Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Side 32
32
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987.
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf-
astdæmi sunnudaginn 14. júní 1987.
Árbæjarprestakall
^Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11.00.
árdegis. Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinssson.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Guðsþjónusta kl. 11 í Bústaðakirkju. (Ath.
breyttan messustað.) Organisti Daníel
Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. (Ath. breyttan messu-
tíma.) Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli
Jónasson messar. Sóknarnefndin.
bómkirkjan
Kl. 11. Minningarguðsþjónusta um
drukknaða sjómenn. Dómkórinn syngur.
Marteinn H. Friðriksson leikur á orgelið.
Sjómenn flytja bænir og ritningartexta.
Sr. Þórir Stephensen. 17. júní. Kl. 11.15.
Þjóðhátíðarmessa, Prestur sr. Frank M.
Halldórsson. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson. Einsöng-
ur Sólrún Bragadóttir.
Landakotsspítali
Messa á Landskotsspítala kl. 12.30. Organ-
leikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir
Stephensen.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja
tGuðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Hreinn Hjartar-
son.
Grensáskirkja
Messa kl. 11. Altarisganga. Guðlaug Helga
Ásgeirsdóttirguðfræðinemi prédikar. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Hallgrímskirkja.
Laugardagur 12. júní. Bachtónleikar kl.
17. Sunnudagur. Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjudagur. Fyrirbæna-
messa kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn
Messa kl. 10. Sr, Karl Sigurbjömsson.
Háteigskirkja
Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson.
Kópavogskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Pálsson.
Neskirkja
Messa kl. 11. Einsöngur Kristján Elís Jón-
asson. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Miðvikudagur. Fyrirbænamessa kl. 18.20.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Langholtskirkja
Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Pjetur Maack. Órganisti
Jón Stefánsson. Sóknarnefndin.
Seljasókn
Guðsþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 11
árdegis. Sóknarprestur.
Þingvallakirkja
Fermingarguðsþjónusta á sunnudag kl. 14.
Fermingarbam: Jóna Elín Gunnarsdóttir,
Fellsenda. Organleikari Einar Sigurðsson.
Sóknarprestur.
Grunnskólamót
stúlkna í skák
Grunnskólamót stúlkna 1987 var haldið
25. maí sl. í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Upphaflega skráðu 9 sveitir
sig til leiks en aðeins 6 sveitir mættu.
Teflt var á 4 borðum og var hart barist
þar til yfir lauk. Úrslit urðu þau að
Hvassaleitisskóli sigraði, hlaut 16 vinn-
Seltjarnarneskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Eyrarbakkakirkja
Messa kl. 10.30. Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja
Messa kl. 14. Sóknarprestur.
Keflavíkurkirkja
Sjómannadagurinn: Sameiginleg guðs-
þjónusta Keflvíkinga og Njarðvíkinga kl.
11. Jón Sæmundsson, fyrrverandi skip-
stjóri, flytur hátíðarræðu. Kór Njarðvík-
ursóknar syngur. Organisti. Oddný
Þorsteinsdóttir. Sr. Ólafur Oddur Jónsson.
Sýningar
Ljósmyndasýning í FÍM saln-
um.
í dag, 13. júní. opnar Björgvin Pálsson ljós-
myndasýningu i FÍM salnum Garðastræti.
Á sýningunni verða einungis myndir unn-
ar með Gum bícrómat tækni á vatnslita-
pappír. Fuglar eru flest mótívin en einnig
eru nokkur portret og kyrralífsmyndir,
alls 41 mynd. Mvndirnar eru gérðar á síð-
ustu fjórum árum og hafa margar þeirra
verið sýndar áður í Evrópu. en aldrei hér
á landi. Sýningin í Garðastræti 6 mun
standa til sunnudagsins 28. júní.
Kvennakór Siglufjarðar í
Þýskalandsferð
Þann 21. þ.m. heldur kvennakór Siglu-
fjarðar til Þýskalands, nánar tiltekið til
VVheye leeste og Riede, sem eru smábæir
í úthverfum Bremen. Kórinn fer í boði
kóra í þessum bæjum og mun halda tvenna
tónleika ásamt þeim þann 26. og 27. júní.
