Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987.
fþróttir
Þrumufleygur
tvyggði KA sigur
- Tryggvi skoraði í FH-markið af 25 metra færi
Bordeaux fullkomnaði
gott keppnistímabil með því að
sigra Marseille 2-0 í úrslitaleik
frönsku bikarkeppninnar. Það
voru þeir Philippe' Fargeon og
Zlatko Vujovic sem skoruðu fyrir
Bordeaux sem þar með sigraði
tvöfallt í Frakklandi. Marseille
varð að sætta sig við 2. sæti á
báðum stöðum.
LA Lakerssvo gott sem
tryggði sér sigur í NBA deildinni
með því að sigra Boston Celtic,
107-106, í Boston Garden. Þar
með þurfa Lakers aðeins að sigra
í næsta leik, sem fer fram í Los
Angeles, til að tryggja sér titil-
inn.
Beardsleyfor nú að öllum
líkindum ekki til Liverpool á
næstunni því Newcastle hafnaði
í gær tilboði í hann upp á 90 millj-
ónir kr. (1,5 milljón punda). Búist
er við að Liverpool hækki tilboð
sitt.
Garry Birtles er nú á
leiðinni til Notts County sem
leikur í 3. deild. Hann hefur nú
fengið frjálsa sölu frá Notting-
ham Forest og vill ekki flvtja sig
langt. -SMJ
Það hlaut að koma að því að KA-
menn gerðu vel á heimavelli sínum á
Akureyri. I gærkvöldi sigruðu þeir
FH-inga í nokkuð jöfnum leik, en sig-
ur heimamanna var þó sanngjarn með
hliðsjón af heildinni.
Það voru þó Hafnfirðingar sem urðu
fvrri til að skora og með því afreki
gerðu þeir sitt fyrsta mark í deildinni
þetta árið.
Ólafur Kristjánsson var þar að verki,
fékk boltann eftir hornspymu og skaut
í stöng - af henni hrökk tuðran síðan
í Steingrím Birgisson og í netið.
Eftir hléið áttu KA-menn undir högg
• Konungur knattspyrnunnar og arftaki hans. Pele og Maradona stilla sér hér
upp fyrir leik Argentínu og Ítalíu ásamt forseta FÍFA, Joao Havelange. Pele
fékk æðstu orðu FÍFA fyrir leikinn. Símamynd Reuter
að sækja í fyrstu en hresstust þó er á
leið. Máttu þeir onda tefla djarft til
að verða ekki undir rétt eina ferðina
á heimavelli sínum.
Steingi'ímm- Birigisson fór í fylking-
arbrjósti, átti stórleik og lagði drögin
að sigrinum. Átti hann margar send-
ingar sem skópu hættu og var jafn-
framt fastur fyrir í vöm.
Steingrímur var sjálfur nærri því að
skora, skallaði í markás.
Jöfnunannark KA gerði Gauti Lax-
dal, fékk hann boltann óvaldaður eftir
sendingu Steingríms og renndi honum
vandræðalaust í markið framhjá
Halldóri.
Sigurmark norðanmanna gerði síð-
an Tryggvi Gunnarsson, margfaldur
markakóngur. Var mark hans sérlega
Góð hlaup hjá
Hirti og Eriing
Frjálsíþróttamennimir Hjörtur læknir í Noregi, virðist vera til alls
Gíslason, KR, og Erlingur Jóhanns- líklegur um þessai- mundir. Hann
son, UMSK, náðu mjög athyglis- varð í 4. sæti í hlaupinu.
verðum árangri á íþróttamóti í
Noregi um síðustu helgi. Hjörtur, Erlingur keppti í 800 m hlaupi og
sem nú hefúi' lagt fyrir sig 110 m hljóp á einni mínútu 50,50 sek. og
grindahlaup, náði næstbesta árangri er það fimmti besti árangur íslend-
Islendings í hlaupinu þegar hann ings. Erlingur varð í 2. sæti en hann
hljóp á 14,64 sek. Aðeins íslandsmet er nú líklegur til að ná meti Jóns
Þorvaldar Þórssonar, 14,36 sek., er Diðrikssonarfrá 1982 semer 1:49.02.
betra. Hjörtur, sem starfar sem -SMJ
glæsilegt. Fékk Tryggvi boltann nærri
miðjunni, tók hann niðui' og einlék
nokkurn spöl, lék á tvo Hafnfirðinga
og lét síðan vaða af um 25 metra færi.
