Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Qupperneq 30
34 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987. I gærkvöldi Lena M. Rist kennari: Samkeppnin til góðs Ég vaknaði við Rós 2 kl. 6, þurfti sjálf að mæca til vinnu kl. 6.30 og fannst notalegt að fá létta tónlist ásamt spjalli og það hlýtur að vera þægilegt íyrir flugfarþega að fá upp- lýsingar um brottfarartíma flugvéla, sem sagt gott. Samkeppnin í útvarps og sjón- varpsrekstri hefur að mínu viti orðið til góðs, aukið fjölbreytni og þjón- ustu við okkur neytendur, þ.e. dagskráin er betur kynnt bæði í út- varpi og sjónvarpi. Morgunútvarp Bylgjunnar hlusta ég oftast á, en tel að Rás 2 sé að sækja í sig veðrið. Frjálslegt spjall við venjulegt fólk um málefni líðandi stundar finnst mér skemmtilegt. Ég hlusta að jafnaði á útvarp milli 17 og 19 og flyt mig mjög frjálslega milli stöðva. Eitthvað fylgir samt með af nöldri. „Popp“síbyljan á daginn er óþolandi einhæf og ég vil leyfa mér að fúll- yrða að stór hluti þjóðarinnar myndi Lena M. Rist. vilja meiri fjölbreytni, ungir sem gamlir. Það er fjöldinn allur af fólki (líka ungu) sem iðkar annars konar tónlist og hvers á hann að gjalda? Sem sagt fjölbreyttari tónlist, takk! Hlustaði samkvæmt venju á fréttir klukkan 19 í útvarp, svo á fréttir á Stöð 2 klukkan 19.30 og ég virðist vera fréttasjúklingur því ég horfði með öðru auganum á fréttir í ríkis- sjónvarpinu klukkan 20. Spuminga- þátturinn sem á eftir fylgdi fannst mér lítið áhugaverður. Fyrsti þáttur- inn í nýjum myndaflokki kemur ekki til með að festa mig við sjónvarpið. Umræðuþáttur um Nató fannst mér áhugaverður, en hann breytti ekki skoðun minni sem er að Island eigi að vera utan hemaðarbandalaga og vinna að friðsamlegri sambúð þjóða heims. Ég hlustaði ekkert á kvöldag- skrá útvarpsrása. Spakmælid Ekkert er fegurra en að gleyma, nema ef vera kynni að vera gleymdur. Oscar Wilde Andlát Jónas S. Jónsson er látinn. Hann fæddist á Eystra-Miðfelli á Hval- fjarðarströnd 9. júlí 1917, sonur hjónanna Ingveldar Jónsdóttur og Jóns Jónassonar. Jónas hóf snemma nám í garðyrkju í Hveragerði og stundaði síðan framhaldsnám í Dan- mörku. Árið 1944 hóf hann sjálfstæð- an atvinnurekstur er hann stofnaði garðyrkjustöðina Sólvang í Foss- vogi. Þessa stöð rak Jónas í mörg ár. Hann stofnaði síðar blómabúðina Dögg, sem hann stjórnaði til dauða- dags. Þá rak hann blómabúð á Akranesi og í Suðveri. Eftirlifandi eiginkona Jónasar er Kristín Krist- jánsdóttir. Þau eignuðust fjóra syni. Útför Jónasar verður gerð frá Foss- vogskapellu í dag kl. 13.30. Sigurður Már Pétursson er látinn. Hann fæddist á Húsvík og voru for- eldrarhans hjónin Birna Bjarnadótt- ir og Pétur Sigfússon. Sigurður var tvígiftur. Fvrri kona hans var Björg Þorvarðardóttir. en þau slitu sam- vistum. Þeim varð fimm barna auðið. Árið 1972 giftist hann seinni konu sinni, Steingerði Sigurðardóttur, sem lifir mann sinn. Sigurður nam klæðskeraiðn. en starfaði lengst af Öllum á óvart ákvað Verðlagsráð sjávarútvegsins á fundi sínum í gær að gefa almennt fiskverð frjálst frá 15. júní til 30. september. Það sem réð úrslitum um að Verðlagsráð tók þessa ákvörðun eru breytingar sem gerðar hafa verið um greiðslur í verðjöfnun- arsjóð. Viðmiðunarverð til greiðslu í sjóðinn hefúr verið hækkað svo að frystingin greiðir ekkert til hans og saltfiskvinnslan mun minna en til þessa. „Ég efast um að frjálst fiskverð skili því sem til er ætlast»Ég veit að marg- ir munu semja um ákveðið verð út tímabilið við sfna viðskiptabáta og þar með er komið fast verð en ekki frjálst. Þetta hefur gerst í humrinum, en þar var ákveðið að hafa verðið frjálst," sagði Ámi Benediktsson, fulltrúi fisk- vinnslustöðva Sambandsins í Verð- hjá varnarliðinu á Keflarvíkurflug- velli. Útför hans verður gerð frá Kópavogskirkju í dag kl. 13.30. Óskar ísaksen bifreiðastjóri lést 31. maí sl Hann var fæddur í Tromsvik í Noregi 14. október 1923. