Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987. 33 dv Tíðarandinn að því mörgum dögum seinna, ein og ein. Venjulegast skila þó flestar sér innan nokkurra klukkustunda. Stundum hverfa þær þó alveg eða birtast jafnvel mánuðum seinna, blóðugar og tættar eftir að hafa flogið á snúrur eða lent í öðrum óförum. Þrautseigjan í þeim er ncfniiega alveg óskapleg, þær eru stundum alveg örmagna þegar þær loksins ná á leiðarenda." Nýtt hraðamet slegið, 1700 metrar á mínútu Þeim dúfnaræktarmönnum, sem staddir voru i Bræðraparti þetta kvöld og voru að undirbúa dúfur sínar undir flugið næsta dag, varð tíðrætt um keppni sem haldin hafði verið helgina áður þegar um 250 dúfum var sleppt frá Hrauneyja- fossvirkjun. I þeirri keppni setti ein bréfdúfan nefnilega nýtt hraðamet sem er með því besta í hciminum. Þetta var dúfan Gustur sem er í eigu Halldórs Guðbjörnssonar. Hún flaug tæpa 129 kílómetra, sem er lengd beinnar loftlínu frá Hrauneyjafossi, á einungis 75 mín- útum. Þetta þýðir rúma 1700 metra á mínútu eða um 100 km hraða á klukkustund en bestur tími áður var um 1380 metrar á rnínútu. Veð- ur var líka einstaklega hagstætt, heiðskírt og meðbyr, þannig að dúfurnar allt að því fuku heim. - En hvernig er hægt að skýra þessa einstöku ratvísi dúfnanna, að þær skuli geta flogið beina leið heim, t.d. frá Hrísey eða af Aust- fjörðum þaðan sem þeim hefur verið sleppt hérlendis. Víða erlend- is er þó um enn lengri vegalengdir að ræða. Við því hefur ekki fengist neitt einhlítt svar, frekar en búast má við, en menn vita þó að þær skynja segulsvið á sérstakan hátt sem þær nota til að fmna rétta leið, með góðri heyrn sinni geta þær miðað leiðina út frá sjávarniði meðfram ströndum og sólin hefur líka mikið að segja um hve vel þeim gengur að finna áttir. Þess vegna eiga þær það mjög á hættu að missa áttir í skýjafari og taka heldur stóran krók á sig en að fljúga í gegnum skýjabakka. Einnig getur aukið segulsvið á vissum landsvæðum gert þær alveg ruglaðar og af þeim sökum veigra þær sér t.d. við að fljúga yfir Stardalinn í Mosfells- sveit. Brotist í gegnum skýjabakka Snemrna daginn eftir heimsókn DV í Bræðrapart var dúfunum. sem skráðar höfðu verið til keppni, alls 225 talsins, ekið upp að Hraunevja- fossi þar sem áætlað var að sleppa þeim klukkan átta sama morgun. Ekki reyndust þó skilyrði jafngóð og þau höfðu verið helgina áður. Nú var skýjað og vindar voru óhag- stæðii'. Þess vegna var slepping- unni frestað um tvo tíma og þegar dúfunum var sleppt um tíuleytið hafði veðrið skánað örlítið. En nú var róðurinn þyngri en helgina áður. Fyrsta dúfan lét ekki á sér kræla fyrr en um tveimur tím- um seinna. Það var dúfan Sprettur í eigu Þóris Eggertssonar sem lenti fyrst og náði hún um 920 metra hraða á mínútu. Það er því greini- legt að veðrið hefur mikið að segja í slíkri keppni þegar miðað er við árangur. dúfnanna frá síðustu helgi. „Ég er búinn að dunda mér í dúfnarækt frá því ég var smástrák- ur, í a.m.k. tíu ár,“ sagði eigandinn. Þórir, sem er aðeins 17 ára, „en nýlega fór ég af stað með bréfdúfur og þetta er í annað skipti sem Sprettur vinnur." Af þessari keppni, sem áður er lýst, er Ijóst að bréfdúfnarækt er tómstundagaman í miklum upp- gangi hér á landi enda þótt veður- farið íslenska sé ekki eins og best verður á kosið fyrir slíka iðjn. Það skiptir þó dúfurnar ekki svo miklu máli endá eru þær þrautseigar með afbrigðum eins og áður er lýst og þegar þær hafa á annað horð van- ist veðurfari má ætla að þær treysti sér í gegnum hvaðá þrumuský sem er með aðeins eitt í huga að kom- ast á áfangastað. ..Þetta er oft ansi tímafrekt tóm- stundagaman. en skemmtilegt og tryggir manni góða útivist." segir Halldór Guðbjörnsson. eigandi Gusts. dúfunnarsem sló öll hraða- met um síðustu helgi. þegar hann var spurður að því hvernig hann færi að því að þjálfa dúfurnar en hann elur Ijölda dúfna þar sem hann býr í Garðabænum. ..