Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
Spumingin
Hvað gerðirðu um
hvítasunnuna?
Friðrik Sigurðsson: Eiginlega fór ég
ekkert sérstakt - bara í göngu með
fjölskyldunni um Öskjuhlíðina. Síð-
an fylgdist ég með fegurðarsam-
keppninni í sjónvarpinu.
Einar Gislason: Ég var á Laugar-
vatni í sumarbústað. Að sjálfsögðu
var það góð dvöl því það er ekkert
til betra en sumarbústaðalíf.
Itagnheiður Margrét Guðmundsdótt-
ir og Birna Anna Björnsdóttir: Fór
til Irlands - eins dags ferðalag og
Birna var hjá ömmu og afa á meðan.
- Og þar var líka ganian. við vorum
að heyja - raka úti í garði.
Ögmundur Guðmundsson
Hélt mig nú bara heima og dundaði
í kringum sjálfan mig og frúna. Við
erum orðin roskin - og vön hvort
öðru - svo það gengur rólega fyrir
sig.
Árni Stefánsson: Var bara heima og
tók það rólega. Vinn annars við veit-
ingarekstur og tók það rólega þar
líka.
Salbjörg Ríta Jónsdóttir: Ja, ég fór í
Keflavíkurgönguna því þetta er í
fyrsta skipti sem ég er í Reykjavík
þegar hún er farin. Það var lang-
skemmtilegast þegar við komum í
Hafnarfjörð og farið var að syngja
og svoleiðis.
Lesendur______________________dv
Prestar með eyðni?
Gamall Timamaður skrifar:
Við, gömlu sveitamennimir sem
lásum Tímann á velmektardögum
Jónasar frá Hriflu og Tryggva Þór-
hallssonar, eigum sumir erfitt með
að átta okkur á bændablaðinu „nú
til dags“
Það hefði til að mynda þótt illa
farið með pappírinn að leggja hálfa
forsíðuna undir aðalfyrirsögn og af-
ganginn í undirfyrirsögn. I sama
tölublaði alls 60 fyrirsagnir - og fátt
annað.
24. maí fékk ég Tíma-skammtinn
minn, þrjú blöð í einu. Það var helg-
arblessunin. Margt var þar „tíma-
bært“. Og enn var forsíðan „forvitni-
leg“: Islensk auðn, rokhviður og
iárétt regn metið á 5 milljarða. Já.
flest má nú selja útlendingunum.
Þetta drýgir aldeilis tekjurnar hjá
stjórninni okkar, „startsstjóminni"
eða hinni þegar hún „kemst á topp-
inn“, eins og sagt var í sveitinni.
Þá segir frá því í nefndum helgar-
skammti (23.5.) að nú sé í ráði að
Danir og Skandinavar leggi koloni-
skatt á vömr, seldar okkur. Þessi
stórletursfrétt er svolítið skondin.
Fyrst er þá að nefna að Jónas hefði
nú nefnt þetta nýlenduskatt. Og svo
þetta um Dani og Skandinava. í
Lademanns alfræðibók, nýrri segir:
„Skandinavia. Et fællesnavn for
Danmark, Norge og Sverige." í Nor-
disk Leksikon: „. . .hele det omráde,
der beboes af de skandinaviska folk,
hvortil ogsá danskere tilhörer."
En þá fyrst brá mér er ég hélt
áfram lestri: Eyðni innan kirkjunn-
ar. í einfeldni minni flaug mér í hug
illur gmnur, skyldi nú sá vágestur
farinn að herja á kirkjunnar þjóna?
Nei, sem betur fer var ekki svo, þeir
ræddu bara um þetta mikla mál, þá
væntanlega „innan kirkjunnar."
Það var verra með taölyktina sem
hefur kostað nokkra leiðara og titr-
ing. Nú þykir okkur gömlum sveita-
mönnum taðlykt bara góð, jafnvel
betri en fiskilykt sem ennþá hefúr
mátt nefna. En vitanlega má ekki
móðga þá bændur sem eftir em í
Framsókn. Er þeim meir en nóg til
hrellingar að foringinn skuli orðinn
pólitískur flóttamaður.
