Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1987, Síða 15
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987.
15
Kristján Bersi Ólafsson, skóla-
meistari í Flensborg, fjölbrauta-
skólanum í Hafnarfirði, mætir í dag
Smára Geirssyni, skólastjóra Verk-
menntaskólans í Neskaupstað.
Eins og um síðustu helgi eru spurn-
ingar þær, sem lagðar eru fyrir hina
lærðu menn, engar venjulegar
grunnskólaspurningar og raunar
hætt við að bestu nemeridur fram-
haldsskólanna þurfi að hugsa sig
rækilega um ætli þeir að svara
fleiri en einni eða tveimur spurn-
ingum rétt.
Kristján Bersi taldi það ekki saka
þótt skólameistarar þyrftu að beita
gráu sellunum - en tók fram, eins
og reyndar fleiri skólameistarar
sem við höfum spjallað við - að
hann væri óneitanlega harður í
horn að taka, þessi Baldur Símon-
arson, sem snýr saman hvert próf
ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Við sögðum frá því í síðasta blaði
að Kristján Bersi myndi mæta Vil-
hjálmi Einarssyni, meistaranum á
Egilsstöðum, í þessu tölublaði. Af
því gat hins vegar ekki orðið þar
eð Vilhjálmur forðaði sér úr landi.
Við gómum hann síðar.
Sérgrein David Owen
Vitanlega er svo um margar
spurningar í keppni eins og þessari
að það rná flokkast undir heppni
hvort keppandi getur svarað rétt.
Fyrsta spurningin, sem hér kemur
á eftir, er til dæmis af því tagi. Við
skulum þá vinda okkur í leikinn:
1) David Owen, foringi breska
jafnaðarmannaflokksins, er
læknir að mennt; en hvaða sér-
grein lagði hann fyrir sig?
Hvorugur keppenda gat svarað
þessari spurningu rétt. Smári
giskaði á heimilislækningar -
og verður það að teljast góð
ágiskun því kannski fengi David
Owen fleiri atkvæði ef hann
hefði heimsótt sjúklinga sína og
stofnað til persónulegra kynna.
2) Hvað heitir söngvarinn sem
varð númer eitt í nýafstaðinni
söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva?
Smári hafði þetta á hreinu. En
nafn söngvarans hafði hins veg-
ar farið framhjá Kristjáni Bersa.
Reyndar grunar okkur að
Kristján hafi munað eftir nafni
mannsins - en það hafi komið
honum á óvart að spurt hafi
verið um svo alþýðlega keppni.
3) Old Faithful nefnist goshver í
Yellowstone-þjóðgarðinum í
USA; hvenær hætti hann að
gjósa?
Hvorugur keppenda hafði þetta
rétt en báðir giskuðu á ártöl
ekki fjarri réttu lagi.
4) Hvers vegna var hverinn nefnd-
ur Old Faithful?
Það vissu þeir Kristján Bersi og
Smári með vissu og fengu stig.
5) Á einum stað í Evrópu lifa villt-
ir apar; hvar?
Báðir fengu stig fyrir þessa
spurningu en apar þessir munu
vera hvítir á lit - og hafast við
á kletti við Miðjarðarhaf.
6) Hvar er hafnarborgin Tema?
Um það hafði Kristján Bersi
ekki hugmynd. En Smári hafði
nýverið flett í sjómannariti þar
sem borgarinnar var eitthvað
getið. Stundum er heppnin
manni hliðholl.
7) Hvað heitir höfuðborgin í New
York ríki?
Það mundi Kristján Bersi rétt.
En Smári giskaði út í bláinn.
8) Hvaða iðn lærði Stefán íslandi?
Hvorugur hafði af því frétt.
Kristján giskaði á hattasaum -
sem er raunar ekki svo fjarri
lagi - en rangt þó.
9) NefnduþrjádaliinnafFnjóska-
dal.
Hvorugur keppenda er að norð-
an og því varð fátt um svör.
10) Tilsitter-ostur er kenndur við
borgina Tilsit sem er nú í:
a) Finnlandi
b) Póllandi
c) Tékkóslóvakíu
d) Rússlandi
Báðir héldu Tilsit vera í Tékkósló-
vakiu - sem er rangt.
Úrslitin urðu því þau að Smári
Geirsson í Neskaupstað bar sigur-
orð af Kristjáni Bersa í Hafnarfirði.
Smári krækti í fjóra vinninga en
Kristján Bersi þrjá.
Dómarinn lét þau orð falla um
þetta próf að það teldist góð
frammistaða að ná þremur til fimm
réttum af þessum tíu spurningum.
Meistararnir geta því báðir vel við
unað.
Um síðustu helgi sigraði Guðni
Guðmundsson, rektor MR, með
fjórum vinningum. Hann og Smári
taka því þátt í undanúrslitum síðar
i sumar.
Rétt svör:
•(P (01
jn|BpB]]BAjnquiix So
jn[BpBi]B[fi ‘jn[BpjBjXuisqi0[a (6
UglBJBJJBy (8
ÁUBqiy (i
nuBqo i (9
JBRBJqjO ý (6
ijsajj JBpunjsnqqniq b b30]
-n]39J ubuibs uinjB sobS uuBjq (p
6961 (8
UBhoq Auuqop (g
BmgpqnfsBSnBj, (]
Vorum að fá aukasendingu
af hinum sívinsæla
Ford Fiesta
k,338.000.-
Opið virka daga kl. 9-18
laugardaga kl. 10-17
TIL AFGREIÐSLU STRAX
2
Framtíð
VIDSKEIFUNA
FORD UMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON HF. S: 685100 - 689633
Verð frá