Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1987, Síða 36
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987. Mikil leit að plastbát: Maður talinn af í gær fór fram mikil leit að litlum plastbát með einum manni um borð. Báturinn, sem er með utanborðsmót- or, fór frá Grindavík um hádegi á fimmtudag og þegar ekkert hafði spurst til hans í gærmorgun var hafin viðamikil leit að bátnum. Þyrla Landhelgisgæslunnar, Herkú- les-vél frá Vamarliðinu, björgunar- bátar frá Grindavík og Sandgerði og fjöldi fiskibáta tóku þátt í leitinni. Báturinn fannst síðan mannlaus á reki 26 sjómílur suðaustur af Hóps- nesi á fimmta tímanum í gær. Um borð voru legufæri og mótorinn lá í botni bátsins svo ljóst er að honum hvoldi ekki. Talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð. Vpður var gott á þessum slóðum, hæg norðan- og norðvestanátt um nóttina en hægviðri i gær. -sme Skagafjörður: Hlaða og fjós brunnu til kaldra kola Að bænum Villinganesi í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði kom upp eldur í hlöðu og fjósi um hádegis- bilið í gær. Það tókst að bjarga kúnum úr fjósinu en bæði hlaðan og fjósið brunnu til kaldra kola. Slökkvilið komu bæði frá Varma- hlíð og Sauðárkróki en ekki varð við neitt ráðið. -sme Akureyri: Ók út í Glerá Það óhapp varð á Akureyri laust fyrir klukkan sautján í gær að bif- reið var ekið út i Glerá. Bifreiðin var að koma Hlíðarbraut í vesturátt og virðist ökumaðurinn ekki hafa náð beygjunni inn á brúna sem ligg- ur yfir Glerána. Ökumaðurinn var fluttur á Fjórð- ungssjúkrahúsið é Akureyri en hann mun ekki vera alvarlega slasaður. Bifreiðin er talin ónýt. -sme LOKI Af hverju ekki að hafa ráðhúsið undir Tjörninni? Albert Guðmundsson, þingflokksformaður Borgaraflokksins, kyssir fyrsta langafabarnið á fæðingardeild Landspitalans í gær. Móðirin, Jóhanna bóra, dóttir Helenu, heldur á nýfæddum syni sínum og Ólafs Haraldssonar. Amman og langamman í föðurætt Jóhönnu eru einnig á myndinni. DV-mynd KAE Dæmt í morðmáli: Hlaut fimm ára fangelsisdóm Hæstiréttur dæmdi i gær Magnús Friðrik Óskarsson til fimm ára fang- elsisvistar fyrir að hafa orðið valdur að dauða Gunnhildar Gunnarsdóttur. Þessi dómur er samhljóma dómi hér- aðsréttar sem féll 31. október 1986. Ákærða ber einnig að greiða allan sakarkostnað af málinu. Gæsluvarð- haldsvist Magnúsar Friðriks kemur til frádráttar en hann hefur setið í gæslu- varðhaldi óslitið frá 7. maí 1986. í dómi Hæstaréttar segir meðal ann- ars: „Þykir varlegast að meta afleið- ingar árásinnar ákærða til sakar sem gáleysisverk." -sme Svona lítur ráðhús Margrétar Harð- ardóttur og Steve Christers út sem kemur til með að prýða borgina í framtíðinni. Ráðhús í Reykjavík: TVeir fengu 2 milljónir Fyrstu verðlauh, að upphæð tvær milljónir og níutíu þúsund, hafa nú verið veitt fyrir hugmynd að byggingu ráðhúss við Tjömina í Reykjavík. Þau hlutu Margrét Harðardóttir og Sveve Christer, bæði arkitektar. Önnur verðlaun komu í hlut þeirra Guðmundar Jónssonar og Sigurðar Gústafesonar með aðstoð Jan Tore Cristoffersen og Per Christian Holter, að upphæð ein milljón og 36 þúsund. Alls voru 8 hugmyndir sem fendu pen- ingaverðlaun. -GKR Veðrið á sunnudag og mánudag: Hlýjast fyrir austan Veðurguðimir virðast ætla að haldast í sólskinsskapinu enn um sinn. Hæðarhryggur er austur af landinu en grunnt lægðardrag á Grænlandshafi. Á sunnudag og mánudag em horfur á fremui' hægri vestanátt og skýjað verður sums staðar. Þokusúld verðurvestanlands en bjart veður austantil á landinu. Hiti verður 8-16 stig og þá hlýjast fyrir austan. Ríkissjóður hefur é þessu ári þurft að kosta yfir einum milljarði króna til landbúnaðar umfram heimildir í fjárlögum. Þessar nýju upplýsingar nota alþýðuflokks- og framsóknar- menn til að þrýsta enn frekar á sjálfstæðismenn til að fallast á að- gerðir til að draga úr ríkissjóðshall- anum. Sjálfstæðismenn telja þrátt fyrir þessar tölur að hallinn á fjárlögum verði ekki meiri en áætlun Þjóð- hagsstofiiunar frá því í maí bendi tiL Hagfræðinganefhd Jóns Sigurðs- sonar, Bolla Héðinssonar og Geirs H. Haarde klofhaði í gær um for- sendur þeirra dæma sem Þjóðhags- stofhun og Seðlabanki munu um helgina reikna hvaða áhrif hafi á efnahagslíf. Jón og Bolli, fúlltrúar Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks, vom sammála um þá forsendu að tekjuöfl- un verði 2,5 milljarðar fram að áramótum og um leiðir til að draga úr þenslu. Geir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, gerði ráð fyrir smávægilegum að- gerðum vegna ríkissjóðshalla en lagði meiri áherslu á aðgerðir gegn þenslu í efnahagslífinu. Þó er talið að vænta megi einhverra tilslakana frá Sjálfstæðisflokki í skattheim- tunni. -KMU/ES Hagfræðinganefndin klofnaði: ■ ■■■■■ jK Milljarður um ÆM jtumwm Æ- mm í landbúnað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.