Heimsmeistarakeppnin:
Hæfari dansarar
Svar, vegna fyrirspurnar frá Rut Páls-
dóttur í DV 25. maí 1987, frá Níelsi
Einarssyni.
Þar sem fyrirspuminni er væntan-
lega beint til mín og nemenda Nýja
dansskólans langar mig að nota tæki-
færið og svara henni í stuttu máli.
1. Mér er með öllu ókunnugt um að
til sé sjóður þar sem dánsarar geta
fengið fé til að taka þátt í dans-
keppni/dansmótum hérlendis eða
erlendis.
2. Danskeppni sú, sem þú ert væntan-
lega að spyrja um, er ekki heims-
meistaradanskeppni heldur er um
að ræða breskt mót þar sem allir,
sem áhuga hafa á að vera með, geta
tekið þátt, svo framarlega sem þeir
kosta sig sjálfir.
3. Þetta mót hefur verið sl. 62 ár í
Blackpool og er opið öllum. Þetta
er einnig í fyrsta skipti sem Islend-
ingar eru með.
4. Varðandi mestu möguleika, eins og
það er orðað í fyrirspum þinni,
hafa íslendingar ekki mikla mögu-
leika. í þeim riðli, sem Jón Þór og
Esther kepptu í, vom 289 pör og
var úrtak 50% í fyrstu umferð.
Dómarar höfðu u.þ.b. tvær og hálfa
sekúndu fyrir par. Hér heima var
tími u.þ.b. sex sekúndur fyrir par.
5. Islandsmeistaradanskeppni í latín-
og standard-dönsum var takmörkuð
við tvo dansa af fimm. Dansafbrigði
hérlendis vom einnig takmörkuð.
6. Varðandi íslandsmeistarana var
Borgarbúi skrifar:
Sl. laugardag, um lengstu helgi
sumarsins, byrjaði árvisst ófremdar-
ástand í verslunannálum höfuð-
borgarinnar. Lokað í þrjá daga í
verslunum borgarinnar og síðan
áfram það sem eftir er sumars á laug-
ardögum.
Nú þegar ferðamannatíminn er
hafinn fyrir alvöm er það einkar
slappt til afspumar að hvergi er
hægt að komast í banka eða útibú,
t.d. á ferðamiðstöðvum, eins og tíðk-
ast víðast erlendis, til að skipta
erlendum gjaldeyri í íslenskan.
En það er auðvitað ekki einungis
að útlent ferðafólk líði fyrir þessa
hneisu heldur allir borgarbúar. Það
er að vísu opið í verslunum á Sel-
tjamamesi og í Mosfellssveit en það
" ............ ; -
engin fyrirstaða, svo mér sé kunn-
ugt um, á þátttöku þeirra í Black-
pool-mótinu.
7. Við Islendingar erum u.þ.b. 20 árum
á eftir öðrum þjóðum í þessari
íþrótt. Ef við ætlum okkur meiri
hlutdeild í dansíþrótt á erlendum
vettvangi þarf mikið að bæta og
laga.
8. Þau Jón Þór og Esther fengu mikið
lof í Blackpool-danskeppninni þrátt
fyrir að þau sigmðu ekki. Við reikn-
uðum ekki með sigri. Við ætluðum
aðeins að vera með, sjá samanburð,
er nú kannski ekki hægt að taka sér
ferð á hendur í þessi bæjarfélög í
hvert skipti sem mann vanhagar um
einhvem hlut.
Ekki geta borgaryfirvöld hér í
Reykjavík sagt sem svo: „Farið þið
bara út á Nes og versliði þar“ eða
þá „Versliði bara á fostudögum fyrir
alla helgina." Eða em borgaryfir-
völd kannski að loka fyrir öll
viðskipti í tvo daga í viku?
Þótt forseti borgarstjómar sé í far-
arbroddi fyrir Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur getur borgarstjóm sem
best afgreitt þetta leiðindamál með
einum fundi. Það er áreiðanlega
meirihluti fyrir því í borgarstjóm.
Maður trúir vart öðm. Það verður
a.m.k. að láta á það reyna.
