Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987.
r
VEGAGERÐIN
Útboð
Drangsnesvegur 1987
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 1,5 km, bergskeringar
5.000 m3, fyllingar 50.000 m3 og burðarlag 5.300
m3.
Verklok eru 1. ágúst 1988 en hluta verksins skal
lokið fyrir 15. nóvember 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
14. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14.00 þann 27. júlí 1987.
Vegamálastjóri
Verkfræðingar -
tæknifræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raf-
magnsverkfræðing eða tæknifræðing til starfa við
áætlanagerð við raforkuvirki. Kunnátta í Fortran-forrit-
un æskileg.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og m.a. aðgang
að stóru tölvukerfi sem nota má við áætlanagerð.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
er ekki sérrit heldur fjölbreytt, víðlesið
heimilisrit og býður hagstæðasta aug-
lýsingaverð allra íslenskra tímarita.
VIKAN
AUGLÝSINGADEILD
Þverholti 11, sími 27022
F YRIRTÆKI -
ATVINNUREKENDUR!
VIKAN
Byggingarhappdrætti
Sjálfsbjargar
6. júlí 1987
Vinningaskrá:
Ibúð að eigin vali kr. 1.500.000
119860
Bifreið, hver v. á kr. 600.000.
6827 63187 112041 114456
Sólarlandaferðir, hver v. á kr. 50.000
3069 23694 60037 89342 97272
7051 24067 64408 90118 99726
9631 26110 65883 92438 99835
13844 37758 69768 92555 105566
19891 41720 83866 95233 106234
23256 46873 86669 96217 117538
Vöruúttekt, hver v. á kr. 40.000
5746 18684 31269 73147 102053
10266 18883 60041 96895 109153
14614 29571 70133 99518 112050
Sjálfsbjörg - landssambandfatlaðra
Hátúni 12 - Sími 29133
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
fýrir innlenda
og erlenda férðamenn
Húsrými fyrir upplýsingastarfsemi
fyrir ferðamenn í Reykjavík hefur
nú aldeilis verið margfaldað. Þessi
starfsemi var áður til húsa í gamla
turninum á Lækjartorgi sem er rétt
um 2,5 fermetrar að stærð. Nú hefur
verið opnuð glæsileg upplýsingamið-
stöð fyrir ferðamenn sem er 240
fermetrar að stærð.
Gamla turninum hefur verið lokað
og verður hann fluttur af torginu,
en að öðru leyti er óráðið um fram-
tíð hans.
Upplýsingamiðstöðin er til húsa í
Ingólfsstræti 5. Þar geta ferðamenn,
bæði erlendir og innlendir, fengið
hlutlausar upplýsingar um hvaðeina.
Skrifstofan er opin frá kl. 8 til 20
alla daga vikunnar. Meðal nýmæla,
sem þarna er bryddað upp á, er að
Búnaðarbankinn verður með af-
greiðslu þar sem hægt verður að fá
skipt erlendum gjaldeyri þegar aðrir
bankar eru lokaðir. Að þessari nýju
upplýsingamiðstöð standa Ferða-
málaráð ásamt með ferðamálasam-
tökum landsbyggðarinnar og
ferðamálanefnd Reykj avíkurborgar.
Miðstöð ferðamála
„í upplýsingamiðstöðinni eiga
ferðamenn að geta fengið allar hugs-
anlegar upplýsingar, um gönguleiðir,
hestaleigu, laus hótelherbergi og
hvað eina sem þeim kemur vel að
vita. Þetta er hins vegar alls ekki
ferðaskrifstofa og hér verður ekkert
selt, nema hugasnlega tekið á móti
staðfestingargjöidum fyrir gistipant-
anir,“ sagði Áslaug Alfreðsdóttir,
framkvæmdastjóri hinnar nýju og
glæsilegu upplýsingamiðstöðvar, í
samtali við DV.
Þarna verður jafnframt miðstöð
ferðamála fyrir landsbyggðina þar
sem ferðamálaráð landsbyggðarinn-
ar geta haft aðstöðu. Þar verða í
Gamli turninn, sem þjónað hefur sem upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
á Lækjartorgi um árabil, var merktur með alþjóðlegu merki upplýsingamið-
stöðva fyrir ferðamenn eins og sjá má yfir dyrunum. Turninum hefur nú
verið lokað og verður hann fjarlægður af torginu þótt enn sé óvíst um ör-
lög hans. Turninn er ekki nema 2,5 fermetrar að gólffleti og þykir víst ekki
uppfylla nútíma skilyrði um „vinnustað" þar sem nauðsynlegt er að hafa
salernisaðstöðu og afdrep fyrir starfsmennina. DV-myndir JAK
gangi myndbandasýningar allan
daginn. Ætlunin er að safna þarna
saman á einn stað öllum landkynn-
ingarmyndböndum sem út hafa verið
gefin. Hérna eru allir bæklingar sem
út eru gefnir á landinu, en þeir eru
allir á ensku. Hingað til hefur ekki
verið hugsað fyrir upplýsingum fyrir
íslendinga um þeirra eigið land,“
sagði Áslaug.
Hvert liggur
leiðin í sum-
arleyfinu?
Sigríður Guðmundsdóttir
ræstitæknir:
Ætli ég verði ekki þar sem ég er
vanalega, heima hjá mér. Ég hef
ekki farið neitt í sumarfríinu í
mörg ár, fór einu sinni kringum
land, nei ekki á hringveginum því
hann var ekki kominn þá. Mig
langar heldur ekki til útlanda og
hef aldrei þangað komið. Maður
saknar ekki þess sem maður þekkir
ekki.
Henrietta Gísladóttir, vinnur
í Landsbankanum:
Veit ekki alveg hvert verður
haldið en ég er ákveðin í að fara
eitthvað út í lok ágúst. Jú, ég hef
farið í ferðalög innanlands, fer
stundum í tjaldferðir um helgar.
Þúsundir íslendinga dvelja á sól-
arströndum og láta suðræna sól
baka sig. Aðrir láta sér nægja að
láta norræna sól baka sig, ferðast
um landið sitt eða dvelja „bara
heima við“. Margir nota sumar-
leyfið til þess að dytta að ýmsu
heima hjá sér og slappa af á kunn-
uglegum slóðum. ViA hittum
nokkrá vegfarendur í norrænni sól
á Lækjartorgi í vikunni.
DV-mynd JAK/-A.BJ.
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar:
Fer sennilega ekki neitt, verð
mest í landnámi Ingólfs. Skrepp
kannski norður í land.
Jörgen Ólason, starfsmaður
Isal:
Ég er búinn að vera viku í orlofs-
húsi við Svignaskarð í Borgarfirði.
Það var dásamlegt og sólskin alla
daga. Ég verð í fríi þennan mánuð,
kannski skellir maður sér í tvær
vikur til útlanda. Hver veit. Svo á
ég inni viku orlofsdvöl í sumarhúsi
starfsmannafélagsins í Brekku-
skógi seinast í mánuðinum.
Ólafía Pálmadóttir, vinnur í
Landsbankanum:
Ég er ekki ákveðin hvert ég fer.
En ég fæ sumarfrí seinast í ágúst
og langar þá til að komast eitthvað
út.