Þjálfttnin bvrjar þannig að gengið er spölkorn með dúfuna frá þeint stað þar sem aðsetur liennar er og henni er síðan sleppt. Síðan er bætt við. stig af stigi. meiri vega- lengd og þegar þær eru komnar yfir vissan kílómetrafjölda virðast þær geta ratað ótrúlegustu vega- ■lengdir réttu leiðina heim. Síðan þarf að halda þeim við. rninnst „Ein aðferð við þjálfun bréfdúfna er að aðskilja kven- og karlfuglana um nokkurt skeiö og það bregst Ómar Bjarnason gerir klukkurnar klárar. „Dúiurnar verða að sækj- ast eftir einhverju heima.“ tvisvar til þrisvar í viku þarf. að keyra dálítinn spotta nteð þær og sleppa þeim. Þótt fyrirhöfnin sé oft ntikil er ánægjan af þessu enn meiri. enda afskaplega skemmtilegt og afslappandi tömstundagaman. Stundum flækiast þiálfaðar keppnisdúfur frá öðrttm löndum með skipum hingað til íslands. þá hafa þær villst af leið og sest á skipin. Raunar eru þeir langflugs- stofnar. sem við þjálfum hér. allir kornnir af slíkum flökkudúfum. En afföll geta líka orðið mikil í svona dúfnahóp sem liúið er að þjálfa og því verður alltaf að reikna með. Verstur er fálkinn. hann er höfuðóvinur allra dúfnavina því meirihlutann af dúfnadauða. t.d. í mínum hópi. má rekia til hans." ekki að þegar karlfugli er sleppt eftir slíkan tíma þá tlýgur hann í gegnum eld og lirennistein til að komast til kerlingarinnar aftur." sagði ÓmarGuðbjörnsson. klukku- meistari þeirra dút’naræktunar- manna. þar sem hann stóð og stillti klukkurnar fyrir keppnisdaginn. „Þetta er kerfi setn við notum hér í Bræðraparti og er kallað ekkju- kerfi. Svo má nota ýtnsar aðferðir aðrar við <tð lokka dúfurnar heim. kvenfuglarnir t.d. eru ekki síðri flugkappar en karlfuglarnir. þá er ungi eð.t egg látið bíða þeirra við heimkomuna. Það er aðalatriðið að dúfurnar haft eitthvað heim að sækja. annars legðu þær þetta varltt á sig." Halldór Guðbjörnsson með metdúfuna Gust. „Tímafrekt sport en ánægju- legt.“ „Fálkinn er erkifjandi okkar dúfnavina11 „Höldum þeim frá kerlunum í viku11 HÉRAÐSSÝNING á kynbótahrossum veröur haldin á Rangárbökkum 19.-21. júní nk. Skráningareyðublöð fást á skrifstofu Búnaðarsambands Suðurlands og þeim sé skilað vandlega útfylltum á sama stað fyrir 15. júní. Tíma- setning dómstarfa verður auglýst síðar þegar þátttaka liggur fyrir. Búnaðarsamband Suðurlands, hrossaræktin. PANTANIR SÍMI13010 . KREDIDKOfíTAÞjONUSTA HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. FIRMAKEPPNI Firma- og félagakeppni ÍR verður haldin dagana 13. og 14. júní og 20. og 21. júní. Nánari upplýsingar í síma 75013 allan dag- inn. STARFSMAÐUR ÓSKAST KNATTÞRAUTIR OG Knattspyrnusamband íslands og DV óska eftir að ráða knattspyrnuþjálfara/íþróttakennara til að annast fram- kvæmd knattþrauta sumarið 1987. Allar upplýsingar veitir sktifstofa KSÍ. Sími 84444. Nauðungaruppboð Eftir krofu tollstjórans i Reykjavik, Gjaldheimtunnar i Reykjavik. Voku hf„ skiptaréttar Reykjavikur, ýrnissa lögmanna. banka og stofnana. fer fram opinbert uppboð á bifreiðum, vinnuvélum o.fl. að Smiðs- höfða 1, (Voku hf.) laugardaginn 13. júni 1987 og hefstþað kl. ! 3 30. Seldar verða væntanlega eftirtaldar bifreiðar: R-3775 R-4853 R-6327 R-12913 R <13067 R-13218 R-14073 R-14862 R-15723 R-17995 R-20522 R-26825 R-27673 R-29110 R-30332 R-31564 R-32806 R-37855 R-38654 R-46351 R-49296 R-49427 R-50063 R-50585 R-52347 R-53632 R-56761 R-56830 R-61423 R-62078 R-63960 R-65190 R-65531 R-66682 R-68623 R-69261 A-7314 A-8262 G-4720 G-13351 G-15445 G-19115 i-1199 K-2173 L-2615 M-2774 X-1103 X-2509 X-3248 Y-3400 Y-4650 Y-7660 Y-13513 Y-13803 Y-13914 Ö-7516 Ö-9026 Ö-9396. Bifreiðin R-53632 Daihatsu Rocky Turbo Diesel árg. 1986, ekin 13.000 km. Ennfremur Ford Econoline 4x4 árg. 1976. Auk þess verða væntanlega seldar margar fleiri bifreiðar. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðs- haldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.