Þetta er áreiðanlega eina borgin
læra af reynslunni.
Að endingu, við höfúm aldrei staðið í
vegi fyrir því að aðrir framkvæmi það
sem er dansinum til framdráttar. Þess
vegna er erfitt að skiLja alla þessa
gagnrýni á framtak sem er fyrir dans-
inn í landinu, t.d. gömludansakeppni,
alþjóðlega danskeppni, samkvæmis-
dansakeppni, danssýningar, þátt
okkar á erlendum vettvangi o.s.frv.
Það veldur furðu að heyra ávallt radd-
ir niðurrifs á góðu framtaki sem er til
bóta fyrir þá sem bera dansinn fyrir
brjósti.
eða bæjarfélagið í hinum vestræna
heimi þar sem laugardagurinn er
einhver heilög kýr að því er varðar
eitt stéttarfélag, þ.e. V.R.
Þetta er mál sem borgarbúar verða
að láta til sín taka og það strax.
Hver er þessi mismunur á verslunar-
fólki í öðrum sveitarfélögum hér á
landi og í Reykjavík? Em ekki versl-
unarmannafélög úti á landi líka? -
Hver hefur þessi heljartök á verslun-
arfólki í Reykjavík?
Eins og segir í grein í DV nýlega:
„Við hljótum að spyrja hvort neyt-
andanum komi málið ekki við. Hvað
segja þeir um málið?“ - Já, það er
góð spuming, hvað ætla neytendur
að gera?
Fiá heiðar-
legum fjol-
skyldumönnum
Fulltrúi Öryggis heimilisins ’87
hringdi:
„Vepa skrifa ónafngreindrar
húsmóður í DV, fimmtudaginn 4.
júní, þá viljum við, sem að þessari
söluherferð stöndum, koma þvi á
framfæri að verð þess vamings sera
við bjóðum fólki með vaxtalausura
aíborgunum er sambærilegt verði
sams konar vamings í verslunum
eða annars staðar á markaðnum.
Þó viljum við taka fram hér að
öryggi heimilisins ’87 færir neyt-
endum vömna heim jafiit í Reykja-
vík sem um land allt - neytendum
að kostnaðarlausu. Öllum er lánað
- enginn undanskilinn eða flett
upp í neinum skrám og því þýðir
það talsverð afföll.
Við viljum vekja athygli á því
að hér er ekki um að ræða tækis-
færissinnaða sölumenn heldur
heiðarlega fjölskyldumenn sem
vinna að þessu allan ársins hring.
Þess skal getið í lokm að Öryggi
heimilisins hefur ekki lent í nein-
um árekstrum við yfirvöld vegna
söluherferðarinnar heldur þvert á
móti fengið jákvæðar móttökur.
Viljum við að endingu nota þetta
tækifæri til að þakka þeim fjöl-
mörgu viðskiptavinum sem nú
þegar hafa keypt sjúki'akassa fyrir
góðar móttökur.“
Stjaman:
Gott að vakna
við Atiantis
Eymastór skrifar:
„Það var einstaklega gott að
vakna á þriðjudagsmorguninn við
það gamla góða lag Atlantis. Ég
var með útvarpstækið stillt á nýju
Sfjömuna og Þorgeir Ástvaldsson
hafði þann ágæta smekk að velja
mitt uppáhaldslag í morgunþátt-
inn sinn. Atlantis er aEtof sjaldan
spilað og gjarnan mætti næst
fylgja eitt eða tvö orð um flytjend-
uma. Fróðleiksmolar um lista-
mennina, sem lögin semja og flytja,
em alltaf til bóta að minu mati.
Kærar þakkir, Þorgeir!"
Söfiiuður
kvekara?
S.G. skrifar:
„Getur einhver lesandi DV hjálp-
að raér? Mig langar að vita hvort
kvekarar em með söfnuð hér eða
trúfélag. Og ef svo er - hvemig er
hægt að komast í samband við þá?
Það þarf teygjur i heimsmeistaratignina.
Laugardagslokun verslana:
Borgaryfirvöld
afstýri hneykslinu