Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Page 8
8 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. Ferðamál Með rútu til Chicago Tilvonandi ferðalangur hringdi og spurðist fyrir um hvað kostaði að £ara raeð áœtlunarbíl frá New York til Chicago og hve langan tíma sú ferð tæki. Ferð með „gráa hundinum" kost- ar aðra leiðina 101 dollar eða sem svarar 4000 kr. ísl. Ferðin tekur 23-24 klt. Á leiðinni er stoppað til þess að borða og er að sjálfeögðu greitt aukalega fyrir það. í svona langferðabílum eru sæti svipuð og í flugvélum, sem hægt er að blunda -A.BJ. Hallar- og kastala- gistingar Út er komin í Þýskalandi leið- sögubókin Hallarferðir 1987/88. Þar er boðið upp á tíu áhugaverð- ar ferðir um Þýskaland með gist- ingu í hallar- og kastalahótelum. Ferðimar standa frá fímm til átta daga og er farið gegnum fegurstu héruð Þýskaland. Verðið er frá 13.300-21.670 kr. á mann. Þar eru innifaldar ferðir, gisting og matur og aðgangur að stöðum sem heimsóttir eru og auk þess nákvæmt kort. Hægt er að fá bæklinginn sendan frá Tysk Turist-Central, Vest- erbrogade 6D, 1620 Köbenhavn V. -A.BJ. Hjólreiða- túrí Þýskalandi Ef þú vilt gjaman hreyfa þig duglega í sumarfríinu og ætlar að bregða þér til Þýskalands er tilva- lið að ferðast með Radíus-ferðum sem bjóða upp á þriggja til níu daga langar hjólreiðaferðir. Verðið er frá 8.580 kr. Farangurinn er fluttur í áætlun- arbflum og á kvöldin er gist í þægilegum hótelum og boðið upp á fyrsta flokks mat. Farið er um fegurstu héruð Þýskalands. Frekari upplýsingar má fá hjá Radius-Reisen, Papendieksfeld 2, D-3005 Hemmingen 1. -A.BJ. Sumar- hátíðahöld í Hamborg Um öíðustu helgi hófust í Ham- borg gríðarlega mikil hátíðahöld sem standa óslitið fram í septemb- er. Þá ferfram frumsýning á „Luna Luna“ eftir fjöllistamanninn André Heller. Þijátíu heimsfrægir listamenn frá öllum heimshomum leggjast á eitt við að skapa sam- bland af skemmtigarði og útilista- safrii í lystigarði nálægt Dammtorjámbrautarstoðinni. Þama eru listamenn eins og Salvador Dali, Roy Lichtenstein, Keith Haring og David Hockney. Af öðrum listaviðburðum, sem fyrir dyrum standa í Hamborg í sumar, má nefrta Hummelhátíðina sem stendur frá 24. júlí tii 8. ágúst, sumarleikhús í Kampnagel verk- smiðjunni frá 17. júlí til 15. ágúst Og hátíðina „Álstervergnugen" sem stendur frá 27. til 30. ágúst Það eru líflegri viðskipti i nýju Fríhöfninni, enda hefur flugfarþegum fjölgað. Við seljum ekki unglingum áfengi að gamni okkar „Við reynum að nota dómgreind- ina en auðvitað geta okkur orðið á mistök hvað varðar aldur fólks, en ef einhver er grunsamlega unglegur er hann krafinn um vegabréf. Sumir þykjast ekki vera með vegabréf og getum við þá neitað að afgreiða þá. Það er svo verið með alls konar af- sakanir og fólk er alltaf að reyna að plata yfirvöldin," sagði Jón Helgason, einn af verslunarstjórun- um í Fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli, í samtali við DV. Við höfðum heyrt að talsverð brögð væru á því að unglingum væri selt áfengi í Fríhöfiiinni en það síðan tekið af þeim í tollinum. En eins og öllum ætti að vera ljóst má ekki selja fólki undir tvítugu áfenga drykki hér á landi. „Starfsfólkið bendir fólki á reglu- gerðir og auglýsingar sem gilda um þessi atriði. Það er áríðandi fyrir starfsfólkið að þessar reglur séu haldnar því það getur lent í að borga sekt ef það selur fólki undir lögaldri áfengi. Við fyrsta brot er áminning en eftir það eru sektarákvæði," sagði Jón. Það er því ekki að gamni sínu sem starfsfólk Fríhafharinnar selur ung- lingum áfengi. -Hvemig bregðist þið við því ef fólk vill kaupa meira magn heldur en má hafa með sér tollfrjálst inn í landið? „Við bendum á reglugerðina. Hver maður má hafa með sér eina flösku af sterku áfengi og eina flösku af veiku eða kassa af bjór. Hins vegar er heimilt að flytja inn 2 flöskur af sterku og 2 af veiku áfengi þar fyrir utan og greiða toll. Þannig getur hver maður haft með sér 6 flöskur, en við berum ekki ábyrgð á hvort hann greiðir af þeim toll eða ekki. Verðið á algengum tegundum er svipað og í ríkinu með þvi að greiða tollinn, en ef um dýr vín er að ræða getur þetta borgað sig,“ sagði Jón. Samkvæmt reglugerðum mega ferðamenn hafa með sér tollftjálsan vaming inn í landið fyrir 14 þúsund kr., þar af má einn hlutur vera 7 þús. kr. virði. Ferðamönnum er hins vegar heimilt að kaupa gjaldeyri fyr- ir allt að 80 þús. ísl. kr. Jón sagði að viðskipti ferðamanna í Fríhöfninni væm líflegri eftir að flutt var í nýju flugstöðina, aðstaðan væri alltaf að batna. Þegar flutt var inn var aðstaða fyrir starfsmennina ekki tilbúin en hún er nú frágengin. „Það eina sem vantar nú er svolít- ið ferskt loft, en loftræstikerfið er ekki enn komið í gagnið, en það stendur allt til bóta,“ sagði Jón Helgason. -A.BJ. Franska sendiráðið viðhefur enn vegabréfs- áritanir til Frakklands Eins og flesta rekur minni til tóku Frakkar upp á því í fyrrahaust að krefjast vegabréfsáritunar af þeim sem huga á Frakklandsferðir. Þessi neyðarráðstöfun þeirra á rætur að rekja til sprengjutilræða hryðju- verkamanna sem náðu hámarki í París í fyrrahaust. Samkvæmt upplýsingum frá franska sendiráðinu í Reykjavík er hér um tímabundnar ráðstafanir að ræða sem verður viðhaldið á meðan franska lögreglan á í höggi við hryðjuverk''menn í Frakklandi. Starfsmenn sendiráðsins treysta sér því ekki til að segja neitt um það hvenær áritunum verður aflétt. Þeir sem ætla til Frakklands á næstunni verða því að koma í sendi- ráðið með vegabréfið sitt, fylla út umsóknareyðublað sem þar liggur frammi og greiða 390 krónur fyrir afgreiðsluna. Ef menn eru ekki þeim mun grun- samlegri ætti áritunin svo að vera tilbúin eftir tvo til þrjá daga, en hún gildir að öllu jöfnu í þrjá mánuði. Sendiráðið er opið alla virka daga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.