Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 13. JÚNl 1987.
: %$&■ :
JT
'+jy i
„Þetta var Baldri líktu
inn vera í Gullbringusýslu. Og
Benedikt beitti þingeyskri þrjósku
og krafðist rannsóknar á neikvæð-
um úrskurði dómara. En á þinginu
sem sat 1971-1974 var fyrirkomu-
lagi breytt varðandi bæjarfógeta-
embætti í Hafnarfirði og sýsluskip-
an og Bessastaðahreppur látinn
fylgja Kjósarsýslu. Hvorugur fékk
því stig fyrir aðra spurningu.
3. Hvaða íslendingur hefur setið
skemmst á ráðherrastóli?
Þessi spurning vafðist fyrir báð-
um. Benedikt nefndi Björn Jónsson
sem sat á ráherrastóli í níu og hálf-
an mánuð - og krafðist rannsóknar
Sigurvegari dagsins, Guðni Guð-
mundsson, rektor Menntaskólans
i Reykjavik.
á úrskurði þegar svarið reyndist
ekki rétt. Og rannsókn fór fram og
úrskurður dómara að sjálfsögðu
réttur. Bjöm var annars ráðherra
frá 16. júlí 1973 til 6. maí 1974.
Guðni hafði heldur ekki rétt svar.
4. Kekkonen fyrrum forseti Finn-
lands náði naumlega kjöri árið
1956. Hvað hét helsti andstæðing-
ur hans?
Benedikt náði ekki að svara þess-
ari spurningu rétt. En Guðni náði
sínu fyrsta stigi.
5. Hvaðapólskurstjórnmálamaður
var jafnframt þekktur píanóleik-
ari?
Guðni vissi þetta. En Benedikt
hélt hann hafa heitið Tjækovsky.
Og Guðni kominn með tvö stig.
6. Hvar er gröf spænska skáldsins
Garcia Lorca?
Guðni skilaði auðu. Benedikt
giskaði á París. Hvorugur fékk
stig.
7. Ólafur Thors var skírður tveim-
ur nöfnum. Hvert var það síð-
ara?
Benedikt vissi ekki um þetta
nafn. En Guðni krækti sér í stig.
8. Margareth Thatcher hefur há-
skólapróf í tveimur greinum.
Hvaða greinum?
„Ég tel það góða frammistöðu í
þessari spurningakeppni, ef þátt-
takendur ná að svara þremur til
fimm rétt,“ sagði Baldur Símonar-
son lífefnafræðingur sem er sá
stjórnenda keppninnar sem sér um
að búa til allar erfiðu spuningarn-
ar.
Það er næstum óhugnanlegt að
fylgjast með Baldri þegar hann
veiðir úr hugskoti sínu hinar ólík-
legustu spumingar. Óhugnanlegt
ætti maður auðvitað ekki að segja
- heldur stórskemmtilegt. Og hann
brosir undurblítt og hallar sér
makindalega aftur í stólnum þegar
honum hefur dottið eitthvað níð-
angurslegt í hug. Reyndar er
maðurinn þannig gerður og svo
fróður að honum getur ekki dottið
neitt létt eða auðsvaranlegt í hug.
„Þetta var Baldri h'kt,“ sagði
Guðni rektor Guðmundsson þegar
hann hafði heyrt spurningarnar.
„Svona skrúfar enginn saman
nema hann.“
Benedikt Sigurðarson fór fram á
það að sum svör sem dæmd voru
röng, væm könnuð nánar og ve-
fengdi þannig hina óbrigðulu
vitneskju Baldurs (og raunar
Gunnars Gunnarssonar líka). En
auðvitað höfðu dómararnir rétt
fyrir sér. Dómarar hafa alltaf rétt
fyrir sér.
10 spurningar
1. Olof Palme féll fyrir morðingja-
hendi 28. febrúar 1986 - hvaða
sænskur þjóðhöfðingi annar sem
uppi var fyrr á tíð, var einnig
myrtur?
Benedikt giskaði á Karl 1. - og
fær ekkert stig fyrir það svar.
Guðni nefndi Karl tólfta - en það
töldu dómarar rangt. Hvorugur fær
því stig fyrir fyrstu spurningu.
2. í hvaða sýslu er Bessastaða-
hreppur?
Báðir þátttakendur héldu hrepp-
Benedikt kom þessu ekki fyrir
sig. Guðni gat grafið það úr hug-
skoti sínu - og fékk eitt stig enn.
Staðan íjögur gegn núll fyrir
Guðna.
9. Hvað eiga þeir Boris Christoff og
Ævar Kvaran sameiginlegt?
Báðir nefndu söng ellegar sviðs-
list mannanna. En dómarar höfðu
annað í huga. Hvorugur fékk stig.
10. Einn hreppur á landinu skiptist
í tvennt þannig að hlutar hans
• eiga hvergi land saman. Þetta
eru:
a. BúðahreppuráSnæfellsnesi.
b. Eiðahreppur í S.-Múlasýslu.
c. Skarðshreppur í Skagafjarðar-
sýslu.
d. Tjörneshreppur í S-Þingeyjar-
sýslu.
Guðni giskaði á Búðahrepp og
fær núll fyrir. En Benedikt náði sér
í sitt eina stig.
Urslit: Guðni Guðmundsson rekt-
or Menntaskólans í Reykjavík fékk
fjögur stig. Benedikt Sigurðarson
skólastjóri Barnaskóla Akureyrar
fékk eitt stig og er úr keppninni.
Guðni tekur því væntanlega þátt í
undanúrslitum í júlímánuði.
Næstu tveir keppendur eru þeir
Vilhjálmur Einarsson skólameist-
ari á Egilsstöðum og Kristján Bersi
Ólafsson meistari í Flensborg,
Hafnarfirði.
jbSuiqsbjjSoi JiQBq njo jioc[ '6
iQæjjho| 2o iQæjjBujg '8
uosbaSSájx ’i
■jsipunj ii[5{8 uu8 Jnjaq unjj 9
XsfSMajapEj -g
uqoqjagBa -\
(sjbui -\\ [i; -sap
'9 ‘0S6I - 6161) uosBiu[Bf[ upp g
n[s/vSJBSQfy[ -g
(6081
sjbui gg) jnSupq ‘i(qijcJ ABjsnQ j