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Markús- dóttir og Hagerup ísaksen. Eftirlif- andi eiginkona Óskars er Margrét Sigurðardóttir. Þau hjónin eignuð- ust eina dóttur. Óskar stundaði lengst af leigubílaakstur hjá BSR. Útför hans verður gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag kl. 15. lagsráði. í samtali við DV í morgun. Ámi sagði að kaupendur gætu nú boðið lægra verð fyrir fiskinn þegar mest berst að, sem aftur yrði til þess að sjómenn og útgerðarmenn drægju úr sókn. Ef verðlagsráðsverð væri í gildi yrði að greiða það fyrir allan afla sem berst að landi. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé- lagsins, á sæti í Verðlagsráði. Hann sagði í morgun að sér litist vel á að gefa verðið frjálst. Hann sagðist ekki geta séð hvemig verðlagsráðsverð ætti að vera í gildi nú þegar fiskmark- aðir væm komnir um allt. Hann taldi að verðið myndi að öllu jöfnu hækka frá því sem verið hefur, en til að byrja með myndi verðið ráðast af því hversu mikið berst að hverju sinni og í hinni dæmigerðu sumaraflahrotu gæti það lækkað eitthvað. -S.dór Þórey S. Pétursdóttir lést 31. maí sl. Hún fæddist í Húsey i Skagafirði 9. desember 1916. Tvítug að aldri eignaðist hún sitt fyrsta barn. 1942 giftist hún Sigurjóni Karel Guð- mundssyni. Þeim varð fjögurra barna auðið, en fyrsta barn þeirra lést í barnæsku. Sigurjón lést árið 1968. Útför Þóreyjar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag kl. 15. þorsteinn Egilson lést 3. júní sl. Hann fæddist í Viðey 11. apríl 1910. Foreldrar hans voru hjónin Elín Vig- fúsdóttir og Sveinbjörn Egilson. Þorsteinn lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla íslands 1932 og hóf þá störf á skrifstofu kexverksmiðj- unnar Frón þar sem hann vann síðan allan sinn starfsaldur eða til ársins 1978. Eftirlifandi eiginkona hans er Þóra Óskarsdóttir. Útför Þorsteins verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Ida Gothedsen f. Fenger, andaðist í Viborg 9. júní. Jón Guðmundsson, Heiðargerði 11, Akranesi, andaðist 9. júní sl. í Sjúkrahúsi Akraness. Jarðsett verð- ur frá Akraneskirkju kl. 14 föstudag- inn 19. júni nk. Margrét Magnúsdóttir Grönvold er látin. Jarðarför Arndísar Skúladóttur fer fram frá Dómkirkjunni föstudag- inn 12. júní kl. 13.30. Egill Th. Sandholt, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 12. júní kl. 15. Útför Ingibjargar S. Jónsdóttur frá Staðarbjörgum fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík 12. júní kl. 13.30. Júlíus Jónas Ágústsson, Lang- holtsvegi 208, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 12. júní kl. 15. Katrín H. Jónasdóttir, Stórholti 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins föstudag- inn 12. júní kl. 10.30. Óskar Halldórsson, stýrimaður á djúpbátnum Fagranesinu, ísafirði, verður jarðsunginn þriðjudaginn 16. júní kl. 15 frá Fossvogskirkju. Kveðjuathöfn fer fram frá ísafjarðar- kirkju föstudaginn 12. júní kl. 14. THkyimingar Samtök psoriasis og exemsjúklinga hafa fengið gistiaðstöðu í verbúð Fisknes hf., Grindavík, fyrir þá sem yilja stunda Bláa lónið. Upplýsingar hjá Sigurgeir sími » 92-8280 og hjá Spoex sími 25880. „Hvaðertregða?