Stjórnandi þessara kóra er frú Silke
Óskarsson sem er þýsk og gift Hlyni
Óskarssyni frá Siglufirði. Silke er söng-
kennari og stofnaði kvennakór Siglufjarð-
ar fyrir 20 árum. í kórnum eru 22 konur,
en alls eru um 30 manns sem fara í þessa
ferð.
inga, í öðru sæti varð Digranesskóli með
12,5 vinninga og í þriðja sæti Snælands-
skóli með ellefu vinninga. Sigursveitirnar
fengu verðlaunapeninga og fyrir bestan
árangur á hverju borði voru veitt bóka-
verðlaun. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt
mót er haldið og líklega fjölmennasta
stúlknamót sem haldið hefur verið hér á
landi.
Tapað - Fundið
Hver skildi eftir gleraugu í
Ikornanum?
Nýleg herragleraugu í dökkri umgjörð og
vönduðu bláu hulstri, merktu Linsunni,
eru í óskilum í íkornanum, Austurstræti
24, sími 14580.
Rocky týndur
Tapast hefur bröndóttur fressköttur. að
nafni Rocky. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 73612 eða 33529.
Tilkyimingar
Umferðarfræðsla fyrir 5 og 6
ára börn
fer nú fram á vegum lögreglu, umferða-
nefnda. sveitarfélaga og Umferðarráðs.
Börnin eru boðuð bréflega og fer kennslan
fram í grunnskólum. Nýlokið er kennslu
í Kópavogi. en í Reykjavík stendur um-
ferðarfræðslan nú yfir og verður kennt í
20 skólum. Þar lýkur kennslu ekki fyrr
en 1. júlí. Mánudaginn 15. júní hefst þessi
fræðsla í Hafnarfírði. Garðabæ, Seltjarn-
arnesi og Mosfellssveit. í ágústmánuði
verður farið til Akraness og í Borgarnes,
einnig á Selfoss og í nágrenni. Endað verð-
ur í Vestmannaeyjum. Umsjón með
fræðslunni hefur María Finnsdóttirfóstra.
Fjölmennt hefur verið á þeim námskeiðum
sem haldin hafa verið og börnin full áhuga.
Iðjuþjálfafélag íslands
Dagana 25.-27. maí sl. gekkst Iðjuþjálfafé-
lag íslands fyrir námskeiði fyrir iðjuþjálfa.
Námskeiðið fjailaði um kenningar innan
iðjuþjálfunar og bar yfirskriftina „Inte-
grating theory into practice: A workshop
to enhance you clinical skills". Leiðbein-
andi á námskeiðinu var Deborah R.
Labovitz sem er námsbrautarstjóri og pró-
fessor við námsbraut iðjuþjálfa við New
York háskóla. Islenskir iðjuþjálfar eru
menntaðir erlendis þar sem námsbraut í
iðjuþjálfun hefur ekki enn verið stofnuð
við H.í. Möguleikar á viðbótarmenntun í
faginu eru því engir hér á landi og því
hefur I.í. það á stefnuskrá sinni að fá er-
lenda fyrirlesara a.m.k. einu sinni á ári.
Námskeiðið var haldið á Reykjalundi. 30
iðjuþjálfar sóttu námskeiðið en það er 72%
iðjuþjálfa á íslandi.
Migrensamtökin, Suðurgötu
14
Skrifstofan er opin á mánudögum frá kl.
17-19, sími 623620.
Dr. Björn Dagbjartsson ráðinn
framkvæmdastjóri
Þróunarsamvinnustofnunar
Islands
Dr. Björn' Dagbjartsson verkfræðingur
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þró-
unarsamvinnustofnunar íslands í stað
Þórs Guðmundssonar viðskiptafræðings
sem hættir að eigin ósk eftir 5 ára starf
hjá stofnuninni. Björn er fimmtugur að
aldri. Hann lauk prófi í efnaverkfræði frá
Tækniháskólanum í Stuttgart árið 1964
og doktorsprófi frá Rutgers háskólanum
1971. Hann varð sérfræðingur hjá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins árið 1972 og
forstjóri þeirrar stofnunar var hann frá
árinu 1974-1984 er hann varð alþingismað-
ur. Árið 1981 var hann í leyfi frá störfum í
4 mánuði, þegar hann var ráðgjafi FAO
við þróunarhjálp á Maldive- eyjum í Suð-
austur-Asíu.
