laustri.
Til samanburðar var gerð verð-
könnun í matvöruverslunum á
Samanburður á meðalverði á Suðurlandi
og á höfuðborgarsvæðinu
(Verslunum á höfuðborgarsvæðinu er skipt í stórmarkaði, stórar hverfaverslanir og litlar hverfa-
verslanir. Meðalverð í hverjum verslanahópi er borið saman við meðalverð í öllum verslunum
á Suðurlandi.)
Stórmarkaðir Stórar hverfaversl. Litlar hverfaversl.
Verðmunur í % fjöldi vörutegunda fjöldi vörutegunda fjöldi vörutegunda
Lægra verð á
höfuðborgarsvaeðinu.:
0-10% 54 46 13
10-20% 15 2 3
20-30%___________1_______________________________________
Samtals 70 48 16
Hærra verð á
höfuðborgarsvæðinu:
0-10% 6 27 56
10-20%____________________________________________4
Samtals 6 27 60
hverfaverslunum í Reykjavík en í
matvöruverslunum á Suðurlandi.
Hins vegar virðist vöruverð í litlum
hverfaverslunum í Reykjavík vera
hærra en í verslunum á Suðurlandi.
Niðurstöður verðkönnunarinnar
má fá á skrifstofu Verðlagsstofhunar
og hjá fulltrúum hennar utan
Reykjavíkur.
KGK
Hæsta og lægsta verð
(I þessari töflu sést hve oft hver verslun var með lægsta og hæsta verð).
Hve oft Hve oft Fjöldi
með með vörutegunda
lægsta verð hæsta verð í könnun
Kaupf. Árnesinga Þorlákshöfn 7 2 69
Kaupf. Árnesinga Hveragerði 8 5 68
Matvörumarkaður Olís Hveragerði 3 9 68
Kaupf. Árnesinga Eyrarbakka 13 6 73
Ólabúð Eyrarbakka 5 2 53
Verslun Guðlaugs Pálssonar Eyrarbakka ... 8 4 31
Kaupf. Árnesinga Stokkseyri 19 4 72
Hornið Selfossi 2 5 61
Höfn hf. Selfossi 13 2 71
Vöruhús KÁ Selfossi 11 0 76
Versl. Grund Flúðum 10 8 62
Versl. Friðriks Friðrikssonar Þykkvabæ 9 5 49
Þór hf. Hellu 5 10 68
Kaupf. Rangæinga Hvolsvelli 3 9 74
Kaupf. Skaftfellinga Vík 5 13 62
Nýland Vík 10 12 57
Kaupf. Skaftfellinga Kirkjubæjarklaustri 4 9 57
höfuðborgarsvæðinu og náði sú
könnun til sömu vörutegunda. í öll-
um tilfellum var borið saman verð á
sömu vörumerkjum, að sykri og
eggjum undanskildum.
Vörumerkin sem urðu fyrir valinu
fást yfirleitt í flestum þeim verslun-
um sem könnunin náði til.
Samkvæmt könnuninni er vöru-
verð á Suðurlandi að jafnaði lægst
í Höfh hf. Selfossi, Vöruhúsi KÁ.
Selfossi og útibúum Kaupfélags Ár-
nesinga á Stokkseyri og Eyrar-
bakka.
Hins vegar var verðið að jafnaði
hæst i Kaupfélagi Rangæinga á
Hvolsvelli og í Kaupfélagi Skaftfell-
inga í Vík.
Samanburður á könnuninni á Suð-
urlandi og í Reykjavík bendir
eindregið til þess að matvörur séu
nokkuð dýrari á Suðurlandi.
Matvöruverslunum í Reykjavík
var skipt í þijá flokka: stórmarkaði,
stórar hverfaverslanir og litlar
hverfaverslanir. Hver flokkur var
svo borinn saman við verslanir á
Suðurlandi. Samanburðurinn bendir
til þess að matvöruverð sé mun oftar
lægra í stórmörkuðum og stórum
Brauðvél frá Japan
Nýjasta nýtt I eldhúsinu
Bakarar mega fara að passa sig að
verða ekki atvinnulausir. Japanir hafa
fundið upp mjög nýstárlega eldhús-
maskínu sem býr til brauð, í orðsins
fyllstu merkingu. I vélina er látið vatn,
ger og sú tegund af mjöli sem þú vilt
nota í brauðið þitt og síðan er vélin
sett í gang. Vélin hnoðar síðan og lag-
ar deigið eins og með þarf og bakar
það svo. Eftir allt að því fjórar klukku-
stundir er hægt að fá sér glænýtt og
ilmandi brauð beint úr vélinni. Við
höfum ekki orðið vör við þessa vél hér
á landi. en hún hefur verið á markað-
inum í Japan síðan í mars. Þetta
verður kannski næsta tækið sem „all-
ir verða að eignast" hér á landi.
-A.BJ.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heiniilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
íjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í maí 1987:
Matur og hreinlætisvörur
Annað
kr.
kr.
Alls kr.
i
kjarnakarl er einmitt hlaup-
Bandaríski langhlauparinn Noel Johnson sem hér var á dögunum. Þessi 87 ára gamli
andi auglýsing fyrir blómafrævla.
Blómafrævlar
vinsælir
Svo virðist sem blómafrævlar séu
enn á ný að heilla landann. Þeir nutu
mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum
og virðist sem þeir njóti vaxandi vin-
sælda að nýju.
Blómafrævlar eru eitt afsprengi holl-
ustubyltingarinnar sem riðið hefur
yfir Vesturlönd undanfarin ár. Þeir
eru taldir mjög alhliða næringarupp-
spretta og voru raunar seldir hér sem
megrunarlyf í byrjun, en þá var lögð
áhersla á að með neyslu þeirra mætti
komast af án þess að neyta nokkurs
matar.
Þessir frævlar eru seldir undir mörg-
um vörumerkjum og er hægt að fá þá
í töflu- og duftformi. Þannig má fá
sænskar töflur, svissneskt duft eða
bandaríska belgi og er hægt að fá þetta
á nánast öllu verði.
Við ákváðum að kanna verð á einni
gerðinni, „High Desert", ekki vegna
þess að þetta merki sé eitthvað betra
en önnur heldur vegna þess að þetta
var það sem fékkst víðast.
Verðupplýsingar eru fengnar í fjór-
um verslunum og er miðað við 227
gramma pakkningar á frævlum í fonni
korns eða dufts. Verðið er á bilinu kr.
864-1010 og kostar því hvert kíló 2.
600-3.000 krónur. Þess má geta í
leiðinni að á einum staðnum mátti fá
svissneska frævla í 250 gramma
pakkningum og kostuðu þeir kr. 428,
sem er nánast helmingi lægra verð en
á hinum. En hér kemur verðið:
Heilsumarkaðurinn kr. 898
Heilsuhúsið kr. 994
Lyfjabúðin Iðunn kr. 864
Laugarnesapótek kr. 1010
-PLP