“ Eðlisfræðifélag Islands heldur erindi í dag, fimmtudag 11. júní, í kaffistofu Raunvís- indastofnunar, Dunhaga 3, kl. 17.15. Þórir Sigurðsson talar um kenningar þýska eðl- isfræðingsins Ernst Mach: Hvað er tregða, innri eiginleiki eða heimsfræðileg áhrif? I erindinu verður fjallað á alþýðlegan hátt um viðleitni manna eins og Sciama, Dicke, Hoyles og Narlikars á síðari árum til að fella lögmál Mach inn í hreyfifræði New-. tons og Einsteins. Eyrirlesturinn er öllum opinn. Rukkunarhefti tapaðist Ungur blaðberi á Seltjamamesi varð fyrir því óhappi að týna rukkun- ,arhefiLDM jiýJega.. Finnandi vinsam-. legast hafi samband við afgreiðslu DV. Kvennaráðgjöfin, Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, er opin þriðjudaga kl. 20-22. Sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir siljaspellum, sími 21500, símsvari. Tapad - Fundið Mása er týnd Mása er kisa með rautt merki um hálsinn þar sem á stendur nafn og heimilisfang, Hjaltabakki 22, sími 71252. Hún hefur ekki sést heima í viku og er hennar sárt saknað. Þeir sem hafa orðið varir við ferð- ir hennar eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 71252. Afmæli 85 ára afmæli á í dag, 11. júní, Sig- urður G. Jóhannsson pípulagn- ingameistari, Hátúni 13, Reykjavík. Hann og kona hans, Sigríður Bene- diktsdóttir, ætla að taka á móti gestum á heimili dóttur sinnar, Erlu, í Efstasundi 79 milli kl. 16 og 20. 70 ára verður á morgun, 12. júní, Hermann Guðmundsson frá Súg- andafirði, nú stöðvarstjóri Pósts og síma, Akranesi. Hann tekur á móti .gestuai. í .Oddfcllöwhúsinu .á .Akra- nesi milli kl. 17 og 20 í dag. Vikið frá eftir níu ára starf hjá Menningarstofnun: Krafínn endurgreiðslu á 52 tíma veikindagreiðslu „Bandaríska sendiráðið fer i engu eftir íslenskri vinnulöggjöf. Sem dæmi má nefna að starfsmenn hafa ekki fengið vísitöluhækkanir á laun frá því í september í fyrra. Mikil óánægja er nú meðal ís- lenskra starfsmanna sendiráðsins," segir Baldur Frederiksen, sem hef- ur starfað hjá Menningarstofnun Bandaríkjanna í níu ár, en hefur nú verið vikið frá störfum. Ástæður brottvikningarinnar segir hann vera þær helstar að snemma árs 1984 gekkst hann und- ir uppskurð þar sem annað lunga hans var numið brott. Starfsmenn sendiráðsins fá aðeins þrettán daga á ári í veikindafrí. Eftir uppskurð- inri 'Vgp jBaldur frá vinnú í þrjá mánuði, þar af aðeins einn á laun- um. Árlega hefur Baldur þurft að leggjast inn á sjúkrahús, í viku tii tíu daga hvert sinn, til að láta hreinsa það lunga sem eftir er. Frá því að hann veiktist segir Baldur að vinnuskilyrði hafi verið erfið fyrir hann hjá Menningarstofnun- inni. í lok mars fékk Baldur bréf frá Menningarstofnuninni þar sem honum er tilkynnt að honum sé vikið frá störfum í einn mánuð án launa. Sú aðferð að víkja mönnum frá störfum í einn mánuð launa- laust er óþekkt hér á landi, eftir því sem næst verður komist. I bréf- inu var Baldri tilkynnt að hann mætti hefja störf aftur að mánuðin- um liðnum ef hann breytti um hugarfar gagnvart vinnunni. Þessa málsmeðferð telur Baldur ekkert annað en brottrekstur og hóf því ekki störf á ný. Þegar ljóst var að Baldur ætlaði ekki að halda áfram störfum var hann krafinn greiðslu á ofgreiddum veikinda- dögum, alls fimmtíu og tveim klukkustundum. Eins og fyrr sagði fá starfsmenn- irnir aðeins þrettán veikindadaga á ári. Það er fleira sem skýtur skökku við í kjaramálum íslenskra starfsmanna sendiráðsins að sögn Baldurs. Fyrr sagði að engar vísi- töluhækkanir hefðu verið greiddar á laun frá því í fyrra, barneignarfrí eru ekki greidd né orlof á yfirvinnu. -sme Fiskverð gefið frjalst Sumir bjartsýnir aðrir með efasemdir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.