Ályktun stofnfundar
íbúasamtaka
nýja miðbæjarins,
haldinn 2. júní 1987. Samvinna við Borgar-
yfirvöld um umferðarskipulag og lokafrá-
gang hverfisins skal vera forgangsverkefni
samtakanna á næsta starfsári. Þar var
aðaláhersla lögð á:
1. Að borgaryfirvöld og samtökin hafi með
sér samráð um umferð gangandi og akandi
í hverfinu.
2. Að skýr skil skuli vera á milli íbúa og
verslunarhluta hverfisins hvað varðar
umferð.
3. Að benda á að hér gefst borgaryfirvöld-
um og borgarskipulagi tækifæri til að sýna
fram á að íbúðarhverfi megi skipuleggja
við hlið verslunarhverfis þannig að íbúða-
byggð sé bæði vistleg og örugg.
4. Að hvetja lóðaeigendur í hverfmu og
borgaryfirvöld til að vinda bráðan bug að
frágangi lóða og gangstétta.
Gististaðurinn Hof opnar
Þann 1. maí sl. jókst gistirými í Iíeykjavík
um 30 rúm þegar gististaðurinn Hof opn-
aði í Skipholti 21. í því húsnæði var
starfrækt Hótel Rauða kross Islands um
árabil. Á Hofi eru 20 rúmgóð herbergi sem
henta vel ferðamönnum og öðrum sem
gista borgina. Boðið er upp á léttar veit-
ingar allan sólarhringinn og íjölbreytt
morgunverðarhlaðborð sem opið er öllum.
í notalegri setustofu er sjónvarp og þar
liggja dagblöðin frammi. Gestamótttakan
er opin allan sólarhringinn og þar er veitt
öll almenn upplýsingaþjónusta fyrir gest-
ina. Hof er rekið af fjórum konum sem
allar hafa langan starfsferil að baki í hót-
elstörfum. Þær eru Aðalbjörg Kristjáns-
dóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Ásrún Lára
Jóhannsdóttir og Jónína Ingvadóttir.
Fósturskóla íslands slitið
Fósturskóla Islands var slitið 22. maí sl. í
Bústaðakirkju. Skólastjóri, Gyða Jó-
hannsdóttir, las yfirlit yfir starfsemi
skólans á sl. skólaári og ræddi ýmis fram-
tíðarverkefni. I upphafi skólaárs voru 168
nemendur við nám í skólanum. Skiptust
nemendur í 8 bekkjardeildir. Þrjár bekkj-
ardeildir voru á fyrsta námsári, tvær á
öðru námsári og þrjár á þriðja námsári.
Víðtæk endurmenntun fór fram sl. vetur
fyrir starfandi fóstrur. Skólastjóri greindi
jafnframt frá því að á næsta skólaári verð-
ur starfrækt eins árs framhaldsdeild.
Námið er einkum ætlað fóstrum með
starfsreynslu er hyggja á stjórnunar-, ráð-
gjafar- og umsjónarstörf á dagvistunar-
heimilum. Nemendur geta jafnframt valið
um nokkra sérhæfingu svo sem starfsemi
skóladagheimila - skapandi starf dagvist-
unarheimila börn á sjúkrahúsi - börn
með sérþarfir. Burtfararprófi luku 67 nem-
endur.
Skólaslit Fjölbrautaskólans í
Breiðholti
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti var slitið
22. maí sl. í Bústaðakirkju. 1 yfirlitsræðu
skólameistara, Guðmundar Sveinssonar.
kom fram að 1258 nemendur hafa stundað
nám í dagskóla F.B. og 987 þeirra lokið
prófum, 226 nemendur luku lokaprófi af
einhverri námsbraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti og er þá bæði um nemendur í
dagskólum og öldungadeildum að ræða.