Það skipti ekki togum að knötturinn
fór í netið, yfir Halldór Halldórsson
markvörð FH- inga sem stóð við mark-
teigslínu.
Fögnuðu leikmenn KA markinu
ákaft með sama lagi og stuðningsmenn
þeirra. Fóru áhangendur KA nú í
fyrsta sinn sáttir af vellinum á þessu
sumri.
Bestir í liði KA voru þeir Steingrím-
ur Birgisson, Gauti Laxdal og Tryggvi.
Halldór markvörður Halldórsson
var yfirburðamaður í liði FH-inga.
-JÖG
Italir sigruðu Argentínumenn í gær-
kvöldi, 3-1, í vináttulandsleik í
Argentínu. Lið Ítalíu, sem hafði átt
erfitt með að skora undanfarið, mætti
sterkt til leiks og komst í 2-0 í fyrri
hálfleik með mörkum frá Femando
De Napolí og Gianluca Vialli. Argent-
ínumenn, sem þama vom að leika sinn
fyrsta opinbera leik síðan þeir urðu
heimsmeistarar, minnkuðu muninn í
seinni hálfleik með marki frá Heman
Diaz. Vialli bætti þriðja markinu við
tveim mínútum fyrir leikslok.
Fimm af þeim leikmönnum er urðu
heimsmeistarar léku í argentínska lið-
inu með Maradona fremstan í flokki.
Maradona lék félaga sína hvað eftir
annað í góð færi en allt kom fyrir
ekki. Vialli þótti leika mjög vel í liði
ítala. -SMJ
Markaregn í
mjólkurbikar
Nokkrir leikir fóru fram í annarri mark en það síðara gerði Óskar
umferð mjólkurbikarsins í knatt- Óskarsson.
spvmu í gærkvöldi. Þá glímdu Leiftur og Magni og var
ÍR-ingar unnu Skotfélagið, 1-0. leikur þeirra í jámum allan tímann.
Þeir síðamefhdu áttu þó ágætan dag Bæði lið áttu þó færi en leikmönnum
en nýttu ekki færi sín. Fékk Skot- Magnabrástávalltbogalistin.óskar
félagið meðal annars víti sem fór Ingimundarson gerði sigurmark
forgörðum. Eina mark leiksins gerði Leifturs.
Páll Rafrisson og em því skotmenn Selfoss vann Skailagrím, 5-0, og
úr leik að sinni. skoraði Jón B. Kristjánsson 2 mörk
Hörkurimma var milli Leiknis og en Daníel Gunnarsson, Elías Guð-
Aftureldingai'. Læti vom umtalsverð mundsson og Lúðvík Tómasson eitt
á vellinum og harka, sáu tveir rautt mark hver.
áður en yfir lauk. í fyrrakvöld sigraði KS Svarfdæli,
Viðureignin var raunar framlengd 7-0, og skoraði Bjöm Ingimarsson 4
því staðan var 2 2 eftir hefðbundinn mörk, Baldur Benónýsson skoraði 2
leiktíma. Sigurmarkið gerði Atli mörk og Jónas Bjömsson eitt.
Þorvaldsson fyrir Leikni en áður Þá vann Augnablik Stjömuna,
höfðu þeir Baldur Baldursson og 1-2, og skomðu Óttar Sveinsson og
Ragnar Ragnarsson skorað fyrir fé- Jón Amason mörk Sjömunnar en
lagið. Jón Einarsson mark Augnabliks.
Fyrra mark Mosfellinga var sjálfs- -JÖG/SMJ
• Nói Björnsson sýndi reiði sína yfir brottvikningunni með þvi að sparka
í auglýsingarskilti á leið sinni út af. Hjá hverjum skyldi hann annars kaupa
bensín?
