Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
zu
Knattspyma unglinga
IR-ingar
komu á
óvart
- náðu jöfnu gegn Fram
ÍR-ingar komu heldur betur á óvart
þegar þeir gerðu jafntefli við Fram í
3. flokki á þriðjudagskvöld. Framarar.
sem voru álitnir mun sigurstranglegri,
áttu í miklum vandræðum með bar-
áttuglaða iR-inga og þegar upp var
staðið máttu Framarar þakka fyrir
2-2, jafntefli. Fyrir skemmstu léku
þessi lið saman í Reykjavíkurmótinu
og þá sigruðu Framarar 5-0 svo það
var kannski ekki svo skrýtið að Fram-
arar komu nokkuð sigurvissir til leiks.
ÍR-ingar mættu samt í leikinn með
öðm hugarfari en að tapa og komu
Fram í opna skjöldu strax í byrjun
með faliegu marki. Vilhjálmur Valdi-
marsson skoraði þá með glæsilegu
skoti sem hafnaði beint í vinkilinn á
marki Fram. Það var eins og köldu
vatni hefði verið skvett framan í leik-
menn Fram því það tók þá allnokkra
stund að átta sig á þessari ótrúlegu
byijun. Framarar náðu þó undirtök-
unum á vellinum og um miðjan fyrri
Fyrra mark Fram í uppsiglingu. Anton Markússon þrumar knettinum í átt að marki ÍR og skömmu síðar lá boltinn i netinu.
hálfleikinn tókst þeim að jafna með
laglegu marki Antons Markússonar.
Það sem eftir var hálfleiksins sóttu
Framarar meira en tókst ekki að bæta
við.
ÍR-ingar mættu frískir til leiks í síð-
ari hálfleik og með mikilli seiglu og
baráttu náðu þeir forystunni á nýjan
leik. Pálmi Guðmundsson lék
skemmtilega á vamarmenn Fram og
skoraði síðan af stuttu færi án þess
að markvörður Framara kæmi vöm-
um við. ÍR-ingar fögnuðu gífurlega og
reyndu allt til að halda fengnum hlut.
Sókn Framara þyngdist verulega síð-
ustu mínútumar og bar loks árangur
5 mínútur fyrir leikslok þegai' Rík-
harður Daðason skoraði með góðu
skoti. Bæði lið fengu færi á lokamínút-
unum en fleiri urðu mörkin ekki.
Lið ÍR á hrós skilið fyrir baráttu og
dugnað og allir leikmenn liðsins lögðu
sig fram af öllum mætti og uppskáru
laun erfiðisins. Athygli vakti Pálmi
DV-mynd Þorsteinn Auðólfur
Guðmundsson, en hann sýndi mjög
góða boltameðferð og barðist sérstak-
lega vel á framlínunni. Framarar hafa
á sterku liði að skipa og geta þeir mun
meira en í þessum leik. Framlína liðs-
ins er mjög skæð en besti maður liðsins
að þessu sinni var Anton Markússon,
sonur Markúsar Arnar Antonssonar
útvarpsstjóra, en hann er mjög sterkur
og baráttuglaður leikmaður sem á ör-
ugglega eftir að láta að sér kveða í
nánustu framtíð. -RR
Skoski þjálfarinn lan Fleming (t.v.) sést hér gefa ungum leikmönnum góð ráð en hann er þjálfari i knatt-
spyrnuskóla FH. DV-mynd Þorstelnn Auðólfur
Grasið hefur mikið að segja
Litið inn í knattspyrnuskóla FH
Blaðamaður DV brá sér í stutta
heimsókn í knattspymuskóla FH á
dögunum og var margt um manninn
á nýja grasæfingasvæðinu í Kapla-
krika. Hátt í 50 krakkar, strákar og
stelpur, voru þar á fullri ferð með
eða á eftir boltanum undir leiðsögn
þriggja þjálfara, þeirra Magnúsar
Pálssonar, Ians Fleming og Hlyns
Eiríkssonar en þeir leika allir með
1. deildar liði FH.
„Takmarkið er að hafa æfingamar
sem skemmtilegastar þannig að
krakkarnir hafi virkilega gaman af
og þau láta það strax í ljós ef ein-
hver æfingin er leiðinleg eða of erfið.
Þá reynum við að hafa fjölbreytni í
þessu með því að láta krakkana fara
í ýmiss konar leiki og einnig er keppt
við aðra skóla. Það að leyfa þeim
að vera á grasinu hefúr mikið að
segja og hefur aukið aðsóknina
verulega," sagði Magnús Pálsson í
stuttu spjalli.
Skotinn Ian Fleming var að leið-
beina markmönnum framtíðarinnar
þegar blaðamaður kom á vettvang.
„Það er mikilvægt að krakkamir
læri undirstöðuatriðin strax f byrj-
un. Við reynum því að kenna þeim
grundvallaratriðin eins vel og hægt
er,“ sagði Fleming og hélt síðan
áfram að sýna markvörðunum
hvemig verja ætti markið.
-RR
Gerum okkur góðar
vonir í Tommamótinu
Þeir Sigurjón Sigurðarson og Lár-
us Jóhannesson, leikmenn 6. flokks
FH, voru teknir í örstutt spjall á
miðri æfingu. „Við gerum okkur von-
ir um góðan árangur í sumar og
stefnum að sjálfsögðu á sigur í
Tommamótinu og Pollamótinu. Við
spilum báðir á miðjunni og mórallinn
í liðinu er góður og liðið er þræl-
sterkt. Við höldum mikið upp á
Maradona og Michael Platini og
Bryan Robson er einng frábær leik-
maður,“ sögðu þeir félagar að lokum.
-RR
Franvtíðarmarkmenn
Það var nóg að gera hjá markmönn-
unum í knattspymuskólanum en þeir
Pálmi Guðmundsson og Brandur Sig-
fússon gáfu sér samt tíma í stutt viðtal.
Þeir félagar voru sammála um að það
væri frábærlega gaman í knattspymu-
skólanum og að þeir lærðu margt nýtt
sem ætti eftir að koma þeim að góðum
notum. „Ég er búinn að æfa mark í 4
mánuði og spilaði tvo fyrstu leikina i
Islandsmótinu með 5 flokki gegn KR
og ÍA. Það er mjög gaman að vera í
marki þótt ábyrgðin sé mikil,“ sagði
Brandur. Félagi hans, Pálmi, bætti
við, „Það verður gaman næsta ár að
spila í Islandsmótinu en hjá okkur í
6. flokki eru ekki eins margir leikir.
Stóra stundin hjá okkur er Tomma-
mótið og Pollamótið og ég vona að
við stöndum okkur vel þar.“ Belgíski
markvörðurinn, Jean Marie Pfaff, var
í miklu uppáhaldi hjá þeim báðum og
þeir sögðu hann vera besta markvörð
í heimi.
-RR
r t *
sMi%
íiSs
Markmenn framtíðarinnar hjá FH. Standandi fyrir aftan eru þeir Pálmi Guð-
mundsson (t.v.) og Brandur Sigfússon. DV-mynd Þorsteinn Auðólfur
Stórkostleg tilþrif! Pálmi Guðmundsson sést hér fljúga í loftinu á eftir boltan-
um og nær að verja glæsilega. DV-mynd Þorsteinn Auðólfur