Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1987, Qupperneq 32
36 FIMMTUDAGUR 11. JÚNl 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Gitte Stallone mætti ein á frumsýningu nýj- ustu kvikmyndarinnar sem hún fer með hlutverk í. Óvenjulegt er að eiginmaðurinn, Sylvester Stallone, hefur ekki komið ná- lægt gerð þeirrar myndar eins og annarra mynda sem Gitte hefur leikið i. Kvikmynd þessi ber heitið ,,Löggan í Beverly Hills II" og er framhald af sam- nefndri kvikmynd sem sló öll aðsóknarmet fyrir fáum árum. Eddie Murphy er enn í aðal- hlutverki og er þessari mynd spáð ekki minni vinsældum. Sögusagnir ganga um að sam- band Gitte og Sylvesters sé orðið slæmt og skilnaður í að- sigi enda hafa þau lítið sést saman upp á siðkastið. Þau vis- uðu þeim orðrómi á bug þar sem þau voru í stuttu stoppi í Kaupmannahöfn fyrir skömmu. Sylvester var á leiðinni til Pak- istan að taka upp Rambó III og Gitte til módelstarfa i Mílanó svo ekki virtust þau beinlínis limd saman. Melissa Gilbert og Rob Lowe munu ganga í það heilaga innan fárra vikna. Þótt erjur hafi verið milli þeirra undanfarið vegna ástarsena sem Rob leikur í nýjustu kvik- mynd sinni og Melissa er afskaplega óánægð með virðast þau hafa náð sáttum. Brúð- kaupið verður veglegt eins og við er að búast, kjóllinn einn mun víst kosta svipaða upphæð og ráðherrar hafa í laun og er það þó víst bara brot af öllum brúðkaupskostnaðinum. hefur löngum verið hrifinn af Ijóskum. Skilnaðurinn við Alönu er ekki ennþá kominn í gegn en samt á hann von á barni með núverandi kærustu sinni, blondínunni Kelly Ekberg. Fyrir skömmu reyndi hann síð- an, með slæmum árangri, að læðast framhjá árvökulum Ijós- myndurum, inn á diskótek í New York meó enn annarri blondínunni, Raegan Newman. Rod er sem sagt meira og minna í tengslum við þrjár blondínur Dessa dagana. DV D-vaktin bar sigurorð í boðsundinu á sundmóti lögreglumanna. Hér gefur að líta hina vösku sveit ásamt aðstoðaryfirlögregluþjónunum Arnþóri Ingólfssyni og Magnúsi Einarssyni. I þessum hópi er einnig eini kvenkyns þátttakandinn í keppninni , Dcra Reynisdóttir. mwSm m iFtllÍÍP m. 1 ■ 1 r j w v... ™§|lll 'IK' K m í Svarthvítt sundmót ..Lögreglusundið er búið að vera árlegur viðburður hjá okkur í meira en fimmtíu ár og er venjulega haldið milli vakta svo að flestir geti tekið þátt,“ sagði Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn um sérstæða sundkeppni sem haldin var í Laugardalslauginni á dögup- um. Keppt var í boðsundi í flokkum og skipaði hver vakt einn flokk. Einnig var keppt í björgunarsundi í lögreglu- sundinu en í stað manns, sem bjarga ætti undir venjulegum kringumstæðum í þannig sundi, voru lögreglumenn látn- ir synda með níðþungan múrstein. Vinningshafi í björg- unarsundinu fær í verðlaun veglegan bikar sem kenndur er við sundkappann Erling Pálsson og er bikarinn í varð- veislu vmningshafa til næstu keppni. I boðsundinu er sigur- vaktinni veitt boðsundshornið sem hefur verið verðlaunagrip- ur keppninnar allt frá upphafí og er það skorið út af Ríkharði Jónssyni. Sagði Bjarki keppn- ina hafa verið geysispennandi að þessu sinni og á meðfylgj- andi myndum má sjá sundgarp- ana að keppni lokinni. Jón Otti Guðmundsson, sigurvegari í björgunarsundinu, ásamt dóttur sinni, Birnu Dögg, heldur á vinningsgripnum, yfir 50 ára gömlum bikar sem kennd- ur er við Erling Pálsson. DV-myndir: Sveinn Þormóðsson Hornið góða sem vaskasta sveitin hlýtur. Þaö er skorið út at Ríkharði Jónssyni. Skátarnir skutust til Dalyikur á meðan á landsþingi stóð sem haldið var á Akureyri á dögunum. Skátar skáskjótast Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Landsþing Hjálparsveitar skáta var haldið á Akureyri á dögunum og tókst þingið mjög vel. Mikill kraftur er greinilega núna í skát- unum og mættu um 150 þingfulltrú- ar til Akureyrar auk margra annarra skáta en um 1000 félagar eru nú virkir í hjálparsveitum skáta um allt land. Samþykkt var á þinginu að stofna sérstaka jarð- skjálftasveit og ekki má gleyma að ákveðið var að halda allsherjars- amæfingu á Hólsfjöllum í hyrjun september nk. Þangað ætla skát- arnir að bjóða öllum hjörgunar- sveitum landsins til að taka þátt í æfingunni. En skátarnir héldu sig ekki aðeins á Akureyri á meðan þingið stóð yfir. Þeir skutust á hát- um til Dalvíkur, við köllum ])að auðvitað að skáskjótast. Tilgang- urinn með Dalvíkurferðinni varað taka fyrstu skóflustunguna að glæsilegri byggingu Hjálparsveitar skáta á Dalvík. ■-3 ta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.