DV-mynd GUN
Nói fékk að sjá rautt
„Það er ljóst að þessi brottvikning
kom á mjög slæmum tíma fyrir okkur.
Við vorum að komast inn í leikinn
þegar Nói fór út af. Annars vill ég nú
yfirleitt ekki útala mig um frammi-
stöðu dómara sem þýðir þó ekki að
ég sé alltaf ánægður með frammistöðu
þeirra," sagði Jóhannes Atlasson
þjálfari Þórs um brottvikningu Nóa
Bjömssonar. Baldur Scheving dómari
vísaði honum af velli um miðjann
seinni hálfleik fyrir, að því er virtist,
að slá til Ámunda Sigmundssonar með
olnboganum. Ámundi lagðist niður og
töldu sumir að þar hefði verið um leik-
araskap að ræða. Nói er þekktur fyrir
hörku sína og virtist Baldur hafa það
í huga því hann var alls ekki að fylgj-
ast með atvikinu og ráðfærði sig ekki
við línuvörðinn.
„Ef leikmaður gerir svona lagað á
hann hiklaust að fara út af. Með svona
framkomu eyðileggur hann leikinn
fyrir sig og félaga sína,“ sagði Ian
Ross þjálfari Valsmanna sem taldi
dóminn hárréttann. -SMJ
- sagði I
„Það er ekki alltaf hægt að búast við
markahátíð," sagði Ian Ross, þjálfari
Valsmanna, eftir að þeir höfðu lagt Þór
frá Akureyri að velli, 2-0, að Hlíðarenda
í gærkvöldi. Þeir rúmlega eitt þúsund
áhorfendur sem mættu á leikinn gengu
heim hálfvonsviknir á svip. Aðeins tvö
mörk skomð og annað markið hálfgert
platmark því fótur eins norðanmanns
kom þar verulega við sögu.
Valsmenn byrjuðu leikinn með látum
og virtust ætla að kafsigla Þórsara. Leik-
urinn var þó að jafnast þegar fyrra
markið kom. Sigurjón Kristjánsson
reyndi þá skot af um 20 metra færi. Bolt-
inn hrökk í fót Júlíusar Tryggvasonar
og þaðan í snyrtilegum boga i mark-
homið án þess að Baldur næði að hreyfa
legg eða lið. Þetta var klaufalegt fyrir
norðanmenn en Valsmenn mega þó eiga
það að þeir em duglegir við að reyna
markskot og öðmvísi koma mörkin ekki.
Við markið komust Þórsarar meira inn
í Ieikinn enda virtust Valsmenn gefa eft-
ir. „Við virðumst gera þetta oft eftir
mark,“ sagði Magni Blöndal Pétursson
eftir leikinn. „Ég vill nú sem minnst um
leikinn segja. Við fengum þarna þrjú stig
án þess að sýna sérstakan leik.“
Leikmenn Þórs komu tvíefldir til leiks í
seinni hálfleik, en sem fyrr gekk þeim
illa að'skapa sér færi. Þórsarar reyndu
að komst inn í leikinn með mikilli bar-
áttu og það skilaði sér meðal annars í
því að þrír þeirra fengu að sjá gula spjald-
ið. Kristján Kristjánsson, Júlíus Tryggv-
asson og Hlynur Birgisson fengu spjald
fyrir kjaftshátt og óíþróttamannslega
framkomu og vom sumar þessar spjald-
veitingar umdeilanlegar hjá Baldri
Scheving, dómara leiksins, sem virtist
ekki alltaf vera með á nótunum varðandi
hvað var að gerast á vellinum. Þetta
sást til dæmis þegar Nóa Bjömssyni var
vikið af velli á 69. mínútu.
Seinna mark Valsmanna kom á 86.
mínútu og var þar að verki Njáll Eiðsson
sem var nýkominn inn á fyrir Ámunda
Sigmundsson. Njáll var ekki nema rúm-