Bestum árangri á stúdentsprófi náði Ari
Jónasson, eðlisfræðibraut, með 136 eining-
ar, 383 stig, og lauk hann náminu á þremur
árum. Guðmundur Steinar Guðmundsson
náði næstbestum árangri á stúdentsprófi
og fengu þeir báðir fjölda verðlauna fyrir
námsárangur sinn. I kvöldskóla F.B.
stunduðu 902 nemendur nám á vorönn og
gengu 780 þeirra undir annarpróf í einum
eða fleiri námsáföngum. I kvöldskólan.um
náði bestum árangri á stúdentsprófi
Kristjana Valdimarsdóttir og almennu
verslunarprófi Hjördís Árnadóttir.
Ferðalög
Lífríki Þingvallavatns
Náttúruskoðunarferð
Hið íslenska náttúrufræðifélag fer x nátt-
úruskoðunarferð að Þingvallavatni
sunnudaginn 14. júní. Farið verður frá
Umferðamiðstöðinni að sunnanverðu kl.
10. Komið verður til baka milli kl. 18-19.
Allir eru velkomnir hvort sem þeir eru
félagsmenn eða ekki. Sigurður Snorrason
líffræðingur og samstarfsmenn hans
kynna rannsóknir sínar á Þingvallavatni.
Rétt er að benda fólki á að hafa með sér
stígvél.
Ýmislegt
S tj ómarskrárm áliö
hugleiöinjiu am tilgiog f*J«n*ku
stjórairskrfrúuiir, rjóromtnþróuo ifðustu
ir»ta£» og huguaíc^a tijórvtnkcíríxeyúoftr
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Nýtt rannsóknarrit Stofnunar
Jóns Þorlákssonar
2. júní sl. kom út fyrsta rannsóknarrit
Stofnunar Jóns Þorlákssonar á þessu ári.
Það ber heitið „Stjórnarskrármálið“ og
er samið af dr. Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni stjórnmálafræðingi, fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar. Ritið
skiptist í íjóra kafla. í fyrsta kaflanum er
rætt um upphaflegan tilgang íslensku
stjórnarskrárinnar. í öðrum kaflanum er
því haldið fram að því lýðræði, sem óbund-
ið sé af föstum reglum, sé að ýmsu leyti
ábótavant. í þriðja kafla eru tillögur
stjórnarskrárnefndar frá 1983 gagnrýndar
þar sem þar sé vikið frá hinum upphaflega
anda stjórnarskrárinnar yfir á brautir fé-
lagshyggju. í íjórða kafla gerir höfundur
nokkrar tillögur um stjórnarskrárbreyt-
ingar.
Vogaver
opið
í DV í gær var birtur listi um
matvöruverslanir sem hafa opið á
laugardögum. Þar vantaði versl-
unina Vogaver, Gnoðarvogi 44-46,
en þar er opið á laugardögum kl.
10-16.
Lokkablik flytur sig um set
Hárgreiðslustofan Lokkablik flutti nýlega
í nýtt og stærra húsnæði í verslunarmið-
stöðinni að Leirubakka 36 í Breiðholti þar
sem áður var hárgreiðslustofan Aþena.
Eigandi Lokkabliks er Dollý Grétarsdóttir
sem rekið hefur stofuna að Miklubraut 68
undanfarin ár og þar áður í Nóatúni 4.
Dollý er meðlimur í Pivot Point klúbbnum,
sem er alþjóðlegt kennslukerfí í háriðn-
aði. Með Dolly starfa 3 stúlkur og bjóða
þær upp á alla alhliða hársnyrtingú fyrir
dömur, herra og börn og einnig allar nýj-
ungar frá Pivot Point hverju sinni. Opið
er í Lokkabliki mánudaga til föstudaga
kl. 9 19 en lokað á laugardögum í sumar.
Síminn er 72053.